Morgunblaðið - 30.05.2003, Side 33
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 33
Kringlan 4-12, sími 568 6211.
Skóhöllin, Firði, Hf., sími 555 4420.
HERRASKÓR
3ja daga tilboð
föstudag - laugardag - sunnudag
20%
af öllum herraskóm
face - yellow miles - roots - ralph boston - best seller -
victory - imac - nike - adidas
afsláttur
NÝLEGA voru 140 nemendur
brautskráðir frá Fjölbrautaskól-
anum við Ármúla: 9 lyfjatæknar,
15 læknaritarar, 20 nuddarar, 10
sjúkraliðar, 8 tanntæknar og 78
stúdentar. Stúdentar útskrifast af
eftirfarandi brautum; 39 af fé-
lagsfræðabraut, 5 af íþróttabraut,
9 af málabraut, 24 af nátt-
úrufræðibraut og einn af upplýs-
inga- og fjölmiðlabraut. Þetta er
stærsti hópur sem útskrifaður
hefur verið frá skólanum.
Ingvar Þór Gylfason er dúx
skólans, aðrir nemendur sem
fengu viðurkenningu fyrir góðan
námsárangur og félagsstörf eru:
Astrid Sörensen, Ásta Kristín
Sveinsdóttir, Bryndís Guðmunds-
dóttir, Böðvar Sturluson, Guð-
björg Eva Baldursdóttir, Guðný
Ása Guðmundsdóttir, Guðrún
Helga Ívarsdóttir, Ingunn Hlín
Jónasdóttir, Karen Jónsdóttir,
Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir, Lilja
Rós Benediktsdóttir, María
Hjaltadóttir, María Svavarsdóttir,
Oddur Ingi Þórisson, Ragnar
Karl Jóhannsson, Valgeir Við-
arsson og Þórunn Guðlaugsdóttir.
Morgunblaðið/Jim Smart
140 brautskráðir
frá Fjölbrautaskól-
anum við Ármúla
Fyrirlestrar um áhrif jarðskjálfta
sem eru áfangi til meistaraprófs við
Háskóla Íslands verða haldnir á
morgun, laugardaginn 31. maí, kl.
13-17, í húsnæði Háskóla Íslands á
Selfossi, Rannsóknarmiðstöð í jarð-
skjálftaverkfræði, Austurvegi 2a, og
er öllum heimill aðgangur. Nem-
endur sem fyrirlestra halda eru frá
verkfræðideild Háskóla Íslands, um-
hverfis- og byggingarverkfræðiskor
(BS), og Félagsvísindadeild, fé-
lagsfræðiskor (BA). Þau eru: Að-
alheiður Sigbergsdóttir, BS, Albert
Leó Haagensen, BS, Marija Bosk-
ovic, BS og Jón Börkur Ákason, BA.
Leiðbeinandi í þremur fyrstu verk-
efnunum er Ragnar Sigbjörnsson,
prófessor í verkfræðideild HÍ, og er
hann einnig leiðbeinandi í fjórða
verkefninu ásamt Stefáni Ólafssyni,
prófessor í félagsvísindadeild HÍ.
Fundarstjóri er Birgir Jónsson, dós-
ent, verkfræðideild.
Fjallað um stjórnmál í Íran og
löndunum við Kaspíahaf í MÍR
salnum, Vatnsstíg 10, á morgun,
laugardaginn 31. maí, kl. 17. Tony
Hunt frá Communist League í Bret-
landi fjallar um stjórnmál í Íran og
löndunum við Kaspíahaf í kjölfar
stríðsins í Írak. Erindið er hluti op-
innar fræðsluhelgar Komm-
únistabandalags og Ungra sósíal-
ista, sem er hefst kl. 14.30 á sama
stað á erindinu: Hvað felst í stefnu
ríkisstjórnarinnar fyrir vinnandi
fólk?
Fyrirspurnir og umræður. Túlkun af
og á ensku á boðstólum.
Á MORGUN
SJÓMANNADAGSBLAÐ Austur-
lands er komið út og er blaðið fjöl-
breytt að vanda. Á meðal efnis má
nefna viðtal við myndlistarmanninn
Tolla Morthens, en Tolli var á sínum
yngri árum á sjó á bátum frá Aust-
urlandi, auk þess sem hann vann við
fiskvinnslustörf í landi. Í viðtalinu
fjallar Tolli m.a. um sjómennskuna
og verbúðarlífið á Austurlandi, en
textinn í laginu mb. Rosinn, sem
Bubbi bróðir hans gerði frægt, flétt-
ast inn í viðtalið.
Í blaðinu er einnig að finna fjöl-
margar greinar, m.a. eftir Dagnýju
Jónsdóttur, nýkjörinn þingmann og
yngstu konuna á Alþingi, Guðjón A.
Kristjánsson, þingmann, og Árna M.
Mathiesen, sjávarútvegsráðherra.
Þá eru í blaðinu fjölmargar frá-
sagnir, vítt og breitt af Austurlandi,
m.a. frásögn af því þegar Helgi
SF-50 fórst í ofsaveðri 1961, frásögn
sjómanns, sem lenti í baráttu við
beinhákarl, og ljóð eftir Ingvar
Gíslason, fyrrverandi ráðherra.
Á höfuðborgarsvæðinu er m.a.
hægt að nálgast Sjómannadagsblað
Austurlands í Bókabúð Lárusar
Blöndals, Listhúsinu í Laugardal,
verslunum Pennans – Eymundsson-
ar á höfuðborgarsvæðinu, Granda-
kaffi á Grandagarði, Kænunni í
Hafnarfirði og í Bókabúðinni Grímu
á Garðatorgi í Garðabæ. Á Akureyri
er blaðið fáanlegt í Pennanum –
Bókvali í Hafnarstræti og í Penn-
anum á Glerártorgi. Einnig er hægt
að panta Sjómannadagsblað Austur-
lands á netinu á slóðinni www.local.-
is.
Sjómannadagsblað Austurlands
er um 80 blaðsíður að stærð og inni-
heldur á annað hundrað ljósmyndir.
Ritstjóri blaðsins er Kristján J.
Kristjánsson frá Norðfirði.
Sjómannadags-
blað Austurlands
er komið út
SAMTÖK ferðaþjónustunnar fagna
ákvæðum í stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjórnarflokkanna um að íslenskri
ferðaþjónustu verði sköpuð sambæri-
leg rekstrarskilyrði og í samkeppn-
islöndum. Fyrirtækin í greininni hafa
lengi óskað eftir því að tekið verði al-
varlega á rekstrarskilyrðum þeirra
og þau færð til samræmis við helstu
samkeppnislönd. Brýnast er að skoða
virðisaukaskatta, ýmis gjöld, s.s. inn-
flutningsgjöld, eitthvert hæsta
áfengisgjald í heimi, gríðarlega mörg
og dýr leyfisgjöld, skyldutryggingar
sem aðeins gilda hér á landi o.fl., auk
þess sem háir vextir eru að sliga fyr-
irtækin, segir í ályktun samtakanna.
„Slík endurskoðun er mjög brýn,
ekki síst nú þegar hver plágan af ann-
arri hefur skollið á ferðaþjónustunni í
heiminum, 11. september, stríðið í
Írak og nú HABL. Talað er um hinar
þrjár plágur en segja má að fjórða
plágan fyrir ferðaþjónustuna hér á
Íslandi um þessar mundir sé hið háa
gengi íslensku krónunnar sem gerir
Ísland svo illa samkeppnisfært á al-
þjóðamarkaði að til stórvandræða
horfir. Fátt bendir til þess að íslenska
krónan veikist á næstu árum vegna
stórframkvæmda á vegum opinberra
aðila eystra og hafa Samtök atvinnu-
lífsins lagt áherslu á að ríki og
sveitarfélög stefni að aðhaldi á öðrum
sviðum til þess að hamla gegn þessu
háa gengi. Jafnframt því er brýnna
en oft áður að tryggja hagfelldara
rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar
svo að hún megi áfram vera sú vax-
andi stoð sem hún hefur verið í ís-
lenskum þjóðarbúskap,“ segir enn
fremur.
Fagna
ákvæðum í
stefnuyfir-
lýsingu
Á AÐALFUNDI Félags opinberra
starfsmanna á Austurlandi var eft-
irfarandi ályktun samþykkt sam-
hljóða:
„Aðalfundur Félags opinberra
starfsmanna á Austurlandi, haldinn
á Reyðarfirði 20. maí 2003, fagnar
kjarabótum þeim sem Kjaradómur
færði skjólstæðingum sínum daginn
eftir alþingiskosningar.
Jafnframt vænta fundarmenn, og
treysta á, að sömu kjarabætur nái til
annarra launþega, þegar kjara-
samningar renna út.“
Vilja sömu
kjarabætur
og Kjara-
dómur ákvað
♦ ♦ ♦
www.solidea.com