Morgunblaðið - 30.05.2003, Side 23
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 23
SENN líður að því að laxveiði
hefjist í Norðurá í Borgarfirði,
einni glæsilegustu veiðiá landsins.
Samkvæmt venju
munu stjórnarmenn
Stangaveiðifélags
Reykjavíkur verða
þeirrar ánægju að-
njótandi að renna
fyrstir félagsmanna
fyrir lax í ánni.
Vonandi verður
ekkert til sparað hvorki í mat né
drykk til þess að gera stjórn-
armönnum opnun árinnar gleði-
lega. Þessi veiðiferð stjórn-
armanna er þeim að
kostnaðarlausu enda er litið svo á
að um sé að ræða eðlilega umbun
fyrir óeigingjörn og krefjandi
stjórnarstörf í félaginu liðinn vet-
ur. Hefur sú tilhögun að stjórn-
armenn og makar þeirra veiði
endurgjaldslaust að öllu leyti
fyrstu dagana sumar hvert tíðkast
um árabil, en reyndar við misjafna
hrifning almennra félagsmanna
sem greiða fyrir sín veiðileyfi
fullt, uppsett verð öllu jöfnu.
Ef ég man rétt kom til tals fyrir
nokkrum árum að Stöð 2 keypti
opnunarréttinn að Norðurá fyrir
væna fjárhæð til þess að nýta sem
sjónvarpsefni en ekki varð úr því,
væntanlega vegna afstöðu þáver-
andi stjórnarmanna.
Að þessu sinni ber nokkurn
skugga á opnun Norðurár. Í
fyrsta sinn í 60 ára sögu félagsins
háttar svo til að formaður SVFR
er um þessar mundir á fullum
launum hjá félaginu við stofnun
svonefnds rekstrarfélags en lítill
sem enginn grundvöllur virðist
vera fyrir stofnun slíks félags.
Ég tel rétt að rekja þá sögu hér
nokkuð, en þeir sem fylgst hafa
með starfsemi félagsins að und-
anförnu þekkja vel til atvika.
Þannig er að einhverjir stjórn-
armenn núverandi og fyrrverandi
hafa fengið þá flugu í höfuðið að
sala veiðileyfa til utanfélagsmanna
kunni að falla undir samkeppnis-
starfsemi en ekki frjálsa fé-
lagastarfsemi eins og rekstur
SVFR er í raun. Sé hætta á að
umrædd veiðileyfasala verði kærð
til skattayfirvalda og þá liggi Dan-
ir í því. Hið rétta í málinu mun
vera að aðili sem stundar veiði-
leyfasölu í atvinnuskyni gerði fyrir
mörgum árum tilraun til þess að
klekkja á SVFR með kæru af
þessu tagi en hafði ekki árangur
sem erfiði.
Svo virðist sem undirbúningur
að stofnun Rekstrarfélags SVFR
ehf. hafi verið eitt helsta verkefni
stjórnarinnar á síðastliðnum vetri
þó leynt hafi farið. Til stóð að
lauma málinu í gegn án umsagnar
félagsmanna en sem betur fór
kom félagsfundur 3. apríl 2003 í
veg fyrir þá fyrirætlan.
Þrátt fyrir mjög eindregna af-
stöðu þorra félagsmanna gegn
stofnun rekstrarfélags af þessu
tagi á þeim fundi tókst ekki að
koma í veg fyrir að formaður fé-
lagsins setti sjálfan sig með
dyggri aðstoð annarra stjórn-
armanna, þeirra á meðal mágs
síns sem jafnframt er stjórn-
armaður í félaginu, í launað starf
við undirbúning að stofnun rekstr-
arfélags, þótt ekki sé vitað að for-
maðurinn hafi sérþekkingu á mál-
efnum slíkra félaga.
Þegar að loknum félagsfund-
inum 3. apríl sl. sem fyrr er getið
rituðum við Haraldur Blöndal hrl.
stjórninni bréf og gerðum í því
bréfi ítarlega grein fyrir sjón-
armiðum okkar varðandi fyrirhug-
aða stofnun rekstrarfélags, launa-
greiðslna til formannsins og
tókum fram að við teldum meiri-
hluta fundarmanna 3. apríl 2003
hafa verið andvíga áformum
stjórnarinnar og jafnframt teldum
við launagreiðslurnar ólögmætar.
Væri stjórn SVFR hugsanlega
skaðabótaskyld vegna þess arna
og þeir sem heimiluðu greiðsl-
urnar kynnu að bera persónulega
ábyrgð á þeim.
Löggiltum endurskoðanda fé-
lagsins var sent afrit þessa bréfs.
Engin viðbrögð bárust frá
stjórn félagsins vegna bréfsins.
Með bréfi dags. 16. maí sl.
ítrekuðum við Haraldur sjónarmið
okkar og kröfðumst enn svara.
Óskuðum við þess við löggiltan
endurskoðanda félagsins með bréfi
16. maí 2003 að hann knýði á um
að okkur yrðu veitt svör. Var
stjórn SVFR sent afrit þess bréfs.
Eftir að þetta bréf var sent
hafði formaður félagsins síma-
samband við annan okkar og bauð
okkur til viðræðna við sig um efni
kvörtunar okkar. Í því viðtali kom
fram að formaðurinn er staðráðinn
í að taka sér laun í þrjá mánuði
sem fyrr segir, vegna lítt skil-
greindra verkefna en þó með
stofnun hins alræmda rekstr-
arfélags sem leiðarljóss. Mér virt-
ist í viðræðum okkar formaðurinn
vera algjörlega lokaður fyrir nið-
urstöðu félagsfundarins 3. apríl sl.
og staðráðinn í að hafa vilja fé-
lagsmanna að engu.
Mig grunar reyndar að tilteknir,
fyrrverandi stjórnarmenn SVFR
og núverandi fulltrúaráðsmenn
eigi hugmyndina að stofnun
rekstrarfélags og vilji halda áfram
að stjórna aðalfélaginu gegnum
rekstarfélagið með aðstoð at-
kvæðalítilla stjórnarmanna, eins
og þeirra sem skipa núverandi
stjórn. Ég tel að þeir sem bera
ábyrgð á launagreiðslum til for-
manns eigi að segja af sér stjórn-
arstörfum. Jafnframt beri að leysa
fulltrúaráð félagsins upp, enda er
tímaskekkja að hafa gamla stjórn
að baki aðalstjórnar til þess að
ráðskast með málefni félagsins.
Fyrrverandi stjórnarmenn verða
að sætta sig við að þeir hafa látið
af störfum og eru nú óbreyttir fé-
lagsmenn sem verða að greiða fyr-
ir sín veiðileyfi eins og aðrir.
Gera verður ríka kröfu um
traust siðferði þeirra sem til trún-
aðarstarfa eins og formennsku í
SVFR veljast. Starf formanns er
og á að vera ólaunuð virðing-
arstaða. Geti menn ekki sinnt því
án launa eiga þeir ekki að gefa
kost á sér til starfsins. Sé á hinn
bóginn nauðsynlegt að fjölga
stöðugildum á skrifstofu SVFR
verður það að gerast að und-
angenginni hagkvæmniathugun á
öllum rekstri félagsins, en ekki
með þeim hætti að stjórn félagsins
ákveði án samþykkis félagsfundar
að greiða einstökum stjórn-
armönnum laun. Ég tel að með at-
hæfi sínu hafi stjórn SVFR og
einkum formaður félagsins brugð-
ist þeim trúnaði sem þeim var
sýndur við kjör þeirra til stjórnar.
Nokkrar hugleið-
ingar við upphaf
laxveiðinnar sum-
arið 2003
Eftir Sigurð Georgsson
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.