Vísir - 06.11.1980, Blaðsíða 5

Vísir - 06.11.1980, Blaðsíða 5
iraskar herþotur geröu I gær loftárásir á skriödrekasveit irana. Hart barlst enn við Persaflóann irakar felldu i bardögum i gær um 100 iranska hermenn og skutu niður eina herþotu þeirra. Aðrir herflokkar þeirra sprengdu upp oliuleiðslur og eina örbyglju- sendistöð. iranskar herþotur gerðu loftár- ásir á nokkur borgaraleg skot- mörk i Suleimaniya-héraði i norðurhluta landsins, samkvæmt fréttum frá Bagdad, en voru reknar á flótta af lugher iraks. Var þá ein herþota Irans skotin niöur. transkar herþyrlur sprengdu i loft upp loftskeytastöð á Abadan-svæðinu, og sprengdu upp oliuleiðslur, sem lágu frá Qasr-E-Shirin i ýmsar áttir. Herþotur Iraka geröu árásir á skriödreka Irans norðvestur af Mahabad og i Kúrdistan. Khomeini æðitiprestur i iran, hefur visað á bug sem fyrr til- lögum Husseins forseta iraks um að láta af bardögum. Sagði hann ekki koma til mála, að friður yrði saminn, meðan nokkur iraskur hermaður væri á iranskri grund. Reagan vill skera niður Dáknið - Carter kennir gíslamálinu um ðsigurinn ,,Eins og ég hef margsagt i kosningabaráttunni vil ég draga úr ráðningu nýrra starfsmanna i stað þeirra, sem yfirgefa þjón- ustu þess opinbera”, sagði Ron- ald Reagan i gærkvöldi. Sagðist hann mundu leggja mikla áherslu á að stöðva út- þenslu skrifstofubáknsins en um leið hefjast handa við ráðstafanir i efnahagslifinu, sem miðuðu aö þvi að draga úr atvinnuleysi. Reagan hefur boðað blaða- mannafund i dag til þess að kynna nefnd manna, sem hann hefur skipaö sér til ráðuneytis við val á mönnum til embætta i stjórn hans og mörkun stjórnarstefnunnar. I henni munu eiga sæti ráðherrar úr stjórnum fyrri repúblikanafor- seta og einn ihaldssamur demó- krati. ,,Ég óttast ekki þau verkefni sem framundan biða”, sagöi Reagan, hylltur af flokkssystkin- um sinum, þegar sigurinn lá .ljós fyrir. „Við munum leysa þau i sameiningu”. Carter forseti hélt til sumar- dvalarstaðar Bandarikjaforseta i gær, þar sem hann hyggst hvila sig eftir kosningabaráttuna, en sagði áður við fréttamenn: „Ég held ekki, að úrslitin spegli neina persónulega óánægju i minn garö. Menn einfaldlega örvæntu vegna óleystra vandamála”. Vildi Carter kenna ósigri sinum gislamálinu, oliuverðhækkunum og verðbólgunni. Ósigurinn er sá hraklegasti sem nokkur forseti, leitandi endurkjörs, hefur beðið. Slikur varð yfirburðasigur Reagans, að leita verður hliöstæöu aftur til 1966 þegar flokksbróðir hans, Barry Goldwater galt afhroð fyrir Lyndon Johnson, — þaö var raun- ar i stuðningi sinum við Gold- water, sem Reagan vakti fyrir al- vöru á sér athygli I stjórnmálum. Reagan vill skera niður bákniö. Lokalölurnap í I kosningunum i Þessar voru siðustu tölur, þegar lokið var talningu 98% kjördeilda | i bandarisku forsetakosningunum: Atkvæði Kjörmenn Carter 34,4 millj. 41% 49 Reagan 42,7 millj. 51% 483 Anderson 5,5millj. 7% 0 Þá var ólokið talningu i Arkansas, en Reagan hafði þar forystu og > S var liklegri til að fá þá 6 kjörmenn. i kosningunni til öldungadeildarinnar höfðu þingsætin skipst ( I þannig. Demókrat. Repúbl. Óháöir J Nýja skiptingin 46 53 1 » Gamla I I skiptingin 58 41 1 I Unnu repúblikanar 12 þingsæti og komust loks i meirihlutaað- I I stöðu i öldungadeildinni eftir 26 ár. I 1 fulltrúadeildinni skiptust þingsætin þannig: I Demókrat. Repúblikanar I Nýja skiptingin 243 192 I I Gamla skiptingin 276 159 j Unnu repúblikanar 33 ný þingsæti. I I kosningum til rikisstjóraembætta stokkaðist skiptingin upp. I I Hafa demókratar nú 27 rikisstjóra i stað 31 og repúblikanar 23 i staö j I 19. I I___________________________________________________________________I Carrington væntir góðs af Carrington lávarður, utanrikis- ráöherra Bretlands, sagði i sjón- varpsviðtali i morgun, að breska stjórnin þættist þess viss, að Rea- gan mundi hafa raunsæ áhrif á heimsmálin. Kvaöst iávarðurinn viss um, að sigur Reagans mundi ekki valda Reagan Bretlandi eða Evrópu neinum sérstökum vandræðum. Kvaöst hann ekki sjá fyrir sér nýtt vig- búnaðarkapphlaup, né heldur taldi hann Reagan liklegan til að magna spennu i sambúð austurs og vesturs. MlnnísvarOi Sovésk yfirvöld hafa fyrir- skipaö gerö á feiknamiklum minnisvaröa á þeim staö, þar sem ein af orrustum sföari heim- styrjaldar var háö, en i henni tók einmitt Brezhnev forseti þátt. Veröur þetta geysistór breiö- mynd viö Malaya Zemlya, sem er á noröausturströnd Svarta hafs- ins, þar sem sovéskir hermenn hrundu tilraun Þjóöverja til land- göngu 1943. Þvottabírnír Tveir risa-þvottabirnir voru sendir flugleiöis frá Kina tii V-Berlinar i gær, en þeir eru gjöf Hua formanns til Helmut Sch- midts kanslara. Þcirra nýja heimili veröur i dýragaröinum I V-Berlin. Heitir annar Bao-Baao en hinn Tian- Tian. Þaö eru aöeins til tlu aörir þvottabirnir í dýragöröuin utan Ktna. Waldheim óskar Reagan heílla Kurt Waldheim, framkvæmda- stjóri Sameinuöu þjoöanna, var meöal þeirra. sem i gær sendu Ronald Reagan heillaóskaskeyti vegna kosningasigursins. — 1 skeytinu kvaöst Waldheim hlakka til áframhalds ágæts samstarfs milli stofnunarinnar og Banda- rfkjanna.Kvaöst hann sannfæröur um.að Bandarlkin og Sameinuöu þjóöirnar mundu halda áfram samvinnu sinni til aö skapa betri og friösælli heim. Dóttírin ætlar líka í pólitíkina Maureen Reagan, elsta dóttir hins nýkjörna forseta. tilkynnti I gærkvöldi, aöhún ihugaöi aösnúa sér aö stjórnmálum. Sagöi hún, aö til greina kæmi, aöhún byöi sig fram I kosningum til öldunga- deildarinnar, þeg'ár, Sam Haya- kawa, þingmaöur repúblikana i Kaliforniu, drcgur sig I hlé eftir tvö ár. Nlxon fær ekki emhætti I stjórn Reagans Richard Ntxon, fyrrum forseti, fær ekki embætti I stjórn Ronalds Reagans, þegar hinn siöarnefndi flytur I Hvita húsiö, eftir þvf sem einn samstarfsmanna Reagans sagöi i gær. Nixon, sem býr f New York, sagöi nýlega i viötali, aö hann mundi gjarnan taka aö sér aö vera ráögjafi eöa samninga- maöur fyrir Reaganstjórnina. — „Ég mun vera til reiöu til ráöu- neytis eöa aöstoöar,” sagöi Nixon. Ragan ráöfæröi sig viö Nixon I kosningabaráttunni um ýmis utanrlkismál, þar sem Nixon býr yfir mikilli reynslu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.