Vísir - 29.10.1980, Side 11
Miövikudagur 29. október 1980
11
VÍSIR
Ny spariskirteini
fyrir 3 milljarða
Hafin er sala verötryggöra
sparisklrteina rikissjóös i öör-
um flokki, aö fjárhæö samtals
þrlr milljaröar króna. Fénu
veröur variö til opinberra fram-
kvæmda á grundveili lánsfjár-
áætlunar fyrir þetta ár.
Kjör skirteinanna eru hin
sömu og skirteina i fyrsta
flokki, sem gefin voru út i april
á þessu ári, en sala þeirra gekk
mjög vel samkvæmt upplýsing-
um Seölabankans. Höfuöstóll og
vextir eru verðtryggöir miðað
viö þær breytingar sem kunna
aö veröa á lánskjaravfsitölu,
sem tekur gildi 1. nóvember.
Skirteinin eru bundin fyrstu
fimm árin, en frá 25. október
eru þau innleysanleg hvenær
sem er næstu fimmtán árin.
Skirteinin eru framtalsskyld, en
um skattskyldu eöa skattfrelsi
þeirra, svoog vaxta og verðbóta
af þeim, fer eftir ákvæöum
tekju- og eignarskattslaga á
hverjum tlma. Gjaldfallnar
vaxtatekjur, þar meö taldar
veröbætur, eru einnig aö fullu
frádráttarbærar og þar meö i
raun skattfrjálsar.
Skirteinin eru gefin út i fjór-
um verögildum, tíu þúsund
krónur, fimmtiu þúsund,
hundrað þúsund og fimm
hundruð þúsund krónur. Sklrt-
einin skulu skráö á nafn.
— P.M.
IxAskóm ísn.A*im - **m*&KM**rorxti'* i
<« >CJ,KJ4Í) ■ (K«'Or«n :>f l.WKMAftt'
Eitt umslaganna, sem bréf frá NiröiP. Njarövik var sentf.
Safna mótmælum við pingkjörinnl stjórn
á Launasjóði rithöfunda:
Sent í umslagi irá
opinberri stofnuni
Aö undanfömu hefur ýmsum
rithöfundum borist fjölritaö bréf
frá Niröi P. Njarðvik, þar sem
þeir eru hvattir til þess aö mót-
mæla þvi, aö Alþingi setji þing-
kjörna nefnd til aö fara meö mál
Launasjóös rithöfunda. Þaö hefur
vakið sérstaka athygli, að bréf
þessi hafa borist I umslögum,
semmerkterurækilega opinberri
stofnun — þ.e. „Rannsóknar-
stofnun I bókmenntafræði” viö
Háskóla íslands.
I bréfinu, sem dagsett er 6.
október og ber ávarpsorðin
„ágæti félagi, segir m.a., aö
nokkrir „félagar okkar vinna nú
að þvl öllum árum aö rithöfundar
sjálfir veröi sviptir yfirráöum
yfir Launasjóði rithöfunda. 1
framhaldi af mótmælum i vor
fengu þeir máliö tekiö upp á Al-
þingi, og vakti greinilega fyrir
þeim aö fá lögum um Launasjóö
rithöfunda breytt á þann veg, aö
þingkjörin nefnd úthlutaði úr
sjóönum. Viö vitum mætavel til
hvers slikt mundi leiða. Þaö
mundi leiöa til þess aö tekið yröi
einhvers konar pólitlskt kvóta-
kerfi og peningum sjóösins dreift
i smáskömmtum. Úthlutun kæmi
þá ekki aö neinum raunveruleg-
um notum”.
1 framhaldi af þessu segir
m.a. „Númábúastviöaömáliö
veröi tekiö upp á Alþingi á ný, og
þess vegna þurfum viö aö sýna
fram á aö meirihluti rithöfunda
er andvlgur þvl aö pólitiskt kjörin
nefnd skammti rithöfundum lífs-
viöurværi”.
Viötakendur bréfsins eru siðan
hvattir til aö undirrita mótmæla-
skjal, þar sem þess er krafist aö
stjórn Launasjóös rithöfunda
veröi „I höndum samtaka rithöf-
unda”.
ingvar fer
vestur
Menntamálaráöhera, Ingvar
Gislason, hefur fengiö boö frá
rektor Manitobaháskóla I Winni-
peg I Kanada um aö heimsækja
háskólann og flytja þar fyrir-
lestur um Háskóla Islands og há-
skólanám tslendinga. Verður
fyrirlesturinn fluttur þriöjudag-
inn 28. þ.m. Jafnframt hafa ýmis
samtök Islendinga i Manitoba-
fylki og Torontoborg boöiö
menntamálaráöherra aö vera
gestur þeirra nokkra daga. Eigin-
konu ráöherrans, frú Ólöfu Auöi
Erlingsdóttur, hefur einnig veriö
boöiö i þessa ferö. Sérstakur
fylgdarmaöur ráöherrans er
Bjarni Gunnarsson stjórnarráös-
fulltrúi.
Fypiplesiup um
íslenska
málfræði
Hér á landi er staddur Islands-
vinur frá Rostock i Þýska alþýöu-
lýöveídinu, Dr. Owe Gustavs.
Hann hefur mikinn áhuga á fs-
lensku máli og málfræöi og hefur
unnið aö rannsóknum á Islensku.
Hann mun flytja fyrirlestur á
vegum Islenska málfræðifélags-
ins i stofu 422 I Arnagaröi
fimmtudaginn 30. október kl.
17.15. Fyrirlesturinn mun fjalla
um notkun þolfalls meö forsetn-
ingunni meö i íslensku.
Allir eru velkomnir á þennan
fyrirlestur, sem fluttur veröur á
islensku, segir i fréttatilkynn-
ingu.
SfÓFNFUNDUR STYRKT-
ARFÉLAGS SOGNS
Nokkrir félagar, sem starfaö
hafa að undirbúningi, hafa
ákveðið aö gangast fyrir stofn-
fundi Styrktarfélags Sogns, og
veröur stofnfundurinn haldinn
n.k. laugardag 1. október aö
Hótel Sögu — Blái-salur — kl.
13.30.
Meöferöarheimiliö að Sogni
varö fyrir skömmu tveggja ára
og þar hafa þegar um 800
alkahólistar útskrifast eftir
meöferö.
Eins og kunnugt er er stofnun-
in sjálfseignarstofnun innan
vébanda SAA meö eigin stjórn
og stendur þvi alveg undir
rekstrarkostnaöi og er að þvi
mikill sómi.
Tilgangur hins nýja félags
veröur aöefla starf og uppbygg-
ingu endurhæfingarheimilisins
aöSogni meö fjáröflun og vinnu,
en einnig aö efla samstööu meö
þeim sem hafa áhuga á meö-
feröarmálum. Þaö starf sem
veröur unniö innan félagsins
veröur á engan hátt tengt
rekstrinum á Sogni beint, hér er
sem fyrr segir um áhugastarf
þeirra aö ræöa sem hafa áhuga
á uppbyggingu staöarins og
vexti hans.
öllum þeim sem útskrifast
hafa af Sogni eftir meöferö hafa
veriö send bréf þar sem þeir eru
boöaöir til stofnfundarins n.k.
laugardag. En þaö skal tekiö
fram aö aö félagiö stendur opiö
öllum þeim sem hafa áhuga aö
starfa aö þeim málum sem
félagiö hyggst vinna aö, og eru
þeir boönir velkomnir á stofn-
fundinn.
Meöferöarheimiliö aö Sogni.
FELAGSFUNDUR
Verslunarmannafélag Reykjavfkur heldur
félagsfund að Hótel Esju í kvöld/ miðvikudag
29. október kl. 20.30.
Fundarefni:
Nýir kjarasamningar.
VERSLUNARMANNAFÉLAG
REYKJAViKUR
Víssir þú að
ejc«e|r>c>il->c>|}it-»
býður mesta
úrval unglinga-
húsgagna
á lægsta verði
og á hagkvæm-
ustu afborgunar
kjörunum ?
Híldshöfða 20, Reykjavik
Simar: 81410 og 81199
Tannlæknastofa
Hef opnað tannlæknastof u að Strandgötu 28
(húsi Kaupfélags Hafnfirðinga), Hafnarfirði.
Viðtalstímar: kl. 9-5 miðvikudaga, fimmtu-
daga og föstudaga.
Sími 54299
Jenný Ágústsdóttir, tannlæknir
/2%
$ PhPhPi S-, Félag starfsfólks
í veitingahúsum.
Félagsfundur
verður í dag, miðvikudag 29. október kl. 17, að
óðinsgötu 7.
Fundarefni:
Nýir kjarasamningar.
Stjórnin
AÐALFUNDUR
Taflfélags Reykjavíkur 1980
verður haldinn að Grensásvegi 46, miðviku-
daginn 5. nóvember kl. 20.00
Dagskrá:
1. venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnur mál.
Stjórnin
m
Smurbrauðstofan
BJORí\JII\JI\J
Njálsgötu 49 - Simi 15105