Morgunblaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 18
LISTIR 18 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Barnahjálmar Mikið úrval af barnahjálmum, mismunandi myndir og litir. Auðvelt að stilla höfuðstærð. CE merktir. Verð frá kr. 2.400 GIANT 20" fjallahjól Vönduð hjól fyrir 6-7 ára á frábæru verði. 5 gíra með V-bremsum. Verð kr. 18.900, stgr. 17.955 Með dempara kr. 21.900, stgr. 20.805 Tveir demparar kr. 24.900, stgr. 23.655 www.markid.is • Sími: 553 5320 • Ármúla 40 H ön nu n: G un na r S te in þ ór ss on / M ar ki ð / 05 . 2 00 3 Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar. Ábyrgð og frí upphersla eftir einn mánuð Vandið valið og verslið í sérverslun. 5% staðgreiðslu afsláttur. Kreditkortasamningar, upplýsingar veittar í versluninni Moto Cross fjallahjól 12,5” kr. 12.900 14” kr. 13.900 16” kr. 14.900 VIVI barnahjól Fyrir 3 - 6 ára. Létt, sterk og meðfærileg barnahjól með hjálpardekkjum og fótbremsu. CE öryggisstaðal. Sunny Girl 12,5” kr. 11.400 Pretty Girl 14” kr. 12.900 BRONCO barnahjól 20“ Mjög vönduð hjól fyrir 6-7 ára. 6 gíra Shimano, V-bremsur og ál gjarðir. Einnig til með dempurum. Verð frá kr. 17.800, stgr. 16.910 BRONCO Barnahjól 24“ Mjög vönduð hjól fyrir 8-9 ára. 21 gíra Shimano, V-bremsur og ál gjarðir. Einnig til með dempurum. Verð frá kr. 22.900, stgr. 21.755 ITALTRIKE þríhjól Vönduð og endingargóð, létt og sterk. CE öryggisstaðal. Með og án skúffu, verð frá kr. 4.900 ANTHONY Rolfe Johnson er einn af þekktustu söngvurum Breta og hefur komið fram með fremstu hljómsveitum heims og á fjölmörg- um tónlistarhátíðum víða um heim um áratuga skeið. Hann hefur sung- ið með Chicago-sinfóníunni undir stjórn Soltis, Bostonsinfóníunni und- ir stjórn Ozawa, New York-fílharm- óníunni undir stjórn Rostropovits og Masurs og þannig mætti lengi telja. Kemur fyrir orð Andreas Schmidt Anthony þreytti frumraun sína á óperusviðinu í hlutverki Fentons í Falstaff á Glyndenbournehátíðinni og hefur síðan sungið ótal hlutverk í öllum stærstu óperuhúsum heims. Fjölmargar hljóðritanir hans endur- spegla hið mikla álit sem hann nýtur um allan heim sem túlkandi tónlist- ar, meðal annars eftir Bach, Händel, Haydn, Mozart og Britten. Árið 1992 hlaut hann CBE-orðuna úr hendi El- ísabetar Englandsdrottningar. Þegar Anthony er spurður hvers vegna hann sé nú kominn til Íslands til þess að syngja í Elía segir hann Andreas Schmidt hafa hvatt sig til þess að koma hingað – en hann hefur oft áður tekið þátt í flutningi á Elía. Á seinustu árum hefur hann lagt megináherslu á ljóðasöng og hljóð- ritanir, en aðeins eru liðin tvö til þrjú ár síðan hann ákvað að leggja vinnu við óperuuppfærslur á hilluna. Leið- ir hans og Andreasar höfðu ekki leg- ið saman lengi þegar þeir hittust í Pwenemünde fyrir tveimur árum, þegar þeir sungu saman á stórri listahátíð sem þar var haldin til þess að minnast fórnarlamba nasista sem þangað voru send í seinni heims- styrjöldinni. „Þetta er við strandlengju Eystra- salts og þarna reistu Þjóðverjar á sínum tíma eldflaugastöð og ætluðu sér að skjóta þaðan á skotmörk víða um Evrópu. Ef þeir hefðu komið stöðinni í gagnið fyrir 1942 hefði út- koma stríðsins getað orðið önnur en raunin varð. Sem betur fer urðu þeir þó heldur seinir. Engu að síður voru þrjátíu þúsund manns sendir þangað í þrælabúðir og hafa eflaust endað ævi sína í brennsluofnum nasista. Strandbær með ógnvekjandi fortíð Enn í dag er andrúmsloftið dálítið ógnvænlegt í Pwenemünde, þótt þar sé núna fallegur strandbær þar sem Þjóðverjar dvelja í leyfum og stað- urinn hafi verið gerður að listamið- stöð. Það vafðist fyrir mér að fara þangað og ég hikaði. En á einhvern hátt fannst mér ég tengdur þessum stað, vegna þess að fjölskylda mín var í London á stríðsárunum og ég er alinn upp við sögur af þeim hörm- ungum sem áttu sér stað þar. For- eldrar mínir fluttu fljótlega frá London, en einn frændi minn, sem var yfirmaður í varðsveitunum, vann í borginni. Hann sagði mér meðal annars að eitt kvöldið hefði hann að- stoðað nokkrar ungar stúlkur og kærastana þeirra við að komast heim til einnar þeirra þar sem þau ætluðu að spila keiluspil. Stuttu eftir að hann skildi við þau kváðu við loft- varnarflautur og sprengjum var varpað á borgina, þar á meðal húsið sem hann hafði fylgt ungmennunum í. Þau fórust öll. Slíkar sögur höfðu mikil áhrif á mig í uppeldi og á endanum ákvað ég að taka þátt í hátíðinni í Pwene- münde. Og þar sem lífið er fullt af til- viljunum hitti ég Andreas þar og er í framhaldi af því kominn hingað til Íslands,“ segir Anthony Rolfe John- son. Til Íslands fyr- ir röð tilviljana Enski tenórsöngv- arinn Anthony Rolfe Johnson tekur þátt í flutningi Mótettu- kórsins á Elía eftir Felix Mendelssohn- Bartholdy í kvöld. Morgunblaðið/Brynjar GautiAnthony Rolfe Johnson N Ú er svo komið að sumarið hefur teygt angana allt til Ís- lands. Bíókvöld verða þá lögð á hill- una, að minnsta kosti þangað til haustið tekur við. Í Frakklandi hef- ur sumarið skotið svo djúpum rót- um, þótt ekki sé kominn júní, að hið virðulega dagblað Le Monde birti nýverið langa og léttúðuga grein um listina að borða úti. Nýjustu tæki og tól til lautarferða hafa náð metsölu í landinu, hvort sem þau eru fyrir bakpokafólk eða betri borgara. Mig rámar þó í að það megi borða úti í París án annarra tækja en guðsgaffla. Að minnsta kosti var það stundað af íslenskum vinkonum nýkomnum úr vínberjat- ínslu í Beaujolais eitthvert haustið kringum 1970. En fyrir þá sem eru óforbetr- anlegar inniverur jafnast engin útiparadís á við lystisemdir Pom- pidou-menningarstöðvarinnar. Áð- ur en ég fer í hlé get ég ekki annað en sagt frá því húsi í París þar sem bíófélaginn og ég höfum lent í mestu menningarstuði í gegnum tíðina, til dæmis við að skoða sjald- séðar kvikmyndir. Hefnd múmí- unnar heitir ein sem orkaði sterkt á okkur, en það er kannski ekki hægt að mæla með henni við strang- trúaða. Þetta valinkunna menning-ar- og fróðskaparseturheldur sem sagt uppi öfl-ugu menningarstarfi á sviði kvikmynda og kvikmynda- sögu, fyrir utan allt annað. Það eru margar sýningar á dag, alla daga nema þriðjudaga, en þá er lokað. Engin tegund af kvikmyndum liggur óbætt hjá garði. Hér eru sýndar stuttmyndir, bíó fyrir börn, og þennan tímann er sýnd syrpa af nýjum myndum um listdans. Og í júní lýkur sýningum á kvikmyndum eftir Hans-Jürgen Syberberg, þýska leikstjórann sem hefur með- al annars búið til myndir um ein- kennilega menn eins og Lúðvík Bæjaraprins, Hitler og Parsífal. Dagurinn er fljótur að líða í þess- ari menningarstöð og hagstætt að kaupa dagskort sem veitir aðgang að öllum sýningum. Húsið er lík- lega þekktast fyrir frjóar listsýn- ingar og fyrir nútímalistasafnið. En það er líka hægt að sjá framsæknar leiksýningar, dans, hlýða á fyr- irlestra og upplestra. Ekki síst er um vert að bókasafn er mjög gott, líka það sem snýr að tónlist og kvik- myndum. Hver sem er getur kom- ist inn og valsað um hillur. Húsið sjálft er aðlaðandifurðuverk, ekki síst hiðytra. Það er líka einnhelsti útsýnisstaður Parísarborgar og ekki annað en sigla á rúllustigum upp í hæðir og horfa yfir dýrðina. Ef gesturinn verður nú svangur af öllu útsýninu og allri menningunni þá er vel séð fyrir svoleiðis þörfum. Á fyrstu hæð er kaffitería, og það er kominn nýr veitingastaður í efra, innrétt- aður með rokna stæl. Í anddyri er búð með góðu úrvali af listaverka- bókum. Á fyrstu hæð eru seldir rétt skapaðir hlutir eftir fræga hönnuði. Sú blanda sem hér er lýst er svo vel heppnuð að ekkert menningarhús í heimi er fjölsóttara en Pompidou. Ítengslum við það er meira aðsegja neðanjarðarstarfsemi,IRCAM tölvu- og tón- oghljóðstöðin þar sem raf- tónskáld semja fyrir vísindalegum nútímastraumi. Höfundur IRCAM er tónskáldið og hljómsveitarstjór- inn Pierre Boulez, kallaður heim til starfa af Pompidou sjálfum. Og nú verður ekki lengur undan vikist að ljóstra því upp að þessi stofnun er ein af uppeldisstöðvum bíófélagans. Pompidou-menningarstöðin er svo miðsvæðis í París að það er eins og alltaf sé stutt í hana. Hún er eig- inlega við hliðina á ráðhúsinu (Hôt- el de Ville) og fjórða hverfinu skrautlega, steinsnar frá lat- ínuhverfi og frá búðunum á rue de Rivoli. Næsta umhverfi menningar- miðstöðvarinnar er eitt það allra líf- legasta í borginni, sama hver árs- tíminn er og tími sólarhrings. Þarna voru áður matarmark- aðirnir, Les Halles, og svæðið kall- að Magi Parísar. Þótt markaðir séu horfnir er vel að maganum búið. Fyrir þá sem gera ekki uppá milli tíma sólarhrings-ins til þess að fá sér bitaer gott að taka stefnuna á einn fallegan matarstað sem aldr- ei lokar, Au Pied du Cochon (Grísa- löpp), Rue Coquilliere númer 6. „Minnisvarði um Parísarlífið“ segja bæklingar, en þetta er ekki síður staður til þess að ná sér í minningar á. Þarna varð ég fyrir þeirri lífs- reynslu að panta af misgáningi nokkuð sem ég vissi ekki að er til og heitir gæsalifrarkæfu- og kast- aníuhnetusúpa. Hún er svo merki- leg og saðsöm að það er þrekvirki að hesthúsa síðan aðalrétt og enda á logandi hágæðapönnsu. En ýmsu má áorka í góðum félagsskap og þar er nóttin alltaf ung, sama hvað fólk er kvöldsvæft. B í ó k v ö l d í P a r í s Menningarstuð og grísalöpp Eftir Steinunni Sigurðardóttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.