Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 24
LISTIR 24 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ A Ð skilgreina mjúk og hörð gildi virð- ist í fljótu bragði einfalt mál en hug- tökin bera í sér fleiri og flóknari hliðar. Einfalt mál að skilgreina hlutina eins og þeir koma fyrir sjónir á myndfleti, í arkitektúr, list- og iðnhönnun, hins vegar getur mikil harka og einsýni einnig skarað mjúku gildin. Á helst við um uppstokkanir og nýjungar þegar eldri gildum er rutt af borðinu til hags fyrir ný, á stundum af óbil- girni og þjösnaskap ekki síst er hags- munaöfl hagnýta sér listsköpun mál- stað sínum til framdráttar, einkum pólitísk. Í því tilviki er birtingar- myndin klárust í þeirri mörkuðu skiptingu á liðinni öld, að á einn veg væri öll framsækin list vestursins róttæk og þannig í eðli sínu sósíölsk, á hinn bæri hún vott um úrkynjun og upplausn í heimi auðvaldsskipulags- ins. Svo langt gekk þetta hjá ýmsum nafntoguðum fræðikenningasmiðum í vestrinu að menn settu samasem- merki við róttækar núlistir og sósíal- isma, en í austrinu var því þveröfugt farið. Í báðum tilvikum voru kenning- arnar studdar með rökvísi í spreng, menn grjótharðir í sannfæringu sinni um ágæti og nytsemi skoðana sinna, öll frávik andróður gegn við- teknum sannindum. Listamönn- um austan tjalds álagt að fylgja opinberri stefnu í þjóðfélagsraunsæi, því fylgt eftir af óbilgirni og vægðarlausri hörku dóm- greindarlítilla leiðtoga, en í vestrinu áttu sér stað miklar uppstokkanir og niðurrif fyrri gilda með harða fræði- kenningasmiði og listpáfa í forsvari. Þar áttu núlistir hins vegar lengstum mjög erfitt uppdráttar, brennimerkt- ar sem uppreisn gegn grónum og við- teknum gildum og mættu harðri and- stöðu, lítil markaðsvara um leið. Eitt áttu talsmenn beggja viðhorfanna sameiginlegt, sem var baráttan gegn borgaralegum gildum, hugtakið smá- borgari bar í sér einhverja djúpstæð- ustu fyrirlitningu sem hugsast gat, ráðist skyldi gegn borgaralegum dyggðum af öllu tagi, trúarbrögðum og kirkjulist um leið. Framvindan býsna skondin ef litið er til baka vegna þess að upphaflega var það einmitt hin nývakta borgarastétt sem lagði grunn að afdrifaríkum skilum. Allar götur áður voru listamenn í þjónustu kirkjunnar og aðalsins og í einu og öllu háðir þeim um velferð sína, en um leið og stétt auðugra og velmegnandi borgara varð til urðu mikil umskipti. Þeir fæstir með blátt blóð í æðunum en gátu nú veitt sér þann munað að skreyta híbýli sín með fögrum listaverkum og vera hér samkeppnisaðilar. Þessi þróun var kímið að ótæpilegri fjölgun myndlist- armanna og breytingum á viðhorfum til listsköpunar, nærtækt að grípa til samlíkingarinnar um snjóbolta sem vindur upp á sig, og þeim til muna meir sem umfangið vex. Afleiðing- arnar létu ekki á sér standa og til er þröngt hugtak í myndlist, híbýla- fræði og hönnun, sem germönsk listasaga skilgreinir sem borgarastíl- inn/Biedermeier. Skilgreinir ópóli- tískan og traustan ramma utan um daglegt líf og þarfir oddaborgaranna, dyggðir og gildi eins og þau þróuðust á tímabilinu 1815–1846. Hugtakið mótaðist er háðkvæði skólameist- arans Ludwigs Eichrodts (1766– 1846) voru opinberuð í München 1855 og 1857, vísar til þess að bieder, þýðir fábrotinn og, Meier, var algengasta eftirnafnið í Þýskalandi og Austur- ríki. Umgerðin og útópían var fallegt heimili og í kjölfarið fylgdu innilegar bókmenntir og þægileg málverk af þekkjanlegum myndefnum á veggi. Stílbrigðin frávik frá ljóðræna og rómantíska málverkinu í til hags fyr- ir hugnæmt og sannverðugt raunsæi. Um einföldun á franska keisara- stílnum og nýklassíkinni að ræða, meira lagt upp úr efni og innihaldi að viðbættum þokkafullum stílbrigðum úr enskri og gotneskri list. Enn í dag eru angar viðhorfanna meira en vel greinanlegir, að baki keimlík þörf og þegar við veljum húsgögn, hengjum upp myndverk í híbýli okkar, ásamt að sanka að okkur hinu aðskiljanleg- asta dóti í íðum og listhönnun til prýði og yndisauka. Hvaða afstöðu sem menn taka svo til hlutanna er annað mál, en þessi framvinda skap- aði nýjan atvinnugrunn og þörf fyrir fleiri málara og listiðnaðarfólk. Mega vera gagnlegar upplýsingar ef menn fýsir að átta sig á þróunarferlinu, til frekari skilnings skal þess getið að úti í heimi er danska gullaldar- málverkið iðulega flokkað undir hug- takið, og skrif H.C. Andersens að hluta. Vel að merkja voru það auð-ugir einstaklingar semtóku við af listhöfðingjum íröðum kirkjunnar og háað- alsins á tímum endurreisnar og gerð- ust velunnarar lista á seinni tímum. Viðamiklar gjafir þeirra mynda víða kjarna listasafna, jafnvel þjóð- listasafna, jafnt í austri sem vestri. Jafnframt þótti almennum borgurum og millistéttinni drjúg upphefð af því að eiga verk mikilsverðra listamanna á veggjum híbýla sinna og gerist enn. Á næstliðnum áratugum hafa orðið miklar þjóðfélagsbreytingar í heim- inum í þá veru að borgara- og milli- stéttirnar hafa nær dagað uppi líkt og eyrarkarlinn, stéttaskiptingin önnur, tilbúnar þarfir markaðsþjóðfélagsins hafa tekið við, en þar ríkja einstreng- ingsleg lögmál, beinhörð gildi. Hinn menntaði og listþyrsti borgari var að stórum hluta bakhjarl og bjargvætt- ur listamanna í vestrinu, hið sama má til að mynda segja um persónu Len- íns í austrinu, því ef öll sund lokuðust þá var alltaf hægt að gera myndverk af leiðtoganum og selja ríkinu til að eiga fyrir salti í grautinn! Gefur auga leið að eftir fall borgarans og milli- stéttarinnar í vestrinu og múrsins í austrinu eiga myndlistarmenn erfitt með að fóta sig, svífa um stund í lausu lofti og eru í báðum tilvikum stórum meira upp á listsögufræðinga, list- heimspekinga, sýningarstjóra og sí- harðnandi markaðslögmál komnir. Því prjáli og útflúri sem fylgdi iðu- lega mjúku gildunum frá aldamótum til upphafs seinni heimsstyrjaldar- innar, og að hluta má skoða sem arf frá barrokkinu, var fljótlega úthýst af hörðustu áhangendum annarra fram- sækinna viðhorfa þá menn fóru að boða að minna væri meira. And- staðan kraumaði þegar á tímabili aldamótaloka, fin-de-sié-cle, og varð enn greinilegri á blómaskeiði, æsku- stílsins, Art nouveau/Jugenstil, nafn- kenndastur höfuðpauranna tvímæla- laust austurríski arkitektinn Adolf Loos. Hér til fjarstæðukenndrar frá- sagnar, að athafnasemi helsta fræði- kenningasmiðs æskustílsins, niður- lendingsins Henry van de Velde í Weimar, lagði grunn að Bauhaus og hagnýtistílnum, en undanrennu hans þekkja Íslendingar býsna vel. Henry van de Velde var í nánu sambandi við alla helstu andlegu og veraldegu höfðingja og listamenn álfunnar, og fyrir tilstilli Elisabeth Förster- Nietsche systur heimspekingsins, greifanna Ottos Wertherns og Harry Kesslers kallaður til Weimar af Wil- helm Ernst, hinum metnaðarfulla stórhertoga af Saxlandi-Weimar. Þremenningana dreymdi um nýja endurreisn listhönnunar með listiðn- aðarskólann í Weimar sem miðás og var hér Harry Kessler driffjöðrin. Hinn menntaði háaðall Evrópu átti þannig stóran þátt í að leggja grunn að einhverjum þýðingarmestu hvörf- um í arkitektúr og listhönnun á þess- um árum, framsækinni myndlist um leið, Harry Kessler var í nánu sam- bandi við listamenn tímanna og um þær mundir helstur velunnari Edv- ards Munchs, sem málaði margar frægar myndir af honum. Áhrifum sem í grunni sínum voru merkjanleg alla síðustu öld og eru enn í fullu gildi, þótt önnur viðhorf og nýjar uppstokkanir ryddu sér rúms á nær hverjum áratug, en hafa nú gengið í endurnýjaða lífdaga, afsprengi bar- okksins um leið. Hátæknin og tölvan að baki með nýjar kröfur um sveigj- anleika og fjölbreytni, færðu mönn- um upp í hendurnar áður óþekkta möguleika til að reikna út burðarvirki stórhýsa. Sláandi dæmi er nýafstaðin samkeppni um tvíburasamstæðuna í New York, en sumar tillögurnar voru með ólíkindum, einkum Normans Fosters og félaga. Í flestum þeirra gengið eins langt frá einsleitum og hörðum gildum og mögulegt, stinga enda mjög í stúf við skýjakljúfana allt um kring, en í þá veru að mýkja þá og auðga í sinni monumentölu reisn. Hið algenga en illþýðanlega orðtak í list- um, monumental, vísar til einhvers rismikils einkum sem mótað hefur verið til minningar um eitthvað sbr. monument; minnismerki/minn- isvarði/ stytta, reist til minningar um mikilmenni eða liðinn atburð. Einsýnt að framsókn mjúkragilda, sem hófst við skilníunda og tíunda áratugarliðinnar aldar heldur áfram af fullum krafti á nýrri stóröld, þetta meðtók ég áþreifanlega í beinu sjónmáli meðan á dvöl minni í Lund- únum stóð. Afturhvarfið til mjúkra og lífrænna gilda á sér ekki einungis stað vegna falls múrsins og endaloka kalda stríðsins, er einnig í góðu sam- ræmi við vaxandi meðvitund jarðar- búa um mikilvægi náttúruskapanna og lífríkisins. Þetta skjalfestar stað- reyndir sem mikilsvert er að hafa í huga varðandi næstu pistla, einnig að framþróun listarinnar er loftvog á tíðarandann. Meginveigurinn þó að eðli og kraft- birtingur listarinnar er í hinn sami og náttúrunnar, hún á sig sjálf. Mjúk og hörð gildi Rob Mallet-Stevens; 10 Rue Maillet- Stevens, París 1927. Þetta er merkilegt hús og ber í sér jafnt hörð sem mjúk gildi. Hér renna saman í eitt, áhrif frá Frank Lloyd Wright, Charles Rennie Mackintosh og hagnýtistílnum, ennfremur pósthúsi, slökkvistöð og ráðhúsi. Grunntónninn þó Art deco fyrir skreytikennda mýkt, sveigjanleika og fjölbreytni. SJÓNSPEGILL Bragi Ásgeirsson bragi@internet.is Á KAFFI Kósy stendur nú yfir sýning á olíumálverkum Dittu. Sýningin verður uppi út ágúst- mánuð. Ditta á Kaffi Kósý NORSKI harmonikkuleikar- inn Håvard Svendsrud leikur á tónleikum Bláu kirkjunnar á Seyðisfirði í kvöld kl. 20.30. Håvard dvelur á Seyðisfirði fram á laugardag og mun leika á harmonikkuna á kaffi- húsum, Hótel Snæfelli, kirkjutónleikum og lýkur svo dvöl sinni á harmonikkuballi sem verður haldið á pallinum fyrir utan Hótel Snæfell laug- ardagskvöldið 16. ágúst og hefst kl. 22. Håvard lýkur tónleikahaldi sínu á Íslandi með tónleikum í Norræna húsinu í Reykjavík sunnu- dagskvöldið 17. ágúst. Håvard er einn af fremstu harmonikkuleikurum Norður- landa, hann sigraði í norsku harmonikkumeistarakeppn- inni árin 1993 og 1994 og hef- ur oft komið fram í norsku útvarpi og sjónvarpi, bæði sem einleikari og með hljóm- sveitum. Hann hefur haldið tónleika víða um heim á und- anförnum árum. Håvard Svendrud Harmon- ikkutónar í Bláu kirkjunni HAFSTEINN Þórólfsson heldur námsstyrktar-tónleika í sal Söngskólans í Reykjavík, að Snorrabraut 54, í kvöld, miðvikudaginn 13. ágúst, klukkan 20. Hafsteinn lauk 8. stigi við Söngskólann í Reykjavík síð- astliðið vor og mun halda til London í framhaldsnám við Guildhall School of Music & Drama nú í haust. Af þessu tilefni hefur Hafsteinn fengið til liðs við sig vini og vandamenn til að skemmta tónleikagestum með fjöl- breyttri dagskrá. Þeir sem koma fram á tónleikunum eru Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Dísella, Erna Guðjónsdóttir, Gísli Magna, Guðrún Árný Karlsdóttir, Hafsteinn Þórólfs- son, Hera Björk, Monika Abendroth, Páll Óskar Hjálm- týsson, Schola cantorum, Hljómsveitin Bambinos, Hljómsveitin HljóðLæti. Náms- styrktar- tónleikar Hafsteinn Þórólfsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.