Morgunblaðið - 13.10.2003, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 31
Stuttmyndin
Síðasta
Kynslóðin
sýnd á undan
myndinni
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 6 og 9.
Tvímælalaust ein albesta mynd
ársins sem slegið hefur rækilega í
gegn í Bandaríkjunum
Stórmynd sem engin má missa af.
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 8.
thirteen
Sýnd kl. 8.
SV MBL
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 10.
Munið afs láttarkort in á kv ikmyndahát íð
HK. DV
ELEPHANT
SKONROKK 90.9
THE FOG
OF WAR
Sýnd kl. 6.
MBL
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 8.
Ný vídd í
skemmtun
fyrir alla
fjölskylduna.
Settu upp
3víddar
gleraugun og
taktu þátt í
ævintýrinu!
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
Sýnd kl. 8 og 10.30.
Sýnd kl. 6. Með ísl.
tali - Tilboð 400 kr.
Sýnd kl. 6.
Tvímælalaust ein albesta mynd ársins
sem slegið hefur rækilega í gegn
í Bandaríkjunum
Stórmynd sem engin má missa af.
SV MBL
Sýnd kl. 10.15.
B.i. 16 ára
Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.45. B.i. 12 ára.
Besta sérsveit sem sett hefur verið saman er að
lenda í sínu erfiðasta máli. Mögnuð spennumynd!
Frá framleiðanda
Fast & the Furious og xXx
Löggur þurfa líka hjálp!
Beint á
toppinn
í USA
UNNIÐ hefur verið úr vampíru-
mýtunni á ýmsan hátt í bókmenntum
og kvikmyndum í gegnum tíðina, en
það er líklega rithöfundurinn Anne
Rice sem hvað ábyrgust er fyrir því
að veita fersku og afþreyingarvæddu
blóði inn í hina klassísku vampíru-
mýtu með sagnabálknum um vamp-
íruna Lestat. Í kvikmyndinni Undir-
heimar er reynt að feta áþekkar slóðir
og í kvikmyndinni um Lestat og fé-
laga, Interview With a Vampire, um
leið og útlitslegur innblástur er sóttur
í nýlegar vampíru- eða vampír-
ukenndar myndir á borð við The
Crow og Blade, auk hinnar margeft-
iröpuðu The Matrix. Þar sem tilfinn-
anlega vantar upp á frásagnargáfu
handritshöfundar, og nokkuð upp á
sjálfstæða hugsun hjá leikstjóra og
útlitshönnuði, er Undirheimar í
mesta lagi spennandi í upphafi, þ.e.
áður en frásögnin breytist í allsherjar
goðsögu- og rómönsugraut, þar sem
yfirmáta dramatík gerir leirburðinn
hjákátlegri en ella.
Um er að ræða fyrsta hlutann í því
sem átti e.t.v. að verða heilmikill
sagnabálkur um aldalangar skærur
og blóðhefndir milli vampíra og var-
úlfa. Framan af fylgir frásögnin mál-
stað vampíranna, en það er hin fagra
vampíra Selene (Kate Beckinsale)
sem fer fyrir hópnum og reynir að
grafast fyrir um áætlanir varúlfanna
um að þróa nýtt afbrigði innan sinna
raða. Vindur átökunum fram í há-
vaðasömum hasaratriðum, þar sem
útlit, umhverfi, tæknibrellur og jafn-
vel tónlist eru sótt beint í Matrix-stíl-
inn, án mikilla tilrauna til viðbóta.
Hinar myrku og regnvotu götur
henta sólarviðkvæmum vampírunum
vel og aðalsöguhetjan Selene klæðist
vitanlega þröngum latexbúningi við
skyldustörf sín í varúlfastríðinu. (Svo
vel vill til að vampírur og varúlfar
hafa lært að notast við skotvopn og
geta því sparað tennurnar fyrir sér-
stök tilefni.) Þess á milli er fortíð
vampíruættbálksins og sögu Selenu
miðlað í gegnum sjónvarpsmyndaleg
endurlit, og brátt tapar handritshöf-
undurinn sér alveg í sagnagleðinni.
Þar er satt að segja öllu stefnt saman,
allt frá Shakespeare til mið-evr-
ópskra munnmælasagna og vestra-
minna, og missir frásögnin þannig
sjónar á vampírustemmingunni sem
þó svífur yfir vötnum í upphafi.
Eftir stendur enn ein Matrix-eft-
irherman, í þetta sinn með vampíru-
kenndum tilburðum.
Vampírur og varúlfar
Kate Beckinsale í hlutverki sínu í
Undirheimum.
Heiða Jóhannsdóttir
Sambíóin
Leikstjórn: Len Wiseman. Handrit: Danny
McBride. Aðalhlutverk: Kate Beck-
insale, Scott Speedman, Shane Brolly,
Michael Sheen, Bill Nighy. Lengd: 120
mín. Bandaríkin/Þýskaland/Ungverja-
land/Bretland. Screen Gems, 2003.
UNDERWORLD / UNDIRHEIMAR Í KVIKMYNDINNI Óhreinir, fal-
legir hlutir sýnir breski leikstjórinn
Stephen Frears áhorfendum hlið
Lundúna sem ekki er að finna í túr-
istabókunum, en er þó jafnsnar þáttur
í veruleika borgarinnar og hver annar.
Aðalpersóna myndarinnar, Okwe,
er ungur læknir sem flúði heimaland
sitt Nígeríu af pólitískum ástæðum og
hefur fundið sér samastað í stórborg-
inni London þar sem hann vinnur fyr-
ir sér eftir bestu getu, þrátt fyrir að
hafa ekki atvinnu- eða dvalarleyfi.
Hann býr þannig í borg, sem hann á í
raun ekki heima í, en hefur alltaf nóg
af skítverkum fyrir hann að inna af
hendi. Okwe tilheyrir hópi þeirra sem
geta litlar kröfur gert til tilverunnar
og vinnur láglaunastörf náttanna á
milli án þess að kvarta, því betri val-
kostir bjóðast einfaldlega ekki, aðeins
verri. Um nætur starfar Okwe á hót-
eli þar sem stjórnendur spyrja einskis
um atvinnuleyfi eða ríkisborgararétt,
en vinir Okwes og samstarfsfólk býr
við svipuð kjör og hann sjálfur, lifir og
starfar á jaðri bresks samfélags. Ein
þessara er Senay (Audrey Tautou),
tyrkneskur flóttamaður sem á fullt í
fangi með að verja sig fyrir kynferð-
islegri ágengni þeirra sem vilja not-
færa sér fátækt hennar og réttinda-
leysi. Þegar Okwe kemst á snoðir um
ólöglega starfsemi sem fram fer á
hótelinu breytist staða hans skyndi-
lega og hann fær tækifæri til að bæta
kjör sín og Senay með því að ganga í
lið með þeim sem hagnast á örvænt-
ingu annarra.
Óhreinir fallegir hlutir er nokkuð
óvenjuleg blanda spennusögu og fé-
lagslegrar raunsæismyndar, og á
stundum rekast þessir þættir dálítið
á. Í raun hefur kvikmyndin fremur
lágstemmt yfirbragð vandaðrar
breskar sjónvarpsmyndar, en dæmi-
gerðs spennutryllis. Hinn heimilislegi
tónn myndarinnar venst vel, en þar
fær óþjáll talsmáti fólks af mismun-
andi þjóðarbrotum að njóta sín og
hægfara alúð einkennir kvikmynda-
töku Chris Menges. Í kvikmyndinni
birtist London sem framandi og
kaldranalegur staður, en um leið stað-
ur sem hefur ólíkar hliðar og þar sem
ást og manngæsku er að finna á
óvæntum stöðum.
Tilraunir til að skapa spennu í
framvindunni reynast í raun óþarfar,
því kvikmyndin fjallar fyrst og fremst
um manneskjur og tilraunir þeirra til
að halda í ákveðin gildi andspænis
takmörkuðum valkostum í lífinu.
Okwe er þannig eftirminnileg per-
sóna, raunar allt að því ofurmannleg,
og má túlka hann sem birtingarmynd
manngæsku, gáfna og fágunar í heimi
sem hefur flest óhreint í pokahorni
sínu. Senay er sömuleiðis táknmynd
fegurðar og einlægni sem á undir
högg að sækja í kaldranalegu um-
hverfi. Sú einlæga mynd sem dregin
er upp af lífi þeirra persóna sem við
sögu koma skapar tvímælalaust aðal-
aðdráttarafl myndarinnar sem aukið
er á með jarðbundinni en áhrifaríkri
túlkun leikara. Er það ekki síst hin
seiðandi nærvera Chiwetel Ejiofor,
og manneskjulegur kjarninn sem ger-
ir þessa litlu spennumynd eftirminni-
lega.
Hið ljóta og hið fallega
Audrey Tautou leikur flóttakonuna
Senay í Óhreinum fallegum hlutum.
Leikstjórn: Stephen Frears. Handrit: Stev-
en Knight. Aðalhlutverk: Audrey Tautou,
Chiwetel Ejiofor, Sergi Lopez, Sophie
Okondeo, Benedict Wong. Lengd: 94 mín.
Bretland. Miramax/BBC Films, 2002.
DIRTY PRETTY THINGS /
ÓHREINIR FALLEGIR HLUTIR Heiða Jóhannsdóttir
Regnboginn
– Kvikmyndahátíð Eddunnar
SKÓLAMORÐ hafa verið ofarlega
í huga kvikmyndagerðarmanna upp á
síðkastið í myndum á borð við Í keilu
fyrir Columbine, Bang! Bang! Þú ert
dauður og Fíl. Kannski skiljanlega
því hörmungar á borð við fjöldamorð-
in í Columbine-menntaskólanum
skildu eftir felmtri slegna þjóð með
ótal spurningar á vörunum, en þó
einkum um hvers vegna svona lagað í
ósköpunum getur átt sér stað.
Í annarri mynd sinni, Skólastof-
unni, tekst hinn lítt þekkti leikstjóri
og handritshöfundur Paul F. Ryan á
við það vandasama og næstum óleys-
anlega verkefni að reyna að finna ein-
hver svör við þessum spurningum
sem enginn með réttu hefur í raun
skýr svör við. Og til að gera sér enn
erfiðara fyrir klæðir hann þessa
dramatísku harmsögu sína í einhvers
konar morðgátubúning – örugglega
til þess að geta boðið upp á a.m.k. ein-
hver haldbær svör við öllum þessum
spurningum sem hann veltir upp í
býsna uppburðarlitlu handrit sínu.
Myndin hefst á byssuskotum sem
hafna í ungum manni er sex mínútum
áður hafði gengið berserksgang og
stráfellt af handahófi nokkra skóla-
félaga sína í skólastofu. Nokkrir nem-
endur náðu að flýja úr stofunni, einn
særðist lífshættulega og einum nem-
andanum hlífði morðinginn. Þegar
rannsóknarlögreglumaðurinn Martin
Van Zandt kemur á staðinn er þessi
nemandi sem heitir Alicia (Busy Phil-
ipps) í losti og neitar að segja frá því
sem gerðist í skólastofunni. Upp úr
kafinu kemur að hún hafði átt í sam-
bandi við morðingjann og því verður
lögregluyfirvöldum, undir miklum
þrýstingi frá samfélaginu í þessum
litla smábæ, mjög í mun að sakfella
hana, í raun gera hana að blóraböggli,
væntanlega í von um að draga úr eig-
in samviskubiti. Hún er líka tilvalinn
skotspónn, algjört „viðundur“ sem
klæðist svörtu, er fallisti, á sakaskrá
fyrir búðarþjófnað og hefur allt á
hornum sér af einhverri ástæðu.
En þegar maður heldur að fram-
vindan sé að fara að snúast um hvort
hún hafi átt aðild að morðunum tekur
hún beygju þegar Alicia heimsækir,
að beiðni skólastjórans, stúlkuna sem
særðist í árásinni, hana Deönnu
(Erika Christensen). Eru þær sem
svart og hvítt því Deanna er óspjölluð
saklaus fyrirmyndardóttir sem kem-
ur frá auðugri fjölskyldu sem hefur
veitt henni allt. Og það kemur líka á
daginn að áfallið hefur haft mjög ólík
áhrif á stúlkurnar því á meðan Alicia
nær að loka sig frá umheiminum og
halda kúlinu þá er hin ofurvendaða
Dianna við það að bugast og getur
ekki hugsað sér að lifa með þessari
martröð. Dvelja þær löngum stund-
um við að bera saman ólíka sýn sína á
lífið og það sem á kann að bjáta og
smám saman myndast á milli þeirra
sterkt samband sem áður en yfir lýk-
ur á eftir að vega þungt þegar svara
er þörf.
Um það verður ekki deilt að mein-
ingin á bak við mynd þessa er heil og
góð. Höfundurinn Ryan fellur hins
vegar alltof gjarnan í þá gryfju að
hann ætlar sér um of, ætlar að svara
öllum þessum erfiðu spurningum sem
hann veltir upp og fleiri til um ástand-
ið í bandarísku samfélagi í dag. Svo
leggur hann unglingsstúlkunum í
munn þvílíka speki að sprenglærðir
geðlæknar yrðu stoltir af að búa yfir
slíkri visku og meðferðarhæfni.
Það sem á hinn bóginn bjargar
myndinni rækilega fyrir horn er
einkar sannfærandi frammistaða að-
alleikkvennanna ungu, Christensen
og Philipps. Christensen virðist nú
þegar á góðri leið með að verða
stjarna eftir að hafa getið sér gott orð
sem dóttir Michaels Douglas í Traffic
og geðtruflaður sundáhugamaður í
Swimfan og vonandi eiga menn eftir
að nýta sér ótvíræða leikhæfileika
Philipps einnig.
Eftirköst
skólamorða
Regnboginn
– Kvikmyndahátíð Eddunnar
Leikstjórn og handrit: Paul F. Ryan.
Kvikmyndatökustjóri: Rebecca Baehler.
Tónlist: Mike Shapiro. Aðalleikendur:
Busy Philipps, Erika Christensen,Victor
Garber. 133 mínútur. Homeroom LLC.
Bandaríkin 2002.
SKÓLASTOFAN (HOME ROOM) Frammistaða Busy Philipps er það
allra best við Skólastofuna.
Skarphéðinn Guðmundsson