Morgunblaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 16
LISTIR
16 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJULISTAHÁTÍÐ í ártengist hátíðahöldum í til-efni af tuttugu ára afmæliListvinafélags Hall-
grímskirkju og Mótettukórs kirkj-
unnar. Og í tilefni af afmælisárinu
flytur Mótettukórinn Elía eftir
Mendelssohn við undirleik Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands, en flutning-
urinn er afmælisgjöf til Mót-
ettukórsins.
Mótettukórinn hefur áður flutt
Elía og þegar stjórnandi hans, Hörð-
ur Áskelsson, sem einnig er org-
anisti Hallgrímskirkju, er spurður
hvers vegna hafi verið ákveðið að
endurflytja verkið á þessum tíma-
mótum segir hann: „Okkur langaði
til þess að taka verkefni sem stendur
upp úr í þessari tuttugu ára sögu.
Þegar við fórum að líta yfir farinn
veg komumst við fljótlega að þeirri
niðurstöðu að okkur langaði til að
flytja Elía, sem við fluttum fyrst árið
1989. Samt er ekkert langt síðan
verkið var flutt hér af Óperukórnum
og Sinfóníuhljómsveit Íslands á
ensku, auk þess sem sá kór hljóðrit-
aði það. Við flytjum það hins vegar á
þýsku.“
Fyrrverandi kórfélagar
mættir til leiks
Andreas Schmidt bassi hefur oft
komið við sögu Mótettukórsins og
tekur þátt í flutningnum á Elía að
þessu sinni. Hann segir Elía hafa
verið uppáhaldsverk föður síns, sem
var kennari Harðar. „Við Hörður
höfum líka flutt verkið saman í
Þýskalandi,“ segir hann og þeir fé-
lagarnir velta því fyrir sér um stund
hvað þeir hafa í rauninni unnið mikið
saman hérlendis og erlendis.
„Andreas er lykilpersóna í Mót-
ettukórnum,“ segir Hörður. „Hann
var með mér árið 1982, þegar ég var
nýráðinn til Hallgrímskirkju, og við
vildum flytja tvær sólókantötur eftir
Bach. En okkur vantaði kór til þess
að syngja eitt lítið sálmalag í lokin á
annarri kantötunni. Við sendum
fréttatilkynningu til fjölmiðla þess
efnis að við ætluðum að stofna kór og
óskuðum eftir fólki í söngprufur. Það
komu um tuttugu manns og við réð-
um nánast alla. Þetta voru einsöngs-
tónleikar Andreasar og hann aðstoð-
aði mig við söngprufurnar.“
Kom ekki til greina að flytja núna
eitthvað sem þið höfðuð ekki flutt áð-
ur?
„Nei, reyndar ekki. Það er svo
stutt síðan við fluttum Passíu Haf-
liða og Jólaóratoríu Speights og
kominn tími til að gera eitthvað allt
annað. Og þar sem við höfðum flutt
Elía áður létum við þau boð út ganga
til fyrrverandi kórfélaga sem tóku
þátt í flutningnum 1989 að við ætl-
uðum að flytja verkið aftur og þeir
væru velkomnir. Í sem stystu máli,
þá stækkaði kórinn töluvert. Í flutn-
ingnum núna telur kórinn 110
manns. Það er mjög stór kór. Einn
kórfélagi kom sérstaklega frá Eng-
landi til þess að syngja með okkur og
tveir félagar, hjón, frá Egilsstöðum.
Þetta hefur því verið ákaflega
skemmtilegur tími. Æfingarnar hafa
verið eins og ættarmót; það er mikið
um kossa og faðmlög. Meðal þeirra
sem komu aftur til liðs við okkur er
fólk sem við höfðum misst sam-
bandið við, en kemur svo aftur eins
og ekkert sé og finnst óskaplega
gaman. Það veitir mér mikla upp-
örvun og núverandi kórfélögum
kraft. Enda er mannskapurinn far-
inn að tárfella yfir því að þessu ferli
skuli vera að ljúka og er þegar byrj-
aður að spyrja hvort ekki sé hægt að
flytja annað verk á næsta ári; það sé
svo gaman.“
Bergman og kvöld með
íslenskum ljóðskáldum
Er hátíðin í ár ekki mun viðameiri
en hún hefur verið til þessa?
„Jú, þetta er stærsta kirkju-
listahátíð sem við höfum haldið. Það
var alls ekki ætlunin þegar við fórum
af stað. Við töluðum sérstaklega um
að láta hana ekki vaxa okkur yfir
höfuð, en það voru alltaf að koma
nýjar og nýjar hugmyndir, sem voru
svo góðar að það var ekki hægt að
sleppa þeim.“
Ekki hafa kvikmyndir áður verið
hluti af hátíðinni?
„Nei, það sem er nýstárlegt við
hátíðina í ár, en í samræmi við það
mottó sem við höfum haft um að
sinna fleiri listgreinum en tónlist-
inni, er að við fjöllum um kvikmyndir
undir yfirskriftinni „Trúlega Berg-
man“. Þar verður fjallað um trúar-
stef í verkum Bergmans. Hingað
kemur meðal annars Maaret Kosk-
inen, einn fremsti Bergman-
fræðingur heims, og flytur fyr-
irlestur, auk þess sem sýndar verða
tvær kvikmyndir Bergmans og hald-
ið verður málþing. Bergman-hlutinn
spannar þrjá daga.
Einn af skemmtilegustu viðburð-
unum sem við bjóðum upp á verður
síðan „Passíusálmar“. Við fáum
fimmtán ljóðskáld til þess að flytja
nýsamin verk, eða eldri ljóð sem
tengjast Passíusálmunum, eru inspí-
reruð af Hallgrími Péturssyni eða
um hann.
Ég hef aðeins stiklað á nýjungum,
því það væri ógjörningur að telja upp
alla viðburðina. En það er óhætt að
segja að við endum hátíðina að þessu
sinni með glæsibrag um hvítasunnu-
helgina, þegar hingað kemur Das
Neue Orchester frá Köln og flytur
með okkur allar mótettur meistara
Bachs. Það verða lokatónleikarnir
sem við höldum í kjölfarið á þriggja
daga intensífri barokkhátíð. Það má
því segja að hvítasunnan og heilagur
andi verði miðpunkturinn í þeirri
sköpun sem standa mun yfir hér
næstu tíu dagana.“
Hliðstæða við sögu Krists
Til þess að glöggva okkur aðeins á
Elía eftir Mendelssohn, þá samdi
tónskáldið verkið við texta upp úr
Gamla testamentinu. „Elía er mjög
spennandi saga,“ segir Hörður,
„reyndar ein dramatískasta og mest
spennandi sagan í Gamla testament-
inu og auðvelt að skilja hvers vegna
Mendelssohn valdi hana.
Ég er með kenningu, sem ég hef
ekki rekist á annars staðar: Mend-
elssohn var fæddur gyðingur en kon-
verteraði og skírðist til kristinnar
trúar. Ég ímynda mér að saga Elía
hafi heillað hann vegna þess að hún
er að svo mörgu leyti
lík sögu Krists. Það
eru mörg hliðstæð
minni í þessum
tveimur sögum. Elía
framdi kraftaverk,
læknaði sjúka, hon-
um var útskúfað og
hann sté upp til
himna. Helstu kenni-
leiti úr sögu Krists
voru komin þarna
áður en Kristur
fæddist.
Elía er sendur af
Guði til þess að leiða
þjóð sína. En hún vill
ekki hlusta á hann, vegna þess að
hún dýrkar gullkálfinn og Baal, sem
er einhvers konar mynd af mamm-
oni. Elía kemur fram til þess að
segja þjóðinni til syndanna, tilkynnir
henni að ekki muni rigna og ekkert
breytast fyrr en hún snýr frá villu
síns vegar. En þjóðin heldur áfram
að dýrka sinn hjáguð. Elía kallar
hana þá upp á fjallið Karmel þar sem
hann efnir til einvígis á milli Guðs og
Baals. Hann býður þjóðinni að reisa
altari og síðan að fórna uxa til heið-
urs Baal. Að lokum býður hann lýðn-
um að biðja Baal að senda eld til þess
að brenna altarið til að sjá hvort
hann er máttugri en Guð.“
Máttur bænarinnar
„Baal sendir auðvitað engan eld.
Fólkið hrópar „Baal, Baal, sendu
kraftinn til okkar, sendu okkur eld“
en ekkert gerist. Í þrígang skorar
Elía á fólkið að hrópa hærra og þeg-
ar ekkert gerist spyr hann hvað sé
eiginlega með Baal, hvort hann sé
sofandi eða úti á akri. Þegar allt
bregst flytur Elía undurfagra bæn
til Guðs, þar sem hann biður um
regn, og þá gerast undrin. Tónlistar-
umgjörð kraftaverksins um rign-
inguna er eitt stórkostlegasta atriði
óratoríunnar. Það byrjar sem samtal
Elía og drengs sem er sendur til að
athuga hvort ekki séu komin ský á
himininn. Biðin er þrungin spennu.
Drengurinn tjáir þrisvar að ekki sé
ský á himni, áður en lítið ský sést úti
við sjóndeildarhring, og tónlistin
snýst í fögnuð lýðsins og rigningin
steypist yfir landið.
En þar með er ekki allt unnið, því í
seinni hlutanum sígur aftur á ógæfu-
hliðina. Drottningin, Jezebel, verður
afbrýðisöm fyrir hönd eiginmanns
síns, vegna þess að Elía er orðinn svo
dáður en konungurinn fallinn í
skuggann. Sá hafði áður verið mjög
dáður af þeim sem trúðu á Baal.
Jezebel bendir á Elía og segir hann
svikara. Það verður til þess að Elía
flýr út í eyðimörkina, þar sem hann
vill deyja. En þá koma englar og
segja að það megi hann ekki, því
hann hafi verk að vinna. Elía snýr til
baka til þjóðar sinnar og er vel tekið.
Í lokin stígur hann til himna á eld-
vagninum.“
Hvernig myndirðu lýsa tónlist-
inni?
„Þetta er ákaflega fallegt verk og
rómantískt.“
Flytjendur óratoríunnar, sem flutt
verður klukkan 20.00 í kvöld, eru El-
ín Ósk Óskarsdóttir sópran, sem
syngur hlutverk ekkju og engils, Al-
ina Dubik alt, sem syngur drottn-
inguna og engil, Anthony Rolfe
Johnson tenór, sem syngur Óbadía
og Akab, og Andreas Schmidt bassi,
sem syngur hlutverk Elía. Auk þess
syngur Elfa Margrét Ingvadóttir
sópran sveininn og kórinn er Afmæl-
iskór Mótettukórs Hallgrímskirkju.
Dramatískt verk
og spennandi
Mótettukór Hallgrímskirkju heldur upp á tuttugu ára starfs-
afmæli um þessar mundir og flytur eitt af sínum uppáhalds-
verkum, Elía eftir Mendelssohn, af því tilefni í kvöld. Súsanna
Svavarsdóttir ræddi við kórstjórann, Hörð Áskelsson, um Elía
og aðra viðburði á Kirkjulistahátíðinni sem nú stendur yfir.
Hörður Áskelsson Andreas Schmidt