Morgunblaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 34
DAGBÓK 34 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Tjaldur, Kristrún og Ottó N. Þorláksson koma í dag. Mánafoss og Silvía fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Barði, Þór, Rán og Arnar koma í kvöld. Mannamót Aflagrandi 40. Bingó í dag kl. 14. Árskógar 4. Kl. 13- 16.30 opin smíða- og handavinnustofan. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8- 16 hárgreiðsla, kl. 8.30- 12.30 bað, kl. 9-16 handavinna, kl. 9-17 fótaaðgerð, kl. 13-16 spilað í sal. Spilavist kl: 13.30. Félagsstarfið, Dal- braut 18-20. Kl. 9 bað, og opin handa- vinnustofa. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8-16 opin handa- vinnustofan, kl. 9-12 applikering, kl. 10-13 opin verslunin. Bingó. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9-12 bað, kl. 9-16.30 opin vinnustofa, myndlist, gifs ofl., kl. 9.30 göngu- hópurinn Gönuhlaup leggur af stað, kaffi eft- ir gönguna. Korpúlfar Grafarvogi, samtök eldri borgara. Vatnsleikfimi er í Graf- arvogslaug á föstudög- um kl. 14. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 10-12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13 „opið hús“ spilað á spil. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Biljard 13.30 og brids kl 13, Púttæfingar á Hrafn- istuvelli kl 14-16. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. S. 588 2111. Gerðuberg, fé- lagsstarf, kl. 9-16.30 vinnustofur opnar, fjöl- breytt dagskrá, kóræfing fellur niður, spilasalur opinn frá há- degi. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 málm og silf- ursmíði, kl. 13 bók- band. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið frá kl. 9-17, heitt á könnunni. Hvassaleiti 58-60. Hár- snyrting, fótaaðgerðir. Hraunbær 105. Kl. 9 bað, handavinna, út- skurður, fótaaðgerð og hárgreiðsla, kl. 11 spurt og spjallað. Norðurbrún 1. Kl. 9-13 tréskurður, kl. 9-17, hárgreiðsla, kl. 10-11 boccia. Vesturgata 7. Kl. 9-16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15-14.30 handavinna, kl. 10-11 kántrý dans, kl. 11-12 stepp, kl. 13.30-14.30 sungið við flygilinn, kl. 14.30-16 dansað í að- alsal. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla og myndlist, kl. 9.30 bókband og morg- unstund, kl. leikfimi og 10 fótaðgerð, kl. 12.30 leirmótun, kl. 13.30 bingó. Vopnfirðingafélagið. Hinn árlegi kaffidagur verður haldinn sunnu- daginn 1. júní kl.15 í Félags- og þjónustu- miðstöðinni Afla- granda 40. Fé- lagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti. Tekið verður á móti kaffi- brauði frá kl. 13. Aðal- fundur félagsins verð- ur haldinn sama dag og kl. 13.30 Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Brids kl. 13.15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13 kl. 10 á laug- ardögum. Félag einhleypra. Fundur á morgun kl. 21 í Konnakoti, Hverf- isgötu 105, Nýir fé- lagar velkomnir. Munið gönguna mánu- og fimmtudaga. Kvenfélag Lágafells- sóknar. Grænn mark- aður verður laugardag- inn 31. maí frá kl. 13-17 til sölu verða trjá- plöntur, fjölær blóm og fleira. Allur ágóði renn- ur til Hjúkrunarheim- ilis í Mosfellsbæ. Kaffi og vöfflur. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga fást á eftirtöldum stöðum á Vesturlandi: Penninn Bókabúð Andrésar, Kirkjubraut 54, Akranesi, s. 431 1855 Dalbrún ehf., Brákarbraut 3, Borg- arnesi, s. 437 1421 Hrannarbúðin, Hrann- arstíg 5, Grundarfirði, s. 438 6725 Verslunin Heimahornið, Borg- arbraut 1, Stykk- ishólmi, s. 438 1110 Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrif- stofutíma. Í dag er föstudagur 30. maí, 150. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Sýnið hver öðrum bróðurkær- leika og ástúð og verið hver yðar fyrri til að veita öðrum virðing. (Rómv. 12, 10.) HULDA Þórisdóttirskrifar grein í vefrit- ið Tíkina og færir rök fyrir því að forsetaemb- ættið sé óþarft. „Embætti forseta Ís- lands er lítið meira en leifar gamals tíma,“ skrif- ar Hulda. „Það var rök- rétt skref fyrir okkur sem nýfrjálsa þjóð að setja á stofn forsetaemb- ætti til að tákngera sjálf- stæðið og eiga þar með fulltrúa á alþjóðavett- vangi. En síðan þá hefur stjórnkerfið þróast og ekki síður hefur umhverfi alþjóðasamvinnu gjör- breyst. Ísland hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem sjálfstæð þjóð og við er- um nú aðilar að fjölda al- þjóðastofnana sem voru ekki til árið 1944.“ Hulda bendir á að ávallt þegar pólitískir leiðtogar ríkja heimsæki Ísland, hitti þeir og ræði málin fyrst og fremst við forsætisráðherra og ut- anríkisráðherra, „þó deg- inum ljúki gjarnan með kurteisiskvöldverði á Bessastöðum.“     Langalgengustu rökfyrir tilvist forseta- embættisins eru að for- setinn sé sameining- artákn þjóðarinnar. Rétt eins og reifað var hér að ofan má vera að slíkt hafi átt við á fyrstu árum sjálfstæðis, en slíkt á ekki við í dag. Þó meginþorri þjóðarinnar hafi verið stoltur af Vigdísi og þeirri athygli sem hún vakti á alþjóðavettvangi sökum þess að hún var fyrsta konan til að vera lýðræðislega kjörinn for- seti þjóðar, var það ein- göngu bundið við hana og útilokað að við fáum sam- bærilega athygli út á framtíðarforseta. Núver- andi forseti er sérlega fjarri því að vera samein- ingartákn þjóðarinnar, hann er gamall refur úr pólitík sem margir hafa litlar mætur á. Raunar virðist sem forsetinn skipti flest ungt fólk engu máli og það hefur hvorki vitneskju né áhuga á að vita hvað hann tekur sér fyrir hendur. Það er því ekki hægt að kalla for- seta sem er illa liðinn af stórum hluta þjóðarinnar og skiptir annan hluta hennar engu máli, sam- einingartákn. (Mikið nær því að vera sameining- artákn þjóðarinnar virð- ist vera fulltrúi okkar í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva hverju sinni!),“ skrifar Hulda.     Hún tekur undir þáskoðun að forseti Al- þingis geti tekið að sér þau störf sem forsetinn gegnir í dag og ráðherrar hafa ekki tök á að sinna. „Forseti Íslands er álíka nauðsynlegur nú- tíma íslensku samfélagi og ríkisreknar mjólk- urbúðir, gjaldeyrishöft, ríkisbankar og bjórbann. Allt voru þetta hlutir sem þóttu sjálfsagðir og nauð- synlegir íslensku sam- félagi þar til þeir höfðu verið afnumdir – þá blasti við hversu óþarfir og nánast undantekn- ingalaust fáránlegir þeir höfðu verið,“ skrifar Hulda. STAKSTEINAR Óþarft forsetaembætti Víkverji skrifar... VÍKVERJI átti leið til Akureyrarí vikunni og eins og venjulega dáðist hann að því hvað bærinn er fallegur og vel hirtur. Víkverji átti erindi í miðbæinn og var sóttur á flugvöllinn, en þegar honum var boðið far til baka afþakkaði hann og ákvað að fá sér frekar göngutúr um innbæinn, sem teygir sig frá mið- bænum í átt að flugvellinum, með- fram Pollinum. Innbærinn er elzti hluti Akureyrar, byrjaði að byggj- ast á 17. öld, og stendur á hinni eig- inlegu Akureyri. Þarna eru ótal gömul hús, sem undanfarna áratugi hafa mörg hver verið gerð glæsilega upp. Sum eru algjörar perlur og garðarnir hreinustu unaðsreitir. Víkverji staldraði við Aðalstræti 50, sem fékk viðurkenningu húsvernd- arsjóðs á dögunum. Þar hefur greinilega verið nostrað við hverja spýtu og Víkverji veitti því athygli hvað húsið er vel málað. x x x VÍKVERJI mælir með því að þeir,sem hafa tíma og eru ekki með mikinn farangur, taki sér þennan göngutúr milli miðbæjar og flug- vallar á Akureyri í stað þess að þeysa Drottningarbrautina á bíl og líta hvorki til hægri né vinstri. Reykvíkingar gætu margt lært af Akureyringum um það hvernig á að umgangast gömul hús og umhverfi þeirra. x x x NÚ STENDUR mikill vandi fyrirdyrum á Raufarhöfn eftir fjöldauppsagnir hjá Jökli ehf. Rauf- arhafnarbúar eiga alla samúð Vík- verja. Hann veltir því hins vegar fyrir sér af hverju stjórnmálamenn detti alltaf í notkun sömu frasanna þegar svona staða kemur upp. Í Morgunblaðinu í gær er haft eftir þingmönnum að nú verði að „grípa til sértækra aðgerða í byggða- málum“ til að bjarga Raufarhöfn. Af hverju eru hlutirnir ekki bara kall- aðir sínum réttu nöfnum? Þetta þýðir það að menn vilja að skatt- greiðendur annars staðar á landinu borgi fyrir það að fólk geti búið áfram á Raufarhöfn. Svo geta menn haft sína skoðun á því hvort það sé rétt eða rangt. En „sértækar að- gerðir í byggðamálum“ eru ekki mjög gagnsæ lýsing á því um hvað menn eru í raun að tala. x x x ANDRI Óttarsson skrifar pistil íDeigluna, þar sem hann gagn- rýnir að fjölmiðlar skuli hafa birt nöfn fjögurra manna, sem grunaðir eru um aðild að fjársvikamálinu hjá Símanum. Niðurlag pistils Andra er svohljóðandi: „Sem betur fer vekur fjölmiðlafárið samt ekki bara at- hygli á slæmri blaðamennsku. Ný- framin afbrot vekja yfirleitt mestan áhuga almennings og þeir fjölmiðlar sem stóðust pressuna og birtu ekki nöfn og myndir af fjórmenning- unum eiga heiður skilið. Það þarf sterkt bak til að gera það í bullandi samkeppni á fjölmiðlamarkaði … En sumir stóðust freistinguna og sýndu að enn eru til ábyrgir fjöl- miðlar hér á landi sem stunda vand- aða blaðamennsku.“ Úr innbænum á Akureyri. Er konan ávallt hin seka? NÚ NÝVERIÐ bárust fregnir um að kona nokk- ur, hér í nágrenni höfuð- borgarinnar, væri sek fundin um að stunda vændi og hefði haft af því umtals- verðar tekjur. Vissulega varð ég döpur vegna þess- arar fréttar, því flestum finnst umrædd atvinnu- grein afar niðurlægjandi fyrir viðkomandi og jafnvel fyrir kynsystur hennar í heild. En til þess að vændi geti þrifist þarf einhver að kaupa. Er ekki bannað að kaupa vændi? Ekki virðist konuna hafa skort viðskiptavini ef dæma á af þeim fjárupp- hæðum sem nefndar voru. Hvers vegna er ekki reynt að hafa uppi á viðskipta- vinum hennar? Óneitan- lega datt mér í hug nýleg fregn af konu í einu Araba- landanna, sem var grýtt og síðan dæmd til dauða, vegna þess að hún var þunguð, en mágur hennar hafði ítrekað nauðgað henni á meðan eiginmaður hennar sat í fangelsi. Þess vegna spyr ég: „Hverjir semja lagabókstafinn sem dæmt er eftir“? Á ég hér við íslensk lög. Enn er í gildi angi þeirra laga sem heimiluðu karlmönnum að drekkja ógiftum konum sem urðu barnshafandi af völdum karla sem tókst að koma fram vilja sínum með góðu eða illu. Þó að bæði kyn komi við sögu, virðist reynt að koma skömminni á konuna eina. Réttlætissinnuð baráttukona. Tapað/fundið Tapað hjól SILFURGRÁTT 26" Tig- er-hjól var tekið fyrir utan hús við Sveighús í Grafar- voginum. Þeir sem hafa séð hjólið eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 892 5109 eða 567 6703. Hafi einhver hjólið undir höndum væri ráð að skila því á lögreglustöðina í Grafarvogi. Tapað úr GULLLITAÐ kvenarm- bandsúr af gerðinni DKNY tapaðist í eða við Hreyfingu í Faxafeni mánudaginn 26. maí. Finn- andi er vinsamlegast beð- inn um að hringja í síma 698 5603. Dýrahald Kettlingar fást gefins ÞRÍR kettlingar fást gef- ins, tvær læður og einn fress. Þeir eru allir kassa- vanir. Áhugasamir geta hringt í síma 820 0793. Yndislegir högnar fást gefins TVEIR yndislegir eins árs gamlir högnar fást gefins. Það er búið að gelda þá og eru þeir mannelskir og einstaklega ljúfir. Þeir sem geta boðið þeim upp á gott heimili geta hringt í síma 566 8716 eða 697 6409. Páfagaukur týndist DÍSARPÁFAGAUKUR slapp út af heimili sínu við Fannafold í Grafarvogi 27. maí. Gaukurinn er grár og gulur að lit og með rauðar kinnar. 567 3053. Gráni er týndur KANÍNAN mín, hann Gráni, er týnd. Hann er í Fossvogsdalnum. Þeir sem hafa orðið hans varir vin- samlegast hafi samband í síma 588 7674. Kanína fannst BRÚN, grá og svört kan- ína, mjög gæf, fannst hjá Melaskóla sl. mánudag. Eigandi er beðinn um að hafa samband í síma 562 3203. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir LÁRÉTT 1 drenglunduð, 8 land- ræmur, 9 aðdróttanir, 10 tóm, 11 fátækar, 13 lík- amshlutann, 15 iðja, 18 sanka saman, 21 ber, 22 skattur, 23 styrkir, 24 hagkvæmt. LÓÐRÉTT 2 formæðrum, 3 ýlfrar, 4 lánaði, 5 tarfi, 6 baun, 7 göfugra, 12 peningur, 14 fugl, 15 dæld, 16 fíflin, 17 hella, 18 hvell, 19 álit- leg, 20 siga. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 þvoði, 4 flimt, 7 asinn, 8 rolan, 9 ask, 11 grun, 13 órór, 14 efast, 15 barm, 17 trog, 20 eta, 22 umboð, 23 sumar, 24 skipa, 25 akrar. Lóðrétt: 1 þvarg, 2 okinu, 3 inna, 4 fork, 5 illur, 6 tínir, 10 skart, 12 nem, 13 ótt, 15 baugs, 16 rebbi, 18 rímur, 19 gærur, 20 eðla, 21 aska. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.