Morgunblaðið - 16.06.2003, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2003 27
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára
Fyndnasta myndin sem þú sérð á árinu!
Losaðu þig við reiðina og hlæðu
þig máttlausan!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
YFIR 15.000 GESTIR!
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára
Martröðin er raunveruleg!
Ertu myrkfælin?
Þú ættir að vera
það. Mögnuð
hrollvekja!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
X-ið 977
HJ MBL
Kvikmyndir.com HK DV
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Frábær
njósnamynd
fyrir alla fjölskylduna
með hinum vinsæla
Frankie Muniz
úr Malcolm in the Middle
NICHOLSON SANDLER
YFIR15.000GESTIR!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12 ára
Toppmyndin
sem rústaði
samkeppninni í
Bandaríkjunum
síðustu helgi
Svalasta mynd sumarsins er komin.
EINN af þekktustu og hæst launuðu plötusnúðum í
heimi ætlar að þeyta skífum á Gauki á Stöng í kvöld
ásamt dj Grétari. Sasha er breskur og er margt til lista
lagt. Hann byrjaði að þeyta skífum í Bretlandi seint á
níunda áratugnum en er nú þekktur um heim allan.
Hr. Örlygur stendur fyrir komu Sasha hingað til
lands. Að sögn aðstandenda er Sasha einn af fáum
plötusnúðum í heiminum sem hefur náð stöðu popp-
stjörnu. Hann er sagður dýrkaður og dáður beggja
vegna Atlantshafsins. „Í Bandaríkjunum er ekki óal-
gengt að þúsundir manna standi klukkutímum saman í
röð til að sjá hann og í Bretlandi fékk hann snemma
viðurnefnið „sonur guðs,“ sem útskýrir sig algjörlega
sjálft,“ segir í fréttatilkynningu um komu Sasha.
Sasha hefur komið víða við í tónlistarheiminum, m.a.
unnið með Madonnu og Gus gus við upptökustjórn og
hljóðblöndun. Sasha sigraði í hinum virtu kosningum
DJ Magazine um plötusnúð ársins árið 2000 og var í
öðru sæti árin 2001 og 2002. Þess má geta að í nýlegri
könnun undir „djamminu“ á Huga.is voru netverjar
spurðir hvaða plötusnúð þeir vildu helst fá til landsins.
Af 15 mögulegum var Sasha með flest atkvæði eða 17%.
Íslendingum geta upplifað list hans á Gauki á Stöng í
kvöld, mánudagskvöldið 16. júní, frá miðnætti. Forsala
aðgöngumiða er í Þrumunni, Laugavegi. Verð í forsölu
er 2.500 krónur en 2.900 krónur við innganginn.
Frægasti og hæst launaði plötusnúður heims á landinu
„Sonur guðs“
þeytir skífum
TENGLAR
..................................................................................
http://www.djsasha.net
Einn kunnasti
plötusnúður
heims á leið
til Íslands.
SALA á um 1.700 miðum sem eftir
eru á tónleika djasssöngkonunnar
Díönu Krall hefst á skrifstofu Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands í Há-
skólabíói í dag. Fyrirfram voru 300
miðar boðnir áskrifendum Stöðvar
tvö á sérstöku M12-tilboðsverði en
þeir miðar seldust upp á einungis
30 mínútum síðastliðinn fimmtudag.
Að sögn Einars Bárðarsonar tón-
leikahaldara eru viðtökurnar ævin-
týralegar. „Þetta lofar góðu. Við-
brögðin við komu þessarar
söngkonu hafa verið miklu sterkari
en við þorðum að vona. Þetta er
mikill listamaður og margfaldur
verðlaunahafi og það er gaman að
geta boðið upp á svona frábæran
tónlistarmann,“ segir Einar.
Tónleikarnir með Díönu Krall
verða haldnir í Laugardalshöll hinn
9. ágúst næstkomandi. Alls eru um
2.500 miðar í boði á tónleikana.
Kostendur tónleikanna hafa tryggt
sér eitthvert magn miða þannig að
fjöldi miða sem verða í boði í dag
verður í mesta lagi um 1.700 að
sögn Einars. Hann segist ekki gera
ráð fyrir að miðarnir staldri lengi
við á skrifstofu Sinfóníuhljómsveit-
arinnar. „Ég hugsa að það verði
ekki til miðar í næstu viku,“ segir
Einar.
Miðana verður einnig hægt að
kaupa á vefsíðu Sinfóníuhljómsveit-
ar Íslands á www.sinfonia.is og í
síma 545-2500.
Díana Krall er fædd og uppalin í
Kanada og hóf píanónám fjögurra
ára gömul. Krall hefur gefið út níu
plötur og hlaut Grammy-verðlaun
sem besta djasssöngkonan árið
1999. Hún er trúlofuð tónlistar-
manninum Elvis Costello en ekki er
vitað hvort hann hyggst fylgja unn-
ustunni hingað til Íslands í ágúst.
Miðasala á Díönu Krall hefst í dag
Seldu tíu miða
á mínútu
Díana Krall virðist ætla að heilla Íslendinga sem aðra. 300 tilboðsmiðar á
tónleika hennar seldust upp á 30 mínútum.
TENGLAR
.....................................................
http://www.dianakrall.com/
TENGLAR
..........................................
www.nofxofficial-
website.com.
PÖNKINU verður gert hátt undir höfði áGauknum í kvöld. Bandaríska sveitin NoFxkemur fram en sveitin er talin forveri sveitaeins og Green Day og í raun einn af horn-
steinum bandarísku pönkkreðsunnar. Nýjasta
plata NoFx, sem ber heitið „War on Error-
ism“, er hörð ádeila á forseta Bandaríkjanna,
George W. Bush, og stríðsrekstur hans.
Liðsmenn sveitarinnar eru trúir
sínum hugsjónum og neita til að
mynda að fara í viðtöl sem
snúast um þá sjálfa eða
tónlist þeirra. Þeir eru
þó tilbúnir að koma
fram opinberlega og tjá
sig um pólitísk málefni.
Yfirskrift tónleikanna á Gauki á
Stöng er X-Slash. Tónleikarnir eru
haldnir í tilefni áratugarafmælis út-
varpsstöðvarinnar X-ins. Með NoFx
koma fram hljómsveitirnar Brain
Police og Innvortis. Húsið er opn-
að kl. 20:00. Verð í forsölu er 2.500
krónur en miðar eru seldir í
Skífunni á Laugavegi. Miðinn
kostar 2.900 krónur við dyrnar í
kvöld.
Pólitískir
pönkarar
NOKKRIR tónleikar verða haldn-
ir í júní í tilefni af því að tíu ár eru
síðan útvarpsstöðin X-ið fór fyrst í
loftið. Í kvöld leika pönkgoðin NoFx á Gauknum en
ekki verður látið þar við sitja. X-Slash-fjörið heldur
áfram og að sögn aðstandenda er ætlunin að vera með
dagskrá í tengslum við afmælið fram eftir sumri.
Maus verður með tónleika í Iðnó fimmtudagskvöldið
19. júní en kapparnir eru að gefa
út nýja breiðskífu um þessar
mundir.
Íslandsvinirnir í sveitinni Sick Of It All bjóða unga
aðdáendur sína velkomna á tónleika miðvikudaginn 25.
júní. Þeir tónleikar verða öllum opnir en sveitin heldur
aðra tónleika daginn eftir og þá í slagtogi með Botn-
leðju og I Adapt.
X-ið tíu ára