Vísir


Vísir - 29.10.1980, Qupperneq 2

Vísir - 29.10.1980, Qupperneq 2
MiÐvikudagur 29. október 1980 VÍSIR Ferðu oft út að borða? tvar Þórarinsson, vörubifreiðar- stjóri: „Eg er nú ekki héðan úr Reykjavik og litið um veitinga- staöi þar sem ég bý. En þegar ég á ferð i bæinn fer ég oft á mat- sölustaði”. Egill Ferdinandsson, afgreiðslu- maöur: „Nei, ég fer aldrei út að boröa”. Jóhann Pétursson, verkstjóri: „Þaö kemur fyrir og þá á svona tveggja mánaða fresti”. Olgeir Friðgeirsson, húsgagna- smiöur: „Það er orðiö voða sjaldan núoröið, en ég gerði meira af þvi áður fyrr. Núna fer ég ekki einu sinni árlega”. Brynflis Péturdóttir, leikkona: „Leíkið í Þjóðleikhús- inu frá stofnun pess” „Meistaralega dregin mannlýsing” ............ „kraftmikil leikkona og hún nær sterkum tökum á viðfangsefninu” .... „Bryndis Pétursdóttir bjargar þvi sem bjargað verður”. Þetta eru nokkrar glefsur úr blaðadómum um leikritiö Vandarhögg, sem sýnt var i sjón- varpinu á sunnudaginn var, og eiga allar viö leik Bryndfsar Pét- ursddttur, sem flestir eru sam- mála um aö hafi túlkað hina miður geðfelldu Emmu á stór- kostlegan hátt. „Þekkt Hrafn frá þvi að hann var strákur”. „Mér þótti mjög gaman að vinna með öllu þessu góöa fólki að gerð þessa leikrits og þá ekki sist að fá tækifæri til þess aö starfa með Hrafni Gunnlaugs- syni, sem ég hef þekkt frá þvi aö hann var strákur, sagöi Bryndis Pétursdóttir þegar blaöamaður Visis ræddi við hana i gær. Bryndis er fædd 22. september 1928 i Vattarnesi viö Fáskrúðs- fjörö. Foreldrar hennar eru Guö- laug Sigmundsdóttir og Pétur Sigurösson, bæði Austfirðingar. Bryndfs Pétursdóttir, leikkona. Arið 1934 flutti fjölskyldan til Reykjavikur, þar sem Bryndis gekk i skóla og hefur búið siðan. ,,Ég fór að vinna sem meina- tæknir á Rannsóknastofu háskól- ans en gerðist siöan ein af fyrstu flugfreyjum landsins. Samhliöa vinnunni gekk ég f leiklistarskóla hjá Lárusi Pálssyni og áriö 1946 lék ég mitt 'fyrsta hlutverk, — aðalhlutverkiö I Jónsmessú- draumihjá Leikfélagi Reykjavik- ur. Sama ár lék ég einniglfGaldra- Lofti”. Myndir Lofts Guðmundssonar „Milli fjalls og fjöru” og „Niöur- setningur” voru einar fyrstu leiknu kvikmyndir á Islandi, og lék Bryndis I þeim báðum, en það var á árunum 1947 og 1949. „Ég byrjaöi svo hjá Þjóðleik- húsinu þegar það var stofnað og lék á opnunarsýningunni i „Nýársnóttinni.” Þar hef ég unniöóslitiö siöan, ef frá eru talin ein þrjú ár sem féllu úr. Þar fyrir utan hef ég svo leikiö i tveimur s jónvarpsleikritum ’ ’. Af áhugamálum utan leikhúss- ins sagðist Bryndis helst vilja nefna heimiliö.en auk þess stundaði hún sund af miklum krafti, —færihelst daglega ef hún kæmi þvi við. Eginmaður Bryndisar er Om Eiriksson, flugumsjónarmaður hjá Flugleiðum, og eiga þau þrjá syni- -P.M. Er Magnds i stælnum.... Báðir i stælnum Alþýðublaðið birtir f gær viötöl við þá Magnds H. Magnússon og Vil- mund Gylfason sem gefa kost á sér við kjör vara- formanns Alþýðuflokks- ins. Báðir taka fram að ekki sé um neinn klofning að ræða innan flokksins og enginn verulegur stefnumunur milli þeirra tveggja. Eöa eins og Vil- mundur orðar það: „Viöerum báöirtraust- ir hægri kratar, höfum báðir sömu stefnu I öllum veigamestu málunum, þaö er kannski nokkur munur á pólitiskum stæl.” Nú er bara að vita hvor stælgæjanna sigrar. ... en Vimmi með stæia? Reynt tll ðrautar Formaður Grafiska sveinafélagsins kom stormandi inn á fund prentara I fyrradag og hvatti mjög til þess að þeir felldu samkomulagið um tæknimál og færu I verkfall. Hins vegar lét formaðurinn þess i engu getiðað hans eigin félags- menn höfðu felit tillögu hans um að graffskir færu I verkfall frá og meö 5. nóvember, en úrslit at- kvæðagreiðslu þar um voru ljós f þann mund er prentarar hófu sinn fund. • Forsetinn Hornreka „Það stoðar litt að vera bæði forscti tslands og Nobelsverölaunahafi þegar vel gengur hjá Al- þýðuleikhúsinu. Vigdís Finnbogadóttir varð aö standa i biöröö til aö sjá „Don Juan snýr aftur". Henni tókst að komast inn en varö aö láta sér nægja aö sitja á kolli út I horni...” segir meðal annars i frétt sem birtist í Ekstra Bladet a dögun- um. Eitthvað hafa kollegar vorir ruglast f rfminu þvf frúVigdis Finnbogadóttir forseti hefur ekki hlotiö Nobelsverðlaun en var hins vegar sæmd Hammerskjöld verðlaun- um ekki alis fyrir löngu. En hvað um það, Ekstrabiaöiö hefur eftir forsetanum ab sýningin ÍZ/tAbm- - teLa-cCcZ. Præsidentpá taburet 'e Det hjælper ikke, at man báde er præsident over Ia* land og nyslflet NobelprÍ9- vinder, nflr nu Folketeatret har succes. SAledes mfltte Vigdir Finnbogadottir stfl i ko, da hun forleden ville ind at ae ’Don Juan vender hjem'. Det lykkedes hende at komme indenfor, men hun mfltte nojes med en ta- buret henne i hjornet, men3 Erik Wedersoe gav den hele armen. Prœsidenten, der er tidli- gere chef for Reykjaviks Statateater, havde bare den- ne kommentar: — En sfl fremragende fo- restilling f&r én til at glem- me alt om det hflrde sæde. I ovrigt har jeg aldrig været fflhiirptlfliphpr hefði verið afburðagóð og öil óþægindi af þessu harða sæti þvf gleymst. Vlnur í raun Norðmaður, Dani og Svfi voru samfcrða i litilli flugvél frá Kaupmanna- höfn áleiðis til London. SkyndUega stöðvuðust hreyflarnir og vélin byrj- aði að hrapa. Þeir höfbu ekki nema tvær fallhlffar og Norðmaöurinn rétti Svianum strax sina. Um leið og sá var stokkinn út æpti Daninn: — Hvers vegna I ósköp- unum gerðir þú þetta. Við förumst með flugvélinni. — Taktu þaö rólega, sagöi Nofsarinn. Ég lét hann fá bakpokann minn. Af Svíum f Noregi Auglýst vareftir náma- mönnum tii starfa við kolagröft f Noregi og sóttu margir um. Þar á meöal voru tveir Sviar. Þegar sá fyrri var kaltaður inn til forstjór- ans var hann spurður hvort hann væri vanur námumaður. — Ég er nú hræddur um þaö. Ég hef lengi unniö i tveggja metra djúpri kolanámu heima svaraði sá sænski. — Tveggja metra námu, sagði forstjórinn fyrirlitlega. Við þurfum menn sem hafa unnið þúsund metra niðri I jörðinni. Svifnn fór fram og sagði félaga sfnum hvernig farið hefði. Sá var nú kallaður inn og kvaðst hafa unniö f liðlega þús- und metra djúpri námu I Sviþjöö. — Það er gott, sagöi forstjórinn ánægður. En segðu mér, hvernig ljós notuðuð þið þarna niöri? — Ljós? endurtók Sví- inn og bætti svo viö. — Það veit ég ekkert um. Ég var nefnilega á dagvakt. • Hoilywood enn f sókn óli Laufdal Hollywood- kóngur er eflaust sá veit- ingamaður sem er hvaö hugmyndarikastur I þvf að vekja athygli á verts- húsisfnu og gera þaö ,,in” eins og þeir segja i út- landinu. Hann hefur lagt mikib kapp á að hafa hin og þessi „show” i Hollywood sem hafa öðlast miklar vinsældir og gert sitt til að trekkja, enda ólikt skemmtilegra að sækja staðsem býöur upp á eitt- hvað meira en drykkju og dans. Nú er eftir aö vita hvaða leynivopni Jón f óðali býr yfir þegar sá staður veröur opnaður aftureftirþær breytingar sem unniö er að. öli hefur ástæðu til að brosa.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.