Morgunblaðið - 16.11.2003, Side 45
16.11.2003 | 45
Myndband „Ég horfi annað
slagið á mynd, sem heitir
Les Parapluies de Cher-
bourg. Frönsk, frá árinu
1963, með fallegum lögum
og fallegum skærum litum.
Lokaatriði myndarinnar
kallar fram hjá mér tár.“
Sjónvarpsþáttur „Sjón-
varpsþættir verða mér
yfirleitt ekki hugstæðir.
En mér finnst þáttaröð,
sem heitir Footballer’s
Wives vera svo léleg að
hún er frábær.“
Bók „Ég held ég teljist mjög óagaður
lesandi. Alltaf með margar bækur í tak-
inu. Nenni aldrei að lesa sömu bók
tvisvar. Núna er ég með dellu fyrir sögu
Berlínar og er að lesa bók sem heitir
Faust’s Metropolis. Ég gæti þulið upp
rit klassískra höfunda sem ég dái, en
hvernig stendur á því að áhuginn á
skáldskap dofnar með aldrinum?“
Vefsíða „Ég fer
fyrst á www.jonas.is.
Eiturhvöss skrif
eftir fremsta blaða-
mann landsins sem
nú ritstýrir hesta-
blaði.“
Frá mínum sófa
séð og heyrt
L
jó
sm
yn
d:
G
ol
li
Egill Helgason
Stöð 2 hefur nú hafið útsendingar á
umræðuþættinum Silfur Egils þar sem fjallað er
um stjórnmál og önnur málefni líðandi stundar.
Hátt í tvö hundruð þættir af Silfri Egils hafa verið
sýndir á Skjá einum frá árinu 1999, en þátturinn
er sendur út á Stöð 2 á laugardags- og
sunnudagskvöldum frá klukkan 18 til 19 í opinni
dagskrá. Umsjónarmaðurinn Egill Helgason
er í sófanum að þessu sinni.
Geisladiskur „Ég er sammála Miles
Davis, sem sagði að tónlist væri ann-
aðhvort góð eða léleg, það skipti ekki
máli hverrar tegundar hún væri.
Núna er ég að hlusta á kvartett númer
sex eftir Sjostakovitsj, en í gær vorum
við strákurinn minn að hlusta á nýju
plötuna með Hljómum og kunnum
vel að meta melódíurnar.“
Hvaða kvikmynd/tónlist/leikrit/ljóð/bók
breytti lífi þínu?
Bókin Älska dig själv (Your erroneous
zones) eftir Wayne W. Dyer – en hún
er m.a. um sjálfstraust og sjálfsmynd.
Hvaða persónu mannkynssögunnar
metur þú mest?
Astrid Lindgren. Fáir hafa glatt mig
og fjölskyldu mína jafn mikið.
Hvaða dýr finnst þér flottast?
Kötturinn minn. Snúður er níu ára
blíður köttur.
Hvaða lífsspeki ferðu eftir?
Hver er sinnar gæfu smiður. Túlkaðu
það sem aðrir segja á besta veg fyrir
þá.
Hefur þú verið í lífshættu?
Já, þegar ég sat ásamt fleirum á snjó-
troðara sem hrapaði niður í gil.
Hefur þú unnið góðverk?
Já, mörg lítil góðverk, t.d. gefið blóð,
hjálpað ýmsum.
Hvaða dyggð viltu helst læra?
Sjálfsaga og sjálfselsku.
Hvaða tilfinning er þér kærust?
Ánægja með vel unnið verk, mitt og
annarra.
Hvað metur þú mest í fari annarra?
Rökhugsun og gleði.
Hverju viltu helst breyta á Íslandi?
Ég vil efla stuðning við unglinga, m.a.
síðustu bekki í grunnskóla, og ég vil
3ja ára framhaldsskóla.
Hvenær varstu glaðastur?
Eftir fæðingu barna minna, brosið fór
ekki af mér.
Hver er uppáhalds erlenda borgin þín?
Barcelona.
Hvers vegna fæst ekki friður á jörðu?
M.a. vegna fáfræði, trúarbragða,
græðgi, hræðslu og sárinda.
Hvaða starfsstétt berðu mesta virðingu
fyrir?
Engri, kannski helst atvinnudönsur-
um, fátt er skemmtilegra en að horfa á
færa dansara.
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í starfi?
Engar sérstakar.
Ertu hræddur við dauðann?
Nei, ekki lengur.
Hvað óttast þú mest?
Ekkert tiltekið.
Hver gæti verið tilgangur lífsins?
Ef það er eitthvað þá giska ég á að það
sé að njóta þess.
Hvaða aukahæfileika myndir þú helst
vilja öðlast?
Að geta flogið.
Hvað viltu helst gera á síðkvöldum?
Ég met fjölbreytni, t.d. að borða góð-
an mat og drekka gott vín í góðum fé-
lagsskap.
L
jó
sm
yn
d:
G
ol
li
Maður eins og ég
Snjólfur Ólafsson prófessor
‚Brosið fór ekki af mér eftir fæðingu barna minna‘