Morgunblaðið - 13.08.2003, Page 40
DAGBÓK
40 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Venus Mánafoss og
Sunna koma í dag.
Dettifoss, Kristrún,
Brúarfoss og Hrungn-
ir fara í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofan er lokuð í júlí og
ágúst. Sími formanns
er 892 0215.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað. Smíðastofan er
lokuð til 11. ágúst.
Handavinnustofan op-
in, keila í Mjódd kl.
13.30. Púttvöllur opinn
mánudag til föstudags
kl. 9-16.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8–12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–
10.30 bankinn, kl. 13–
16.30 bridge/vist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við böðun, hár-
greiðslustofan opin, kl.
13.30 söngstund, kl.
14.30 bankaþjónusta,
kl. 14.40 ferð í Bónus.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9 silkimálun, kl. 13–16
körfugerð, kl. 10–13
opin verslunin, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. kl.
13.30 bankaþjónusta.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16
opin vinnustofa, kl. 9–
12 hárgreiðsla, kl. 9–
16.30 fótaaðgerð. Pútt-
völlurinn opinn frá kl.
14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Skrifstofa
Félags eldri borgara í
Kópavogi er opin í dag
frá kl. 10–11.30, við-
talstími í Gjábakka kl.
15–16
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Pílukast og billjard kl.
13.30.
Gerðuberg, félags-
starf. Kl. 9-16.30
vinnustofur opnar
frá hádegi spilasalur
opinn, veitingar í Kaffi
Berg. S. 575–7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á
staðnum kl. frá kl. 9–
17, kl. 13 félagsvist, kl.
17. bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin frá kl. 9–17 virka
daga, heitt á könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin handavinnustofa,
kl. 9 fótaaðgerð og
hárgreiðsla, kl. 10
pútt, kl. 11 banki, kl.
13 bridge.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
10.30 ganga. Fótaað-
gerðir og hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9–16 fótaaðgerð, kl.
13–13.30 bankinn, kl.
14 félagsvist, kaffi og
verðlaun.
Vesturgata 7. Kl.
8.25–10.30 sund, kl. 9–
16 fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 12.15-
14.30 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–14
myndbandssýning.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 10 morg-
unstund, fótaaðgerð,
kl. 12.30 verslunar-
ferð.
Minningarkort
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld
í sölubúðum Kvenna-
deildar RRKÍ á
sjúkrahúsum og á
skrifstofu Reykjavík-
urdeildar, Fákafeni 11,
s. 568-8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31,
s. 562-1581 og hjá
Kristínu Gísladóttur,
s. 551-7193 og Elínu
Snorradóttur, s. 561-
5622.
Minningarkort
Sjúkraliðafélags Ís-
lands eru send frá
skrifstofunni, Grens-
ásvegi 16, Reykjavík.
Opið virka daga kl. 9–
17. S. 553-9494.
Minningarkort ABC
hjálparstarfs eru af-
greidd á skrifstofu
ABC hjálparstarfs í
Sóltúni 3, Reykjavík í
síma 561-6117. Minn-
ingargjafir greiðast
með gíróseðli eða
greiðslukorti.
Allur ágóði fer til
hjálpar nauðstöddum
börnum.
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings
málefnum barna fást
afgreidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma 561-
0545. Gíróþjónusta.
Barnaspítali Hrings-
ins. Upplýsingar um
minningarkort Barna-
spítalasjóðs Hringsins
fást hjá Kvenfélagi
Hringsins í síma 551-
4080. Kortin fást í
flestum apótekum á
höfuðborgarsvæðinu.
Bergmál, líknar- og
vinafélag. Minning-
arkort til stuðnings or-
lofsvikna fyrir krabba-
meinssjúka og
langveika fást í síma
587-5566, alla daga
fyrir hádegi.
Í dag er miðvikudagur 13. ágúst,
225. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Sjá, Drottinn mun
út fara frá bústað sínum, mun
ofan stíga og ganga eftir
hæðum jarðarinnar.
(Mík. 1, 3.)
Anna Pála Sverris-dóttir segir að ennþá
þurfi að laga margt svo
hommar og lesbíur
standi jafnfætis öðrum
gagnvart þjónustu sam-
félagsins. Í pistli á vef-
síðu ungra vinstri
grænna, uvg.vg, til-
greinir hún þrennt í því
sambandi; rétturinn til
tæknifrjóvgana, ættleið-
inga og giftinga í kirkju.
„Það er mér ráðgáta
hvers vegna lesbíum er
meinaður aðgangur að
tæknifrjóvgunum. Frá
1996 hafa samkyn-
hneigðir mátt staðfesta
samvist sína. Að geta
ekki eignast barn með
þeim lífsförunauti sem
menn og konur velja sér
hljómar því eins og þver-
sögn.“ Hún segir að
bann við svokölluðum
frumættleiðingum sam-
kynhneigðra, eða rétt-
urinn til að ættleiða
barn sem sé óskylt báð-
um foreldrum, af sama
meiði. „Búi par í stað-
festri samvist við þær
aðstæður að vilja og
geta ættleitt barn er það
sorglegt að slíkt sé ekki
hægt.“
Fyrirstaða við ástirsamkynhneigðra hef-
ur verið áberandi af
hálfu trúfélaga að mati
Önnu Pálu. „Ennþá geta
samkynhneigðir þó ekki
gift sig í kirkju. Trúaðir
hommar og lesbíur
verða því frá kirkjudyr-
um að hverfa með þau
skilaboð að þau elski vit-
lausa aðila. Ég tel tíma
til kominn að kirkjan
endurskoði afstöðu sína
og þau skilaboð sem hún
sendir samkynhneigðum
jafnt og samfélaginu
öllu.“
Forvitnilegt sé að í ís-lenskum lögum séu
ákvæði um að engum
skuli meinaður aðgang-
ur að verslun og þjón-
ustu vegna þátta á borð
við litarhátt, kyn, trú
o.s.frv. „Þetta á einnig
við um kynhneigð, sem
bætt var í lög 1996. Eðli-
legt er að líta á giftingar
í kirkju sem vissa tegund
þjónustu. Því má velta
upp hvort ekki jaðri við
að kirkjan brjóti lög með
því að meina samkyn-
hneigðum að giftast.
Þetta mál þyrfti að at-
huga nánar.
Ég vona að samfélagiðhaldi áfram veginn
að fullum mannrétt-
indum samkynhneigðra.
Allir ættu að njóta sín til
fulls án tillits til þess
hvern þeir kjósa að
elska. Það eru ekki leng-
ur haldbær rök að konur
og karlar séu sköpuð til
barneigna saman og þess
vegna séu frávikin röng,
nú þegar barneignir má
framkvæma með öðrum
hætti. Og jafnvel þótt
svo væri ekki – það eru
sjálfsögð mannréttindi
að haga lífi sínu að eigin
vild svo lengur sem mað-
ur skaðar ekki aðra. Og
það verður sannarlega
ekki sagt um hóp sam-
kynhneigðra,“ segir
Anna Pála Sverrisdóttir.
STAKSTEINAR
Sorglegt að sam-
kynhneigðir geti
ekki ættleitt barn
Víkverji skrifar...
UNDANFARIN ár hefur Víkverjitalið fram til skatts á Netinu. Um
síðustu mánaðamót þegar fjölskyldan
beið spennt eftir niðurstöðu frá skatt-
inum var hann búinn að gleyma lyk-
ilorðinu á Netinu. Í öngum sínum
hringdi hann í skattstjórann í
Reykjanesumdæmi og var fyrirfram
búinn að ákveða að þetta yrði tómt
vesen. En það var nú öðru nær,
starfsfólkið var hið liðlegasta og þeg-
ar Víkverji var búinn að sýna fram á
það með óyggjandi hætti að um sig
væri að ræða og ekki einhvern ópr-
úttinn gekk þetta eins og í sögu og
hann fékk sitt lykilorð.
x x x
VÍKVERJI er að velta fyrir sér aðsetja gamla bílinn sinn upp í að-
eins nýrri bíl.
Það eru nokkur ár síðan hann var
síðast að skoða bíla og þá þræddi
hann bílaumboðin og bílasölurnar. En
nú er öldin önnur. Hann sest fyrir
framan tölvuna, slær inn umboðin og
getur þá virt fyrir sér bæði nýja og
notaða bíla. Ekki nóg með það, hann
getur líka slegið inn bilasolur.is og
fengið þar næstum alla bíla upp á
skjáinn sem eru á bílasölum landsins.
Ofan á þetta bætist nú að þeir sem
eru að selja bílana sína sjálfir geta
auglýst fyrir spottprís í bílablaði
Moggans og öðrum blöðum líka og
þannig er hægt að stúdera bílamark-
aðinn eins og hann leggur sig heima í
stofu.
x x x
OG meira skemmtilegt. Nú svignahillurnar í matvöruverslunum
undan íslensku grænmeti og verðið
er frábært. Víkverji lagði leið sína í
Bónus fyrir helgi og keypti kílóið af
íslensku spergilkáli og blómkáli á 125
krónur. Hann setti líka í körfuna
bestu tómata í heimi sem að sjálf-
sögðu eru íslenskir, svo og agúrkur,
og allt fyrir spottprís. Ef einhvern
tíma er rétti tíminn til að borða græn-
meti, sjóða það niður, frysta og súrsa
þá er það þessa dagana. Grænmetið
er íslenskt, það er fyrsta flokks, á
góðu verði og yfirfullt af vítamínum.
Helst hefði Víkverji viljað láta
uppáhaldsuppskriftirnar fylgja allar
með tölu en hann ætlar að lauma
einni með sem bregst aldrei. Kaupið
slatta af ferskum brakandi spergil-
kálshausum og einn eða tvo blómkáls-
hausa og brytjið þá niður í stóra skál
eftir að búið er að skola vel af þeim.
Skerið niður rauðlauk (eftir smekk)
og smávegis af ferskum graslauk líka
og setjið yfir. Bætið við sólblómafræj-
um eða furuhnetum ef þannig liggur
á ykkur og nokkrum hnefum af rús-
ínum. Búið svo til sósu úr sýrðum
rjóma, léttmajónesi, ediki, hunangi
og sykri og setjið yfir. Hlutföllin fara
eftir því hvað ykkur finnst bragðast
best. Marínerið kálið í þessum legi í
að minnsta kosti 5–6 klukkustundir
og stráið svo vel steiktu beikoni (eða
beikonlíki) yfir rétt áður en þið berið
salatið fram.
Þessa dagana er hægt að gera góð
kaup á íslensku grænmeti.
Hrópað í
örvæntingu
HVAR erum við Íslending-
ar staddir þegar við getum
ekki hjálpað nauðstöddum
sjúklingum í bæklunarað-
gerð vegna fjárskorts? Við
megum bíða mánuð eftir
mánuð og ár eftir ár, sár-
kvalin og grátum okkur í
svefn með hjálp verkja- og
svefnlyfja.
Á sama tíma er verið að
byggja lúxushús fyrir sendi-
ráð úti um heim. Þá vantar
ekki peninga. Vita ráða-
menn þjóðarinnar ekki að
það er sími í hverju her-
bergi, tölvur og faxtæki á
öllum skrifborðum? Hvað
eru menn að hugsa? Við get-
um ekki sætt okkur við
þessa meðferð.
Ein sem er búin að
bíða og bíða.
Skemmdir
á leiðum
ÞÚ, sem síðla vetrar tókst
ófrjálsri hendi ljósakross
ásamt rafhlöðuhylki af leiði
foreldra minna í Gufunes-
kirkjugarði, við þig vil ég
segja: Hugsaðu þig um,
hvað hefur þú grætt á
þessu?
Snemma í sumar kem ég
svo aftur að leiðinu til að
setja niður sumarblóm. Þá
er búið að fjarlægja hvíta
dúfu, sem var rækilega fest
efst á legsteininn.
Hvort þú hefur farið að
sama leiði til þess að afla
meiri fanga, veit ég ekki. Ég
vona bara þín vegna, að þú
ætlir ekki að skreyta leiði
ástvina þinna með illa
fengnum hlutum. Það væri
skelfileg sjálfsniðurlæging.
Neðar er varla hægt að
komast í vanvirðingu graf-
helginnar.
Ég er ekki sú eina sem
lent hefur í sömu aðstöðu
varðandi þjófnað af leiðum í
Kirkjugörðum Reykjavíkur.
Vegna þessa hafði ég sam-
band við lögregluna í Graf-
arvogi. Mér var tjáð af þeim
að því miður væri ekki alltaf
um verknað unglinga að
ræða heldur fullorðins fólks.
Vil ég því beina þeirri
spurningu til borgaryfir-
valda: Hvað er til ráða?
Eru engin takmörk fyrir
ruddamennsku fólks?
Með ósk um einhver svör.
Valgerður Gröndal
Arahólum 2.
Skringilegar
skammstafanir
SIGURÐUR hafði samband
við Velvakanda og lýsti
furðu sinni á torskiljanleg-
um skammstöfunum sem
tíðkast víða hér á landi.
Meðal annars vefst fyrir
honum hvað DVD stendur
fyrir, þó að mikið sé auglýst
af DVD-spilurum og -hljóm-
tækjum. Þótt hann sé sjö-
tugur telur Sigurður líklegt
að yngri menn eigi margir
erfitt með að skilja hvað
DVD stendur fyrir, þótt
hann geri sér nokkra grein
fyrir hvað DVD er. Sömu-
leiðis hefur Sigurður verið
duglegur að fylgjast með
íþróttaþáttum í hálfa öld og
heyrir þá oft talað um að
kylfingar í golfi séu ofan á
pari, undir pari eða á pari.
Hvaða par þetta er vefst
fyrir Sigurði og virðist
þarna vera á ferð ensku-
sletta.
Að mati Sigurðar á ís-
lenskt mál að vera gagnsætt
og auðskilið. Það hvað „par“
stendur fyrir er erfitt að
komast að. Fleiri dæmi má
finna um skrýtin orð og
skammstafanir og að mati
Sigurðar mikilvægt að bæði
auglýsendur og fjölmiðlar
geri bót þar á.
Þakkir til
Sjálfsbjargar
NÝLEGA átti Sjálfsbjarg-
arhúsið okkar 30 ára af-
mæli. Sum okkar sem lengst
höfum dvalið hér erum því
orðin gömul og gráhærð.
Við höfum notið frábærrar
umönnunar, bæði hjúkrun-
ar- og læknishjálpar sem við
getum hvorugt fullþakkað.
Svo er það sundlaugin
sem sum okkar geta stund-
að sér til mikillar heilsubót-
ar. Get ég ekki hugsað mér
betri dvalarstað fyrir veru-
lega fatlað fólk en hér.
Viljum við því minnast
þessa afmælis með þakklæti
og ánægju og biðja heim-
ilinu allrar blessunar.
Með einlægum þökkum,
María.
Dalsmynni
EKKI er réttlátt að skrifa
neikvætt um hundaræktun
að Dalsmynni, illgirnisleg
skrif sem stafa af öfund. Ég
sjálf hef haft persónuleg
kynni af þeim hjónum og á
yndislegt dýr þaðan. Búrin
sem dýrin eru í eru til fyr-
irmyndar, stór og myndar-
leg. Hundarnir hafa gerði til
útivistar.
Meðan þeir eru úti eru
búrin spúluð og hreinsuð.
Það var frábært hundapartí
sem þau hjónin stóðu fyrir
og yndislegt að sjá litla og
stóra hunda að leik. Ástar-
þakkir fyrir mig og Rogga
Magga.
Elva Björnsdóttir.
Tapað/fundið
Myndavél í leigubíl
MYNDAVÉL fannst í
leigubíl aðfaranótt sunnu-
dags. Upplýsingar má fá á
Borgarbílastöðinni í síma
552 2440.
Dýrahald
Fjórir fallegir
FJÓRIR fallegir og
skemmtilegir kettlingar
vilja gjarna komast á góð
heimili. Þeir eru liðlega 10
vikna gamlir og kunna nú
þegar ýmsar skemmtilegar
og óvenjulegar kúnstir. Þeir
sem vilja taka að sér þessa
hnoðra hafi samband í síma
698 0330.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 fremsti fingurliður,
4 hnikar til, 7 skriðdýrið,
8 grafar, 9 umfram,
11 legils, 13 skjóta,
14 tötra, 15 strítt hár,
17 vott, 20 títt, 22 laumu-
spil, 23 líkamshlutinn,
24 róin, 25 auðan.
LÓÐRÉTT
1 kriki, 2 kostnaður,
3 ránfugla, 4 þétt, 5 náð-
hús, 6 gera hreint,
10 rask, 12 vatnagróður,
13 spor, 15 spónamat-
urinn, 16 stormurinn,
18 niðurfelling, 19 heyið,
20 óskynsamleg ráða-
breytni, 21 ferming.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 kunngerir, 8 ausan, 9 tolla, 10 nýr, 11 bráka,
13 annir, 15 gruns, 18 sagan, 21 nyt, 22 sadda, 23 ólötu,
24 kauðalegt.
Lóðrétt: 2 umsjá, 3 nunna, 4 eitra, 5 iglan, 6 lamb,
7 gaur, 12 kyn, 14 nía, 15 gust, 16 undra, 17 snauð,
18 stóll, 19 glögg, 20 nauð.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16