Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ HAGNAÐUR Pharmaco nam um 31 milljón evra, um 2,75 milljörðum ís- lenskra króna, á fyrri helmingi árs- ins samanborið við 13 milljónir evra á sama tímabili í fyrra, að teknu tilliti til söluhagnaðar. Að mati stjórnenda Pharmaco hef- ur vel tekist til með rekstur félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins. Lang- tímamarkmið Pharmaco um árlega framlegð er um 30% og stefnt er að 15–20% innri vexti að jafnaði á ári næstu 3 árin. Ennfremur stefnir Pharmaco að 15–20% ytri vexti með fjárfestingum í erlendum félögum sem falla vel að aðalstarfsemi félags- ins. Umfram væntingar Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að sala félagsins hafi verið um- fram væntingar stjórnenda félagsins á öllum helstu markaðssvæðum. Veiking dollars gagnvart evru hafði þó áhrif á umreikning sölutekna Balkanpharma í Búlgaríu til lækk- unar en um helmingur sölutekna Balkanpharma er í dollurum. Sala félagsins skiptist þannig: Þýskaland 29%, Búlgaría 21%, Rússland 12%, Serbía 9%, Skandin- avía 6%, Ísland 5% og aðrir markaðir minna. Í tilkynningunni frá félaginu segir að Delta og dótturfélög hafi ekki komið inn í rekstur Pharmaco fyrr en á miðju ári 2002 og séu því ekki inni í samanburðartölum ársins 30. júní 2003. Í tilkynningunni segir að unnið hafi verið að hagræðingu í rekstri Pharmaco í Serbíu og Búlgaríu og starfsmönnum fækkað um 740 í Búlgaríu og rúmlega 600 í Serbíu á fyrri helmingi ársins. Jafnframt hef- ur óarðbærum rekstrareiningum í Serbíu, sem ekki falla að kjarna- starfssemi félagsins, verið lokað og/ eða verða seldar, að því er segir í frétt félagsins. „Unnið var áfram að þróun lyfja fyrir Bandaríkjamarkað á tímabilinu og mun þróun fyrsta lyfsins sem fer á Bandaríkjamarkað ljúka fyrir ára- mót. Stefnt er að því að hefja þróun fleiri lyfja fyrir Bandaríkjamarkað á árinu.“ Vinnu við skráningar á lyfjum samstæðunnar á markaði Mið- og Austur-Evrópu miðar vel, sam- kvæmt fréttinni. Fjölmörg lyf hafa nú þegar verið skráð í Búlgaríu og hefst markaðssetning þeirra á fjórða ársfjórðungi þessa árs. Tafir hafa orðið á því að fram- leiðsla hefjist fyrir markaði V-Evr- ópu í nýrri verksmiðju félagsins í Búlgaríu. Endurskoðaðar áætlanir félagsins gera ráð fyrir að fram- leiðsla hefjist í byrjun árs 2004. Skrá 12 lyf í Svíþjóð „Undirbúningur fyrir stofnun söluskrifstofu í Svíþjóð hefur staðið yfir undanfarna mánuði og er á loka- stigi. Samheitalyfjamarkaðurinn í Svíþjóð er í örum vexti eftir að reglum um afgreiðslu lyfja í sænsk- um apótekum var nýverið breytt til að hvetja til til samheitalyfjanotkun- ar. Stefnir Pharmaco að því að skrá um 12 lyf á sænska markaðinn á næstu mánuðum. Í byrjun árs 2004 munu tvö hjarta- lyf fara af einkaleyfi í Evrópu og hef- ur Pharmaco tryggt sér samninga við mörg stærstu samheitalyfjafyr- irtækin um sölu þessara lyfja. Fram- leiðslugeta félagsins á Íslandi og Möltu mun verða nýtt til hins ítrasta á þriðja og fjórða ársfjórðungi til að tryggja afhendingu vörunnar. Tekjur vegna sölu þessara lyfja munu skila sér á árinu 2004. Mun Pharmaco verða með þeim fyrstu með þessi lyf á markað en það er lyk- illinn að velgengni á samheitalyfja- markaðinum.“ Breytingar á framkvæmdastjórn Tilkynnt var um breytingar á yfir- stjórn Pharmaco í gær. Ágúst H. Leósson tekur við stöðu fram- kvæmdastjóra fjármálasviðs en hann hefur gegnt stöðu fram- kvæmdastjóra fjármálasviðs Delta, dótturfélags Pharmaco frá árinu 2000. Aidan Kavanagh tekur við stöðu framkvæmdastjóra rekstrar- sviðs Pharmaco en Aidan hefur starfað sem ráðgjafi hjá Pharmaco um nokkurt skeið og komið að ýms- um verkefnum hjá dótturfélögum fé- lagsins í Serbíu og í Búlgaríu. Hörður Þórhallsson mun taka við stöðu framkvæmdastjóra Delta, dótturfélags Pharmaco. Breytingarnar taka gildi frá og með 1. september. Pharmaco hagnast um 2,75 milljarða       !  "#$  %& ' & !                              !   "" "" #"       $ %    !"   " ! #$  &% $    "!! ' (     !   "( # " %& ! " "(( #&$'%& "! ' ()"*+(  ),-./.0+(  " " 1 # !  2  #!  LANDSBANKI Íslands jók í gær hlut sinn í Eimskipafélagi Íslands með kaupum á 6,08% hlut af Burðar- ási hf. fyrir 1.941 milljón króna. Nafn- virði hlutarins nemur 313.104.880 krónum og viðskiptin voru gerð á genginu 6,2 krónur á hlut. Með þess- um viðskiptum jókst hlutur Lands- bankans í Eimskipafélaginu í 9,41% en hlutur Burðaráss er enginn. Eign- arhlutur Landsbankans nú er 484.777.530 krónur að nafnvirði eða tæpra þriggja milljarða króna virði á markaði, miðað við lokagengi daginn áður en viðskiptin urðu, 6,15 krónur á hlut. Að sögn Ingimundar Sigurpálsson- ar forstjóra Eimskipafélagsins stóð alltaf til að selja þennan hlut. „Þegar við fengum greitt fyrir Skeljungsbréf- in með eigin bréfum í Eimskipafélag- inu þá gerðum við það ekki öðruvísi en að hafa rætt við einhverja um mögu- leika á að koma þeim í verð. Lands- bankinn var einn af þeim sem við ræddum við. Síðan var það ákvörðun stjórnar Burðaráss að selja Lands- bankanum bréfin. Það náðist einfald- lega samkomulag um þetta verð. Landsbankinn kaupir á sama verði og við keyptum á,“ segir Ingimundur. Hjá Landsbankanum fengust þær upplýsingar að bankinn hygðist ekki eiga allan eignarhlutinn í Eimskipa- félaginu heldur yrði einhver hlutur seldur áfram á næstu dögum eða vik- um. Ekki fengust upplýsingar um hverjir eru hugsanlegir kaupendur. Landsbankinn kaup- ir í Eimskipafélaginu  ! "# $% &# '# ' ( )  *+  ' ( ) '  , ' ) * )   () .*-   () / 01 2 ()  3  4 0() 5 6++ + 3 3 () '*,  7, ) ()  + 8 4 3 0 /)6   ) () 2 01 ,() 3  ( ( 9: $    "<#& "%#& %$%#$ %# $"#& "$#% # <#& $<# $$#  %$#$  #   =  = = =  =  =  = = = = =   = HAGNAÐUR Marels hf. og dóttur- félaga fyrstu sex mánuði þessa árs jókst um 86% miðað við sama tímabil í fyrra. Hagnaður félagsins nam 2,4 milljónum evra, eða 202 milljónum ís- lenskra króna, en hagnaður félagsins á sama tíma í fyrra var 1,3 milljónir evra. Aukinn hagnað nú má einkum skýra með hagræðingaraðgerðum sem gripið var til á síðari hluta ársins 2002 og auknum innri vexti. Tekjur 4,7 milljarðar Rekstrartekjur Marels á tíma- bilinu voru 56 milljónir evra, sem eru um 4,7 milljarðar króna miðað við meðalgengi árshelmingsins. Það er um 6% aukning í evrum frá fyrra ári. Sjóðstreymi tímabilsins var vel við- unandi, að því er segir í frétt frá fyrir- tækinu. Handbært fé frá rekstri var 4,1 milljón evra og hefur það ekki orð- ið meira áður á hálfu ári segir einnig í fréttinni. Eignir Marels 30. júní sl. voru sam- tals 87,2 milljónir evra, eigið fé var 24,2 milljónir og eiginfjárhlutfall 27,7%. „Afkoma á öðrum ársfjórðungi var góð þrátt fyrir erfið ytri skilyrði, einkum vegna gengisþróunar Banda- ríkjadollars sem er um 20% lægri gagnvart íslenskri krónu en hann var að jafnaði á öðrum ársfjórðungi árs- ins 2002. Þennan árangur má einkum rekja til sterkrar samkeppnistöðu fé- lagsins og fjölmargra velheppnaðra nýjunga sem markaðssettar hafa ver- ið á undanförnum misserum. Umtals- verð framleiðniaukning hefur náðst með breyttu skipulagi og fjárfest- ingum í framleiðsluhúsnæði og fram- leiðslutækjum. Aukin samlegðaráhrif hafa einnig náðst innan samstæð- unnar og almennar aðhaldsaðgerðir á síðari hluta árs 2002 hafa skilað góð- um árangri á fyrri hluta þessa árs.“ Viðunandi verkefnastaða Verkefnastaða fyrirtækisins er við- unandi á þriðja ársfjórðungi segir í fréttinni. Verðlistar félagsins hafa verið hækkaðir nokkuð til að mæta óhagstæðri gengisþróun dollars, en við það veikist nokkuð samkeppnis- staða félagsins gagnvart bandarísk- um samkeppnisaðilum, segir einnig í frétt félagsins. Veiking íslensku krón- unnar á undanförnum vikum hefur aftur jákvæð áhrif á rekstur móður- félagsins. Mjög mikil og hörð samkeppni er á öllum mörkuðum félagsins, segir einnig í fréttatilkynningu frá Marel hf. Hagnaðaraukning Marels 86% ● Landsvirkjun hagnaðist um 1.480 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2003, en á sama tímabili fyrra árs var hagnaður 4.472 millj- ónir. Meginástæða góðrar afkomu fyrir- tækisins bæði árin er hagstæð gengisþróun, að því er segir í frétt frá Landsvirkjun. „Tekju og gjalda- áætlun á fyrri hluta ársins stóðst. Rekstrartekjur lækkuðu samtals um 485 milljónir króna eða 6,8%. Tekjur af sölu til almenningsrafveitna hækkuðu um 2,6% en tekjur af sölu til stóriðju lækkuðu um 16,8%. Orku- sala til almenningsrafveitna jókst frá fyrra ári um 0.05% en sala til stóriðju minnkaði um 0,08%. Á sama tíma lækkaði rekstrar- og viðhaldskostn- aður lítillega. Meðal nafnvextir lang- tímalána á fyrrihluta ársins eru um 3,5% eins og á s.l. ári.,“ segir í frétt fyrirtækisins. Handbært fé frá rekstri Landsvirkj- unar nam 3.151 milljón króna sam- anborið við 3.793 milljónir króna á árinu 2002. Eignir félagsins 30. júní sl. námu 133.564 milljónum króna, skuldir voru 92.455 milljónir og eigið fé 41.109 milljónir króna. Eiginfjár- hlutfall félagsins var 30,8% og arð- semi eigin fjár var 7,7%, en á sama tíma á síðasta ári var arðsemi eigin fjár 11,6%. EBITDA hagnaður nam 4.502 milljónum króna samanborið við 4.976 milljónir á sama tíma á síðasta ári. Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að við samanburð á milli ára verði að hafa í huga að Landsvirkjun hefur hætt verðleiðréttingu reikningsskila og eru afkomutölur því ekki að öllu leyti sambærilegar. Landsvirkjun hagnast um 1,5 milljarða ● Fjörutíu og sex og hálfrar milljónar króna tap varð á rekstri útgerðar- félagsins Skagtrendings fyrstu sex mánuði ársins, samanborið við 152 milljóna króna hagnað á sama tíma- bili árið áður. Lakari afkomu má rekja til styrkingar krónunnar og slæmrar afkomu rækjuvinnslu að því er segir í fréttatilkynningu frá félaginu. EBITDA hagnaður félagsins var 93 milljónir króna á tímabilinu og versn- aði um rúmar 100 milljónir frá árinu áður. Afskriftir námu samtals 140 milljónum króna og fjármagnsliðir voru neikvæðir um 8,5 milljónir. Á sama tímabili árið áður voru þeir já- kvæðir um 120 milljónir króna. Skagstrendingur er eitt þriggja fé- laga sem mynda Brim, dótturfélag Eimskipafélags Íslands hf., og stýrir Skagstrendingur rækjuvinnslu Brims á Skagaströnd og Hólmavík og rekur að auki frystitogarana Arnar og Örv- ar. Velta félagsins fyrstu sex mánuði ársins var 1,3 milljarðar króna og jókst lítillega á milli ára. Eignir Skagstrendings í lok tíma- bilsins námu að bókfærðu verðmæti tæpum 3,7 milljörðum króna, skuldir voru 2,7 milljarðar og eigið fé því um 900 milljónir króna. Tap hjá Skagstrendingi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.