Morgunblaðið - 05.10.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.10.2003, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ L ANGFLESTIR foreldrar eiga sammerkt að bera hag barnanna sinna fyrir brjósti. Við viljum stuðla að því að börnin okkar búi við gott at- læti, fái sömu tækifæri til þroska og menntunar og önnur börn. Engan þarf því að undra að skýrsla á borð við nýja skýrslu Efnahags- og framfarastofnunar (OECD) um menntun á öllum skólastigum veki athygli. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum gefur skýrslan til kynna að stúlkur sigli hraðbyri fram úr pilt- um í námi á öllum skólastigum í 43 iðnríkjum heims, þ.m.t. Bandaríkjunum, Japan, Ástr- alíu, Spáni og hér uppi á Íslandi. Stúlkurnar séu mun líklegri en piltarnir til að leggja stund á háskólanám og trúa því frekar að þeirra bíði hálaunuð störf að námi loknu. En hvað hefur í rauninni verið að gerast? Inga Dóra Sigfúsdóttir félagsfræðingur hefur skoðað kynjamun í skólastarfi í gegnum störf sín fyrir rannsóknarmiðstöðina Rannsóknir og greiningu og í tengslum við framhaldsnám sitt í Bandaríkjunum. „Þróunin felst í því að stelpur hafa verið að sækja í sig veðrið þar sem þær stóðu verr að vígi en strákarnir, t.d. í stærðfræði og fleiri raungreinum. Munurinn á milli stelpnanna og strákanna hefur því far- ið minnkandi á þessu sviði,“ segir Inga Dóra og bætir við að stelpurnar séu jafnvel komnar fram úr strákunum í sumum raungreinum. „Sama þróun hefur ekki orðið hjá strákunum. Munurinn hefur ekkert minnkað í fögum þar sem þeir stóðu verr að vígi, t.d. í lestri og öðrum lesfögum. Ef á heildina er litið eru stelpurnar því stöðugt að bæta forskot sitt á meðan strákarnir standa í stað. Munurinn er einna mestur í tungumálum eins og íslensku og dönsku. Ekki má heldur gleyma því að strákunum líður í fleiri tilfellum verr í skól- anum en stelpunum. Þeir eiga frekar í úti- stöðum við aðra, þjást frekar af námsleiða o.s.frv.“ Allar kannanir Rannsókna og greiningar, sem lagðar hafa verið fyrir á undanförnum árum, hafa leitt í ljós umtalsverðan kynjamun í skólastarfi. Mestur reyndist kynjamunurinn yfirleitt í dönsku. Í könnun sem gerð var árið 1997 sögðust til að mynda 17% stelpnanna miðað við yfir 38% strákanna hafa fengið ein- kunnina 5 eða lægra í dönsku á síðasta prófi. Hins vegar sögðust 29% stelpnanna miðað við 13,6% strákanna hafa náð 9 eða hærri ein- kunn í sömu grein. Minnstur var kynjamun- urinn í stærðfræði. Alls sögðust tæplega 29% stelpnanna miðað við 34% strákanna hafa ver- ið með einkunn um eða undir 5. Um 22,5% stelpna og um 20% stráka sögðust hafa verið með einkunn á bilinu 9 til 10. Með sama hætti kom í ljós að strákunum leið almennt verr í skólanum en stelpunum, t.d. töldu ríflega 5,9% stráka miðað við 1,9% stelpna staðhæf- inguna um að námið væri tilgangslaust nær alltaf eiga við sig. Tæplega 58% stráka sam- anborið við liðlega 70% stelpna töldu staðhæf- inguna sjaldan eða aldrei eiga við sig. Stelpurnar aðlögunarhæfari Hafsteinn Karlsson, skólastjóri Salaskóla, hefur velt því fyrir sér hvers vegna strákar hafi verri reynslu af skólakerfinu en stelpur. „Ég held að við ættum að byrja á því að skoða hvaða þróun hefur orðið í skólunum síðustu áratugi. Skapandi og verklegt starf hefur í raun verið á undanhaldi. Skólakerfið leggur mjög einhliða áherslu á bóknám eins og lestur skrift og reikning. Með lengri við- skipti fyrir gengi pilta innan skólakerfisins að um 80% grunnskólakennara eru konur. Haf- steinn Karlsson rifjar upp nokkrar staðhæf- ingar Bertill Nordahl um kven- og karlkenn- ara í grein sinni Er karlmennskan að hverfa úr skólunum? Bertill heldur því fram að kon- ur leggi mikið upp úr því að fylgja ákveðnu skipulagi í skólastarfinu – karlar spili vinnuna meira eftir hendinni. Karlar hafi ekkert á móti svolitlum óróa inni í skólastofunni – slíkt angri frekar konurnar. Þolmörk karla séu lík- lega nokkuð hærri en kvennanna. Karlmanns- rödd sé oft áhrifameiri en kvenmannsrödd og karlarnir séu ekki eins líklegir og konurnar til að útskýra fyrir barninu af hverju einhver ákveðin hegðun sé óæskileg. Oft láti karl- mennirnir einföld svör nægja. Enda þótt fáar rannsóknir liggi fyrir um kynjamismun í kennslu virðast flestir hallast að því að eðlilegt sé að stuðla að margbreyti- leika í kennaraliði grunnskólanna, þ.m.t. að karlar séu ekki í áberandi minnihluta. „Það er eðlilegt að strákar sækist eftir fyr- irmyndum um karlmennsku í viðhorfum og hegðun og sorglegt hve slíkar fyrirmyndir eru torfundnar innan veggja skólanna,“ segir Sigurjón Mýrdal og bendir á að hlutfallslega færri karlar en konur hafi fengið inngöngu í KHÍ. „Aðalástæðan fyrir því er hvað einkunn- ir úr framhaldsskóla vega þungt við inntöku nýnema í skólann. Karlarnir sem sækja um skólavist virðast almennt ekki hafa fengið jafnháar einkunnir í framhaldsskóla og kon- urnar og komast því síður inn í skólann. Nú eru karlmenn tæplega 13% nemenda á grunn- skólakennarabraut í KHÍ. Haustið 2003 voru 37 karlmenn teknir inn (15%) nýnema. Karl- kyns umsækjendur voru 104 og ljóst að tug- um hæfra umsækjenda úr þeim hópi var hafn- að. Ég hef sjálfur stungið upp á því að stefnt verði að jafnri kynjaskiptingu við inntöku nýrra nemenda í skólanna enda þótt ekki næðist nema 30–40% hlutfall karlmanna fyrstu árin. Forsendan fyrir breytingunni væri náttúrlega að vægi einkunna úr fram- haldsskóla væri minnkað. Með því móti vær- um við að losa okkur úr ákveðnum vítahring því enginn vafi leikur á því að fjölgun karla í kennarastéttinni hefði jákvæð áhrif á skóla- starfið og ekki hvað síst strákana,“ segir Sig- urjón og er ekkert sérlega bjartsýnn á að hugmynd hans verði nokkurn tíma að veru- leika. „Þessi hugmynd hefur a.m.k. ekki feng- ið hljómgrunn hingað til,“ segir hann. Fleiri en Sigurjón hafa bent á að óháð sér fjölmargar jákvæðar breytingar. Á sama tíma bendir margt til þess að breytingar á fjölskyldugerð komi verr við strákana en stelpurnar. Oft er eins og þá skorti tilfinn- anlega fyrirmyndir. Þessi umræða er fyrir ýmissa hluta sakir viðkvæm og mikilvægt að hún byggist á haldgóðum rannsóknum.“ Strákar ekki metnir að verðleikum Sigurjón Mýrdal, dósent í menntafræðum við Kennaraháskóla Íslands, leggur áherslu á að lakara gengi pilta en stúlkna í íslenskum skólum hafi lítt verið rannsakað en eflaust sé skýringanna að leita víða í samfélaginu. „Ég hallast að því að ástæðurnar fyrir því að strákar koma ekki jafnvel út í skólakerfinu og stelpur séu af svipuðum toga og ástæðurnar fyrir því að ákveðnir minnihlutahópar koma oft ekki eins vel út úr skólastarfinu og með- altalið. Börn úr fátækum fjölskyldum koma stundum verr út úr skólakerfinu en börn úr millistéttarfjölskyldum. Svartir hafa ekki staðið jafnvel að vígi og hvítir í sumum lönd- um. Nemendur í dreifbýli hafa ekki komið jafnvel út úr samræmdu prófunum og nem- endur í þéttbýli og áfram mætti lengi telja. Þessi börn eru alls ekki eitthvað verr gefin en önnur börn. Þvert á móti er skýringanna að leita í sjálfu skólastarfinu. Slakt gengi þess- ara barna í náminu tengist því væntanlega hvaða áherslur og námsaðferðir hafa orðið fyrir valinu í skólastarfinu. Ég er þeirrar skoðunar að strákar standi sig alveg jafnvel og stelpur í náminu. Þeirra áherslur séu bara ekki metnar að verðleikum,“ segir Sigurjón og minnir á að margir strákar hafi fundið sér sínar eigin leiðir til mennta utan skólakerf- isins. „Við þekkjum fjölmörg dæmi um að strákar hafa dottið út úr námi og fundið sér sínar eigin leiðir til mennta utan skólakerf- isins, t.d. í tölvu- eða vélabransanum. Hæfi- leikar strákanna á þessu sviði hafa kannski aldrei fengið að njóta sín innan veggja skól- ans. Aðferðir skólans virðast heldur ekki allt- af henta strákum jafnvel og stelpum, t.d. virðast þeir oft ekki hafa jafnmikla þolinmæði til að velta vöngum yfir einhverju viðfangs- efni eftir að þeir hafa náð tökum á því í upp- hafi. Þegar strákarnir eru búnir að átta sig á því um hvað málið snýst vilja þeir strax snúa sér að öðru viðfangsefni.“ Fleiri karlar komist í KHÍ Skiptar skoðanir voru meðal viðmælenda Morgunblaðsins á því hversu miklu máli veru eykst aðeins staglið eins og bóknámið er stundum kallað. Ég held að þessi ofuráhersla á bóknámið henti hvorki strákum né stelpum. Stelpur lagi sig bara frekar að þessum kröf- um en strákarnir. Við kennararnir sjáum auð- vitað hversu miklu auðveldara er að fá stelp- ur en stráka til að setjast niður og vinna bókleg verkefni.“ Hafsteinn hefur bent á að ólíkir leikir kynjanna á skólalóðinni gefi ákveðnar vís- bendingar um hvaða leiðir henti þeim best í skólastarfinu. Í grein undir yfirskriftinni Er karlmennska að hverfa úr skólunum? kemur fram að piltar leiki sér gjarnan margir saman og atgangurinn geti orðið gríðarlegur þó að gjarnan sé farið eftir afar ákveðnum reglum. „Fótbolti er dæmigerður strákaleikur,“ segir Hafsteinn í greininni og minnir á að fótbolti feli í sér marga þátttakendur, mikla virkni og strangar reglur. „Leikir stelpnanna eru ró- legri. Þar eru þátttakendur gjarnan færri og oft byggjast þeir á því að aðeins ein þeirra er að í einu. Hinar bíða rólegar eftir að röðin komi að þeim. Snú, snú er dæmigerður stúlknaleikur.“ Ný samfélagsgerð áhrifavaldur Inga Dóra hefur velt fyrir sér ýmsum áhrifaþáttum utan skólans. „Kannanir hafa gefið til kynna að strákar fái ekki jafnmikinn stuðning og stelpur heima fyrir, t.d. hjálpi foreldrar strákum síður en stelpum við heimanámið. Almennt virðast foreldrar held- ur ekki hafa jafnmikið eftirlit með strákum og stelpum. Þeir þekkja síður vini sona sinna en dætra og áfram mætti telja,“ segir Inga Dóra og bætir við að eflaust hafi þess- ir þættir áhrif á heildarmyndina. „Ef litið er til samfélagsins í heild er hægt að nefna fleiri áhrifavalda. Samfélagið hefur tekið gríðarleg- um breytingum á stuttum tíma. Konur hafa haldið út á vinnumarkaðinn og vinna orðið flestar úti. Skilnuðum hefur fjölgað og ein- stæðir foreldrar með börn eru orðin algeng fjölskyldugerð. Þessi þróun tengist náttúr- lega jafnréttisbaráttunni sem hefur í för með Strákar í krep Strákar hafa dregist aftur úr stelpum á öllum skólastigum í 43 iðnríkjum heims, þ.m.t. á Ís- landi. Anna G. Ólafsdóttir velti því fyrir sér hvort að ástæðuna væri að finna í skólunum, inni í fjölskyldunni eða úti í sam- félaginu – og síðast en ekki síst hvað væri til ráða. Morgunblaðið/Ásdís Einhæft bóknám virðist síður henta strákum en stelpum. Strákum líður oftar illa í skólanum en stelpum (myndin er sviðsett). ’ …alltof mikið er lagt uppúr bóknámi og samkeppni á milli nemenda með afar ólíkar forsendur. ‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.