Morgunblaðið - 19.05.2003, Qupperneq 36
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
BIÐIN er á enda hjá íslenskum knatt-
spyrnuáhugamönnum sem og leikmönnum,
því Landsbankadeildin í knattspyrnu hófst
í gær með fjórum leikjum. Alls voru fjór-
tán mörk skoruð í gær, og fóru þrettán
þeirra í rétt mark en eitt fór í eigið mark.
Ekkert var gefið eftir í baráttunni á vell-
inum og fór rauða spjaldið í tvígang á loft
í gær. Í kvöld eigast við Þróttur og KR en
leikurinn fer fram á Laugardalsvelli.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Markaveisla og rauð spjöld
Lögðum upp/B2
MUN MINNA er nú flutt út af íslenskum hestum en
fyrir nokkrum árum; árið 1995 voru flutt út liðlega
2.600 hross en í fyrra hálft annað þúsund. Mestur
var útflutningur þó
skömmu upp úr aldamót-
unum 1900, eða í kringum
6–7 þúsund hross á ári, en
þá voru íslenskir hestar
gjarnan notaðir í kolanám-
um erlendis.
Eftir að farið var að huga
að útflutningi á reiðhestum
hefur útflutningurinn aftur
á móti mestur verið á þriðja
þúsund hross á ári. Þrátt
fyrir minni útflutning hefur verðmæti hans hins veg-
ar því sem næst staðið í stað nokkur undanfarin ár,
einkum vegna aukins útflutnings á góðum reiðhest-
um og keppnishestum.
Ágúst Sigurðsson hrossaræktarráðunautur telur
að íslenski hesturinn eigi mikla framtíð fyrir sér og
nóg sé að líta til nágrannalandanna í þeim efnum.
Töluvert hafi verið flutt út af íslenska hestinum það
sem af er árinu og á dögunum voru 84 hross flutt í
einu lagi til Svíþjóðar. Eitt hrossanna verður fært
Viktoríu krónprinsessu að gjöf frá íslensku þjóðinni
á Íslandsdeginum í Stokkhólmi 28. maí næstkom-
andi.
Ágúst bendir á að samsetning hrossanna sé allt
önnur nú en þegar útflutningurinn var meiri. „Nú
eru hrossin sem flutt eru úr landi einfaldlega í hærri
gæðaflokki en var og þar af leiðandi hlutfallslega
verðmætari. Þannig að verðmætið sem slíkt hefur
ekki minnkað þótt hrossunum hafi fækkað.“
Færri og
verðmeiri
hross utan
Auka þarf/6
SIGMAÐUR sem fékk á sig grjót í
Hornbjargi á laugardag og kast-
aðist niður 7–8 faðma er lærbrot-
inn og með áverka á hendi. Hann
gekkst undir aðgerð á bæklunar-
deild Landspítalans en þangað var
hann fluttur með þyrlu Landhelg-
isgæslunnar, síðdegis á laugardag.
Að sögn læknis er heilsa mannsins
annars eftir atvikum góð.
Maðurinn var við eggjatínslu í
austurhluta Hornbjargs norðan
við Hornbjargsvita er grjótið féll á
hann og slasaði. „Steinninn sem
féll á hann hefur sennilega legið of-
an á handvaðnum sem hann ætlaði
að fara upp eftir, því þegar hann
tekur í vaðinn kemur steinninn
niður. Hann fer rétt við andlitið á
honum og í lærið á honum. Höfuðið
slapp, sem betur fer,“ útskýrir
Tryggvi Guðmundsson, einn af
sex samferðamönnum mannsins,
en Tryggvi hefur margra ára
reynslu af bjargsigi. Maðurinn
var vanur sigmaður og vel búinn,
með hjálm á höfði.
Tryggvi segir að maðurinn hafi
verið neðst við bjargræturnar er
slysið varð og hallinn því ekki
mikill. Segir hann manninn hafa
kastast niður um sjö til átta
faðma. „Við vorum sem betur fer
margir saman og gátum hjálpast
að. Það var ekki margt sem við
höfðum við hendina, en við höfð-
um tvær árar og björgunargalla
sem við bundum saman og gátum
flutt hann eftir fjörunni þar sem
gúmmíbáturinn var.“
Slysið varð um tvöleytið en
hinn slasaði var kominn á sjúkra-
hús í Reykjavík laust fyrir kl. 20
um kvöldið. „Það var til að byrja
með erfitt að ná fjarskiptasam-
bandi úr gúmmíbátnum og svo
tók tíma að bera hann í fjörunni.
Þetta er stórgrýtt fjara og mjög
erfið yfirferðar. Við urðum að
gera þetta í mörgum áföngum.“
Tilkynnt um slysið kl. 14.42
Fjarskiptastöðinni í Vest-
mannaeyjum barst fyrst tilkynn-
ing um slys í Hornbjargi kl. 14.42
á laugardag. Kallið barst frá
fylgdarmönnum hins slasaða en
þeir höfðu í fjöruborðinu gúmmí-
bátinn Patton og tilkynntu slysið
þaðan í gegnum talstöð. Var þeg-
ar í stað haft samband við Land-
helgisgæsluna og var ákveðið að
senda bát frá Ísafirði á vettvang.
Ekki þurfti þess þó þegar til kast-
anna kom og var honum snúið við.
Nálægt skip, Sædís ÍS, heyrði
einnig hjálparkallið og kom á slys-
stað og var til aðstoðar.
Reimar Vilmundarson, skip-
stjóri á Sædísi, sagðist í samtali
við Morgunblaðið hafa vitað af
lækni í bát við Hornvík og fór einn
af fylgdarmönnum hins slasaða á
gúmmíbátnum Patton að sækja
lækninn. Var síðan ákveðið að
senda þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar í loftið kl. 16.07 og lenti hún
með hinn slasaða við Landspítala
háskólasjúkrahús í Fossvogi kl.
19.45 á laugardagskvöldið.
Sigmaður í Hornbjargi fékk á sig grjót og féll 7–8 faðma
Erfiðar aðstæður í
stórgrýttri fjörunni
ÞESSIR stoltu foreldrar svömluðu
með ungana sína fimm á Bakka-
tjörn á Seltjarnarnesi í gær. Nú er
sá tími að ungar eru að skríða úr
eggjum og má víða sjá litla hnoðra
svamla um í tjörnum og pollum. Þá
getur verið enn skemmtilegra en
endranær að fylgjast með fuglalíf-
inu, sérstaklega fyrir þá sem sjálfir
eru enn ungir að árum.
Morgunblaðið/Arnaldur
Álftir með unga á Bakkatjörn
SÍFELLD hækkun opinberra út-
gjalda er verulegt áhyggjuefni og
mikilvægt er að ný ríkisstjórn
hefji vinnu við fækkun ríkisstofn-
ana með niðurlagningu og samein-
ingu þeirra og setji sér það mark-
mið að fækka ríkisstofnunum um
30–40 á næstu fjórum árum.
Þetta er meðal þeirra atriða sem
Verslunarráð Íslands hvetur til að
verði tekin til alvarlegrar skoð-
unar við vinnu við gerð nýs stjórn-
arsáttmála sem nú stendur en
skýrsla ráðsins, sem send hefur
verið formönnum stjórnarflokk-
anna, kallast „Tíu leiðir til að auka
árangur fyrir Ísland“.
Verslunarráð minnir á að fram-
undan sé tímabil aukinnar spurnar
eftir vinnuafli og því mjög brýnt
að stjórnvöld dragi úr vinnuafls-
eftirspurn hins opinbera. Það sé
ekki síst á tímum góðæris sem
mest hætta sé á að útgjöld rík-
issjóðs aukist og aðhald í ríkis-
rekstrinum minnki. Einföldun rík-
isrekstrarins sé ein besta leiðin til
að draga úr útgjöldum til lengri
tíma; nú séu starfræktar 230 rík-
isstofnanir og ný ríkisstjórn eigi
því að setja sér það markmið að
fækka þeim um 30–40 á kjörtíma-
tímabilinu sem í hönd fer. Með
fækkun ríkisstofnana megi ein-
falda ríkisreksturinn og auka hag-
kvæmni þeirra stofnana sem eftir
verði.
Verslunarráð leggur í þessu
sambandi til að sett verði á stofn
hagræðingarnefnd sem hafi það
hlutverk að vinna að einföldun og
sparnaði í ríkisrekstrinum á næstu
fjórum árum.
Ríkisstofnunum verði
fækkað um 30 til 40
Tíu leiðir/10
FORMENN Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks, Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson,
hittust á fundi í gærkvöldi ásamt varaformönnum
flokkanna og nokkrum sérfræðingum og héldu
áfram stjórnarmyndunarviðræðum.
Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra, segir formennina hafa
rætt skiptingu ráðuneyta í víðu samhengi en engin
niðurstaða sé enn komin.
„Það er enn of snemmt að fara að ræða eitthvað
slíkt,“ sagði Illugi í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Hann sagði viðræðurnar vera í góðum farvegi og
að vel miðaði í samkomulagsátt. „Þetta hefur þok-
ast áfram. Undirbúningsvinnan er ennþá í gangi,
en þetta tekur auðvitað allt sinn tíma.“
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgun-
blaðsins er þess að vænta að lokið verði við stjórn-
arsáttmálann um miðja vikuna.
Línurnar farnar
að skýrast
♦ ♦ ♦