Morgunblaðið - 13.08.2003, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 11
100% ilmefnalaust
Clinique - Bónussett
Facial Soap mild
- hreinsar mjúklega
Clarifying lotion
- fjarlægir dauðar húðfrumur
Dramatically Different
Moisturizing lotion
- gefur húðinni raka og gerir hana
sléttari
Verð kr. 959 (Raunverð kr. 1.994).
Meðan birgðir endast.
Falleg húð alla daga
Prófaðu 3ja þrepa húðhirðukerfið
frá Clinique
w
w
w
.c
lin
iq
ue
.c
om
Austurstræti, Austurver, Melhagi, Mjódd, Kringlan, Glerártorg Akureyri, Kjarninn Selfossi
Ráðgjafi frá Clinique verður í Lyf & heilsu
• Í dag Melhaga kl. 12-16
• Fimmtudag í Lyf & heilsu Austurveri kl. 12-16
• Föstudag Lyf & heilsu Kringlunni
• Þriðjudag Lyf & heilsu Mjódd
Hreinni, sléttari og bjartari húð á
aðeins hálfum mánuði.
3ja þrepa kerfið frá Clinique er
hannað af húðlæknum.
Það er einfalt, rökrænt og fljótlegt,
tekur ekki nema nokkrar mínútur á
dag.
Hannað af sérfræðingum okkar fyrir
þína húð.
Árangurinn kemur í ljós á aðeins
tveimur vikum.
ÞESSIR ferðamenn gerðu sér lítið
fyrir og hjóluðu sem leið lá eftir
Reykjanesbrautinni í átt að Kefla-
víkurflugvelli í góða veðrinu í gær.
Talsvert hefur verið um það í
sumar að ferðamenn fari um landið
á hjóli enda hefur það, þótt hægar
fari, marga kosti umfram bílinn.
Það á ekki hvað síst við í veðurblíð-
unni sem leikið hefur við ferða-
menn sem og Íslendinga í sumar.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hjólað í
hitanum
EINS konar tölvuveira sem
bandarísk yfirvöld og tölvusér-
fræðingar höfðu varað við
breiddist hratt út um Netið í
gær og í fyrradag og varð til
þess að tölvur tóku upp á því að
endurræsast og undirbúa sig
fyrir „þátttöku í atlögu“ gegn
Microsoft.
Tölvur fyrirtækja og stjórn-
sýslu vítt og breitt um Norður-
Ameríku og Evrópu smituðust
af tölvuorminum sem gengur
undir nöfnunum „LovSan“,
„MSBlast“ og „Blaster“.
Bandaríska tölvuveiruvarna-
fyrirtækið Symantec hafði í
gærmorgun fundið smitið í
57.000 af 160.000 tölvukerfum
sem það hafði athugað.
Að sögn erlendra sérfræð-
inga byggist tölvuormur þessi á
óvenjuhættulegum galla í
Windows-stjórnkerfinu.
Smitið veldur því að tölvur
sem það nær til fara sjálfkrafa
að undirbúa árás á vefsíðuna
windowsupdate.com, sem rekin
er af Microsoft og er notuð til
að bera viðskiptavinum fyrir-
tækisins viðgerðarforrit sem
koma eiga í veg fyrir svona
smit.
Ormurinn ber auk þess með
sér orðsendingu til Bill Gates,
stofnanda og forstjóra Micro-
soft: „Billy Gates, hvers vegna
gerir þú þetta mögulegt?
Hættu að græða peninga og
lagaðu hugbúnaðinn hjá þér!“
„LovSan“
breiðist
hratt út
um Netið
Washington. AP.
MENNTUN á 21. öldinni, þriðju
ráðstefnu Íslensku menntasamtak-
anna, lauk í gær. Ráðstefnunni var
skipt í nokkra þætti: Fjölgreindar-
kennslu dr. Howards Gardner, Auk-
ið val í menntakerfinu, Börn með
sérþarfir og bráðger börn, Árangur í
starfi og einnig voru veitt verðlaun
fyrir framúrskarandi árangur í
menntamálum.
Á ráðstefnuna komu margir virtir
vísindamenn eins og Howard Gardn-
er, Ellen Winner, Brian Hopkins og
Joel Talcott.
Í gær talaði td. dr. Hermundur
Sigmundsson prófessor við NTNU,
um norska tækni og vísindaháskól-
ann í Þrándheimi og sagði mjög
brýnt að Íslendingar legðu meira fé í
rannsóknir á námi og þroska barna.
„Það dugar ekki að hlaupa eftir
tískuhugmyndum, það verður að
rannsaka hvort aðferðirnar virka áð-
ur en þær eru teknar í notkun.“ Her-
mundi kemur á óvart að á Íslandi sé
engin rannsóknarmið-
stöð um nám og þroska
barna, þar sem t.d. erf-
iðleikar barna í lestri,
stærðfræði og í hegðun
eru rannsakaðir.
Howard Gardner
kynnti kenningu sína
um fjölgreindir og
ræddi um sköpunar-
gáfuna. Hann sagði t.d.
að munurinn á því að
vera sérfræðingur og
snillingur fælist í sköp-
unargáfunni. „Sér-
fræðingurinn hefur
engan áhuga á að
breyta því sem hann
þekkir. Séníið er aftur á móti sú
manneskja sem uppgötvar eitthvað
nýtt um heiminn.“ Gardner fjallaði
einnig um leiðtoga og árangur
starfsstétta í starfi.
Steinunn Guðnadóttir dagskrár-
stjóri ráðstefnunnar segir að aðsókn
hafi verið framar vænt-
ingum, og að þátttak-
endur hafi í lok hvers
dags gefið efninu góða
einkunn. „Ráðstefnan
þótti praktísk og hvetj-
andi til að breyta
vinnuaðferðum,“ segir
hún. „Niðurstaðan var
að auka þyrfti rann-
sóknir og að breyta
þyrfti menntunarlíkan-
inu á Íslandi.“
Sunita Gandhi fram-
kvæmdastjóri ÍMS
sagði það brýnt að
víkka viðhorf og hugs-
un í íslensku skóla-
kerfi. Það sé ekki í samræmi við 21.
öldina að steypa alla í sama mót.
„Ný viðhorf í menntun snúast um að
rækta hæfileika barna, hjálpa þeim
til að ná árangri og til að bæta sam-
félagið,“ sagði Sunita m.a. við lok
ráðstefnunnar.
Efla þarf íslensk-
ar rannsóknir
Dr. Howard Gardner
NÝR tölvuormur, W32/Msblast.A,
leit dagsins ljós í fyrrakvöld og
barst til Íslands á innan við tveimur
klukkustundum. Að sögn Erlends S.
Þorsteinssonar, verkefnastjóra hjá
Friðriki S. Skúlasyni, er ástæðan
fyrir þessari skjótu dreifingu sú að
ormurinn dreifir sér ekki með tölvu-
pósti, eins og oftast, heldur á milli
tölva í gengum Netið.
„Þegar ormar eru sendir með
tölvupósti er treyst á forvitni eða
trúgirni þeirra sem fá undarlegan
tölvupóst til þess að opna póstinn og
viðhengin. Þá kemur ákveðin töf í
dreifinguna. Þessi ormur hoppar
hins vegar beint á milli véla.“
Erlendur segir tölvuorminn not-
færa sér galla sem hefur verið í
Windows-stýrikerfunum síðan 1996.
Gallinn uppgötvaðist ekki fyrr en í
júlí sl. og er þar af leiðandi í öllum
nýrri útgáfum Windows. Mjög
margir tölvueigendur eru með þessi
stýrikerfi en núna er hægt að upp-
færa Windows í gegnum heimasíðu
Microsoft sem lagar þennan galla.
„Allar tölvur hafa númer á int-
ernetinu og tölvuormurinn velur
eitthvert númer og ef hann fær svar
smitar hann tölvuna. Fyrirtæki sem
eru með öryggismálin í lagi geta
auðveldlega varist orminum. En svo
eru allir einstaklingarnir sem eru sí-
tengdir við internetið. Við höfum
ekki enn heyrt um vél hjá almenn-
um notanda sem ekki er smituð,“
segir Erlendur og bendir á að það sé
mjög mikilvægt að uppfæra vírus-
varnarforrit reglulega.
Eldveggur mikilvægur
Þá er skynsamlegt að koma sér
upp eldvegg en hann er það eina
sem getur komið í veg fyrir þennan
orm. „Eldveggur fylgist með net-
tengingunni og hvort það komi ein-
hverjar óeðlilegar tengingar frá öðr-
um vélum úti í heimi. Hann reynir
að greina árásir og lokar jafnvel
stundum á allar tengingar þannig að
tölvan er ósýnileg á internetinu. Vír-
usvörn fylgist hins vegar með vírus-
um og ormum sem berast í tölvu-
pósti eða með geisladiskum.
Vírusvörn myndi grípa orminn en
eldveggur myndi koma í veg fyrir að
hann beitti árásinni í upphafi. Það
er mjög undarlegt að nýjar tölvur
séu ekki seldar með eldvegg.“
Helstu afleiðingar tölvuormsins
eru að það hægir mikið á internet-
inu auk þess sem Windows XP vélar
frjósa eða fara í endalaust endur-
ræsingarferli.
Aðfaranótt næstkomandi laugar-
dags munu allar smitaðar tölvur
ráðast á uppfærslukerfi Microsoft
en Erlendur segir að textar í tölvu-
orminum bendi til að höfundum
hans sé sérlega uppsigað við Micro-
soft. Erlendur bendir fólki á að
verða sér úti um eldvegg en hann er
m.a. hægt að nálgast á www.zone-
labs.com.
Nýr tölvuormur breiðist hratt út hérlendis sem erlendis
Einstaklingstölvur með
sítengingu í mestri hættu