Morgunblaðið - 13.08.2003, Síða 2

Morgunblaðið - 13.08.2003, Síða 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Alltaf ód‡rast á netinu Verð á mann frá 19.500 kr. ÍS LE NS KA AU GL ÝS IN GA ST OF AN EH F/ SI A. IS IC E 21 53 5 05 .2 00 3 BORGIN VILL HÆTTA Borgarráð Reykjavíkur sam- þykkti bókun á fundi sínum í gær um að Reykjavíkurborg ætti að hætta þátttöku í rekstri Sinfóníu- hljómsveitar Íslands. Í bókun borgarráðs er vísað til skýrslu sem unnin var fyrir menntamálaráð- herra, þar sem fram kemur að endurskoða á rekstrar- fyrirkomulag hljómsveitarinnar þannig að stjórn hennar sé á einni hendi. Engin skólagjöld Á fundi bæjarráðs Garðabæjar í gær var samþykktur samningur við Hjallastefnuna ehf. um rekstur skóla fyrir börn á aldrinum 5–8 ára. Bærinn greiðir tæplega 423 þúsund krónur með hverjum nem- anda á ári en engin skólagjöld verða innheimt fyrir grunn- skólanám við skólann. Fulltrúi minnihlutans greiddi atkvæði gegn samningnum. Verksmiðja við Katanes Aðgerðaáætlun vegna byggingar rafskautaverksmiðju við Katanes í Hvalfirði hefur verið undirrituð og kynnti iðnaðarráðherra áætlunina á fundi ríkisstjórnarinnar í gær. Talið er að fyrsti áfangi verksmiðj- unnar muni kosta um 20 milljarða króna og skapa um 150 ný störf. Höfn Monróvíu opnuð Uppreisnarmenn í Monróvíu, höfuðborg Líberíu, féllust í gær á að opna höfn borgarinnar svo að matur og vistir kæmust inn í land- ið, en neyðarástand ríkir hjá hundruðum þúsunda borgara vegna skorts á matvælum. Komst þetta samkomulag á eftir miklar fortölur bandaríska sendiherrans og foringja friðargæzluliðs. Sjálfsvígsárásir í Ísrael Tveir sautján ára gamlir Palest- ínumenn drápu tvo Ísraela í sjálfs- vígsárásum í gær. Komu þeir þar með viðkvæmu vopnahléi milli stríðandi fylkinga í uppnám og kölluðu fram hörð viðbrögð af hálfu ísraelskra ráðamanna, sem hótuðu að láta friðarvegvísinn svo- nefnda stranda nema séð væri til þess að allar slíkar árásir yrðu stöðvaðar.  BMW X5 347 HÖ  VEGAXLIR Í ÓVISSU  FORMÚLA 1 FORSETABÍLLINN  NÝR GOLF Á ÍSLANDI  KANINN ER KOMINN  LINCOLN AVIATOR REYNSLUEKIÐ FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI SÍMI 555 6025 • www.kia.is K IA ÍSLAND Bílar sem borga sig! Þjónustuaðili fyrir öryggis- og þjófavarnarbúnað frá DIRECTED. VIPER á Íslandi S u ð u r l a n d s b r a u t 2 2 S í m i 5 4 0 1 5 0 0 w w w. l y s i n g . i s LÝSING Alhliða lausn í bílafjármögnun Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Þjónusta 29 Viðskipti 14 Viðhorf 30 Úr verinu 15 Minningar 31/34 Erlent 16/17 Bréf 38/39 Höfuðborgin 18 Dagbók 40/41 Akureyri 19 Kirkjustarf 41 Suðurnes 20 Íþróttir 42/45 Landið 21 Fólk 46/49 Listir 24/25 Bíó 46/49 Umræðan 25/30 Ljósvakamiðlar 50 Forystugrein 26 Veður 51 * * * Í KOLMUNNALEIÐANGRI Haf- rannsóknastofnunarinnar í síðast- liðnum mánuði mældust rúmlega þrjár milljónir tonna af kolmunna á íslenska haf- svæðinu sem er langbesta mæling frá því að reglulegar kolmunna- rannsóknir hófust hér við land. Út- breiðsla kol- munnans er meiri en nokkru sinni fyrr og finnst nú kolmunni nánast allt í kringum landið. Meðal annars fannst veið- anlegur kolmunni á Dohrn-banka en það hefur ekki gerst síðan á 8. áratug liðinnar aldar. Sveinn Svein- björnsson fiskifræðingur varar hinsvegar við of mikilli sókn í stofn- inn og segir lítið mega út af bregða til að veiðar úr honum hrynji. Sveinn segir að þetta góða ástand stofnsins megi rekja til óvenjugóðrar nýliðunar allt frá árinu 1995, sem væntanlega skýrist af hækkandi hitastigi sjávar í Norð- austur-Atlantshafi á síðastliðnum árum. „Það er hinsvegar gengið mjög hart að stofninum og verið að auka veiðarnar frekar en hitt. Á meðan nýliðunin er þetta góð þolir stofninn veiðarnar en við erum að veiða mjög ungan fisk og því telst nýtingin varla mjög skynsamleg. Ef hinsvegar nýliðun bregst eða minnkar verulega má gera ráð fyrir að algert hrun verði í þessum veið- um. Að mínu mati er aðeins spurning um tíma hvenær það ger- ist.“ Kolmunnaveiðar íslensku skip- anna hafa gengið mjög vel það sem af er árinu og aflinn er nú orðinn um 270 þúsund tonn. Heildarkvóti ársins er 547 tonn og hefur aldrei verið meiri. Afli Íslendinga hefur aukist mjög á liðnum árum. Árið 1997 veiddu íslensk skip samtals um 10.500 tonn, árið 1998 um 65 þúsund tonn, árið 1999 rúm 160 þúsund tonn og árið 2000 rúm 260 þúsund tonn. Árið 2001 veiddu Íslendingar rúm 365 þúsund tonn og hefur aflinn aldrei orðið meiri. Árið 2002 setti Ísland sér einhliða 283 þúsund tonna aflamark og varð heildaraflinn þá samtals 286 þúsund tonn. Hætta á hruni þrátt fyrir mikið af kolmunna Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Hólmaborg SU kemur inn til Eskifjarðar með fullfermi af kolmunna, eða um 2.300 tonn.  Aldrei mælst/15                             öðrum ekki. Í ljós kom að reykingamennirnir hugs- uðu frekar um reykingar en aðrir þegar þeir höfðu séð reykingatengda myndbandið og áttu erfiðara með að bæla niður hjá sér hugsanir tengdar reyk- ingum. Hins vegar gátu reykingamenn stjórnað löngun sinni til að reykja þegar þeim hafði verið sýnt myndbandið þar sem fólk borðar ávexti. Þeir sem ekki reyktu eða höfðu hætt að reykja fundu ekki til slíkrar löngunar þegar þeir sáu mynd- böndin og áttu ekki í neinum erfiðleikum með að stjórna hugsunum tengdum reykingum ef þeir fengu fyrirmæli um það. Auk þess kom fram í rannsókninni að hugsanir tengdar reykingum komu oftar fram hjá reykinga- mönnum sem voru kvíðnir eða í neikvæðu hugar- ástandi,“ segir Jón. Að sögn Jóns hafa lengi verið uppi hugmyndir um að hjá reykinga- og drykkjumönnum fari í gang ein- hvers konar löngunarferli þegar þeir komast í að- stæður sem minna þá á reykingar, t.d. þegar sest er inn á kaffihús. „Hvað varðar reykingamenn sann- aðist þetta með tilrauninni, við vissar aðstæður virð- ist frumstætt löngunarferli fara í gang hjá reyk- REYKINGAMENN eiga erfiðara en aðrir með að stjórna löngun sinni til að reykja við aðstæður sem þeir tengja við reykingar. Þetta er niðurstaða viða- mikillar könnunar sem sálfræðingarnir Jón Ingj- aldsson og Jakob Smári, prófessor við Háskólann í Bergen í Noregi, framkvæmdu ásamt bandarísk- um rannsóknarmanni og prófessor við skólann en rannsóknin tengdist doktorsverkefni Jóns. Alls tóku 540 manns þátt í rannsókninni og voru í hópnum reykingamenn, reyklausir og þeir sem tekist hefur að hætta að reykja. Könnunin fór fram hér á landi en sálfræðinemar framkvæmdu hana á fjölmörgum vinnustöðum. Jón Ingjaldsson segir að könnunin hafi farið þannig fram að þátttakendum voru sýnd tvö myndbönd. „Annað myndbandið var af hópi fólks sem sat saman og reykti og hitt var af sama hópi fólks við sömu aðstæður sem borðaði ávexti saman. Leitað var eftir viðbrögðum þátttakenda og þeir beðnir um að lýsa löngun sinni til reykinga fyrir og eftir sýningu myndbandanna. Sumum þátttak- endum var sagt að reyna að bæla niður hugsanir tengdar reykingum þegar þeir sáu myndböndin en ingamönnum sem gerist ekki hjá öðrum,“ segir Jón. Hann segir það athyglisvert sem fram hafi kom- ið að reykingamennirnir hafi ekki getað bælt niður löngun til reykinga við áreiti. Því megi álykta sem svo að betra væri fyrir þá sem vilja hætta að reykja og standa frammi fyrir aðstæðum sem vekja löngun til reykinga, að viðurkenna fyrir sjálfum sér að þá langi til að reykja og takast á við freistinguna frekar en að bæla hana niður. Þeir geti svo reynt að hafa ofan af fyrir sér með öðrum hætti en þeir gerðu þegar þeir reyktu, t.d. með úti- vist eða einhverju öðru sem þeim þykir skemmti- legt. Jón, sem er búsettur í Noregi, varði nýverið doktorsritgerð sína í sálfræði og vakti hún athygli í Noregi og hlaut talsverða umfjöllun fjölmiðla. Rannsóknin fjallaði um viðbrögð alkóhólista við áfengistengdu áreiti og leiddi í ljós að alkóhólistar sýna líffræðileg viðbrögð við áfengisáreiti, jafnvel þótt þeir hafi meðtekið áreitið ómeðvitað. Jón er væntanlegur til landsins og kynnir niðurstöður könnunarinnar um reykingamenn á ráðstefnu næstu daga. Tveir Íslendingar standa fyrir stórri rannsókn á reykingum Reykingamenn finna til löngunar við aðstæður tengdar reykingum SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðis- ins mun sjá um að koma upp stjórn- stöð aðgerða og tryggja nauðsynlegt samráð ef eitthvað ber út af á menn- ingarnótt í Reykjavík nk. laugardag. Þetta kemur fram í svari fulltrúa R- listans við fyrirspurn sjálfstæðis- manna um samráð borgaryfirvalda við lögreglu vegna menningarnætur. Þá kemur fram í svarinu að þess hefur verið gætt að aðilar sem þurfa að hafa yfirsýn og stjórn á aðgerð- um séu vel búnir undir hátíðar- höldin. Sjálfstæðismenn gagnrýndu borg- aryfirvöld harðlega eftir menning- arnótt í fyrra en þá var óvenjumikið um ólæti og líkamsmeiðingar eftir að dagskrá lauk í miðbænum. Til að stemma stigu við þessu hefur verið ákveðið að stytta dagskrá menning- arnætur um eina klukkustund. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, borgar- ráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir mikilvægt að borgaryfirvöld geti tryggt öryggi gesta sinna. „Borgin getur ekki verið stikkfrí í þessum efnum,“ segir Guðrún Ebba en borgaryfirvöld vísuðu til þess í fyrra að löggæsla í borginni væri í verkahring ríkisins. „Ef borgin held- ur menningarnótt verður hún að ljúka henni sómasamlega,“ segir Guðrún Ebba. Rætt um öryggi gesta menningarnætur Slökkvilið með stjórnstöð FÓLKSBÍLL með þremur mönnum innanborðs valt í Þorlákshöfn í gær- kvöld. Tveir sjúkrabílar frá Selfossi ásamt lögreglu fóru á vettvang. Eftir aðhlynningu læknis var ákveðið að senda mennina til frekari skoðunar á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Þeir voru ekki lífshættulega slasaðir. Þrír á sjúkra- hús eftir veltu ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.