Morgunblaðið - 30.05.2003, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 35
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert kappsamur og leggur
hart að þér til að ná settu
marki. Þú leggur þig fram
um að gera heimili þitt að
griðastað fjölskyldunnar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að gæta þess að of-
gera þér ekki. Ekkert er dýr-
mætara en heilsan og það
hefnir sín ef gengið er á hana
í langan tíma.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú átt eitthvað skemmtilegt í
vændum. Bíddu þess sem
verða vill.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Skelltu skollaeyrum við
slúðrinu sem vinnufélagar
þínir eru að henda á milli sín.
Það segir meira um þá sjálfa
en þá sem þeir eru að tala
um.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nú er rétti tíminn til þess að
bera upp spurningu, sem hef-
ur lengi verið að brjótast um í
þér. Búðu þig undir að svarið
geti komið á óvart.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Leyfðu sköpunargáfu þinni
að fá útrás. Mundu að mann-
orðið er meira virði en efna-
hagslegur ávinningur. Láttu
aðra um smjaðrið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nú er tækifæri til að ganga
frá hlutum sem þú hefur
lengi látið sitja á hakanum.
Brettu upp ermarnar og
hættu ekki fyrr en borðið er
hreint.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú mátt ekki við meira álagi í
bili og því ættirðu að loka að
þér á meðan þú kemur hlut-
unum í röð og reglu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þig langar til að láta gott af
þér leiða og því er upplagt að
byrja á því að sinna bón gam-
als vinar. Þú munt uppskera
miklu meira en þú átt von á.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Frestaðu því ekki til morg-
uns sem þú getur gert í dag.
Ýttu öllum freistingum frá
þér og líttu ekki upp fyrr en
þú hefur lokið því sem fyrir
liggur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér hættir til fljótfærni og
því ættirðu að varast að taka
afdrifaríka ákvörðun án þess
að vera búin(n) að kanna alla
málavexti. Sýndu þolinmæði.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Farðu varlega í að gagnrýna
vinnufélaga þína, því þeir
vinna undir öðrum formerkj-
um en þú. Hugsaðu málið vel
áður en þú segir nokkuð.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ættir að kynna þér málin
vel áður en þú grípur til að-
gerða. Að öðrum kosti kunna
afleiðingarnar að verða
óvæntar og alvarlegar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HRÍSLAN OG LÆKURINN
Gott átt þú, hrísla’ á grænum bala,
glöðum að hlýða lækjarnið.
Þið megið saman aldur ala,
unnast og sjást og talast við.
Það slítur aldrei ykkar fundi,
indæl þig svæfa ljóðin hans.
Vekja þig æ af blíðum blundi
brennandi kossar unnustans.
Svo þegar hnígur sól til fjalla,
sveigir þú niður limarnar
og lætur á kvöldin laufblað falla
í lækinn honum til ununar.
Hvíslar þá lækjar bláa buna
og brosandi kyssir laufið þitt:
„Þig skal ég ætíð, ætíð muna,
ástríka, blíða hjartað mitt!“
- - -
Páll Ólafsson
LJÓÐABROT
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
ENSKUMÆLANDI
menn kalla það „squeeze
without the count“ þegar
slagur er gefinn í kjölfar
þvingunar. Þórður Sigfús-
son hefur stungið upp á ís-
lenska heitinu „forþvingun“
yfir þessa tegund spila-
mennsku, sem er gott nafn
og lýsandi. Í fyrri leik Ís-
lands og Noregs á NL í
Færeyjum náði Þorlákur
Jónsson fallegri forþvingun
í slemmuspili. Lítum á:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ D743
♥ G1043
♦ K8
♣K85
Vestur Austur
♠ 9 ♠ 1086
♥ 9762 ♥ K5
♦ G1065 ♦ 97432
♣ÁD103 ♣942
Suður
♠ ÁKG52
♥ ÁD8
♦ ÁD
♣G76
Vestur Norður Austur Suður
Furunes Jón Aa Þorlákur
-- Pass Pass 2 grönd
Pass 3 lauf Pass 3 spaðar
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 spaðar Pass 4 grönd
Pass 5 lauf Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Opnun Þorláks á tveimur
gröndum lofar 20-22 há-
punktum og þegar hann
sýndi fimmlit í spaða í kjöl-
farið gaf Jón slemmu-
áskorun með fjórum laufum.
Og þá héldu Þorláki engin
bönd.
Jon Egil Furunes kom út
með tígul og Þorlákur horfði
vondaufum augum á spil
makkers. Hann hafði teikn-
að upp spaðadrottningu,
rauðu kóngana og einspil í
laufi, en ekki þessi ósköp.
Þorlákur tók þrisvar tromp
og spilaði svo hjartagosa úr
borði – kóngur og ás. Hann
tók á hjartadrottningu til að
athuga hvort nían sýndi sig,
en hún kom ekki. Næst spil-
aði Þorlákur laufi að blind-
um, enda varð ásinn að
liggja. Furunes dúkkaði og
kóngurinn átti slaginn. Nú
fór að fæðast fótur!
Þorlákur tók síðustu tvö
trompin og henti tígulkóng í
það síðasta. Spilaði svo tíg-
ulás í þessari stöðu:
Norður
♠ --
♥ 104
♦ --
♣85
Vestur Austur
♠ -- ♠ --
♥ 97 ♥ --
♦ -- ♦ 97
♣ÁD ♣94
Suður
♠ --
♥ 8
♦ Á
♣G7
Furunes henti laufásnum
og Þorlákur lét hjarta-
fjarkann fara úr borðinu.
Spilaði svo litlu laufi í bláinn
og felldi drottninguna.
Laufgosinn varð þar með
tólfti slagurinn. Á hinu
borðinu varð Geir Helgemo
sagnhafi í sama samningi og
fékk út hjarta upp á kóng-
inn. Hann þurfti því aðeins
að spila laufi að kóng til að
ná í úrslitaslaginn.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Db6 5. Rb3 Rf6 6.
Rc3 e6 7. De2 Bb4 8. Bd2
O-O 9. a3 Be7 10. O-O-O d5
11. e5 Rd7 12. f4 a6 13. h4
Dc7 14. Hh3 b5 15. Dg4 f5
16. Dh5 b4 17. axb4 Rxb4 18.
g4 Rc5 19. Rd4 Da5
20. Kb1 Re4 21. gxf5
exf5 22. Bd3 Hb8 23.
Bxe4 dxe4 24. Hg3
Db6 25. Hdg1 Hf7
26. Be3 Rd5 27. Ra4
Rc3+ 28. Kc1 Rxa4
Staðan kom upp á
búlgarska meist-
aramótinu sem lauk
fyrir skömmu. Kalin
Karakehajov (2273)
hafði hvítt gegn Ma-
rijan Petrov (2490).
29. Hxg7+! Hxg7 30.
Hxg7+ Kxg7 31.
Rxf5+ Bxf5 32.
Bxb6 Bg6 33. Dg4 Hxb6
33... Rxb6 hefði e.t.v. veitt
harðvítugra viðnám þar sem
eftir textaleikinn tókst hvít-
ur að koma f-peðinu sínu að
stað. 34. Dd7 Kf8 35. Dxa4
Bxh4 36. Dc4 Hb8 37. De6
Hd8 38. Dg4 Be1 39. f5 Bf7
40. e6 Bd2+ 41. Kb1 e3 42.
f6 Bg6 43. e7+ Ke8 44.
exd8=D+ Kxd8 45. De6 h5
46. f7 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Hákon Svavarsson,
sími 898 9396
ÍBÚÐAREIGENDUR
SELÁSHVERFI, AUSTURBÆ
RVK. OG KÓPAVOGI
Ég hef verið beðinn um að leita eftir 3ja
herb. íbúð fyrir ungt par sem er að kaupa
sína fyrstu íbúð. Óskað er eftir íbúð í góðu
ástandi, ekki kjallari/jarðhæð. Verðhugmynd
11-13 millj. Áhugasamir vinsamlega hafið
samband og ég mun fúslega veita nánari
upplýsingar.
Hafðu samband - það kostar ekkert!
Hallgrímskirkja. Eldriborgarastarf í dag kl.
13. Leikfimi, æfingar við allra hæfi, undir
stjórn Jóhönnu Sigríðar. Súpa, kaffi og
spjall. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10
samkv. dagskrá í umsjá Aðalbjargar Helga-
dóttur. Gönguhópurinn Sólarmegin. Lagt
af stað frá kirkjunni kl. 10.30 alla miðv. og
föstud. Allir velkomnir. (Sjá síðu 650 í
Textavarpi).
Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10-12. Lokahátíð.
Keflavíkurkirkja. Aðalfundur KGSÍ verður
haldinn í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju
laugardaginn 31. maí. Fundurinn hefst kl.
9 og lýkur eigi síðar en kl. 15.30. Sjá nán-
ar í Vefriti Keflavíkurkirkju: keflavikurkirkja-
.is
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkom-
ur alla laugardaga kl. 11:00. Bænastund
alla þriðjudaga kl. 20:00. Biblíufræðsla
allan sólarhringinn á Útvarp Boðun FM
105,5. Allir alltaf velkomnir.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Flóamarkað-
ur frá kl. 10-18 í dag.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Unglinga-
samkoma kl. 21.
Kirkja sjöunda dags aðventista.
Samkomur laugardag:
Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19. Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði.
Biblíufræðsla/guðsþjónusta kl. 11.
Biblíurannsókn og bænastund á fimmtu-
dögum kl. 20.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2,
Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðs-
þjónusta kl. 11.
Biblíurannsókn og bænastund á föstudög-
um kl. 19.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði
40, Selfossi. Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum. Biblíufræðsla/guðsþjón-
usta kl. 10.30.
Biblíurannsókn og bænastund á sunnu-
dögum kl. 13.
Fermingar
Ferming í Hólaneskirkju á Skaga-
strönd laugardaginn 31. maí kl. 13.
Prestur sr. Magnús Magnússon. Fermd
verða:
Almar Freyr Fannarsson,
Bogabraut 18.
Arnrún Bára Finnsdóttir,
Hólabraut 19.
Ásþór Óðinn Egilsson,
Bankastræti 7.
Guðmundur Ingi Ólafsson,
Hólabraut 14.
Safnaðarstarf
Hallgrímskirkja
SAFNAÐARSTARF
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, föstudaginn 30. maí, eiga 50 ára
hjúskaparafmæli hjónin Dúfa Kristjánsdóttir og Hörður
Hallbergsson, Dofrabergi 7, Hafnarfirði. Hörður er mennt-
aður rafvirki og starfaði lengst af hjá Rafveitu Hafn-
arfjarðar sem yfirverkstjóri. Dúfa er saumakona og rekur
Saumsprettuna sf. í Reykjavík. Þau hjónin dvelja þessa helgi
á Hótel Rangá.
HLUTAVELTA
Morgunblaðið/Ingibjörg
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 3.490 kr. til styrktar
Rauða krossi Íslands. Þær eru Heiðrún Þórarinsdóttir,
Aþena Örk Ómarsdóttir og Helena Sól Ómarsdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
ÁRNAÐ HEILLA