Morgunblaðið - 19.05.2003, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 33
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6 OG 10. B.I. 16.
Sýnd kl. 4, 5, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 5, 8 og 11. / Sýnd kl. 8 og 10..
FerðalögFimmtudaginn . maí fylgir Morgunblaðinu blaðauki um29
Meðal annars verður fjallað um:
• gönguferðir • tjaldsvæði landsins • ferðalög á hálendið • nestið í
ferðalagið • viðburði og uppákomur vítt og breitt um landið í sumar
• óviðjafnanlegar náttúruperlur • nýjungar í afþreyingu • nýja gististaði
og veitingahús • leiki og skemmtun fyrir börnin í aftursætinu.
Blaðið verður í nýju broti, þverformi 25x19 sm, heftað og prentað á
60 gr pappír. Pöntunarfrestur auglýsinga er til kl. 16 föstudaginn
23. maí. Skilafrestur er til kl. 12 mánudaginn 26. maí.
Hafið samband við auglýsingadeild
Morgunblaðsins í síma 569 1111 eða
á augl@mbl.is
Upptökur af götugengjum
(Gang Tapes)
Spennumynd
Bandaríkin 2002. Myndform. VHS. (95
mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjóri:
Adam Ripp. Aðalleikendur: Trivell, Dar-
ontay McClendon, Vi Reasons, Darris
Love, Don Cambell.
ENN ein
„raunsæismyndin“
um ástandið í
blökkumannahverf-
um Bandaríkjanna
hefst á því að heim-
ilisfaðir er að
mynda fjölskylduna
í skemmtiferð í
Hollywood. Þau
upplifa martröð utanbæjarmannsins,
að villast og lenda í soranum.
Það er ráðist á þau og upp frá því er
það Kris, ungur negrapiltur, sem tek-
ur upp á stafrænu tökuvélina. Hann
myndar daglegt líf í South Central á
flækingi sínum um hverfið þar sem
hversdagurinn snýst um dóp, ofbeldi
og glæpi. Hann ferðast með heima-
genginu í nokkra daga, eða á meðan
það hefur ekki lent í útistöðum við
andstæðinga í næsta hverfi og er flest
ofan moldu.
Vissulega áhrifarík og gefur sjálf-
sagt nokkuð líklega sýn af örmu
mannlífi þar sem rustamennska ræð-
ur ríkjum og tætingsleg, rappjarm-
andi ungmenni skrölta í gegnum dag-
inn. Bera enga virðingu fyrir einu eða
neinu og uppskera að lokum eins og
þau sá. Þetta er vonlítil mynd um von-
laust fólk sem veit ekki hvað von er.
Verkið hefur vakið nokkra athygli
vestra þar sem kvikmyndahúseigend-
ur þorðu ekki að taka það til sýningar
í bíóum sínum. Ástæðan sú hrottalega
mynd sem það gefur af ævi og örlög-
um ungmenna á öngstrætum
slömmanna. Vitfirringin sem stjórnar
rótlausu lífi unglinga sem virðast
halda með glöðu geði beint í glötunina
og enginn til að reyna að beina þeim á
réttari brautir.
Nokkuð frumleg og forvitnileg,
gerð af Adam Ripp, sem er hvítur og
af gyðingaættum, af öllum mönnum.
Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Í stórborgar-
frumskóg-
inum
MARGT góðra gesta heimsóttu
Kjarvalsstaði á laugardag, en þá
voru opnaðar tvær sýningar í
safninu. Annars vegar sýning á
verkum Arnar Þorsteinssonar.
Örn vinnur verk sín úr sæbörðum
granítsteinum sem hann finnur í
fjörum Skagafjarðar og mótar
þau á bryggju við Reykjavík. Sýn-
ing Arnar teygir sig vítt og breitt
um ganga Kjarvalsstaða í formi
furðudýra og goðsagnavera sem
flatmaga á gólfinu eða skima yfir
svæðið af stöplum. Hins vegar
var opnuð sýning á rússneskum
ljósmyndum. Um er að ræða síð-
ari hluta samstarfsverkefnis
Listasafns Reykjavíkur og Ljós-
myndasafns Moskvu, en áður hafa
íslenskar ljósmyndir verið sýndar
í Rússlandi. Ljósmyndirnar á sýn-
ingunni spanna tímabilið allt frá
miðri nítjándu öld til nútímans og
sýna bæði breytingar í ljósmynd-
un og ekki hvað síst breytingar á
samfélaginu. Báðar standa sýn-
ingarnar til 15. júní, en safnið er
opið alla daga frá 10 til 17.
Ekki var annað að sjá en þau Niels P. Sigurðsson, Guð-
mundur Jónsson og Fríða Halldórsdóttir kynnu vel að
meta þessa blöndu af ljósmyndum og höggmyndum.
Sif Aðils ásamt Sergei og Lenu Burasovsky, en Sergei er
formaður Rússneska ljósmyndarasambandsins, og settu
þau upp sýninguna.
Morgunblaðið/Arnaldur
Höggmyndir Arnar Þorsteinssonar vöktu verðskuldaða athygli gesta.
Tvær sýningar hófust á Kjarvalsstöðum um helgina
Meitlaður steinn
og fangaðir skuggar