Morgunblaðið - 30.05.2003, Page 37
Morgunblaðið/Jim Smart
stöðva Valsmanninn Hálfdán Gíslason og Bjarni Ólafur Eiríksson fylgist með rimmunni.
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 37
Golfklúbbur Sandgerðis
Kirkjubólsvöllur
Opna Sandgerðismótið
Opna Sandgerðismótið verður á Kirkjubólsvelli,
Sandgerði, laugardaginn 31. maí.
Mótið er punktamót - Rástímar frá 9-11 og 13.20-15
5 efstu fá verðlaun - Nándarverðlaun á 4. flöt.
Rástímar í golfskála 423 7802 og á netinu.
Góð verðlaun
Styrktaraðili Sandgerðisbær.
KNATTSPYRNUSAMBAND Evr-
ópu, UEFA, hefur hrósað stuðn-
ingsmönnum ítölsku liðanna AC
Milan og Juventus, sem léku til
úrslita á Old Trafford í Man-
chester á miðvikudagskvöldið,
fyrir frábæra framkomu. Yfir 70
þúsund stuðningsmenn liðanna
mættu til Manchester og var
framkoma þeirra liðunum og Ítöl-
um til mikils sóma. AC Milan
fagnaði sigri í vítaspyrnukeppni,
3:2.
Mike Lee, talsmaður UEFA,
sagði að ítölsku stuðningsmenn-
irnir hefðu verið hreint út sagt
stórkostlegir, eins og fimmtíu
þúsund stuðningsmenn Celtic sem
voru í Sevilla á Spáni fyrir viku,
þegar Celtic lék þar til úrslita um
UEFA-bikarinn.
„Ítölsku stuðningsmennirnir
veittu liðum sínum mikinn stuðn-
ing á vellinum. Þeir sýndu okkur
að það það er hægt að fá sér vín-
glas, skemmta sér á vellinum og
bera virðingu fyrir andstæð-
ingnum, gestgjöfum og þeirri
borg sem heimsótt er. Ítölsku
stuðningsmennirnir settu svo
sannarlega mark sitt á þennan
atburð og voru knattspyrnunni til
sóma,“ sagði Lee.
Þess má geta að aldrei fyrr
hafa jafnmargir farþegar farið í
gegnum flugvöllinn í Manchester
eins og s.l. miðvikudag er úrslita-
leikurinn fór fram.
Ítalir voru landi sínu
og þjóð til sóma
ÓLAFUR Stígsson og Bjarni
Þorsteinsson voru í byrjunarliði
Molde í norsku úrvalsdeildinni í
gær á útivelli gegn Vålerenga.
Molde tapaði leiknum, 2:0.
HELGI Sigurðsson var í byrj-
unarliði Lyn sem tapaði 4:0 á úti-
velli gegn Bryne. Jóhann Guð-
mundsson var á varamanna-
bekknum hjá Lyn en kom inná í
upphafi síðari hálfleiks.
TEITUR Þórðarson þjálfari Lyn
skipti út aðalmarkverði liðsins fyrir
leikinn en hann sló boltann í eigið
mark í 3:3 jafnteflisleik liðsins um
s.l. helgi. Ali Al-Habsi landsliðs-
maður frá Óman stóð í markinu í
þessum leik og fékk á sig fjögur
mörk í frumraun sinni.
HARALDUR Ingólfsson er enn á
skotskónum í norsku 1. deildinni en
hann skoraði sigurmark og jafn-
framt eina mark Raufoss gegn
Moss í gær. Raufoss er í fjórða sæti
með 13 stig að loknum sjö umferð-
um og hefur Haraldur skorað alls
fimm mörk til þessa í deildinni.
FORRÁÐAMENN bandaríska
landsliðsins í körfuknattleik sem
tekur þátt í undankeppni fyrir Ól-
ympíuleikana í sumar hafa tilkynnt
endanlegt lið sitt sem er þannig
skipað: Elton Brand (LA Clippers),
Richard Jefferson (New Jersey),
Nick Collison (Kansas-háskólan-
um), Kobe Bryant (LA Lakers),
Allen Iverson (Philadelphia), Jerm-
aine O’Neal (Indiana), Tim Duncan
(San Antonio), Tracy McGrady (Or-
lando), Jason Kidd (New Jersey),
Ray Allen (Milwaukee), Mike Bibby
(Sacramento) og Karl Malone (Ut-
ah). Fyrrum þjálfari Philadelphia
76ers, Larry Brown, mun þjálfa lið-
ið.
TÍU leikmenn Atalanta náðu að
halda hreinu í gær á útivelli gegn
Reggina, er liðin mættust í fyrri
leiknum um sæti í ítölsku 1. deild-
arkeppninni, 0:0. Varnarmaðurinn
Luigi Sala fékk að sjá rauða spjald-
ið í leiknum og verður hann ekki
með í seinni leiknum í Bergamo á
sunnudaginn.
FÓLK
Leikurinn fór rólega af stað en-Eyjamenn voru þó meira með
boltann en engin afgerandi færi
sáust í fyrri hálfleik,
það besta féll Eyja-
mönnum í skaut
þegar Unnar Hólm
Ólafsson átti skalla að marki en
Kjartan Sturluson varði vel. Fyr-
irliði Fylkis, Þórhallur Dan Jó-
hannsson, fór meiddur af leikvelli
um miðjan fyrri hálfleik og við það
kom smá óöryggi upp í vörn gest-
anna en Eyjamönnum tókst ekki að
nýta sér það og því markalaust í
leikhléi.
Ian Jeffs var í miklu stuði á
hægri kanti Eyjamanna og fékk
sannkallað dauðafæri á 59. mínútu
eftir sendingu frá Steingrími Jó-
hannessyni, Gunnar Heiðar hljóp
yfir boltann og Ian Jeffs í upplögðu
færi en skot hans fór rétt framhjá.
Hann bætti það þó upp sjö mínútum
síðar þegar hann skoraði eina mark
leiksins eftir góðan undirbúning
Steingríms Jóhannessonar sem átti
góðan leik gegn sínum fyrri fé-
lögum.
Eftir markið reyndu Fylkismenn
að sækja meira en þetta var ekki
þeirra dagur og hver sóknartilraun-
in á fætur annarri rann út í sandinn.
Eyjamenn beittu skyndisóknum og í
einni slíkri var Kjartan Sturluson
heppinn að fá ekki á sig hendi þegar
hann mjög greinilega fór með bolt-
ann út fyrir teiginn.
Undir lok leiksins fengu Fylkis-
menn besta færið sitt í leiknum,
Theodór Óskarsson komst inn fyrir
og sendi á Hauk Inga Guðnason var
einn og óvaldaður og aðeins Birkir
markvörður á móti honum en hann
hitti ekki boltann í upplögðu færi.
Eyjamenn fögnuðu að leikslokum,
fyrstu stigunum á Íslandsmótinu.
Fylkismenn voru ekki sannfær-
andi í gær og virtust áhugalausir.
Eigum varla færi í leiknum
„Þetta var bara ömurlegt hjá
okkur og við fengum bara það sem
við áttum skilið,“ sagði Aðalsteinn
Víglundsson, þjálfari Fylkis. „Ef
menn mæta svona til leiks eiga þeir
ekki skilið að sigra. Við töpuðum
þremur stigum hér í dag og verðum
bara að kyngja því og vinna okkur
út úr þessu.“ Aðalsteinn sagði enn-
fremur að allir ellefu leikmenn liðs-
ins hefðu ekki verið tilbúnir að
leggja sig nógu mikið fram í leikn-
um. „Menn koma ekki til Eyja
svona stemmdir og halda að þeir
geti labbað í burtu með þrjú stig.
Við áttum varla færi í leiknum.“
„Þetta eru fyrstu stigin okkar í
sumar og svo náum við að halda
hreinu. Við vorum búnir að fá á okk-
ur sjö mörk í tveimur leikjum og því
var mikilvægt að halda hreinu í dag.
leggi sig fram og berjist í svona
leik. Við getum ímyndað okkur
hvernig staðan væri ef við hefðum
tapað hérna í dag,“ sagði Bjarnólfur
Lárusson leikmaður ÍBV.
Eyjamenn
stöðvuðu
Fylki
ÞAÐ var ólík staða sem lið ÍBV og Fylkis voru í áður en flautað var til
leiks í Eyjum í gær, Fylkir á toppnum eftir tvo sigurleiki en Eyja-
menn í neðsta sæti eftir tvo tapleiki. Vörn Eyjamanna hefur verið
eins og gatasigti í fyrstu leikjunum og því beið erfitt verkefni Magn-
úsar Gylfasonar þjálfara að stoppa í götin. Fylkismenn höfðu aftur á
móti leikið á als oddi í fyrstu leikjunum og unnið sannfærandi. Fyrri
afrek dugðu Fylki ekki í gær og heimamenn fögnuðu gríðarlega sín-
um fyrsta sigri á leiktíðinni, 1:0.
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar
2$< !) *0 6 '$ /
!
3
4 56767>
A
D!
#
!#
(
*!#
C1 -
/
#
3
#<
(
(
!
?
4
3
) @8
!
$
% +, *+--.
. 5
6 &$* 1-
! ) "( 5:,-
9
< *6
5
# # #= 5
!
4 5
%
$ 5
76*8-
7 7 3
4 567878
A#
A
#<
( 9
*! !
>C -
< =
EF
/ &
! < 9
#$<"
)#$
*(
@06 -
! /
.
*
!
,, -
6
6
*%7> 8$ "
&$/ *? 7; 80 &! 5 0&! *%7>. 80 @' *? 7;+ 8!
'$ *%73: 80
4#$ 5
%
4#$ 5 #
B517>> 8
0*8-
0
B
Birkir ánægður
BIRKIR Kristinsson, markvörður ÍBV, átti
frekar náðugan dag í viðureigninni við
Fylki, eftir að hafa staðið í stórræðum í
fyrstu tveimur leikjunum. „Það var lagt upp
með að halda hreinu og það tókst, við vissum
að við myndum fá færi og þótt þau hafi ekki
verið mörg þá nýttum við þau og sigurinn
var sanngjarn.Við höfum ekki varist sér-
staklega vel í síðustu leikjum en í dag small
vörnin saman. Það er nú þannig að það þarf
að byggja sjálfstraustið upp frá aftasta
manni, byrja frá búrinu og vinna svo fram á
við, og þegar við höldum hreinu eykst sjálfs-
traustið,“ sagði Birkir.
ÞÓRHALLUR Dan Jóhannsson
slasaðist í leik Fylkismanna gegn
ÍBV í gær í Vestmannaeyjum og við
fyrstu skoðun í gær er líklegt að
brotnað hafi rifbein. Aðalsteinn Víg-
lundsson, þjálfari Fylkismanna,
sagði í gær að líklega þyrfti liðið að
vera án Þórhalls í einhvern tíma,
nokkrar vikur í versta falli en slík
meiðsli eru erfið viðureignar. Kjart-
an Antonsson, varnarmaður í liðinu,
er enn meiddur og einnig þeir Finn-
ur Kolbeinsson og Arnar Þór Úlf-
arsson. Aðalsteinn bjóst við að hægt
yrði að „tjasla“ Finni Kolbeinssyni
saman fyrir næsta leik liðsins á
sunnudaginn gegn FH-ingum í Ár-
bænum.
Þórhallur Dan frá í nokkrar vikur