Morgunblaðið - 30.05.2003, Page 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SKÝRR hf. hefur hafið samstarf
við sænska fyrirtækið Cambio
Healthcare Systems, sem er eitt
stærsta hugbúnaðarhús Norð-
urlanda á sviði heilbrigðistækni.
Skýrr er nú sölu- og þjónustuaðili
Cambio á Íslandi en fyrirtækið
framleiðir hugbúnað og þróun-
arumhverfi fyrir stjórnendur og
starfsfólk heilbrigðisstofnana, til
dæmis kerfi fyrir meðhöndlun
sjúklinga, atvikastjórnun, slysa-
umfjöllun, eftirmeðferð, skoðanir
og rannsóknir.
Hreinn Jakobsson, forstjóri
Skýrr, segir að í kjölfar þessa
samstarfssamnings muni Skýrr
leggja aukna áherslu á ráðgjöf og
þjónustu í heilbrigðistækni.
„Örugg miðlun upplýsinga er lyk-
ilhæfni Skýrr og öryggismál eru
mikilvægasta málið þegar kemur
að rafrænni meðhöndlun heilbrigð-
isgagna. Við teljum að samstarfið
við Cambio sé eðlilegt framhald á
annarri starfsemi okkar,“ segir
hann.
Kröfuharðir
viðskiptavinir
Notendur hugbúnaðarkerfa
Cambio eru um 15 þúsund talsins
á heilsugæslustöðvum, slysavarð-
stofum, neyðarmóttökum og
sjúkrahúsum. Meðal stærstu við-
skiptavina Cambio eru sveit-
arfélög í Uppsölum, Värmlandi,
Östergötlandi, Jönköping, Krono-
berg og Stokkhólmi og sjúkra-
húsin Karolinska, Södertälje,
Huddinge, Norrtälje og Ersta.
„Heilbrigðisgeirinn hefur marg-
brotnar þarfir á sviði upplýs-
ingatækni og kröfuharðari við-
skiptavinir fyrirfinnast vart, enda
mikilvægi starfseminnar gríð-
arlegt og gögn viðkvæm.
Íslenskar heilbrigðistofnanir eru
í fremstu röð og það er ögrandi
verkefni að þjónusta þennan
geira,“ bætir Hreinn við.
„Aðgangur að sameiginlegum
upplýsingum, skilvirkt innra og
ytra samstarf heilbrigðisstofnana,
auknir valkostir fyrir sjúklinga og
lægri kostnaður við rekstur og
umsýslu búnaðarins eru meðal
helstu markmiða Cambio.
Framþróun búnaðarins er í nánu
samstarfi við notendur og við-
skiptavini og allt notendaviðmót
er sérsniðið að þörfum jafnt not-
enda sem tæknifólks. Þessar
áherslur eru okkur mjög að
skapi,“ sagði Hreinn að lokum.
Lausnir Cambio eru sérhann-
aðar til þess að tengjast öðrum
kerfum í notkun hjá heilbrigð-
istofnunum. Einingar búnaðarins
geta staðið einar sér eða verið
samtvinnaðar.
Takmarkið með kerfunum er
einfaldari og öruggari heilsugæsla
með ákvarðanatöku sem grund-
vallast á nákvæmum upplýsingum
og gögnum sem uppfærð eru í
rauntíma.
Forstjórar Skýrr og Cambio, Hreinn Jakobsson og Tomas Mora-Morrison.
Skýrr með sænskar lausnir
fyrir heilbrigðisstofnanir
ÍSLENDINGURINN Jón Steph-
ensson von Tetzchner var á dög-
unum tilnefndur til verðlauna í
Noregi sem „Netmaður áratug-
arins“ þar í landi. Jón er forstjóri
og einn af eigendum norska
tæknifyrirtækisins Opera Soft-
ware, sem m.a. hefur þróað hug-
búnað sem gerir notendum kleift
að varpa vefsíðum af Netinu yfir í
farsíma.
Tólf voru tilnefndir í val á „Net-
manni áratugarins“ í Noregi. Jón
varð meðal þriggja efstu í loka-
vali.
Opera Software hefur hannað
vafra, bæði fyrir einkatölvur og
farsíma. Jón stofnaði Opera
Software í Ósló árið 1995 ásamt
Geir Ivarsoey. Starfsmenn hjá fyr-
irtækinu eru nú um 125 talsins og
starfa flestir í Noregi.
Meðal fremstu
„netmanna“ í Noregi
HAGNAÐUR Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar nam 137 milljónum króna
fyrstu þrjá mánuði ársins. Er það
mun minni hagnaður en á sama tíma-
bili í fyrra er hagnaðurinn var 241
milljón. Helsta ástæða fyrir minni
hagnaði nú er minni loðnuafli á síð-
ustu vertíð, en tekið var á móti 31 þús-
und tonnum á síðustu vertíð saman-
borið við 46 þúsund tonn í fyrra. Eins
hefur styrking krónunnar áhrif á af-
komu félagsins.
Rekstrartekjur félagsins minnk-
uðu úr 794 milljónum króna á fyrstu
þremur mánuðum í fyrra í 582 millj-
ónir nú. Rekstrargjöldin voru í fyrra
531 milljón en voru 399 milljónir
fyrstu þrjá mánuðina í ár.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði (EBITDA) var 183 milljón-
ir króna sem er 31% af tekjum. Veltu-
fé frá rekstri nam 149 milljónum
króna.
Gengishagnaður vegna erlendra
lána vegna styrkingar á gengi ís-
lensku krónunnar nam 42 milljónum
króna fyrstu þrjá mánuði ársins, en
fjármunatekjur félagsins námu 43,2
milljónum króna. Nettóskuldir sam-
stæðunnar lækkuðu um 148 milljónir
á tímabilinu.
Í tilkynningu til Kauphallar Íslands
kemur fram að ef styrking krónunnar
heldur áfram sé ljóst að framlegð fé-
lagsins muni lækka umtalsvert, en
hins vegar skila sér í jákvæðari fjár-
magnsliðum en áætlað var.
Áætlanir Hraðfrystistöðvar Þórs-
hafnar gera ráð fyrir að félagið verði
rekið með hagnaði árið 2003.
Samdráttur hjá
Hraðfrystistöð
Þórshafnar