Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 37
Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir Formenn sóknarnefnda Þykkvabæjarkirkju, Oddakirkju á Rangárvöllum og Krosskirkju í Austur-Landeyjum með við- urkenningar frá Sambandi sunnlenskra kvenna en formaður þess, Þórunn Drífa Oddsdóttir, stendur lengst til hægri. FYRIR stuttu voru þrír kirkjugarð- ar í Rangárvallasýslu verðlaunaðir fyrir snyrtimennsku og nýlegar endurbætur. Það var garðyrkju- nefnd Sambands sunnlenskra kvenna sem valdi garðana og veitti verðlaun úr minningarsjóði Rögnu Sigurðardóttur frá Kjarri sem lengi átti og rak blómabúðina Flóru í Reykjavík. Kirkjugarðarnir við Oddakirkju á Rangárvöllum, Þykkvabæjarkirkju og Krosskirkju í Austur-Landeyjum fengu viðurkenningarnar og tóku formenn sóknarnefndanna við þeim. Fram kom í ræðu formanns Sam- bands sunnlenskra kvenna, Þór- unnar Drífu Oddsdóttur, að erfitt hafi verið að velja þá garða sem þóttu skara fram úr því flestir eru þeir til fyrirmyndar hvað hirðingu og snyrtimennsku varðar. Það sem á endanum réð úrslitum var þó að- gengi fatlaðra sem er mjög gott í og við þessa þrjá kirkjugarða. Að loknum góðum veitingum í safnaðarheimilinu við Oddakirkju gengu gestir um kirkjugarðinn og nágrenni undir leiðsögn séra Sig- urðar Jónssonar sóknarprests. Kirkjugarðar verðlaunaðir Hellu. Morgunblaðið. HORNSTRANDIR ehf. á Ísafirði stóðu fyrir kraftgöngu á Horn- ströndum laugardaginn 9. ágúst sl. Þetta er í annað sinn sem þessi ganga fer fram. Gengið var frá Höfn í Hornvík um Rekavík bak Höfn, Búðir og Kjaransvíkurskarð til Hesteyrar. Leiðin er um 25 kílómetrar og hækkun er alls um 900 metrar. Veðrið lék við þátttakendurna sex- tán og aldrei slíku vant fannst sum- um of heitt á Hornströndum. Fyrstur í göngunni varð Jón Björnsson frá Ísafirði á 3 klst. og 48 mínútum og annar Pétur Frantzon frá Reykjavík á 3 klst. og 52. Þrír sprækir Ísfirðingar fylgdu svo fast Kraftganga á Hornströndum á hæla þeirra, það voru þeir Heimir Hansson, Hlynur Guðmundsson og Bjarni Sólbergsson. Fyrst kvenna varð Helga Margrét Gígja frá Reykjavík á 4 klst. og 50 mínútum. Eftir að allir þátttakendur höfðu skilað sér í mark var grillveisla á Hesteyri áður en siglt var til baka til Ísafjarðar. TÖÐUGJÖLD verða haldin í tíunda sinn í Rangárþingi dagana 15.–17. ágúst. Flest dagskráratriði eru sniðin að því að öll fjölskyldan geti komið saman og átt góða stund. Ókeypis er á öll dagskráratriði nema dansleiki og tónleika í Hellahelli. Dagskrá fer fram á svæði hestamanna við Gaddstaðaflatir á Hellu. Fallhlífarstökkvari Töðugjalda 2003 verður landskunnur maður eða kona sem aldrei hefur stokkið áður og kemur svífandi og setur hátíðina. Meðal dagskráratriða verða söng- lagakeppni, Töðugjaldalagið 2003 verður valið, kassabílarall, tjaldmark- aður þar sem fólk sýnir og selur, með- al annars handverk úr héraðinu. Þá verður glímusýning og glímukeppni, hestvagn, húsdýrasýning, veiðitjörn og karaokekeppni barna og unglinga. Á laugardag verður barnaguðs- þjónusta, prestur séra Halldóra J. Þorvarðardóttir á Fellsmúla og um tónlist sér Auður Halldórsdóttir. Guðsþjónusta verður á sunnudegi, prestur séra Sigurður Jónsson í Odda og um tónlist sér Þorvaldur Halldórs- son. Unglingahljómsveitin Ógn leikur og „Ísmaðurinn“ Jóhann kokkur á Hótel Hvolsvelli sker út listaverk, á kvöldvöku verða Halli, fjöldasöngur, varðeldur og flugeldasýning. Bíla- og búvélasýning verður alla helgina á Hvolsvelli. Söngtónleikar verða í Hellahelli á Hellum í Land- sveit á föstudagskvöldið, Kristjana Stefánsdóttir, Gísli Magnason o.fl. leika. Dansleikir: Á móti sól og Vinir Jóns leika á föstudagskvöld, Sniglabandið á laugardagskvöld. Tríó Ómars Dið- riks verður á kráarkvöldi eftir kvöld- vöku laugardagskvöld og Hljómar verða í Hvoli á laugardagskvöld. Töðugjöld í Rangár- þingi FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 37 DANSKIR dagar hefjast óform- lega með hverfagrillum úti um all- an bæ í Stykkishólmi föstudaginn 15. ágúst. Laugardagsmorguninn 16. ágúst verður ratleikur á vegum Lions frá Íþróttamiðstöð. Skrúð- ganga fer kl. 13 frá Nýja skólanum með „gömlu lúðrasveitina“ í broddi fylkingar niður á hátíðarsvæðið sem verður bak við Búnaðarbank- ann. Þar mun danski varasendi- herrann, Ernst Torben Hemm- ingsen, setja hátíðina. Eftir það verður markaðstjaldið opnað og dagskrá hefst sem samanstendur m.a. af einsöng, söngleik 5. bekkj- ar, keppnina um sterkasta pabba í heimi, húllakeppni, Latabæ, stjörnuleit í Stykkishólmi og Aksjóns Lionsmanna. Auk dag- skrár við hátíðarsvið verður margt að gerast við Aðalgötuna svo sem kassabílarall, kassaklifur, frygtlös (fear-factor) og veltibíll Sjóvár. Kl. 19 verður sameiginlegt grill við hátíðarsvæðið og afhent verð- laun fyrir stjörnuleitina, best skreyttu götuna og fallegasta garðinn. Einnig verður brekku- söngur. Kl. 21 hefst bryggjuball með hljómsveitinni Von og hátíð- inni verður slitið á miðnætti með flugeldasýningu. Áfram verður dönsk stemning á kaffihúsunum í bænum en Brimkló mun leika á Hótel Stykkishólmi. Öll veitingahús bæjarins verða með opið frameftir báða dagana og á sunnudagsmorguninn kl. 11 verður dönsk/íslensk messa í gömlu kirkjunni og tónleikar með Álftagerðisbræðrum verða kl. 14 í nýju kirkjunni. Merki verða seld og kosta þau 500 kr. og með þeim fylgir dag- skrá daganna. Merkin gilda einnig sem happdrættismiðar og eru verðlaun í boði frá Flugleiðum. Danskir dagar í Stykkishólmi SAMTÖKIN Fjármál heimil- anna voru stofnuð í byrjun ársins 2003. Þau halda nám- skeið um ný viðhorf í heim- ilisrekstri, og hafa þau notið mikilla vinsælda, segir í fréttatilkynningu frá samtök- unum. Jafnt er boðið upp á námskeið fyrir fullorðna og ungt fólk. Aðstandendur nám- skeiðanna, Ingólfur H. Ing- ólfsson og Bärbel Schmid, miðla af reynslu sinni og þekkingu, til dæmis um hvernig má losna við pen- ingaáhyggjur og hafa meira milli handanna en áður án hærri tekna. Á heimasíðunni www.fjar- malafrelsi.is er hægt að ger- ast áskrifandi að heimilisbók- haldi og veltukerfi, sem ætlað til aðstoðar við niðurgreiðslu skulda. Sömuleiðis er þar að finna yfirlit komandi nám- skeiða og fróðleik um fjármál heimilanna. Námskeiðin sem boðið er upp á eru að jafnaði átta klukkustundir, og skipt niður á tvo daga. Boðið er upp á hópanámskeið fyrir fyr- irtæki, stofnani, félagasamtök og skóla. Námskeið um fjármál heimilanna NÝLEGA fór fram fyrsti útdráttur vinninga af þremur í Sumarnetleik Búnaðarbankans. Alls hlutu 250 net- klúbbsfélagar vinninga en meðfylgj- andi mynd var tekin þegar þeir, sem hrepptu stærstu vinningana, veittu þeim viðtöku. Meðal vinninga voru Philips DVD-spilari, frá Heimilis- tækjum, GameBoy Advanced leikja- tölvur frá BT og fatnaður frá 66° N ásamt feiri vinningum. Nöfn vinn- ingshafa og nánari upplýsingar um leikinn má finna á vefsvæði Búnað- arbankans, www.bi.is undir borðan- um Sumarnetleikur. Sumarnetleikur Búnaðarbanka Fyrstu vinn- ingar dregnir út SVAVAR Gestsson, sendiherra Ís- lands í Svíþjóð, afhenti nýlega frú Chandrika Bandaranaike Kumarat- unga, forseta Sri Lanka, trúnaðar- bréf sitt sem sendiherra Íslands í Sri Lanka með aðsetur í Stokkhólmi, segir í fréttatilkynningu frá utanrík- isráðuneytinu. Afhenti trúnaðarbréf DREGIÐ hefur verið í sumarleik Hárs ehf. Í verðlaun var Redken- fjallahjól frá Mercedes-Benz. Allir sem keyptu tvær eða fleiri Redken- vörur gátu tekið þátt í leiknum. Vinningshafarnir voru: Andrea Gunnarsdóttir, viðskiptavinur Ozone á Selfossi, og Hárgreiðslustofan Sal- on Reykjavík. Dregið í sumarleik Hárs 17. norræna ráðstefnan um rannsóknir í viðskiptafræði verður haldin dagana 14.–16. ágúst í Háskóla Íslands, á vegum viðskipta- og hagfræðideildar. Ráðstefnan er haldin í umboði Fé- lags fræðimanna og skóla á Norð- urlöndum, Nordisk Företagsekon- omisk Förening. Í undirbúningsnefnd sitja dr. Run- ólfur Smári Steinþórsson dósent, Gylfi Dalmann Aðalsteinsson lekt- or og Margrét Sigrún Sigurðar- dóttir verkefnisstjóri, sem er rit- ari ráðstefnunnar. Á ráðstefnunni verða fjórir aðal- fyrirlesarar: Walter W. Powell frá Stanford-háskóla og SCANCOR, Þráinn Eggertsson, Háskóla Ís- lands, Guje Sevón, Viðskiptahá- skólanum Stokkhólmi, og Helgi Þorláksson, prófessor í sagnfræði við HÍ. Þetta er í fyrsta sinn sem ráð- stefnan er haldin á Íslandi og fer hún fram í Aðalbyggingu háskól- ans, Odda, Lögbergi og Árna- garði. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setur ráðstefn- una formlega á opnunarhátíð sem hefst kl. 16 á morgun, fimmtudag- inn 14. ágúst, í Stóra sal Há- skólabíós. Kvöldganga UMSB Ungmenna- samband Borgarfjarðar í sam- starfi við Vesturlandsdeild - Veiði- málastofnunar verða með göngu á morgun, fimmtudaginn 14. ágúst, kl. 20 og fræðst um laxveiðiá – Grímsá í Borgarfirði. Ekið er eftir Borgarfjarðarbraut og staðnæmst við Grímsárbrúna við bæinn Fossatún. Upphafsstaður göng- unnar er um 300 m fyrir ofan brú við veiðistaðinn Strengi. Gengið verður að Laxfossi og Veiðihúsinu við Grímsá. Leiðangurstjórar verða Sigurður Már Einarsson frá Veiðimálastofnun og Þorsteinn Þorsteinsson frá Veiðifélagi Grímsár. Á MORGUN ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.