Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 19
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is
OD
DI
H
F
J
94
38
Allt að 50% afsláttur af innfelldum
halógenljósum. Fjöldi annarra sér-
tilboða, m.a. útiljós á mjög góðu verði.
Rýmum til fyrir nýjum vörum
í ljósadeild
TÓNLISTARSKÓLINN á Akur-
eyri er að flytja sig um set í bænum
og er að koma sér fyrir í Lindu-
húsinu, eins og margir Akureyring-
ar kalla það, við Hvannavelli en þar
var súkkulaðiverksmiðjan Linda til
húsa í áraraðir. Helgi Þ. Svavars-
son skólastjóri sagði í samtali við
Morgunblaðið að það væri allt ann-
að líf að komast í nýja húsnæðið.
„Áður en kennararnir fóru í sum-
arfrí, þá pökkuðu þeir öllu því sem
þurfti að pakka niður í kassa, svo
það auðveldaði flutningana til
muna.
Undanfarin þrjú kvöld höfum við
staðið í flutningum og þetta er búið
að vera mikið ævintýri. Við fengum
kranabíl til að hífa niður stærstu
hlutina en annað þurfti að bera nið-
ur. Það var aftur á móti annað mál
þegar við komum með gripina hing-
að í hús, því hér er góð aðkoma og
risastór vörulyfta, sem jafnast á við
góða skólastofu að stærð. Þegar
sinfóníuhljómsveit Norðurlands
hefur haldið tónleika, þá hefur
skólinn lánað þeim allan þann bún-
að sem þörf er á. Áður fyrr þurftum
við til dæmis að ganga á allar hæðir
og finna öll nótnastatíf og bera
hljóðfæri langar leiðir og oft í
gegnum einbreiðar dyr, en nú er
þetta allt á einum stað og hægt að
setja allt upp á hjól,“ sagði Helgi.
„Þetta er allt annað líf, að vera
kominn í þetta nýja húsnæði. Þegar
menn koma hingað inn, þá koma
þeir beint inn í afgreiðsluna og hitta
þar einhvern, en áður kom það oft
fyrir að menn voru búnir að þvælast
á milli hæða og um allskonar rang-
ala áður en þeir fundu einhvern.
Vinnuaðstaða verður allt önnur og
nýting húsnæðis verður allt önnur
en áður. Í gamla húsnæðinu voru
sumar stofur ekkert notaðar heilu
og hálfu dagana og þegar þær voru
í notkun var það aðeins í tvo til þrjá
tíma á dag. Hér verðum við með
fulla nýtingu á stofum, þannig að
það verður aðeins erfiðara að búa til
stundatöflur fyrir kennarana, en öll
aðstaða er alveg til fyrirmyndar.
Það verður gaman þegar allt verður
komið á sinn stað og hægt að byrja
skólaárið, en skólinn mun byrja 25.
ágúst næstkomandi,“ sagði Helgi.
Tónlistarskólinn flytur úr Hafnarstræti í Linduhúsið við Hvannavelli
Búið að vera mikið ævintýri
Morgunblaðið/Ásgrímur Örn
Einn af flyglum skólans hífður niður af fimmtu hæð hússins við Hafnarstræti, þar sem tónleikasalurinn var.
Fóa og Fóa feykirófa Leikhóp-
urinn Sérstaklingar frumsýnir í dag
kl. 18 örleikrit sem byggt er á þjóð-
sögunni um Fóu og Fóu feykirófu.
Leikhópurinn samanstendur af fötl-
uðum og ófötluðum einstaklingum
sem hafa unnið saman í sumar að
leiklistar- og spunaverkefni undir
stjórn Kjartans Smára og Skúla
Gautasonar. Verkefnið er styrkt af
styrkáætlun Evrópusambandsins,
Ungt fólk í Evrópu.
Verkið verður aðeins sýnt tvisvar,
seinni sýningin verður nk. laugar-
dag kl. 16. Sýningar fara fram í
Kompaníinu við Hafnarstræti 73 og
eru börn sérstaklega boðin velkom-
in. Aðgangur er ókeypis.
Til heiðurs Deep Purple Deep
Purple er ein elsta og virtasta rokk-
sveit sögunnar og eftir hana liggja
mörg ódauðleg
lög. Gamlir og
nýir rokkhundar
eiga nú von á
góðu, því hópur
valinkunnra tón-
listarmanna mun
flytja úrval Deep
Purple-laga á
tónleikum í kvöld
og annað kvöld á
Græna hattinum
á Akureyri. Það
eru Eiríkur
Hauksson söngv-
ari og Sigurgeir
Sigmundsson gít-
arleikari sem
fara fyrir hópn-
um en báðir eru
þeir langreyndir
í rokkbrans-
anum. Aðrir í
hljómsveitinni eru heldur engir au-
kvisar; þeir Jóhann Ásmundsson
bassaleikari, Þórir Úlfarsson á
Hammond-orgel og Erik Qvick á
trommur. Meðal laga sem þeir taka
má nefna Perfect Strangers, Some-
times I Feel Like Screaming,
Highway Star og að sjálfsögðu hina
ódauðlegu perlu Smoke on the
Water.
Hljómsveitin flutti Deep Purple-
dagskrá á Kaffi Reykjavík á síðasta
ári við frábærar undirtektir 1.000
áheyrenda, segir í fréttatilkynn-
ingu. Ástæða er til að hvetja gamla
Purple-aðdáendur til að fjölmenna á
þennan viðburð og ekki síður þá
sem yngri eru að nota tækifærið og
kynnast tónlist þessara gömlu risa.
Deep Purple eru þó fjarri því dauðir
úr öllum æðum því glæný plata er
væntanleg síðar í þessum mánuði.
Í DAG
Eiríkur Hauksson
Jóhann
Ásmundsson
STAÐA jafnréttisráðgjafa hjá Ak-
ureyrarbæ hefur verið auglýst til
umsóknar og er um 100% starf að
ræða. Staðan er á stjórnsýslusviði
og verður ein af sex stöðum
stjórnenda á stjórnsýslusviði sem
heyra beint undir bæjarstjóra.
Undanfarin fjögur ár hefur Elín
Antonsdóttir verið í 50% stöðu
sem jafnréttisfulltrúi Akureyrar-
bæjar, en hún lét af störfum í
byrjun síðasta mánaðar. Það er
óhætt að segja að mikið hafi geng-
ið á í þessum málaflokki í bænum
mörg undanfarin ár. Akureyrar-
bær hefur á liðnum árum greitt
milljónir króna til nokkurra
kvenna, vegna brota á lögum um
jafna stöðu og jafnan rétt kvenna
og karla. Sum þessara mála hafa
komið til kasta kærunefndar jafn-
réttismála en einnig hafa Héraðs-
dómur Norðurlands eystra og
Hæstiréttur komið við sögu.
Umsóknarfrestur til að sækja
um þessa stöðu er til 26. ágúst
næstkomandi, en nánari upplýs-
ingar um starfið veitir Jón Birgir
Guðmundsson verkefnastjóri í
síma 460-1000.
Staða jafnréttis-
ráðgjafa auglýst
Breytingar hjá Akureyrarbæ
Í KÖNNUN sem IMG Gallup gerði
fyrir Atvinnuþróunarfélag Eyja-
fjarðar (AFE) sl. vetur kom fram að
almenn bjartsýni er ríkjandi meðal
fyrirtækja á Akureyri og í Eyjafirði.
Könnunin var gerð meðal allra fyrir-
tækja í Eyjafirði með a.m.k. 4 starfs-
menn og niðurstöðurnar liggja nú
fyrir.
Í frétt frá AFE segir að veltu-
aukning hafi orðið hjá 74% fyrir-
tækja sl. tvö ár og 60% þeirra búast
við meiri verkefnum á yfirstandandi
ári en því síðasta. Þá kemur einnig
fram að veltuaukning varð frekar hjá
stærri fyrirtækjum en þeim minni.
Bjartsýni
í atvinnu-
lífinu
Könnun fyrir AFE
SÍÐASTLIÐNA þrjá áratugi hafa
fuglavinir á Akureyri sett upp tvö
skilti á vorin við Drottningarbraut-
ina, sem vara ökumenn við umferð
andafjölskyldna yfir götuna. Fyrir
skömmu hvarf annað skiltið og er
þess sárt saknað, enda er ekki um
hefðbundið umferðarskilti að ræða.
Einar Helgason á Akureyri mál-
aði myndirnar á skiltin fyrir tæpum
30 árum og Aðalsteinn Vestmann
tók þau svo í gegn fyrir um áratug.
Sigurjón H. Jónsson í Hagsmíði hef-
ur séð um að koma skiltunum upp á
vorin og taka niður á haustin en
það var faðir hans, Jón Gunnlaugur
Sigurjónsson, sem var upphafs-
maður þess að þessi skilti voru
útbúin á sínum tíma.
Ljóst er að skiltin eiga sér langa
sögu og hefð og ekki hægt að end-
urnýja þau á sama hátt og hefð-
bundin umferðarskilti. Það eru því
tilmæli fuglavina á Akureyri að
þeir sem hafa vitneskju um afdrif
horfna skiltisins komi upplýsingum
á framfæri við lögregluna.
Fuglavinir
sakna skiltis
Morgunblaðið/Ásgrímur Örn
♦ ♦ ♦
föstudaginn, þó svo að við þurfum
ekki að skila fyrr en 40 dögum síðar
en upprunalega var talað um. Það er
vegna þess að við fengum svæðið
ekki afhent á réttum tíma. Þar af
leiðandi gátum við ekki hafið verkið
á þeim tíma sem áætlanir gerðu ráð
fyrir, en þetta hefur samt allt saman
gengið mjög vel,“ sagði Helgi.
Naustatjörn er í Naustahverfi, því
nýjasta á Akureyri, skammt neðan
golfvallar bæjarins og ekki er langt
suður í Kjarnaskóg. Naustatjörn er
fyrsta húsið sem rís í hverfinu en nú
BYGGINGARFÉLAGIÐ Hyrna
ehf. er þessa dagana að leggja loka-
hönd á vinnu við leikskólann
Naustatjörn við Hólmatún og mun
afhenda Akureyrarbæ leikskólann
næstkomandi föstudag, þann 15.
ágúst. Þremur dögum síðar munu
sex börn mæta í aðlögun á elstu
deild skólans.
Helgi Snorrason, annar eigenda
Hyrnu, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að nú væri verið að leggja
lokahönd á verkið, bæði innanhúss
og utanhúss. „Við verðum tilbúnir á
hefur verið hafist handa við fleiri.
Í gær voru hestar á beit á túninu
ofan við leikskólann, en þar hafa
slíkar skepnur hafast við árum sam-
an. Meira líf verður væntanlega á
svæðinu fljótlega, eftir að börn
koma til gæslu á Naustatjörn.
Naustatjörn að verða tilbúin
Morgunblaðið/Ásgrímur Örn
„Húsið á sléttunni“ gæti leikskólinn heitið, en hann er fyrsta byggingin sem risin er á svæðinu.