Morgunblaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 27
þykju. Það hefur alltaf verið rausn- arlegt og gaman að koma til þeirra Núru og Hannesar á Laugarásveginn og alltaf eru allir velkomnir. Núru verður ekki lýst með fáeinum orðum á bréfsnepli, hún var glæsileg kona og eftir lifa einstakar minningar um yndislega afasystur. Guðrún Edda Guðmundsdóttir, Sigríður Th. Pétursdóttir. Kær föðursystir okkar, Guðrún Kristjánsdóttir, Núra, er látin. Langafi okkar og afi Núru, Eldeyjar- Hjalti, nefndi hana fyrstur þessu nafni. Faðir okkar, Hjalti Geir, og Núra voru einu börn afa og ömmu og fjölskylduböndin sterk. Ræturnar lágu í hjarta Reykjavíkur, fyrst á Öldugötu 4 og síðan á torfunni milli Laugavegs, Smiðjustígs og Hverfis- götu. Þar bjó stórfjölskyldan, afi og amma, afasysturnar Lára og Sigga, Tryggvi afabróðir, Olli frændi, Agnar og Helga Tryggva sem er nýlátin. Fjölskyldur okkar og Núru bjuggu báðar á sínum tíma á Laugavegi 13 en síðar varð heimili Núru og Hannesar á Laugarásvegi 64. Í hugann koma ótal minningar. Sambýlið á annarri og þriðju hæð, tjaldferðir, langdvalir í sumarbústað ömmu og afa, jólaboð og aðrar lífsins veislur. Þessar tvær fjöl- skyldur hafa gengið æviveginn sam- an. Við eigum sameiginlegar minn- ingar sem hafa lagt grunn að dýrmætri vináttu. Það var Núru mik- ils virði. Núra elskaði fjölskyldu sína heitt. Hún var henni það sem góð kona getur frekast orðið og við systk- inin nutum sannarlega góðs af því. Hún sýndi okkur ávallt mikinn áhuga og vakti yfir velferð okkar og síðar einnig barna okkar. Hún var glæsileg heimskona sem hafði ákaflega sterka nærveru. Hreinskilni hennar var mikil og húm- orinn oft nálægur. Í einkalífi var Núra fyrirmynd. Hún var góð hús- móðir, sem veitti af örlæti og ástúð. Heimilið var smekklegt og mannlífið ræktað af mikilli snilld. Samband fjöl- skyldunnar á Laugarásvegi var fag- urt og samheldni Núru, Hannesar, dætra og fjölskyldna þeirra er ein- stök. Þau voru eitt og framtíð þeirra sameiginleg. Á undanförnum árum hefur Núra átt við nokkur veikindi að stríða. Án einstakrar umhyggju Hannesar hefðu veikindin haft mun meiri áhrif á líf hennar en raun bar vitni. Hannes bar hana alla tíð á höndum sér. Þrátt fyrir heilsubrest bar andlát Núru brátt að. Það er því ánægjulegt hve margar góðar stundir við höfum átt að undanförnu. Við systkinin þökkum af alhug kærleik Núru og vottum fjölskyldunni allri okkar inni- legustu samúð. Ragnhildur, Kristján, Er- lendur og Jóhanna Vigdís. Mín besta vinkona, Guðrún Krist- jánsdóttir sem jafnan var nefnd Núra, er látin 81 árs að aldri. Hún er öllum harmdauði sem hana þekktu enda óvenjuleg kona á ferð sem búin var miklum mannkostum. Núra var stórglæsilega kona og vel af Guði gerð. Sem ung stúlka bar hún af öðrum jafnöldrum sínum. Góð menning og menntun stýrði fasi hennar öllu enda hafði hún notið hvor- tveggja ríkulega. Fáir stúdentar í Reykjavík árið 1941 stóðu jafnvel að vígi og Núra. Hún hafði notið einstaks atlætis í foreldrahúsum, var útskrifuð úr Húsmæðraskóla Reykjavíkur og með stúdentsprófið að vopni hélt hún til framhaldsnáms til Bandaríkjanna þar sem hún lagði stund á almenn fræði við þarlenda menntastofnun. Hún kom heim að ári liðnu og haslaði sér völl í Reykjavík, foreldrum sínum til mikillar ánægju. Árið 1950 giftist hún glæsilegum manni, Hannesi Guðmundssyni lög- fræðingi, og þau stofnuðu sitt fyrsta heimili að Laugavegi 13 í Reykjavík. Síðar fluttu þau að Laugarásvegi 64 þar sem þau byggðu upp fjölskyldu og heimili sem bjó yfir þokka og glæsileika. Dæturnar fjórar uxu og döfnuðu í skjóli foreldra sinna og það var ávallt ánægjulegt að sækja þau heim og njóta samvista þeirra. Það vakti eftirtekt mína hve samheldin fjölskyldan öll var. Hannes og Núra voru par sem allir tóku eftir og dáðust að, og dæturnar urðu foreldrum sín- um eftirlæti, bestu vinir þeirra og fé- lagar. Þegar ég kynntist Núru í upphafi síðari heimstyrjaldar gerði ég mér strax grein fyrir að þar færi gæfu- manneskja. Innræti hennar og hugs- un hafði áhrif á alla sem höfðu eitt- hvað af henni að segja. Við urðum strax perluvinkonur og sá vinskapur hélst allt fram til dagsins í dag. Ég minnist margra skemmtilegra stunda á okkar yngri árum; ferðalaga, úti- lega, bíó- og ballferða sem hnýttu vin- áttu okkar sterkum böndum. Á þess- um árum liðu dagarnir hratt og lífið lék við ungar sálir sem þráðu að tak- ast á við allt sem framtíðin bauð upp á. Árin sem í hönd fóru gleymast seint. Við fylgdumst hvor með ann- arri og deildum gleði okkar og sorg- um. Á síðari árum höfum við oft skemmt okkur saman við að rifja upp gamlar og góðar minningar. Núra var alltaf skemmtileg og viðmótsþýð. Hún reyndist mér einstakur vinur og félagi. Nú þegar leiðir skilja sakna ég hennar mikið; vináttunnar, trygg- lyndisins og hins hreinlynda hugar- þels. Eftir standa minningarnar einar um góða og heilsteypta konu sem styrkti mynd okkar sem hana þekktu um gott og fagurt mannlíf. Ég votta Hannesi og dætrunum þeirra Núru, fjölskyldum þeirra, vin- um og vandamönnum mína dýpstu og innlegustu samúð. Þau hafa öll misst mikið. Ég bið Guð að blessa minningu minnar góðu vinkonu. Katrín Sigurðardóttir (Dúa).  Fleiri minningargreinar um Guðrúnu Kristjánsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 27 Útför ástkærs eiginmanns,föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, HALLDÓRS E. SIGURÐSSONAR fyrrv. ráðherra, verður gerð frá Borgarneskirkju mánudaginn 2.júní kl.15.00 Minningarathöfn verður sama dag í Dóm- kirkjunni í Reykjavík kl.10.30. Margrét Gísladóttir, Gísli V. Halldórsson, Guðrún Birna Haraldsdóttir Sigurður I. Halldórsson, Steinunn Helga Björnsdóttir Sigurbjörg G. Halldórsdóttir Kristján Örn Ingibergsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, PÁLL ÓLAFSSON, prentari, lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði miðviku- daginn 28. maí. Guðrún Jónsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN JÓNSDÓTTIR, Litla-Hofi, Öræfum, lést mánudaginn 26. maí. Jarðsungið verður frá Hofskirkju laugardaginn 31. maí kl. 16.00. Halla J. Gunnarsdóttir, Sigurjón Þ. Gunnarsson, Guðbjörg Magnúsdóttir, Bryndís Gunnarsdóttir, Jón Gunnlaugsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, langafi, vinur og frændi, BÖÐVAR KRISTJÁNSSON, Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, verður jarðsunginn frá Þorlákskirkju, Þorláks- höfn, laugardaginn 31. maí kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á dvalarheimilið Kirkjuhvol Hvolsvelli, reikningur 182-05-62161. Ólöf, Sigurður, Þóra, Elín, tengdabörn, afabörn, Svala og Böðvar. Ástkær eiginmaður minn, tengdasonur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AXEL Ó. LÁRUSSON áður kaupmaður í Vestmannaeyjum, Suðurtúni 9, Bessastaðahreppi, lést laugardaginn 24. maí. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni þriðju- daginn 3. júní kl. 13.30. Sigurbjörg Axelsdóttir, Guðrún S. Guðmundsdóttir, Sigrún Óskarsdóttir, Ársæll Sveinsson, Óskar Axel Óskarsson, Sigríður Sigurðardóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Guðlaug Jónsdóttir, Adólf Óskarsson, Heiða Guðrún Ragnarsdóttir, barnabörn og langafabörn. ✝ Björn Pálssonfæddist í Kaup- mannahöfn 20. maí 1923. Hann lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi 21. maí síðastliðinn. Foreldrar Björns voru hjónin Páll Jónsson, vélstjóri, f. 18. sept. 1895, d. 16. jan. 1945, og kona hans Gróa Ágústa Guðmundsdóttir, f. 24. ágúst 1891, d. 23. maí 1984. Björn átti eina systur, Sigrúnu Pálsdóttur Smith, f. 7. maí 1925, hennar maður var Earle L. Smith, f. 23. júlí 1918, d. 26. mars 2000, búsett í Florida í Bandaríkjunum. Björn kvæntist 20. sept. 1947 eftirlifandi eiginkonu sinni Helgu Þórðardóttur, f. 18. nóv. 1917, í Bjarnarnesi í A-Skaftafellssýslu. Foreldrar hennar voru séra Þórð- ur Oddgeirsson, prestur og pró- Ágúst Kr. Björnsson, f. 22.12. 1956, í sambúð með Hildigunni Guðmundsdóttur, f. 23.4. 1967, sonur þeirra er: a) Aron Kristinn, f. 7.10. 2001, dóttir Ágústs, b) Eva Mjöll, f. 16.11. 1983, dætur Hildi- gunnar eru: c) Hulda Mýrdal Gunnarsdóttir, f. 8.2.1989, og d) Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir, f. 28.6.1990. Þórunn Gyða, f. 29.8. 1959, gift Stefáni S. Stefánssyni, f. 14.7. 1956. Þeirra börn eru: a) Signý, f. 27.6. 1983, b) Stefán Björn, f. 25.10. 1987, og c) Bjarki, f. 12.9. 1990. Björn ólst upp í Reykjavík. Hann útskrifaðist frá Verslunarskóla Ís- lands árið 1942 og starfaði alla tíð við bókhald og endurskoðun. Hann var aðalbókari hjá Sameinuðum verktökum hf. 1952 til 1958, deild- arfulltrúi í Endurskoðunardeild Reykjavíkurborgar 1964 til 1972, aðalbókari hjá Tryggingu hf. 1972-1978 og aðalbókari Reykja- víkurhafnar 1978 til 1993, er hann lét af störfum sökum aldurs. Björn var virkur félagi í Kiw- anisklúbbnum Heklu frá stofnun og allt til dauðadags. Útför Björns verður gerð frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. fastur í Sauðanesi á Langanesi, f. 1. sept. 1883, d. 3. ágúst 1966, og kona hans Þóra Ragnheiður Þórðar- dóttir, f. 29. jan. 1883, d. 19. júní 1950. Börn þeirra hjóna eru: 1) Bolli, f. 9. 2. 1948, kvæntur Constanze Björnsson, f. 30.11. 1949, búsettur í Þýskalandi. 2) Björn Vignir, f. 24.9. 1949, kvæntur Guðrúnu Nikulásdóttur, f, 28.11. 1954. Þeirra börn eru: a) Birgir Örn, f. 9.8. 1976 í sambúð með Helgu Ásgeirsdótt- ur, f. 18.8. 1979, sonur þeirra er Gunnar Björn, f. 30.9. 1998, b) Guðný Björg, f. 29.5. 1979. 3) Þóra Ragnheiður, f. 14.2. 1951, hennar börn eru a) Sunna Jóhannsdóttir, f. 15.2. 1974, dætur hennar eru Embla Mjöll og Sól, f. 10.11. 1995, b) Úlfar Örn Mogel, f. 28.5. 1977. Elskulegur tengdafaðir og afi hefur kvatt okkur. Margs er að minnast og ófáar stundir þar sem setið var yfir kaffibolla í eldhúsinu, fyrst í „Hlunnó“ og hin síðari ár í Aðalland- inu. Afi var fróður um sögu landsins og hernámsárin voru honum minnis- stæð. Alltaf var jafn gaman að hlýða á fróðleik hans um menn og málefni. Björn naut samvista við börnin sín og fjölskyldur þeirra, fylgdist með dag- legum störfum, uppvexti og námi barnabarnanna og bar hag þeirra sér fyrir brjósti. Björn og kona hans Helga bjuggu lengst af í Hlunnavogi 8. Húsið var byggt á tímum skömmtunar en með mikilli útsjónarsemi var því verki lok- ið með sóma. Garðurinn var stór og fallegur og nutu þau hans. Margar minningar tengjast þessum stóra garði, gaman var að leika sér í alls kyns leikjum og skemmtilegast þegar afi var að vökva grasið og veður var gott, þá endaði leikurinn iðulega með miklum hamagangi og við systkinin rennblaut. Okkur þótti líka alltaf gaman að hjálpa ömmu og afa með garðverkin. Afi naut þess að ferðast, bæði inn- anlands og utan, og átti hann þess nokkrum sinnum kost að dvelja hjá syni sínum og tengdadóttur sem bú- sett eru í Þýskalandi og voru það hon- um kærar stundir. Einnig heimsótti hann Rúnu systur sína sem búsett er í Bandaríkjunum eins oft og færi gafst. Björn átti við erfið og mikil veikindi að stríða á árunum 1960 til 1962 og þurfti að leita sér lækninga, bæði hér á landi og erlendis. Voru þetta fjöl- skyldunni erfið ár en með guðs og góðra manna hjálp komst hann yfir veikindin og átti góð ár eftir það allt undir það síðasta. Björn lauk námi frá Verslunar- skóla Íslands 1942. Var skólinn hon- um ætíð mjög kær og skólafélagarnir hafa haldið þétt saman gegnum árin. Afi var virkur félagi í Kiwanisklúbbn- um Heklu og gegndi þar ýmsum trún- aðarstörfum. Nú þegar tengdafaðir og afi hefur kvatt okkur um sinn þökkum við hon- um allt sem hann hefur gefið okkur með nærveru sinni. Minning hans mun lifa að eilífu. Þú áttir auð er aldrei brást, þú áttir eld í hjarta, Sá auður þinn er heilög ást til alls hins góða og bjarta. Til meiri starfa guðs um geim þú gengur ljóssins vegi. Þitt hlutverk er að hjálpa þeim er heilsa nýjum degi. (Hrefna Tynes.) Guðrún, Birgir Örn og Guðný Björg. BJÖRN PÁLSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.