Morgunblaðið - 13.08.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 216. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Aftur með
Brimkló
Sigurjón Sighvatsson mundar
bassann eftir 20 ára hlé | Fólk 49
Packard
forsetans
Sex ára vinna skilar bílnum í
upprunalegt horf | Bílar B3
Ásgeir
áhyggjufullur
Vonar að allir landsliðsmenn
skili sér í hópinn | Íþróttir 42
STARFSFÓLK slysa- og bráðadeild-
ar Landspítalans í Fossvogi var und-
ir miklu álagi á mánudag vegna
fjölda alvarlegra slysa og varð að
kalla inn fólk úr vaktafríum þegar
mest gekk á, jafnvel úr matar-
boðum.
Að sögn Guðbjargar Pálsdóttur,
deildarstjóra slysa- og bráðadeildar,
þurfti að vísa minna slösuðu fólki frá
um tíma og sýndi það aðstæðunum
skilning. Friðrik Sigurbergsson yfir-
læknir segir deildina í stakk búna til
að bregðast við þessu ástandi. „Við
erum búin undir að taka á móti
svona miklum fjölda. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem þetta gerist, fjarri
lagi, og þetta á örugglega eftir að
gerast aftur,“ segir Friðrik.
Mikið álag á slysadeild Landspítalans eftir hrinu alvarlegra slysa
Í stakk búin
til að taka á
móti þess-
um fjölda
Morgunblaðið/Kristinn
Valtýr Stefánsson, læknir á slysadeild, skoðar röntgenmyndir og í bakgrunni er Kristín Bergsdóttir hjúkr-
unarfræðingur að búa um meiðsli eins þeirra fjölmörgu sjúklinga er áttu erindi á deildina í gær. „Þetta á örugglega“/27
SAMÞYKKT var í borgarráði í gær
að fara þess á leit við menntamála-
ráðherra að gerðar yrðu nauðsynleg-
ar lagabreytingar til þess að Reykja-
víkurborg gæti hætt að taka þátt í
kostnaði við rekstur Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands. Í ályktun borgarráðs
er vísað í skýrslu á vegum mennta-
málaráðherra þar sem það sjónarmið
kemur fram að stjórn og ábyrgð á
hljómsveitinni skuli vera á einni
hendi. Því telur borgarráð að
Reykjavíkurborg eigi að hætta þátt-
töku í rekstri Sinfóníuhljómsveitar-
innar. Borgarstjóra var falið að
koma þessu sjónarmiði borgarráðs á
framfæri við menntamálaráðherra.
Samkvæmt 3. gr. laga um Sinfón-
íuhljómsveit Íslands ber borgarsjóði
Reykjavíkur að greiða 18% af rekstr-
arkostnaði hljómsveitarinnar. Í fjár-
hagsáætlun þessa árs er gert ráð fyr-
ir að framlag Reykjavíkurborgar
verði 61 milljón og 170 þúsund.
Árni Þór Sigurðsson, forseti borg-
arstjórnar, segir að hugmyndir um
að borgin hætti þátttöku í rekstrin-
um ættu ekki að koma menntamála-
ráðuneytinu á óvart. „Fyrst og
fremst er það okkar skoðun að þetta
sé sinfóníuhljómsveit Íslands og það
er ekki eðlilegt að það sé ákveðið í
lögum að tvö sveitarfélög af öllum
sveitarfélögum landsins taki að hluta
til þátt í kostnaði við hana. Þess
vegna finnst okkur eðlilegt að þess-
um lögum verði breytt og sveitar-
félögin verði losuð undan greiðslu-
þátttöku í Sinfóníunni og hún sé
alfarið á höndum ríkisins,“ segir
Árni.
Þröstur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
segir að á meðan lögin um hljóm-
sveitina séu í gildi þá sé borgin
skyldug til að borga í samræmi við
það en hugsanlegar breytingar á
þessu fyrirkomulagi séu mál Alþing-
is.
Jónmundur Guðmarsson, bæjar-
stjóri Seltjarnarness, segir að bæj-
aryfirvöld á Seltjarnarnesi geti tekið
undir sjónarmið borgarráðs en Sel-
tjarnarnes er skuldbundið til að
greiða 1% af kostnaði við rekstur
Sinfóníunnar. „Það eru u.þ.b. tvö ár
síðan bæjarstjórn Seltjarnarness
samþykkti að fara þess á leit við
menntamálaráðuneytið að lögum um
Sinfóníuna yrði breytt þannig að Sel-
tirningar yrðu ekki lengur skuld-
bundnir til að taka þátt í rekstri
hennar. Við teljum það ekki hlutverk
okkar við svo búið að taka þátt í
kostnaði við reksturinn,“ segir Jón-
mundur.
Borgarráð Reykjavíkur vill breyta lögum um SÍ
Vilja hætta þátttöku í
kostnaði við Sinfóníuna
EFTIR miklar fortölur féllust upp-
reisnarmenn í Monróvíu, höfuðborg
Líberíu, í gær á að aflétta umsátrinu
um borgina og að opna höfnina svo
að matur og vistir komist inn í land-
ið, en neyðarástand ríkir hjá hundr-
uðum þúsunda borgara vegna skorts
á matvælum.
Bandaríska sendiherranum John
Blaney – með fulltingi herforingja
friðargæzluliðsins sem nýkomið er
til landsins frá öðrum Vestur-Afríku-
ríkjum og foringja bandarískrar
flotadeildar sem er nú undan strönd
Líberíu – tókst að ná þessu sam-
komulagi við leiðtoga stærstu upp-
reisnarhreyfingarinnar, LURD, síð-
degis í gær.
Foringjar uppreisnarmannanna
kröfðust þess í gær að fá valdatauma
landsins í hendurnar. Þeir myndu
aldrei fallast á að lúta stjórn Moses
Blah, fyrrverandi varaforseta, sem
tók við forsetaembættinu til bráða-
birgða.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðneytisins, Philip Reaker, varaði í
gær uppreisnarmenn við að halda
vopnuðum átökum áfram. Slíkt
myndi útiloka hreyfingar þeirra frá
þátttöku í nýrri ríkisstjórn.
Alþjóðlegir starfsmenn hjálpar-
samtaka hófu að koma aftur til
Monróvíu í gær en þeir urðu að yfir-
gefa borgina í byrjun júní þegar um-
sátrið um hana hófst.
Bardagar hófust að nýju á milli
stjórnarhersins og uppreisnarhópa í
hafnarborginni Buchanan í gær-
morgun en hún er á Atlantshafs-
ströndinni um 120 km suður af
Monróvíu. Fjöldi manns hóf að flýja
borgina er bardagarnir byrjuðu.
Taylor í glæsihýsi í Nígeríu
Charles Taylor, sem sleppti takinu
á forsetaembætti Líberíu á mánu-
dag, hóf útlegð sína í borginni Calab-
ar í Nígeríu í gær. Hann dvelur þar
ásamt eiginkonu sinni og fjórum
dætrum á höfðingjasetri við hafið en
nígerískir lögreglumenn gæta hans.
Nígeríuforseti hefur sagt að hann
eigi að fá að vera í friði og segist
muni ekki líða „áreiti“ eða kröfur frá
Bandaríkjamönnum eða Sameinuðu
þjóðunum um að hann skuli látinn
svara til saka fyrir stríðsglæpi.
Fallast á að opna
Monróvíuhöfn
Enn barizt í Líb-
eríu þótt Taylor
sé farinn í útlegð
Monrovia, Calabar. AP, AFP.
AP
Líberískar konur bera matvæla-
sekki úr birgðageymslu í Monróvíu-
höfn, sem er á valdi skæruliða.
ÖRVHENTIR hafa fengið nóg
af því að þurfa að þola margs
konar mismunun í heimi sem
sniðinn er að þörfum rétt-
hentra, að sögn talsmanna sam-
taka örvhentra í Bretlandi. Al-
þjóðadagur örvhentra er í dag.
Samtökin berjast m.a. fyrir
því að tækjaframleiðendur taki
tillit til þarfa örvhentra. Um
13% mannkyns eru örvhent.
Gegn mismun-
un örvhentra
Lundúnum. AFP.
BREZKUR ríkisborgari var hand-
tekinn í New Jersey í Bandaríkjunum
í gærkvöld, grunaður um að hafa
smyglað rússneskri sprengiflaug til
Bandaríkjanna, með það fyrir augum
að selja hana hryðjuverkamönnum.
Greindi talsmaður bandarísku alrík-
islögreglunnar, FBI, frá þessu.
Maðurinn, sem að sögn CNN-sjón-
varpsstöðvarinnar er af indverskum
uppruna, var handtekinn í Newark í
New Jersey. Kvað handtakan hafa
verið liður í stórri aðgerð FBI, sem
teygði anga sína til nokkurra landa.
Ónafngreindur talsmaður FBI sagði
aðgerðina hafa verið framkvæmda í
samstarfi við yfirvöld í Bretlandi og
Rússlandi.
FBI grunar hinn handtekna um að
hafa ætlað sér að selja hin smygluðu
vopn í hendur íslömskum öfgamönn-
um sem vildu beita þeim til hryðju-
verka í Bandaríkjunum. Á upptöku af
símasamtali við manninn segist hann
vilja selja hana til að henni verði beitt
til að skjóta niður farþegaþotu.
Vopna-
smyglari
handtekinn
Washington. AFP.