Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 20
SUÐURNES 20 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ljósmynd: Hvalskurður, Reynir Sveinsson, Sandgerði. LANDSMENN Í LINSUNNI LJÓSMYNDASÝNING MORGUNBLAÐSINS Í SANDGERÐI Í Fræðasetrinu í Sandgerði stendur yfir sýning á verðlaunamyndum úr ljósmyndasamkeppni sem Okkar menn, félag fréttaritara Morgunblaðsins á landsbyggðinni, og Morgunblaðið efndu til í vetur. Á myndunum má sjá fjölbreytt viðfangsefni frétta- ritara Morgunblaðsins sem starfa um allt land. Fólk er í brennidepli linsunnar. Sýningin stendur til miðvikudagsins 27. ágúst. Myndirnar eru til sölu í Myndasafni Morgunblaðsins á mbl.is ENGINN fugl var sjáanlegur á Fitjatjörnunum fyrr í vikunni, ekki einu sinni stakur mávur, en annars hafa mávar hreiðrað um sig í einni af stærstu tjörnunum. Tjarnirnar hafa verið mjög vatnslitlar það sem af er sumri og sumar þeirra nánast alveg horfnar. Ekki hefur heldur sést lengi til svananna sem annars reigðu sig svo tignarlega á tjörn- unum. Spurning hvort sólskin sumarsins hafi þurrkað tjarnirnar upp eða hvort fuglarnir hafi flúið fram- kvæmdirnar sem að undanförnu hafa staðið við Fitjar. Meðal annars hefur verið komið fyrir flotbryggju út í stærstu tjörnina, eins og sést á myndinni, til að auðvelda aðgengi að fuglunum, en hvar eru þeir nú? Fuglalausar Fitjatjarnir Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Þessi mynd var tekin í febrúar þegar blómlegt fuglalíf var á tjörnunum. Nánast engir fuglar hafa sést á tjörnunum í sumar. Myndin er tekin fyrr í vikunni. Flotbryggju hefur verið komið fyrir í stærstu tjörninni til að auð- velda aðgengi að fuglunum sem þar hafa verið en sjást nú hvergi. Reykjanesbær UMHVERFISNEFND Vatnsleysu- strandarhrepps hefur veitt umhverf- isviðurkenningar fyrir árið 2003. Nefndin skoðaði fjölmarga garða og húseignir en valdi að lokum fjóra verðlaunahafa. Hreppsnefnd bauð á dögunum verðlaunahöfum til kaffi- samsætis í Íþróttamiðstöðinni þar sem veittar voru viðurkenningar. Búið á sama stað í 32 ár Svandís Magnúsdóttir og Lárus K. Lárusson, Kirkjugerði 11, fengu fyrstu verðlaun fyrir garðinn sinn. Í umsögn umhverfisnefndar segir m.a. að garðurinn sé einstaklega fallegur og gróðursæll þar sem trjágróður, skrautblóm, matjurtir og heimarækt- aðar plöntur njóti sín í góðu skjóli. Garðurinn sé fagurlega uppbyggður af margvíslegum efniviði. Að sögn Svandísar byggðu þau húsið sjálf á sínum tíma og hafa búið þar síðustu 32 ár. Lárus sá að mestu um hönnun garðsins en bæði hafa sinnt garð- inum, breytt honum og betrumbætt í áranna rás. Fyrir nokkru fengu þau sér gosbrunn sem sómir sér vel innan um gróðurinn. Svandís segir aldrei að vita nema garðurinn haldi áfram að taka breytingum, í raun sé alltaf hægt að halda áfram að breyta. Verðlaun fyrir viðhald og endurbætur Guðrún Lovísa Magnúsdóttir, Kirkjugerði 5, fékk verðlaun fyrir snyrtilegan og fallegan garð og fyrir að sýna umhyggju fyrir umhverfinu í hvívetna. Eigendur raðhúsanna við Brekku- götu 9–21 fengu viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi og fallegan heild- arsvip. Þá fengu Ása Árnadóttir og Guðlaugur Atlason í Austurkoti verð- laun fyrir viðhald og endurbætur á gömlum húsum, Austurkot 1 og Aust- urkot 2. Í umsögn umhverfisnefndar segir að húsin sjálf og umhverfi þeirra séu til fyrirmyndar. Umhverfisverðlaun Vatnsleysustrandarhrepps 2003 veitt garð- og húseigendum Kirkjugerði 11 fékk fyrstu verðlaun Ljósmynd/Jón Ingi Baldvinsson Brekkugata 9-21. Eigendur raðhúsanna í götunni fengu viðurkenningu um- hverfisnefndar fyrir snyrtilegt umhverfi og fallegan heildarsvip í götunni. Kirkjugerði 11. Í umsögn umhverfisnefndar segir meðal annars að garð- urinn sé einstaklega fallegur og gróðursæll þar sem trjágróður, skraut- blóm, matjurtir og heimaræktaðar plöntur njóti sín í góðu skjóli. Vogar ÞAÐ eru bæði stórar og smáar fram- kvæmdir á leikskólanum Holti í Innri-Njarðvík þessa dagana. Verið er að stækka leikskólann um helm- ing og fyrirhugað er að þeim fram- kvæmdum verði lokið í lok þessa árs. Ungu drengirnir á Holti eyða mörgum stundum við girðinguna og einhverjir hafa eflaust ákveðið að verða körfukallar eða vörubíl- stjórar. Enn aðrir eru byrjaðir að æfa sig og þeir voru ekki síður íbyggnir og vandvirkir en fyrir- myndir þeirra utan girðingar. Stórar og smáar framkvæmdir Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Reykjanesbær HAFNARSTJÓRI skýrði ný- lega frá því á fundi atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæj- ar að ísafgreiðslubifreið hafn- arinnar hefði verið stöðvuð af starfsmönnum Vegagerðar- innar og í ljós hefði komið að farmurinn var 30% umfram leyfilegt hámark. Farmurinn var tíu kör, sem eru rúm fjög- ur tonn. „Það er ljóst að til þess að forðast þetta verður að end- urnýja vörubifreiðina, þar sem nauðsynlegt er að geta flutt tíu kör, t.d. út í Garð og Sandgerði,“ segir í fundar- gerðinni. Nýr bíll getur flutt 4,3 tonn af ís Hafnarstjórn hefur falið hafnarstjóra að festa kaup á Man 10-vörubifreið með yf- irbyggðum kassa og lyftu og en leyfilegur farmur vörubíls- ins er 4,3 tonn Núverandi Ísafgreiðslubíll verður seldur og kaupverð látið ganga upp í nýja bílinn. Stöðvaður með of stóran ís- farm Reykjaneshöfn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.