Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 23
SPÁLÍKAN ÞORSKSTOFNS MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 23 ina 25%, og þar sem loftslagið hefur nú hlýnað í 4 stig, ætti að mega auka aflann í 400 þúsund tonn á svo sem 15 árum, samkvæmt spálíkaninu.“ Sú breyting sem Páll hafur gert á mati hrygningarstofnsins er að snið- ganga allan fisk yngri en 9 ára. Það byggir hann á því að það virðist engin áhrif hafa á nýliðunina hvort mikið eða lítið er af 6–8 ára fiski eða yngri, en hins vegar sé sterkt samhengi milli nýliðunar og 9–11 ára þorsks eða eldri. Hefðbundin skilgreining fiski- fræðinnar á hrygningarstofni telur hins vegar samanlagða þyngd alls kynþroska þorsks. Mikill meirihluti hennar er yngri en 9 ára, þó að hann sýnist gagnslaus til þess að klekja út seiðum, kannski vegna þess hvað hrognin eru smá svo að seiðin hafa sáralítinn forða til að lifa á þar til þau komast í æti sem þeim hentar. Á Haf- rannsóknastofnun hafa farið fram talsverðar rannsóknir á þessu sam- hengi og nú mun í ráði að breyta skil- greiningu hrygningarstofnsins, vafa- laust til bóta. Sjálfbær þorskveiði Páll segir að það sé mjög æskilegt að finna hvað nýliðun, veiðistofn og hrygningarstofn þurfi að vera stórir stofnar til þess að veiðin verði sjálf- bær, ef kunnugt er um loftslag og sókn í veiðistofninn. Þá er talað um jafnstöðu þessara stærða, þar sem stofninn á að haldast í jafnvægi með þeirri sókn og loftslagi sem um er að ræða. Þessar þrjár óþekktu stærðir sé hægt að reikna með því að leysa saman líkingarnar þrjár sem lýst er með línuritunum þremur. Niðurstöð- una af þeim hefur Páll sett saman í kortinu sem fylgir hér með, en það lýsir þessum samstæðu tölum um þorskinn í hverjum punkti. Spálíkan Páls sýnir glögglega að 35% sókn í veiðistofninn setur hann í stórhættu. „Rauði depillinn á kortinu sýnir ástandið nú og að þorskurinn er fast að hruni kominn ef haldið er áfram 36% sókn eins og síðustu fimm ár, en það er sama sókn og hefur verið að jafnaði frá byrjun kvótasetningar árið 1983,“ segir Páll. Að öllum lík- indum sé það sama ásókn sem hefur nú þegar valdið hruni þorskstofnsins við Nýfundnaland og Labrador. Endurreisn stofnsins Páll er samt bjartsýnn, því mögu- leikinn á endurreisn stofnsins er fyrir hendi. „Það eru góðir möguleikar, ef menn stefna loks að 25% nýtingu stofnsins, því að gera má ráð fyrir að loftslag verði hlýtt næstu 5–10 árin, eins og hlýindin eru nú norður und- an.“ Af kortinu yfir sjálfbæra þorsk- veiði má ráða hvað brottkast er gíf- urlega afdrifaríkt þegar sóknin er mikil. Brottkastið hefur margfeldis- áhrif því að það er viðbót við sóknina og getur auðveldlega valdið hruni ef það nemur 2–3% veiðistofns og sókn- in er til dæmis 33% fyrir. Nærri eins vond áhrif og brottkastið hefði sú grisjun sem sumir halda fram að þurfi að verða á þorskstofninum í þeim til- gangi að hann fái nóg æti. Það segir hann fráleita kenningu. Páll segir að af kortinu yfir sjálf- bæra veiði megi ráða ýmislegt fleira. Til dæmis skýri það vel þá 10 ára sveiflu sem hafi verið í stofni og afla síðan hrygningarstofninn hraðminnk- aði fyrir aldarfjórðungi. Páll bendir á að fyrir um áratug hafi Hafró komið því til leiðar að friða að nokkru hrygningarslóðir á vorin. Hann telur útreikninga sína benda til þess að þetta hafi borið góðan árang- ur og nauðsynlegt sé að fara eftir til- lögum stofnunarinnar um að auka þessa friðun. En jafnframt þurfi að takmarka sóknina við 25%, og sé það gert megi vænta þess að þótt þorsk- aflinn aukist mjög hægt næstu fimm árin verði hann kominn í nærri 400 þúsund tonn um 2015, samkvæmt þeim spálíkingum sem hann hefur sett fram. Páll segir að lokum að athuganir hans bendi til þess að fiskurinn í sjón- um kringum landið sé miklu dýrmæt- ari auðlind en flestir gera sér grein fyrir, auðlind sem væri mikill ábyrgð- arhluti að fara illa með eða glata í annarra hendur. stofnsins      #  ( )# *   ' ( )+# '   , -   ( "  .   #   )     '                              / 0 1 2 3 1 0 /       #  )##( )+# '       )  # #( ) +#  '               . 4  #   5( 6        0 00       ,-  ( " .   #   )   '  #   )  # #( ) +#  '             . 4  #   5( 6        guhe@mbl.is 1 Sjálfbær þorskveiði – jafnstaða. Samstæðar tölur um jafnstöðu ný- liðunar, hrygningar- stofns, veiðistofns og afla í hverjum punkti, þegar kunnugt er um loftslag og sókn í veiði- stofninn. Á rauða belt- inu næst ekki jafn- staða fyrr en stofninn er hruninn. Ef hiti er 4 stig og sóknin 25% verður jafnstaða nýlið- unar 250 milljónir fiska, hrygningar- stofns 200 þúsund tonn, veiðistofns 1.670 þúsund tonn og afla 420 þúsund tonn. 2 Spá um 5 ára meðal- tal veiðistofns 6 ár fram í tímann eftir ný- liðun síðustu 7 ára og sókn í veiðistofninn. Ef nýliðun er 250 milljónir og sókn 25% verður veiðistofn 1.670 þúsund tonn. Fylgni 0,98. Afli við 25% sókn verður 420 þúsund tonn með fylgnina 0,95. 3 Spá um 5 ára meðal- tal hrygningarstofns 4 ár fram í tímann eftir meðaltali veiðistofns síðustu 5 ár og meðal- sókn. Ef veiðistofn er 1670 þúsund tonn og sóknin 25% verður hrygningarstofn 200 þúsund tonn. Fylgni 0,97. 4 Sjö ára nýliðun fundin eftir hita og 5 ára meðaltali hrygn- ingastofns. Ef hrygn- ingarstofn er 250 þúsund tonn og hiti 4 stig verður nýliðun 200 milljónir fiska við 3ja ára aldur. Fylgni 0,89. Skýringar á kortum Veiðistofn – þúsundir tonna af þorski 4 ára og eldri. Afli – þúsundir tonna á ári. Nýliðun – milljónir þorska við 3 ára aldur. Hrygningarstofn – (skil- greining PB) þúsundir tonna af 9 ára þorski og eldri. Sókn – hlutfall afla af veiði- stofni. Loftslag – u.þ.b. áratugar meðalhiti í Stykkishólmi. Hugtök ’ Þorskurinn er fast að hruni kominn efhaldið er áfram 36% sókn eins og síðustu fimm ár, en það er sama sókn og hefur verið að jafnaði frá byrjun kvótasetningar árið 1983. ‘     / 0 1      #  ( )# *   ' ( )+# '   , -   ( "  .   #   )     '                  ! " #      $ %    &    '  &        ()  *    + , -    &  !   $ %       ./     -+ 01   1 2 3 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.