Morgunblaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Stærðin skiptir engu máli í þessu, Davíð minn. Hátíð hafsins Höfnin verður iðandi af lífi HÁTÍÐ hafsins erhaldin dagana 31.maí og 1.júní, eða nánar tiltekið á morgun og sunnudag, við Reykja- víkurhöfn. Sunnudagur- inn er Sjómannadagur en laugardagurinn er Hafn- ardagur og eitt af föstum atriðum á Hafnardegi er þátttaka Vesturbæjar- samtakanna. María Ell- ingsen leikkona hefur komið að undirbúningi hátíðar þessarar fyrir hönd Vesturbæjarsam- takanna og svaraði hún nokkrum spurningum Morgunblaðsins. – Hvernig kemur þú að þessu? „Það má segja að furðufiskar og hafmeyjar fylki liði niður á Reykjavíkur- höfn. Hátíð hafsins hefst laug- ardagsmorguninn 31. maí klukk- an ellefu þegar listasmiðja fyrir krakka, pabba og mömmur, afa og ömmur opnar í gamla Stýri- mannaskólanum á Öldugötu. Þar taka allir þátt í því að skapa há- tíðina undir stjórn listamanna úr Vesturbænum. Þá er farið í skrúðgöngu niður að höfn og síð- an í siglingu um sundin.“ – Er þetta bara Vesturbæj- arhátíð? „Allir krakkar úr öllum hverf- um eru velkomnir og er aðgang- ur ókeypis. En þar sem „Gamli Vesturbærinn“ hefur í aldanna rás tengst höfninni hefur Reykjavíkurhöfn fengið Íbúa- samtök Vesturbæjar til að ann- ast þessa fjörugu listasmiðju.“ – Hvernig verður stemmningin þennan dag? „Þetta verður eins og Karde- mommuhátíðin, um leið og klukkan slær ellefu fyllist Gamli Stýrimannaskólinn af lífi. For- eldrar mæta með börnum sínum og njóta þess að eiga saman stund við að föndra og leika sér. Magga Stína poppari stendur fyrir hljóðfæragerð. Myndlistar- konurnar Ína Salóme og Þórunn Hjartardóttir aðstoða smiðju- gesti við að útbúa furðufiska, búninga og veifur fyrir skrúð- gönguna. Sjálf mun ég ásamt Felix Bergssyni huga að út- færslu á skrúðgöngu og þeim uppákomum sem þar verða. All- ar hugmyndir að skrúðgöngunni tengjast hafinu og verður jafnvel barnavögnum breytt í báta og siglt þannig með yngstu börnin niður að höfn.“ – Er síðan fiskur í matinn? „Að sjálfsögðu kemur ekkert annað til greina þennan dag en að bjóða smiðjufólki fiskibollur og grænmeti. Þennan morgun leggur fiskibolluangan út úr öðru hverju húsi í Gamla Vesturbæn- um þar sem allir sem vettlingi geta valdið eru fengnir til að steikja bollur, en fisksalar hverf- isins leggja til hráefnið.“ – Hvenær leggur skrúðgangan af stað? „Hún leggur svo af stað klukkan tvö með lúðraþyt, braki og brestum og er gengið sem leið liggur niður Stýrimannastíginn, Vesturgötuna, Ægisgötuna og niður á Reykjavíkurhöfn. Á hafnarbakkanum er svo sungið, farið í leiki og teiknuð risakrít- armynd á hafnarbakkann og tek- ið þátt í þeirri fjölbreyttu og glæsilegu dagskrá sem þar verð- ur í gangi. Klukkan þrjú er svo skrúðgöngufólki boðið í bátssigl- ingu um sundin blá og fá allir ís til að gæða sér á í ferðinni, en einnig er hægt að kaupa vöfflur og kaffi um borð. Þetta er há- punktur dagsins og mikið æv- intýri fyrir borgarbörn að kom- ast í siglingu. Það er mikilvægt að allir séu vel klæddir og sjókl- árir til að geta notið þess að vera úti hvernig sem viðrar.“ – Hvernig tengist Hátíð hafs- ins Sjómannadeginum? „Hátíð hafsins var stofnuð upp úr Hafnardeginum og Sjómanna- deginum fyrir fimm árum, sem er dropi í hafið miðað við að í ár er Sjómannadagurinn 65 ára. Hann er alltaf fyrsta sunnudag í júní, með hefðbundinni dagskrá, heiðrun sjómanna, ræðum sjáv- arútvegsráðherra, fulltrúa sjó- manna og útvegsmanna.“ – Á hátíðin sér eitthvert kjör- orð? „Kjörorð Hátíðar hafsins er „Menntun og menning tengd hafi og höfn“ og verður höfnin iðandi af lífi þessa tvo daga með ótal uppákomum og skemmtun- um. Má þar nefna starfsfræðslu í tjaldi á hafnarbakkanum frá Stýrimannaskóla og Vélskóla og kynningar á ýmsum stofnunum tengdum sjónum. Tólf ára skóla- börn úr Grandaskóla verða með kynningu á lífríki hafsins í Gróf- arhúsi. Nýbúar á Íslandi kynna matargerð á sína vísu úr fisk- meti og sýna skemmtiatriði tengd sínum heimalöndum. Í matartjaldinu verður síðan hægt að fá, á vægu verði, saltfisk á portúgalska vísu og ekta „fish and chips“ svo eitt- hvað sé nefnt. Þá býð- ur Reykjavíkurhöfn upp á einstakt tæki- færi fyrir alla sem vilja, að sigla með gömlu Akraborginni um sundin blá og verða þrjár ferðir hvorn dag hátíðarinnar. Það er því eitthvað fyrir alla og enginn þarf að sitja heima, enda var það svoleiðis með Karde- mommuhátíðina að jafnvel Soffía frænka og Kasper, Jasper og Jónatan ákváðu að mæta og end- uðu með að skemmta sér kon- unglega.“ María Ellingsen  María Ellingsen er fædd í Reykjavík, 22. janúar 1964. Hún nam leiklist við New York Há- skóla og lauk BA prófi þaðan ár- ið 1988. Hún stofnaði leikfélagið Annað Svið, sama ár, og hefur starfrækt það síðan. María hefur leikið hjá Hafnarfjarðarleikhús- inu, í Þjóðleikhúsinu og í kvik- myndum og sjónvarpi bæði hér á landi og erlendis. María er gift Þorsteini J. Vilhjálmssyni og eiga þau saman dótturina Láru, 4 ára. Verður eins og karde- mommu- hátíðin Ferðalag út úr bænum (þ.á.m. sundlaugarferð) í lok hvers námskeiðs. Ferðin er frá kl. 09.30 - 17.00. Kennarar eru m.a. Broddi Kristjánsson íþróttakennari, Írena Óskarsdóttir íþróttafræðingur, Jónas Huang badmintonþjálfari, Skúli Sigurðsson badmintonþjálfari, Árni Þór Hallgrímsson badmintonþjálfari o.fl. Innanhúss: Badmintonkennsla, borðtennis, minni tennis, körfubolti, bandý og leikir Úti (við TBR-hús og í Laugardalnum): Knattspyrna, sund, frjálsar íþróttir á Laugardalsvelli, t.d. spretthlaup, langstökk, spjótkast, kúluvarp og hástökk. Leikir, svo sem hafnabolti, ratleikur o.fl. Farið er í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardal Upplýsingar og innritun í TBR húsinu Gnoðavogi 1 og í síma 581 22 66. Sumarskóli TBR 2003 Íþróttaskóli fyrir 6 - 13 ára börn í sumar Námskeiðin eru virka daga kl. 9-13 eða kl. 13-17. Fjölbreytt íþróttakennsla á dagskrá með áherslu á badminton. 1. 5. júní - 20. júní 2. 23. júní - 4. júlí 3. 7. júlí - 18. júlí 4. 5. ágúst - 18. ágúst Námskeiðin eru 10 virka daga í senn sem hér segir: Verð er kr. 7400. Skipt er í hópa eftir aldri. Veittur er systkinaafsláttur. Einnig er veittur afsláttur ef farið er á fleiri en eitt námskeið. HÆSTIRÉTTUR hefur bætt sex mánuðum við eins árs fangelsi sem fertugur karlmaður hlaut í Héraðs- dómi Vestfjarða í desember sl. fyrir kynferðisbrot gegn þroskaheftri konu. Hæstiréttur hækkaði einnig miskabætur til handa konunni, úr 300 þúsund kr í hálfa milljón. Hæstiréttur taldi sýnt að ákærði hefði notfært sér trúnað konunnar og sannað þótti að hann hefði skipu- lagt ofbeldið fyrirfram og framið það á ófyrirleitinn hátt. Vegna þessa, al- varleika brotsins og langs sakaferils ákærða var hæfileg refsing talin 18 mánaða fangelsi. Brot ákærða voru í héraði talin beinast gegn mikilvægum hagsmun- um, en þau voru framin á heimili konunnar í apríl 2002. Átti hún sér einskis ills von þegar hún bauð ákærða heim til sín, enda taldi hún hann vin sinn og hafði bundið traust við hann af barnslegri einfeldni. Í Hæstarétti dæmdu málið hæstarétt- ardómararnir Guðrún Erlendsdótt- ir, Garðar Gíslason, Haraldur Henrysson, Markús Sigurbjörnsson og Pétur Kr. Hafstein. Verjandi ákærða var Björgvin Jónsson hrl. Málið sótti Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari hjá ríkissaksóknara. Hæstiréttur þyngdi refsingu um sex mánuði RÍKISKAUP og ríkislögreglustjór- inn hafa samið við Brimborg um kaup á 8 Volvo S80 bílum fyrir nokk- ur lögregluembætti landsins. Í fyrra voru keyptir 6 slíkir bílar og var það í fyrsta skipti sem keyptir voru bílar með dísilvél og er svo einnig nú. Í frétt frá Brimborg segir að margs konar öryggisbúnaður sé í bíl- unum, m.a. stöðugleikakerfi sem henti vel í bílum sem notaðir eru í forgangsakstri. „Búnaðurinn virkar í stuttu máli þannig að hann skynjar hvort ökumaður er að missa stjórn á bílnum og getur þá sjálfkrafa dregið úr hraða og hemlað. Þetta gerist allt á broti úr sekúndu og áður en öku- maður skynjar það,“ segir í fréttinni. Lögreglan kaup- ir 8 Volvo-bíla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.