Morgunblaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 15 N‡tt fyrirtæki hefur liti› dagsins ljós sem skapar n‡tt vi›mi› á svi›i hra›flutninga,vöruflutninga og vörustjórnunar. Eftirtalin fyrirtæki hafa sameinast undir nafni DHL til a› bjó›a jafnvel enn fjölflættari fljónustu: DHL Worldwide Express, lei›andi fyrirtæki í hra›flutningum á heimsvísu, Danzas, sem er í fararbroddi í flug- og skipafrakt á heimsvísu, og Deutsche Post Euro Express, lei›andi evrópskt fyrirtæki í bögg- ladreifingu. Nú getum vi› bo›i› flér meiri afköst, meiri fljónustu og fleiri möguleika í yfir 220 löndum. Einu gildir hverjar flarfir flínar eru, vi› getum uppfyllt flær. Hringdu í okkur í síma 535 1100 e›a kíktu á www.dhl.is svo kraftur DHL geti stutt vi› baki› á rekstri flínum. Meiri kraftur. Mikið úrval af barnasportskóm á tilboði Suðurlandsbraut Sími 533 3109 Opið mán.-fös. kl. 12-18 laugardaga kl. 10-16 Verð frá kr. 1.495 Margir litir og margar stærðir EVRÓPSKA geimvísindastofnun- in ESA hefur tilkynnt að náðst hafi mikilvægur áfangi að því að hrinda í framkvæmd áformum um evrópska gervihnattastaðsetning- arkerfið Galileo, sem keppa mun við hið bandaríska GPS-kerfi. Aðildarríki ESA komu sér á mánudag saman um skilmála fyrir sérstakri stofnun (sem á ensku ber heitið Galileo Joint Undertak- ing), sem ESA og Evrópusam- bandið (ESB) munu standa sam- eiginlega að og er ætlað það hlutverk að hafa umsjón með framkvæmd Galileo-verkefnisins. Áformað er að Galileo-kerfið verði komið í gagnið árið 2008. Það byggist á því að 30 gervi- hnöttum verði komið fyrir á spor- baug um jörðu; 27 virkum og þremur til vara. Tvær stjórn- stöðvar verða á jörðu niðri. Kerfið á að geta fóðrað leiðsögubúnað farartækja af öllum stærðum og gerðum, á láði, legi og í lofti, á upplýsingum sem gerir búnaðin- um kleift að segja til um staðsetn- ingu með innan við eins metra ná- kvæmni. Bandaríska GPS-kerfið er eina hnattræna staðsetningar- kerfið sem sett hefur verið upp til þessa, en það er háð gervihnöttum sem eru í eigu bandaríska hersins og er því í raun undir stjórn bandaríska varnarmálaráðuneyt- isins. „Þetta er stór dagur fyrir Evr- ópu almennt, og geimvísindasam- félag álfunnar sérstaklega,“ sagði yfirmaður ESA, Antonio Rodota, eftir að samkomulag aðildarríkj- anna lá fyrir, en þau eru flest hinna 15 aðildarríkja ESB auk Sviss og Noregs. Á tímabili var mikil óvissa um hvað yrði úr Gali- leo-áformunum vegna innbyrðis ágreinings ESA-ríkjanna. Einnig hafa bandarísk stjórnvöld reynt að leggja stein í götu verkefnisins, m.a. með því að halda því fram að Galileo-kerfið muni verka á tíðni sem hægt væri að misbeita til að trufla GPS-kerfið. Þar sem stjórn- un hernaðaraðgerða á borð við innrásina í Írak er að miklu leyti komin undir GPS-kerfinu gera Bandaríkjamenn því kröfu til þess að tæknilega verði svo búið um hnúta, að bandaríska herstjórnin geti takmarkað starfsemi Galileo- kerfisins hvenær sem henni þykir þörf á slíku inngripi. Kostar 270 milljarða Heildarkostnaður við þróun og uppsetningu Galileo-kerfisins er áætlaður um 3,2 milljarðar evra, andvirði um 270 milljarða króna, og árlegur rekstrarkostnaður, frá árinu 2008, um 220 milljónir evra, 18,5 milljarðar króna. Samkvæmt markaðsmati ESA munu um 1,8 milljarðar manna vilja notfæra sér gervihnattaleiðsögukerfi árið 2010 og þessi fjöldi hugsanlegra notenda muni vaxa í 3,6 milljarða fram til ársins 2020. Samið um Galileo París. AFP. Alltaf á þriðjudögum Sérblað alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.