Morgunblaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 40
FÓLK Í FRÉTTUM
40 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR
www.rvk.is/borgarskjalasafn
Sími 563 1770
Hver var Lárus?
Sýning um Lárus Sigurbjörnsson,
skjala- og minjavörð Reykjavíkurbæjar
1954-1968 á 3. hæð, Tryggvagötu 15.
Opin alla virka daga kl. 10-16.
Aðgangur ókeypis.
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is. Sími 577 1111
Sumarstarfsemi hefst
sunnudaginn 1. júní
Nýjar sýningar í Árbæjarsafni:
Lárus Sigurbjörnsson
Daglegt líf á sjötta áratugnum
Fjölbreytt dagskrá í allt sumar
Minjasafn Orkuveitunnar í Elliðaárdal
(gegnt gömlu rafstöðinni) er opið
sunnudag frá kl. 15-17 og eftir
samkomulagi í s. 567 9009.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is
Frumefnin Fimm -
Ferðadagbækur Claire Xuan
24. maí - 1.sept. 2003.
Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi,
nánari upplýsingar í síma 563 1790.
Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga
frá 10-16. Opnunartími sýninga virka daga
12-19 og 13-17 um helgar.
Aðgangur ókeypis.
www.listasafnreykjavikur.is
sími 590 1200
HAFNARHÚS, 10-17
Hátíð hafsins - ljósmyndasýning
(31.5. og 1.6.)
KJARVALSSTAÐIR, 10-17
Rússnesk ljósmyndun - yfirlitssýning,
Örn Þorsteinsson, Kjarval
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
ÁSMUNDARSAFN, 10-16
Ásmundur Sveinsson -
Nútímamaðurinn
Menningarmiðstöðin Gerðuberg.
Sími 575 7700. Gerðubergi 3-5, 111 Rvík
Innritun í Gagn og gaman stendur yfir.
Sýningar:
Brýr á þjóðvegi 1
Gunnar K. Gunnlaugsson sýnir
ljósmyndir af brúm á þjóðvegi 1
Íslandsteppin
Ísl. bútasaumsfélagið sýnir
bútasaumsteppi.
Jón Ólafsson sýnir í Félagsstarfi
Athugið, lokað um helgar
frá 31. maí - 1. september
www.gerduberg.is
Ritsmiðja í Borgarbókasafni
Ritsmiðja fyrir 8 - 12 ára krakka
10. - 13. júní
Upplýsingar í síma 5631717 og 567 5320
og á heimasíðu safnsins
www.borgarbokasafn.is
Vegna fjölda áskorana verður aukasýning á hinni
geysivinsælu afmælissýningu Halla og Ladda
Lau. 31. maí kl. 20
Lengi lifir í gömlum bræðrum!
Miðasala opin frá kl. 15-18. Símsvari allan sólarhringinn
loftkastalinn@simnet.is
www.casa.is
lau 31. maí, ZÜRICH í SVISS; frumsýning
fim 5. júní kl. 21, SJALLINN AKUREYRI
lau 7. júní kl. 21, Félagsheimilið Blöndósi
sun 15, júní kl. 21, Hótel Borgarnes
Forsala á Akureyri fer fram í Pennanum
Eymundsson Glerártorg.
Forsala á Blöndósi í Byggingav. KH, Húnabraut
Forsala í Borgarnesi í versluninni
Fínu fólki, Borgarbraut
www.sellofon.is
Stóra svið
Nýja svið
Þriðja hæðin
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Lau 31/5 kl. 20.
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
Litla svið
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT
Mi 4/6 kl 20, Fi 5/6 kl 20, Fö 6/6 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Sunnudaginn 1/6 kl 20 - AUKASÝNING
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
15:15 TÓNLEIKAR - POULENC HÓPURINN
Lau 31/5 kl 15:15 Ferðalög: Bergmál Finnlands
BÍBÍ OG BLAKAN - ÓPERUÞYKKNI
eftir Ármann Guðmundsson, Sævar
Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason
í samvinnu við HUGLEIK Lau 31/5
LOKASÝNING
NÚLLSJÖ NÚLLSEX 2003
Dansleikhúskeppni LR og ÍD
Lau 7/6 kl 20
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Su 1/6 kl 20,
Fö 6/6 kl 20,
Fö 13/6 kl 20
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Í kvöld kl 20, Lau 31/5 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA!
Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús: Börn, 12 ára og yngri, fá frítt
í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum.
Gildir á ÖFUGU MEGIN OG MAÐURINN SEM.
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS
VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Í kvöld kl 20,
SÍÐASTA SÝNING
TVÖ HÚS eftir Lorca
í kvöld fös. 30. maí kl. 20
sun. 1. júní kl. 20
fim. 5. júní kl. 20
fös. 6. júní kl. 20 Síðasta sýning
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR
552 1971 - nemendaleikhus@lhi.is
VÖLUSPÁ
eftir Þórarin Eldjárn
150. sýning sunnudag 1. júní kl. 20.
Einstakt tækifæri til að sjá þessa
rómuðu sýningu.
10. júní hefst 3ja vikna leikhúsnám-
skeið fyrir 9-12 ára börn.
Enn eru nokkur pláss laus.
Netfang: ml@islandia.is
www.islandia.is/ml
Kirkjulistahátíð 2003
29. maí - 9. júní
FÖSTUDAGURINN 30. MAÍ
16.00 Barokkfyrirlestur: Frá Fresco-
baldi til Bachs - tokkatan í orgeltónlist
Jon Laukvik heldur fyrirlestur með tóndæmum
við barokkorgel Langholtskirkju.
20.00 Óratórían Elía, op. 70,
eftir Felix Mendelssohn-Bartholdy
Hátíðarkór Mótettukórs Hallgrímskirkju.
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Einsöngvarar: Elín Ósk Óskarsdóttir sópran,
Alina Dubik alt, Anthony Rolfe Johnson tenór og
Andreas Schmidt bassi.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
LAUGARDAGURINN 31. MAÍ
12.00 Barokkorgeltónleikar:
Jon Laukvik frá Noregi.
Frá Frescobaldi til Bachs - tokkatan í orgeltónlist.
Jon Laukvik heldur fyrirlestur með tóndæmum
við barokkorgel Langholtskirkju.
18.00-23.00 Listavaka unga fólksins
Sköpunargleði ungra listamanna í tónlist, leiklist,
dansi og spuna fyllir kirkjuna.
Umsjón: Guðjón Davíð Karlsson, Guðmundur
Vignir Karlsson og Margrét Rós Harðardóttir.
23.00 Virðulegu forsetar eftir Jóhann
Jóhannsson (frumflutningur).
Flytjendur: Caput hópurinn, Skúli Sverrisson,
Matthías M.D. Hemstock, Guðmundur Sigurðs-
son, Hörður Bragason og Jóhann Jóhannsson.
Stjórnandi: Guðni Franzson.
SUNNUDAGURINN 1. JÚNÍ
20.00 Ljóðatónleikar: Trúarlegir ljóða-
söngvar með Andreas Schmidt og píanóleikarinn
Helmut Deutsch flytja Gellert-ljóð eftir Beethoven,
Vier ernste Gesänge eftir Brahms, Biblíuljóð eftir
Dvorák og Michelangelo-ljóð eftir Wolf.
Staður: Salurinn í Kópavogi.
MÁNUDAGURINN 2. JÚNÍ
12.00 Tónlistarandakt
Prestur: Sr. Kristján Valur Ingólfsson.
Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson spinna
á saxófón og orgel.
20.00 Quattro Stagioni og Karlakórinn
Fóstbræður
Kvartettinn Quattro Stagioni frá Noregi og
Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna
Harðarsonar flytja verk eftir Perotinus, Tallis,
Gesualdo, Poulenc, Snorra S. Birgisson og Stabat
mater dolorosa fyrir karlakvartett og karlakór eftir
norska tónskáldið Kjell Habbestad. Ennfremur
verður Missa brevis eftir Wolfgang Plagge
frumflutt á tónleikunum.
VINSÆLASTA vasaleikjatölva
heims, GameBoy frá Nintendo, hefur
tekið allmiklum breytingum frá því
hún kom fyrst fram á sjónar-
sviðið fyrir fjórtán árum.
Þá var tölvan með einlit-
um skjá og klossuð, að
minnsta kosti í
augum þeirra
sem kynnst hafa
nýjustu útgáfum,
en náði strax mikl-
um vinsældum þrátt
fyrir harða samkeppni frá
öðrum framleiðendum
sem allir eru gleymdir í
dag.
Árið 1998 kom ný útgáfa
af tölvunni með litaskjá,
GameBoy Color, sem varð
enn til að auka vinsældir
hennar. GameBoy Color
var þó einskonar biðleikur
hjá Nintendo á meðan síðasta hönd
var lögð á GameBoy Advance, sem
leysa átti gömlu gerðina af hólmi.
GameBoy Advance var mikil framför
frá fyrri gerðinni, umtalsvert öflugri,
með mun betri skjá og fór vel í hendi,
meira á breiddina en hæðina. Hún
hafði þó og hefur enn einn höfuðgalla;
hún er ekki með upplýstan skjá. Það
þýðir að til þess að spila leiki þarf
birtan að vera góð en það er óneit-
anlega ákveðinn galli.
Handhægari
Nintendo virðist hafa tekið mið af
umkvörtunum notenda, því bætt er
úr þessu í nýrri gerð
GameBoy Advance
sem kom út fyrir
stuttu, Game-
Boy Advance
SP.
GameBoy Adv-
ance SP virkar mun
minni um sig en eldri
gerðin, sem skrifast aðal-
lega á það hve hún er frá-
brugðin í laginu frá þeirri
gömlu. Mestu munar þar um að
hægt er að loka henni og er skjárinn
í lokinu. Þetta kemur sér
sérdeilis vel þegar taka á
vélina með sér, því ekki er
bara að það fari mun minna
fyrir henni, heldur hlífir
þetta einnig skjánum, en
það er þörf viðbót.
Annað sem vekur athygli
við vélina er vitanlega skjá-
lýsingin sem margfaldar notagildi
hennar; eitt og sér tilefni til að stinga
gömlu vélinni ofan í skúffu og fá sér
nýja! Í stað þess að baklýsa skjáinn,
hafa ljósið í skjánum, er lýsingin á
jöðrum hans og kappnóg, en hnappur
er á vélinni til að slökkva á ljósinu
þegar þess gerist ekki þörf og spara
hleðsluna á rafhlöðunni. Rafhlaðan er
annars hleðslurafhlaða sem innbyggð
er í vélina, en hleðslutæki fylgir með.
Ekki náði ég að fullprófa hvað hleðsl-
an entist en samkvæmt upplýsingum
á netinu ætti hún að duga í um tíu
klukkutíma spilamennsku með ljósi
og átján tíma án ljóssins. Það tekur
rúma tvo tíma að hlaða hana.
Á tölvunni eru venjuleg tengi en
ekkert sérstakt tengi fyrir heyrnar-
tól. Það er þó hægt að kaupa sérstakt
millistykki fyrir heyrnartólstengi
sem ætti nú að vera staðalbúnaður.
Harðnandi samkeppni
GameBoy Advance SP er að mestu
með sama innvols og gamla Advance-
vélin og allir leikir sem gengu í þá
gömlu ganga vitanlega í þá nýju. Ég
tók líka eftir því að margir gamlir
GameBoy leikir sem maður nennti
ekki að spila í gömlu Advance útgáf-
unni, meðal annars vegna þess að
skjárinn var svo dimmur, öðlast nýtt
líf í nýju vélinni.
Hart er nú sótt að Nintendo með
vasaleikjatölvur; Nokia er búið að
kynna N-Gage sem er sími sam-
byggður vasaleikjatölvu og Sony
hyggst hasla sér völl á þeim vett-
vangi. GameBoy Advance stendur
styrkum fótum í þeirri samkeppni,
ekki síst með SP-útgáfunni, sem gert
hefur fyrirtaks leikjatölvu enn betri.
Vasaleikjatölvan GameBoy Advance SP komin á markað
Gefur leikjum nýtt líf
Að mati Árna
Matthíassonar
munar mikið um
skjálýsingu nýju
leikjatölvunnar
og að lokið
verndi skjáinn.
Fyrir stuttu kom á markað ný kynslóð GameBoy
vasaleikjatölvunnar vinsælu frá Nintendo. Árni
Matthíasson prófaði gripinn og komst að því að
notagildi hennar er margfalt á við gömlu tölvurnar.