Morgunblaðið - 13.08.2003, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 13.08.2003, Qupperneq 27
laga segir að eigi megi binda sveitarsjóð í ábyrgð- ir vegna skuldbindinga annarra aðila en stofnana sveitarfélagsins. Einka- skóli er ekki ein af stofn- unum sveitarfélagsins og þess vegna er það að mínu mati brot á umræddri lagagrein að Garðabær taki umrætt húsnæði á leigu og framleigi öðrum. arráð hefur ekki falið bæjarstjóra á u stigi málsins að ganga til viðræðna Landspítala – háskólasjúkrahús um húsnæðisins,“ segir Sigurður. nar Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúi msóknarflokksins, sat hjá við atkvæða- ðslu í bæjarráði en lagði áður fram til- þess efnis að stofnun skólans yrði að um eitt ár. Hann telur að undirbún- r málsins sé ekki nægur hvað varðar aðbúnað þessa skólastarfs. „Ég er opinn fyrir tilraunum í grunn- skólastarfi og að prófa nýjar leiðir en geri jafnframt þá kröfu að vandað sé vel til verka. Ég tel ólíklegt að skólinn geti byrjað eftir tæpan hálfan mánuð þannig að fullnægjandi sé. Ekki liggur fyrir end- anlegur húsaleigusamningur á milli Garðabæjar og Landspítalans, bygginga- nefndarteikningar liggja ekki fyrir um þær breytingar sem þarf að gera og ekki liggur heldur fyrir starfsleyfi heilbrigð- iseftirlitsins til skólahalds í þessu hús- næði. Þar sem bærinn er leigutaki af Hjallastefnunni er ég fullviss um að hon- um verður kennt um ef skólahald hefst ekki þarna á tilsettum tíma. Ég tel alveg eins gott að doka við í eitt ár og gefa þessu góðan tíma til undirbúnings. Betra er að hefja þetta starf með sóma haustið 2004,“ segir Einar og bendir á börnum hafi ekki verið gefinn kostur á að kynna sér skólann eins og jafnan sé gert að vori. stofnun Barnaskólans of skamman húsnæði fyrir einkaskóla örnsson MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 27 nnar verði um alls en vegna staðið er skólans Garðabæ óst er að æ höfum það að hvernig urinn vart börn- m sveitar- dur mun n semja ndi sveit- oreldra.“ a segir að a hafi ver- Garðabæ la annars greitt með við gjald- gir gjald- nna skóla hæð sem u barni í nar. gar fengið þar sem þetta fyr- koðað og na verði r á skóla- þar sem stuðningur bæjarins verður endur- skoðaður. Ásdís Halla segir að þegar hafi fjárhagsáætlanir annarra grunn- skóla sem bærinn rekur verið sam- þykktar og verði ekki skertar vegna þessa skólaárs þó að nem- endur sem annars hefðu farið þangað fari hugsanlega í nýja Barnaskólann enda sé ljóst að fyrsta árið verði mjög fáir grunn- skólanemendur í hinum nýja skóla. Til lengri tíma litið mun rekstur Barnaskóla Hjallastefnunnar ekki auka útgjöld bæjarfélagsins, að mati Ásdísar Höllu. Hún telur þvert á móti að hann gæti ýtt undir hagkvæmari rekstur skólanna í framtíðinni. Skólinn eykur fjölbreytni í skólakerfinu Ásdís segir einn helsta kost Barnaskólans vera þann að nú hafi foreldrar val um hvar þeir vilji mennta börn sín og að skólinn auki fjölbreytni í skólakerfinu. Hún seg- ir að með tilkomu skólans geti for- eldrar í Garðabæ því valið um ólíka skóla fyrir börn sín, óháð efnahag. „Meginkosturinn er sá að skól- inn getur prófað sig áfram með nýjungar. Í skólanum verða fjöl- margar nýjungar sem ekki er að finna annars staðar innan hins ís- lenska skólakerfis. Hann eykur fjölbreytnina í skólakerfinu, stuðl- ar að því að íbúarnir hafi raunveru- legt val um það hvert börnin þeirra fara og stunda nám en um leið er enginn skyldugur til þess að fara þangað enda er hann ekki skil- greindur sem hverfisskóli.“ Þá segir Ásdís Halla smæð skól- ans jákvæða þar sem einungis er gert ráð fyrir að 25–30 fimm ára börn og 15 sex ára börn hefji nám þar í haust. „Litlir skólar geta líka oft ýtt undir umræðu um nýjungar og nýbreytni í skólastarfi. Þannig að ég held að starfsemi skóla sem þessa geti verið til framdráttar fyr- ir skólakerfið í heild sinni.“ Ásdís Halla segir leik- og grunn- skóla bæjarins öfluga enda sé þar hópur metnaðarfullra og vel menntaðra kennara. Þeir séu nú þegar ólíkir en að öllum sé hollt að auka enn á fjölbreytileikann í skólastarfinu og „þessi nýi litli skóli verður viðbót við úrvalið okk- ar“. Ásdís Halla segir að allar breyt- ingar sem gera þarf á húsnæði Vífilsstaða fyrir starfsemi Barna- skólans séu á hendi Hjallastefn- unnar. Þær snúi einkanlega að bruna- vörnum og séu viðráðanlegar, að mati forsvarsmanna Barnaskólans, svo skólastarfið geti hafist á rétt- um tíma í haust eins og ráðgert er. Morgunblaðið/Árni Sæberg arfsemi nýja barnaskólans liggur fyrir. m rekstur Barnaskóla Hjallastefnunnar afa frjálst efnahag LÆKNAR og hjúkrunar-fræðingar sem vorubúnir á vakt fóru ekkiheim, það þurfti ekki að spyrja að því. Og við hringdum í starfsfólk sem einfaldlega mætti þótt það yrði að yfirgefa matar- boð eða eitthvað slíkt. Það er auð- vitað ástæðan fyrir því að þetta gekk svona vel,“ segir Guðbjörg Pálsdóttir, deildarstjóri á slysa- og bráðadeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss í Fossvogi um hið mikla álag sem var á starfs- fólki slysadeildar á mánudag. Að venju hefur álag á slysa- deild verið mikið seinnihluta sum- ars og sjaldan meira en á mánu- daginn þegar þrjú alvarleg slys urðu með skömmu millibili. Í Öræfum valt bíll með sex spænskum ferðamönnum, á Sprengisandi skall mótorhjól framan á jeppa og í Hítardal slas- aðist hestamaður alvarlega þegar hann féll af baki. Friðrik Sigur- bergsson yfirlæknir segir að slysadeildin sé fyllilega í stakk búin til að takast á við slíkt ástand. „Við erum búin undir að taka á móti svona miklum fjölda. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist, fjarri lagi. Og þetta á örugglega eftir að gerast aftur,“ segir hann. Þennan sólarhring komu 150 manns á deildina sem er rétt í meðallagi. En slysin þrjú urðu öll síðdegis eða um kvöldið og álagið á kvöldvaktina var því mikið. Frá klukkan 16–24 sinntu læknar og hjúkrunarfræðingar 80 sjúkling- um, þar af fjórum mjög alvarlega slösuðum. Ekki var annað hægt en að vísa minna slösuðum sjúk- lingum frá og tóku þeir því með skilningi að sögn Guðbjargar. Allt dettur í dúnalogn „Fólk sem kemur hingað býst oft við að ástandið sé eins og á Bráðavaktinni í sjónvarpinu. Að hér sé allt uppi á háa C-inu, læknar klofvega uppi á sjúklingi að reyna að lífga hann við og mik- il hróp og köll. En þetta gerist ekki svona,“ segir Guðbjörg. Áður en komið er með sjúk- linga úr fjöldaslysum segir hún að læknum og hjúkrunarfræðing- um sé skipt í teymi sem hvert tekur á móti einum sjúklingi og fer með hann inn á aðgerðastofu. Um leið og dyrunum er lokað detti allt í dúnalogn frammi á gangi. „Það eru í rauninni for- réttindi að fá að fylgjast með þessu,“ segir Guðbjörg Páls- dóttir. Á slysadeildinni eru tvær svo- kallaðar bráðaaðgerðastofur þar sem fullkomnustu tæki slysa- deildarinnar eru til taks og þang- að er farið með þá sjúklinga sem eru mest slasaðir. Stofurnar eru vart meira en 25 m² þannig að þegar fjórir til fimm læknar, þrír hjúkrunarfræðingar, tæki og tól, að ógleymdum sjúklingnum, eru þar innan dyra er þröng á þingi. Stjórnandi, sem er sérfræðilækn- ir á slysadeild, ásamt deildar- stjóra, gengur á milli stofanna og kannar hvort þar vanti aðstoð. „Þetta á að vera fumlaust og það á að vinna hratt og sem betur fer tekst það oftast. En það er eins með okkur og aðra. Stundum förum við úr takti og þá er um að gera að leiðrétta það og fara aftur inn á þessa fumlausu braut. Ég hef oft sagt það að ef maður verð- ur stressaður eða æsir sig upp á maður að setjast niður og hugsa eitthvað fallegt í smátíma og byrja svo upp á nýtt,“ segir hann. Vaktir á slysadeildinni eru átta tíma langar en stundum teygist úr þeim. „Það er eiginlega ekki hægt að vera á þessu harðaspani meira en átta tíma í einu, að minnsta kosti ekki fyrir okkur eldri mennina,“ segir Friðrik Sig- urbergsson. Tíu sjúklingar á klukkutíma á slysadeild Landspítala – háskólasjúkrahúsi „Þetta á örugglega eftir að gerast aftur“ Morgunblaðið/Sverrir Sjúkraflutningamenn hafa líkt og starfsfólk slysadeildar haft í nógu að snúast við að koma sjúklingum undir læknishendur. Á einum sólarhring, sl. mánudag, komu 150 manns á slysadeild Landspítalans í Foss- vogi en stóru slysin urðu öll síðdegis og mesta álagið var því á kvöldvaktinni. Morgunblaðið/Sverrir Friðrik Sigurbergsson yfirlæknir og Guðbjörg Pálsdóttir deildar- stjóri hafa ásamt öðru starfsfólki haft nóg að gera síðustu daga. GUÐBJÖRG Pálsdóttir deildar- stjóri segir að þegar slys komi upp þurfi að takast á við ýmsar aðstæður. „Þegar margir slasast í sama slysinu fer heilmikill tími í að komast til botns í því hvernig fólkið tengist. Er þetta fjölskylda og hvernig tengist fólkið þá? Eru þetta kannski tvær fjölskyldur og hver er þá giftur hverjum eða hver er sonur hvers? Er þetta kannski vinafólk? Það skiptir nefnilega miklu máli að við getum leyft sjúkling- um að tala saman eða leyft þeim að frétta af hinum sem slösuðust. Þetta getur haft mikil áhrif á hvernig tekst að sinna sjúkling- unum því þeir verða rólegri þeg- ar þeir frétta hvor af öðrum,“ segir Guðbjörg. Hver er þá giftur hverjum?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.