Morgunblaðið - 19.05.2003, Side 27
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 27
Heimsferðir bjóða þér nú síðustu sætin í sólina í maí og júní á hreint ótrú-
legu verði, en nú er sumarið komið á vinsælustu áfangastöðum Evrópu og
aldrei betra að njóta vinsælustu staðanna á fegursta tíma ársins.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Sólar-
tilboð
í maí og júní
frá kr. 19.950
með Heimsferðum
Benidorm
Verð frá kr. 29.962
28. maí. M.v. hjón með 2 börn, 2–11
ára, vikuferð, stökktutilboð. Ekki inni-
falið: Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Rimini
Verð frá kr. 29.962
27. maí og 10. júní. M.v. hjón með 2
börn, 2–11 ára, vikuferð, stökktutilboð.
Ekki innifalið: Ferðir til og frá flugvelli
erlendis kr. 2.800.
Mallorca
Verð frá kr. 39.962
9. júní. M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
vikuferð, stökktutilboð. Ekki innifalið:
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Costa del Sol
Verð frá kr. 39.962
21. og 28. maí. M.v. hjón með 2 börn,
2–11 ára, vikuferð, stökktutilboð. Ekki
innifalið: Ferðir til og frá flugvelli
erlendis kr. 1.800.
Prag
Verð frá kr. 19.950
23. maí. Flugsæti með sköttum, 2 fyrir 1
til Prag. Verð miðast við að 2 ferðist
saman.
Barcelona
Verð frá kr. 29.950
22. og 29. maí. Flugsæti með sköttum.
Tryggðu þér síðustu sætin í maí og júní
* Verð er staðgreiðsluverð. Almennt
verð er 5% hærra og miðast við ef
greiðsla hefur ekki borist frá
kortafyrirtæki fyrir brottför.
Sumarmarkaður í Bjarkarási
verður miðvikudaginn 21. maí kl.
16–19. Til sölu verða listmunir, með-
al annars úr leir og tré, úr Smiðjunni
og lífrænt ræktað grænmeti og sum-
arblóm úr gróðurhúsinu. Styrkt-
arfélag vangefinna rekur hæfing-
arstöðina Bjarkarás í Stjörnugróf 9.
50 ára afmælishátíð Gagnfræð-
ingar útskrifaðir frá Gagnfræða-
skóla Austurbæjar 1953 halda af-
mælishátíð í tilefni þess að þeir eiga
50 ára útskriftarafmæli. Hátíðin
verður haldin í Versölum, í húsi Iðn-
aðarmannafélagsins við Hallveig-
arstíg, föstudaginn 23. maí nk. og
hefst borðhald kl. 19. Mætum öll.
Nýjar lausnir fyrir verkfræðinga,
arkitekta og hönnuði er yfirskrift
kynningar á Precision-hönn-
unarvélum og gagnageymslulausn-
um frá Dell og EMC sem EJS, í
samvinnu við Dell og Snertil, sölu-
aðila Autodesk/AutoCAD á Íslandi,
efnir til á Grand hóteli á morgun,
miðvikudaginn 21. maí, kl. 9–13.
Meðal fyrirlesara verður James
McMahon, sérfræðingur frá Dell.
Kynntar verða Dell Precision-
vinnustöðvar, gagnageymslulausnir
og hugmyndafræði frá Dell og
EMC. Nánari upplýsingar og skrán-
ing eru á www.ejs.is/vidburdir.
Næring og nýrnabilun heitir erindi
Kolbrúnar Einarsdóttur næring-
arráðgjafa sem flutt verður á
fræðslufundi Félags nýrnasjúkra
miðvikudaginn 21. maí nk. í Hátúni
10b kl. 20.00. Í erindi Kolbrúnar
verður fjallað um mataræði nýrna-
sjúkra, og verður erindið flutt í
kaffiteríunni á 1. hæð.
Málstofa í ljósmóðurfræði verður
haldin laugardaginn 24. maí í stofu
103 í Eirbergi, Eiríksgötu 34. Mál-
stofan hefst kl. 13 og þar munu verð-
andi ljósmæður kynna lokaverkefni
sín til embættisprófs. Erindi flytja
Guðrún S. Ólafsdóttir, Inga Vala
Jónsdóttir, Rannveig B. Ragn-
arsdóttir, Málfríður S. Þórðardóttir,
Halla Björg Lárusdóttir, Kolbrún
Jónsdóttir, Anna Sigríður Vern-
harðsdóttir og Halla H. Harðar-
dóttir. Í lok málstofunnar verður
kynning á nýjum fræðsluvef um
ljósmóðurfræði, www.ljosmodir.is.
Á NÆSTUNNI
Fyrirlestur á vegum lagadeildar
HR verður á morgun, þriðjudaginn
20. maí, kl. 12–13. Tero Mustonen frá
tækniháskólanum í Tampere í Finn-
landi heldur fyrirlestur í Háskólanum
í Reykjavík um umhverfismál og lög-
gjöf á norðurslóðum frá sjónarhóli
frumbyggja. Tero Mustonen stýrir
verkefninu Snowchange. Snow-
change er samstarfsverkefni sem
m.a. snýr að því að safna og skjalfesta
athuganir frumbyggja (fyrst og
fremst Sama) á loftslagsbreytingum í
kringum norðurheimskautið.
Á MORGUN
BORIST hefur yfirlýsing frá Sam-
tökum verslunar og þjónustu, SVÞ,
sem hér er birt örlítið stytt:
„Samtök verslunar og þjónustu
telja mikilvægt að lækka smásölu-
verð matvæla á Íslandi. SVÞ beina
þeirri áskorun til stjórnmálamanna
að stuðla að því með því að standa við
kosningaloforðin um lækkun skatts á
matvæli. Auk þess að draga sem
fyrst úr vernd fyrir íslenskan land-
búnað í formi hárra gjalda á innflutt
matvæli, sem skekkja markaðinn og
eru í reynd tæknilegar markaðs-
hindranir og opinber neyslustýring.
Samtök verslunar og þjónustu
telja brýnt að það verð sem neytend-
ur greiða fyrir matvæli á Íslandi
lækki til samræmis við samkeppnis-
markaði í Evrópulöndum. Ef litið er
til virðisaukaskatts á matvæli þá er
skatturinn hér á landi verulega
hærri en víða í Evrópu. Þetta ásamt
mjög háu verði innlendra landbún-
aðarvara og ofurtolla á innfluttar
landbúnaðarvörur er meginástæða
þess að smásöluverð matvöru er hér
svo hátt sem raun ber vitni. Smásölu-
verslunin hefur ítrekað verið ásökuð
fyrir þetta, en allir sem skoða málið
og til þekkja vita að ástæðan liggur
ekki þar heldur í stjórnvaldsákvörð-
unum um mikla vernd innlends land-
búnaðar og eins og áður sagði hærri
virðisaukaskatt en tíðkast víða í Evr-
ópu. SVÞ hafa bent á að mikilvægt sé
að styrkir til íslensks landbúnaðar
séu gegnsæir og í formi beinna fram-
laga sem bjaga ekki markaðinn eins
og verndartollar gera nú.
SVÞ brýna þá stjórnmálamenn
sem koma að samningu stjórnarsátt-
mála, að standa við kosningaloforðin
um lækkun matvælaverðs með lækk-
un skatta og álaga á matvæli. Um-
rædd verðlækkun er nauðsynleg og
verslunin mun fyrst allra fagna slík-
um ráðstöfunum.“
Skattar á matvæli
verði lækkaðir
FJÖLMENNI var á fyrstu út-
skriftarathöfninni hjá Sjúkra-
flutningaskólanum sem fram fór
nýlega á Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri. Útskrifaðir voru 42
nemendur sem luku grunn-
námskeiðum í sjúkraflutningum
sem haldin voru í mars og apríl
síðastliðnum, þar af voru þrjár
stúlkur. Til þess að geta sótt um
starfsréttindi sem sjúkraflutn-
ingamaður þarf viðkomandi að
hafa lokið grunnámskeiði í
sjúkraflutningum. Nemendurnir
komu víða að af landinu en
grunnnámið er fjölþætt og miðar
að því að gera þátttakendur færa
um að tryggja öryggi slasaðra á
vettvangi, meta ástand sjúklinga
og hefja viðeigandi meðferð. Auk
þess sem skólastjóri, Hildigunnur
Svavarsdóttir, afhenti skírteini
fluttu ávörp, Þorvaldur Ingvars-
son, formaður stjórnar skólans,
Úlfar Hauksson, formaður RKÍ,
Erling Þór Júliníusson, slökkvi-
liðsstjóri á Akureyri, og Friðrik
Jónsson, nýútskrifaður sjúkra-
flutningamaður frá Húsavík.
42 útskrifast úr Sjúkra-
flutningaskólanum
Morgunblaðið/Kristján
Hluti þeirra nemenda sem útskrifuðust frá Sjúkraflutningaskólanum.