Morgunblaðið - 30.05.2003, Side 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 13
REKSTUR samstæðu Kögunar
hf. skilaði 38 milljóna króna
hagnaði af fyrsta fjórðungi árs-
ins 2003 en á sama tímabili í
fyrra nam hagnaðurinn 35,5
milljónum.
Rekstrartekjur samstæðunn-
ar námu 263 milljónum króna á
ársfjórðungnum, samanborið við
268 milljónir árið áður. Rekstr-
argjöld námu samtals 229 millj-
ónum króna nú en 234 milljónum
fyrir sama tímabil árið 2002.
Heildareignir Kögunar hf. í
marslok 2003 nema samtals 841
milljón króna. Á sama tíma
námu heildarskuldir 267 milljón-
um. Eigið fé Kögunar í lok mars
2003 er 574 milljónir en eigið fé
félagsins hefur verið lækkað frá
síðasta uppgjöri um 46 milljónir
sem er bókfært verð á eigin
hlutabréfum félagsins. Eigin-
fjárhlutfall nú var 68% í marslok
en 72% á sama tíma í fyrra. Arð-
semi eigin fjár reyndist 28% nú
en var 25% á fyrra ári.
Veltufé frá rekstri á tíma-
bilinu janúar til mars 2003 nam
samtals 30 milljónum króna
samanborið við 46 milljónir á
sama tímabili 2002.
Afkoman í samræmi
við áætlanir
Í tilkynningu frá Kögun segir
að tekjur, gjöld og afkoma fé-
lagsins á fyrsta ársfjórðungi
2003 séu í samræmi við áætlanir
félagsins en þær hafi gert ráð
fyrir svipuðu rekstrarumfangi
og var á síðasta ársfjórðungi
2002.
„Á tímabilinu hefur umtals-
verðum tíma og mannafla verið
varið í undirbúning og þjálfun
vegna fyrirhugaðrar þátttöku fé-
lagsins í Link-16 verkefninu,
sem felur í sér smíði fjarskipta-
kerfa fyrir Mannvirkjasjóð Atl-
antshafsbandalagsins í sam-
vinnu við Thales Raytheon
Systems. Talsverður kostnaður
hefur fylgt undirbúningnum auk
þess sem hann hefur hamlað
annarri tekjuöflun á meðan,“
segir í tilkynningu og einnig að
búast megi við niðurstöðu í mál-
inu í júní nk.
Tekið er fram að stjórn Kög-
unar hf. leiti áfram tækifæra til
kaupa á fyrirtækjum sem falla
að rekstri félagsins, innanlands
sem utan.
Frá stofnun hefur fjárhagsár
Kögunar verið frá 1. október til
30. september ár hvert en verð-
ur framvegis frá 1. janúar til 31.
desember ár hvert. Ársfjórð-
ungsuppgjör og ársuppgjör
Kögunar almanaksárið 2003
verða því með sama hætti og hjá
öðrum fyrirtækjum sem hafa
almanaksárið sem reikningsár.
Kögun skilaði
38 milljóna
króna hagnaði rekstrartekjum. Afskriftir sam-stæðunnar námu samtals 279 millj-ónum króna en fjármunatekjur
umfram fjármagnsgjöld námu 329
milljónum króna, hlutdeild í af-
komu hlutdeildarfélaga nam 26
milljónum króna og hlutdeild
minnihluta í afkomu dótturfélaga
nam 15 milljónum króna. Heildar-
eignir samstæðunnar í marslok
2003 voru bókfærðar á 18.630
milljónir króna. Skuldir og skuld-
bindingar samstæðunnar námu
hins vegar 12.898 milljónum króna,
hlutdeild minnihluta í eigin fé nam
494 milljónum króna og var bók-
fært eigið fé samstæðunnar í
marslok 5.238 milljónir króna. Í
marslok 2003 var eiginfjárhlutfall
samstæðunnar 28,1%. Veltufjár-
hlutfallið var 0,92 í marslok.
SÍLDARVINNSLAN hf. var rekin
með 585 milljóna króna hagnaði á
fyrstu þremur mánuðum ársins.
Síldarvinnslan hf. og SR-mjöl hf.
voru sameinuð hinn 1. janúar 2003
og því ekki um samanburðarhæfar
tölur að ræða á milli ára.
Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði, EBITDA, er 659
milljónir króna eða 22,9% af
rekstrartekjum. Veltufé frá rekstri
nam 531 milljón króna og hand-
bært fé frá rekstri nam 231 milljón
króna. Ekki er beitt verðleiðrétt-
um reikningsskilum. Rekstrar-
tekjur samstæðunnar á tímabilinu
námu 2.876 milljónum króna en
rekstrargjöld 2.218 milljónum
króna. Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði nam 659 milljónum
króna, eða sem svarar til 22,9% af
Í fréttatilkynningu er haft eftir
Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra
Síldarvinnslunnar, að áætlanir
gerðu ráð fyrir mun meiri afla á
loðnuvertíðinni en raun varð á.
„Þannig var tekið á móti tæpum
200 þúsund tonnum til vinnslu en
áætluð höfðu verið ríflega 300 þús-
und tonn. Þetta hefur að sjálf-
sögðu veruleg áhrif á reksturinn.
Rekstrartekjur hafa lækkað vegna
styrkingar íslensku krónunnar en
skuldir hafa lækkað af sömu
ástæðu þar sem félagið er að
mestu fjármagnað í erlendum
gjaldmiðlum. Framlegð hefur farið
lækkandi vegna þessa. Óvissa á
næstu misserum er mikil en ef um
frekari styrkingu krónunnar verð-
ur að ræða fer framlegð rekstrar
minnkandi,“ segir Björgólfur.
Síldarvinnslan með
585 milljónir í hagnað
REKSTUR kauphallarinnar Euro-
next hefur ekki gengið jafn vel og
hjá keppinautunum í London og
Frankfurt, að því er fram kemur í
Financial Times. Euronext varð til
við samruna kauphallanna í París,
Brussel og Amsterdam fyrir þrem-
ur árum og ári síðar bættist kaup-
höllin í Lissabon í hópinn. Hagn-
aður Euronext hefur dregist saman
á sama tíma og hagnaður hinna
kauphallanna tveggja hefur aukist
hratt.
Kostnaður hjá Euronext hefur
einungis dregist saman um 0,8%, en
Financial Times bendir á að ætlunin
hafi verið að ná miklum sparnaði út
úr því að sameina kauphallir milli
landa.
Tekjur Euronext vegna skrán-
inga drógust saman um meira en
helming vegna erfiðra markaðsað-
stæðna, en tekjur vegna sölu á hug-
búnaði jukust um fimmtung.
Kauphallir í Evrópu
Rekstur Euronext lakari
en hjá keppinautunum