Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 35 LESENDUR þessara frímerkja- þátta Morgunblaðsins hafa örugg- lega veitt því athygli, að langt er síðan minnzt hefur verið á útgáfu ís- lenzkra frímerkja. Ekki er það vegna þess, að þau séu ekki athygl- isverð, mörg hver, enda eitt þeirra m.a. hlotið alþjóðaviðurkenningu, svo sem getið var um í Mbl. á sínum tíma. Ég játa hreinskilnislega, að ég hef ekki séð ástæðu til að fjalla sérstaklega um þessi frímerki og það ekki sízt vegna þess, að forráða- menn Íslandspósts hf. virðast eng- an áhuga hafa á að kynna þau fyrir almenningi annars staðar en í Fréttabréfum sínum, sem send eru að ég hygg til sérstakra viðskipta- vina Póstsins. Þá ályktun dreg ég af því, að þessi frímerki sjást næstum aldrei á póstsendingum, svo sem al- menningur verður áþreifanlega var við. Þess í stað eru komnir vél- stimplar eða áprentuð póstleyfi stofnana og fyrirtækja, sem síðan eru svo eyðilögð sem safngripir fyr- ir þeim, er hafa áhuga á slíkum póstsögulegum hlutum, með vél- stimplun ofan í þau. Um þetta hefur áður verið fjallað, og því miður hef- ur hugboð mitt um þá öfugþróun í frímerkja- og stimplasöfnun reynzt rétt. Ekki verður því neitað, að forráð- menn Íslandspósts hf. fóru af stað – að því er virtist – með þá stefnu að auka frímerkjasöfnun meðal barna og unglinga. En þeir gleymdu bara því, að það þarf stimpluð frímerki til þeirrar söfnunar. Ég býst tæp- lega við, að þeir hafi einungis hugs- að sér, að unglingarnir eða foreldr- ar þeirra keyptu óstimpluð frímerki Póstsins á nafnverði. Slík söfnun kemur auðvitað verulega við pyngju safnarans eða foreldra hans. Þá hef ég ekkert heyrt, hvernig gengið hefur með þann klúbb unglinga, sem Pósturinn kom á fót og nefndur var Merkilegi klúbburinn. Engin greinargerð um þá starf- semi hefur þættinum borizt – og er tæplega von til þess. Frímerkjaþættir Mbl. hafa nú verið nær 30 ár í umsjá minni, þó ekki alveg reglubundið, einkum hin síðari ár. Umsjónarmaður hans hef- ur alla tíð haft góða samvinnu við forráðmenn Póstsins, fyrst að sjálf- sögðu við Póst- og símamálastofn- unina og svo við arftaka hennar eft- ir einkavæðinguna. Fyrirsögn þessa þáttar bendir til þess, að þetta ár hefur orðið við- burðaríkt í sögu Íslandspósts hf., og þess verður áreiðanlega lengi minnzt meðal frímerkjasafnara. Fyrsti viðburður ársins var sá að póstyfirvöld fólu Þjóðskjalasafni Ís- lands til varðveizlu hið velþekkta Íslandssafn, sem kennt er við safn- ara þess, Hans Hals, stórkaupmann í Stokkhólmi. Hóf hann söfnun þess um 1930 og dró þá og næsta áratug á eftir saman hið bezta íslenzka frí- merkjasafn, sem þá þekktist. Það var keypt hingað um 1950, og var verulegur fengur í því að það komst í heilu lagi í eigu íslenzkra póstyfir- valda. Því miður verður samt að segjast eins og er, að það fór aldrei nægilega vel um safnið í litlu her- bergi, vissulega gluggalausu, en án rétts rakastigs. Nú er safnið vænt- anlega komið í trygga höfn, og því hljóta allir íslenzkir frímerkjasafn- arar að fagna. Annar viðburður er áreiðanlega ekki eins mikið fagnaðarefni fyrir íslenzka safnara. Þar á ég við flutn- ing Frímerkjasölu Póstsins úr Reykjavík og suður í Keflavík. Þeg- ar ég sá fyrst getið um í Mbl. 24. apríl sl., að þetta stæði til, fannst mér nánast hægt að skilja fréttina svo, að ráðamenn Póstsins væru eitthvað á báðum áttum með þessa framkvæmd. Var það í sjálfu sér ekki undarlegt, því að þetta er a.m.k. tæplega í þágu íslenzkra frí- merkjasafnara, sem hafa lengstum farið sjálfir á Frímerkjasölu pósts- ins hér í borg og átt persónuleg samskipti við starfsmenn hennar. Forstjóri Íslandspósts hf. sagði í téðri frétt, að ekki hefði verið tekin endanleg ákvörðun um þetta. Við þau ummæli kom mér í hug, hvern- ig það var, þegar Frímerkjasalan var opnuð með „pomp og prakt“ á Vesturgötu 10. Þangað var boðið helztu frímerkjakaupmönnum og -söfnurum. Þar átti að hafa hina beztu þjónustu fyrir frímerkjasafn- ara, og gott ef ekki átti að vera heitt á könnunni, þegar þeir kæmu í við- skiptaerindum og gætu setzt niður og rabbað við starfsfólkið um frí- merki og skyld efni. Ég var því mið- ur ekki við þessa athöfn, svo að ég get lítið sagt frá vígsluhátíðinni. Þó hefur mér skilizt, að fögur orð hafi fallið í garð frímerkjasafnara og þessi staðsetning Frímerkjasölunn- ar yrði öllum til ánægju og hægð- arauka. Nokkrum sinnum kom ég á Vesturgötuna og átti góð skipti við það ágæta fólk, sem þar starfaði. En Adam var ekki lengi í Paradís. Frímerkjasalan var lögð niður á þessum stað og flutt upp á Höfða. Eitthvað mun þetta hafa kostað Póstinn, því að mér hefur verið sagt, að hann hafi tekið staðinn á Vesturgötunni á leigu til nokkurra ára. Og nú hefur Frímerkjasalan enn verið flutt og það hreppaflutn- ingi til Keflavíkur. Þegar ég las um þennan hugsanlega flutning, kom mér í hug, að þetta væri einn angi af þeirri furðulegu framkvæmd ríkis- stjórnarinnar á undanförnum árum að flytja ýmsar stofnanir á vegum stjórnvalda út á land og kosta til þess tugmilljónum króna, jafnvel þótt ljóst væri, að það ylli bæði starfsmönnum þeirra og eins við- skiptavinum margs konar óþægind- um. Nú er komið á daginn, að hug- boð mitt reynist hér enn rétt. Í síðustu Frímerkjafréttum Póstsins um ný frímerki í septem- ber – nóvember 2003 má lesa þetta: „Frímerkjasalan flytur til Reykja- nesbæjar. Í júnílok flutti Frí- merkjasala Íslandspósts til Reykja- nesbæjar og fer nú öll starfsemi Frímerkjasölunnar fram í pósthús- inu þar í bæ. – Flutningurinn er lið- ur í þeirri stefnu Íslandspósts að flytja einstaka þætti í starfsemi fyr- irtækisins út um land. Frímerkja- salan hefur frá upphafi haft aðsetur í Reykjavík.“ Svo mörg eru þau orð. Á undan þessum flutningi hafði Pósturinn flutt frímerkjabirgðir sínar upp í Borgarnes, trúlega líka í hagræðingarskyni! Frímerkjasafn- arar hér á suðvesturhorni landsins mega vissulega þakka fyrir að þurfa ekki að elta Frímerkjasöluna alla leið norður í land, jafnvel til Húsa- víkur, þótt það myndi e.t.v. gleðja frímerkjavini okkar þar norðan heiða. Sjálfsagt er að minnast svo þess, sem tekið er fram í sambandi við þennan flutning, að „allar vörur Frímerkjasölunnar fást á pósthús- inu R 1, Pósthússtræti 5, 101 Reykjavík.“ Mér er sagt, að Póst- urinn hafi átt ónotað húsnæði í Keflavík. Þá hefur forráðamönnum hans þótt þetta mikið snjallræði, þótt annað sé látið í veðri vaka í til- kynningunni. Þar sem ekki var far- ið lengra frá höfuðstaðnum, var síð- ur hætta á, að Pósturinn missti vant starfsfólk úr þjónustu sinni. Hef ég líka haft af því spurnir, að starfs- fólkinu sé daglega ekið fram og aft- ur til vinnu sinnar frá Mjóddinni í Breiðholtinu. Eitthvað kostar sá flutningur Póstinn. Um þriðja viðburð í sögu Íslands- pósts hf. á þessu ári verður eitthvað rætt í næsta þætti, þ.e. gamla póst- húsið í Pósthússtræti. Viðburðaríkt ár í sögu Íslandspósts hf. Hin nýju húsakynni Frímerkjasölunnar í Keflavík eða Reykjanesbæ. Frímerki á leigu Jón Aðalsteinn Jónsson ENN er frábær veiði í Veiðivötnum á Landmannaafrétti og í lok síðustu viku voru komnir þar á skrá 8.818 sil- ungar, 7.329 urriðar og 1.489 bleikjur. Tröll veiddist á flugu í Litla-Fossvatni í vikunni, 9,4 punda urriði sem er næststærstur í vötnum í sumar, áður var kominn 9,6 punda úr Hraunsvötn- um. Auk hinnar miklu urriðaveiði í Veiðivötnum hefur vakið nokkra at- hygli að bleikjuveiði er vaxandi og er Nýjavatn sérstaklega athyglisvert í sumar. Þar höfðu undir helgina veiðst 617 silungar, þar af 208 bleikjur. Það er stærð bleikjunnar sem vekur at- hygli, en þær stærstu hafa verið 6,5 pund og 3–4 punda eru algengar, spikfeitar og fallegar. Umskipti í Norðurá og Þverá Þó að Norðurá hafi verið ein þeirra fyrstu til að skila þúsund löxum á land á þessu sumri hafa orðið mikil um- skipti í veiði í ánni í sumar frá því síð- asta sumar. Rétt tæplega 1.100 laxar voru komnir á land úr ánni undir helgina. Á sama tíma í fyrra voru þriggja daga hollin enn að fá um og yfir 100 laxa, en kroppa nú upp 30 til 60 stykki með harmkvælum. Þó er að sögn talsvert af laxi í ánni, skilyrðin til veiða hafa hins vegar verið afleit. Í fyrra veiddust 2.217 laxar í ánni, en ljóst að veiðin í ár verður langt frá þeirri tölu, en að- eins er veitt út ágúst. Að sama skapi eru umskipti í Þverá/Kjarrá sem sat nokkuð eftir í fyrra og skilaði þá aðeins 1.444 löxum sem þykir ekkert sérstakt á þeim bæ. Núna eru komnir næstum jafnmargir laxar á land og enn er veiði góð. Þverá/Kjarrá verður því klárlega með mun betri tölu í ár en í fyrra, enda rúmar þrjár vikur eftir af veiðitím- anum í ánni. Ytri Rangá fram úr Ytri-Rangá og Laxá í Kjós hafa báðar rofið þúsund laxa múrinn og þar með hafa fimm ár náð slíkum afla og styttist í fleiri, t.d. Selá, Hofsá og Langá, en í öllum nefndum ám geng- ur veiðiskapur mjög vel þessa daganna, mikill lax í ánum, fiskur enn að ganga og skilyrði góð, utan í Langánni sem er að gefa furðuvel miðað við hversu vatnslítil áin er orðin. Þar hafa nú yfir þúsund laxar gengið fram á „Fjall“ sem kallað er, sem er gífurleg aukning frá fyrri ár- um og væntanlega ávísun á frábæran árangur í fiskrækt í efsta hluta árinn- ar síðustu árin. Ytri Rangá var með 1.064 laxa á mánudagskvöld og sú breyting orðin í Rangárþingi að Ytri Rangá var komin fram úr Eystri Rangá sem var með 1.031 lax á sama tíma. Hefur Eystri Rangá verið gruggug og óveiðandi síðan á föstu- dag. Þess má og geta að veitt er á 12 stangir í Ytri Rangá, en 16 í Eystri Rangá. Eitt og annað Andakílsá gefur betur en búast mátti við, hún er komin með yfir 100 laxa á land og bestu hollin hafa fengið upp í 18 laxa, það eru tvær stangir í tvo daga. Breiðdalsá er með bæri- legan reyting, 70–80 laxa, stóra og smáa í bland. Fyrstu laxarnir hafa veiðst í Geir- landsá, a.m.k. þrír, allir veiddir í Ár- mótunum. SVFR hefur framlengt samning sinn við landeigendur Kross- ár í Dölum. Áin er vinsæl og uppseld, en veiði í sumar þó lítil enn sem komið er vegna þurrka og vatnsleysis. Tómas Gunnar Sæmundsson bóndi í Hrútatungu í Hrútafirði og dóttir hans Þorgerður voru fiskin þegar þau veiddu 29 silunga í Fellsá í Strandasýslu. Árni Bergur Sigurðsson veiddi sína fyrstu laxa í Sandá, báða í Kofahyl. Hér bítur hann veiðiuggann af þeim fyrri sem var 15 punda. Hinn vó 10. 9,4 punda urriði úr Litla-Fossvatni ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Föstudagsbrids í Gjábakka Ágæt þátttaka er á föstudögum í Gjábakkanum. Fyrsta ágúst mættu 18 pör og urðu úrslitin þessi í N/S: Eysteinn Einarss. – Magnús Halldórss. 280 Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 229 Bragi Salomonss. – Magnús Jósefss. 223 Í A/V urðu úrslitin þessi: Ásta Erlingsd. – Sigurður Pálsson 243 Jón Árnason – Oddur Jónsson 236 Einar Elíasson – Valdimar Lárusson 231 Sl. föstudag mættu svo tuttugu pör og þá urðu úrslitin þessi í N/S: Björn Péturss. – Oddur Jónss. 245 Guðm. Magnúss. – Kristinn Guðmss. 239 Guðjón Kristjánss. – Magnús Oddss. 237 Skor efstu para í A/V sl. föstu- dag varð þessi: Sigtr. Ellertss. – Sæmundur Björnss. 257 Halla Ólafsd. – Jón Lárusson 243 Ásta Erlingsd. – Sigurður Pálss. 243 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.