Morgunblaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 46
46 C MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NÝBÝLAVEGUR - NÝTT
1 ÍBÚÐ EFTIR
Mjög góðar og vel skipulagðar 85 fm nýjar íbúðir í
glæsilegu 5 íbúða húsi á þessum gróna stað. Skilast
fullbúnar án gólfefna í febrúar 2004. 1 bílskúr eftir.
Teikningar hjá Garðatorgi.
AUSTURSTÖRND M/BÍLSKÝLI OG
LYFTU
Mjög snyrtileg og góð 74 fm íb. á 3. hæð auk stæði
í bílageymslu. Frábært útsýni. Þvottahús á hæðinni.
Góð sameign. Verið velkomin. Verð 11 millj.
HRÍSMÓAR - GARÐABÆ
Mjög björt og góð 2ja herb. íbúð á 1. hæð. Parket á
gólfum og góðar svalir. Verð 11,5 millj.
INDRIÐASTAÐIR - SKORRADAL
Mjög glæsilegt 93 fm nýtt hús. 3 svefnherb og stór
stofa. Fullbúið hús án gólfefna. Stór og mikil ver-
önd. Útsýni yfir Skorradalsvatn. „Skorradalurinn er
æði“ Verð 13,7 millj.
GVENDARGEISLI - GRAFARHOLT
Mjög gott samtals 205,8 fm einbýli á einni hæð
með 30 fm bílskúr. Húsið er fokhelt en fullbúið að
utan og lóð tyrfð. Verð 18,2 millj.
BIRKIHOLT - ÁLFTANESI LOKSINS
NÝ RAÐHÚS Á ÁLFTANESI
Glæsileg fjögur 180 fm raðhús miðsvæðis á Álfta-
nesinu, Birkiholt 7, 9, 11 og 13. Húsin sem eru á
tveimur hæðum skilast fullbúin að utan en fokheld
að innan (hægt að fá þau lengra komin). Tvennar
góðar svalir. Leikskóli, skóli, íþróttahús, sundlaug
og verslun rétt við hendina. Verð 15,5 - 16,2 millj.
GLÆSIHÚS
Villtu láta byggja fullvaxið einbýli fyrir þig á góðri
lóð. Komdu við og sjáðu hvað við höfum að bjóða.
LYNGÁS - GARÐABÆ - LEIGA
Mjög góð tvö 95 fm bil með innkeyrsluhurð. Leigj-
ast saman eða hvort um sig. Góð aðkoma og gott
plan.
SKEIÐARÁS - GARÐABÆ
Til sölu tvö bil á jarðhæð í nýlegu og góðu húsi.
Annað bilið er 375 fm og hitt er 445 fm. Hvort um
sig hefur tvær innkeyrslu hurðir. Hér má gera góð
kaup á góðum kjörum.
KRINGLAN - MINNI TURN
Mjög gott 249,7 fm skrifstofuhúsnæði á 4. hæð í
minni turni Kringlunnar. Húsnæðið er í dag skipt
niður í nokkrar einingar og eru góðir leigusamning-
ar um þau flest. Góð fjárfesting.
SKEIFAN - LAUST
Nýkomið í sölu (eða leigu) samtals 948,8 fm á
neðri hæð. Frábær staðsetning fyrir miðri Skeif-
unni. Húsnæðið er laust nú þegar. Skiptanlegt í
smærri einingar. Þrír inngangar í húsnæðið og há
innkeyrsluhurð. Mjög öflugt rafmagn og loftræst-
ing. (Sjá www.gardatorg.is)
HVALERYRARBRAUT HFJ.
Nýkomið í einkasölu samtals 1.563 fm á hafnar-
svæðinu í Hafnarfirði. Húsið sem þarfnast talsverð-
ara lagfæringa er í 9 einingum 77 - 300 fm hver.
Húsið er á einni hæð og er lofthæð mikil. Gott
tækifæri og miklir möguleikar hér.
HLÍÐASMÁRI - KÓPAVOGI
Sérlega vandað verslunar- og skrifstofuhúsnæði á
albesta stað höfuðborgarsvæðisins. Húsið er sam-
tals um 4.000 fm, fyrstu 4. hæðirnar um 900 fm og
efsta hæð 540 fm. Skiptanlegt í smærri einingar.
Frábær útsýnisstaður.
MIÐHRAUN - GARÐABÆ
Nýkomin í sölu þessi 3.042 fm nýbygging. Skiptan-
legt í smærri einingar eða allt niður í ca 70 fm.
Þetta er mjög vandað og gott hús staðsett á góð-
um stað í hrauninu í Garðabæ. Klætt að utan með
marmarasalla. Teikningar og nánari uppl. á skrif-
stofu Garðatorgs.
LYNGMÓAR - GARÐABÆ
110 fm 3ja-4ra herb. íbúð á 1. hæð auk bílskúrs í
nýviðgerðu litlu fjölbýli miðsvæðis í Garðabænum.
Stórar suðursvalir. Stutt í alla þjónustu og skóla.
Verð 14,9 millj.
GOÐHEIMAR
Mjög góð og mikið endurnýjuð 129 fm auk 25,4 fm
bílskúrs. Sameiginl. þvottahús í kjallara. Falleg eign
á þessum vinsæla stað. Verð 17,8 millj.
STÓRÁS - GARÐABÆ
Sérlega falleg 129,7 fm efri sérhæð auk 35 fm bíl-
skúrs í mjög góðu tvíbýli í eldri hluta Hraunsholts.
Mjög snyrtileg og vel um gengin eign. Stór og fal-
legur garður. Frábært útsýni. Verð 17,5 millj.
KRÓKAMÝRI - GARÐABÆ
Nýkomin í einkasölu mjög góð 92 fm íbúð á 1. hæð
í litlu frábærlega staðsettu fjölbýli. Stutt í skóla og
íþróttir. Verð kr. 14 millj.
AUSTURGATA - HFJ.
Samtals 258 fm einbýli sem þarfnast verulegra lag-
færinga. Húsið sem er staðsett í miðbæ Hafnafjarð-
ar gefur möguleika á 3 íbúðum. Tækifæri fyirir lag-
henta.
ÁSBÚÐ GARÐABÆ - ENDAHÚS
Mjög snyrtilegt og gott 166 fm endaraðhús. Fjögur
svefnherb. innb. bílskúr. Gott skipulag. Bjart og vel
staðsett hús á rólegum og veðursælum stað. Verð
21,5 millj.
SJÁVARGRUND - GARÐABÆ
Nýkomið í einkasölu glæsilegt 170 fm raðhús auk
20 fm bílageysmlslu á frábærum stað í Garðabæn-
um. Bílageymsla og góður garður. Hús með mikla
möguleika. Verð 20,9 millj.
BIRKIÁS - GARÐABÆ
Glæsilegt 205 fm tvílyft raðhús á þessum frábæra
útsýnisstað í nýjasta byggingahverfi Garðabæjar,
Ásunum. 4 stór svefnh. Aðalíbúðin öll á götuhæð
(efri) og tvö stór herbergi á neðri hæð. Verð 27,9
millj.
ÖGURÁS GARÐABÆ
Glæsilegt 146 fm raðhús í Ásahverfinu í Garðabæ.
3 svefnherb. Fallegar innréttingar og gólfefni. Byggt
2001. Verð 23,5 millj.
BIRKIHÆÐ - GARÐABÆ
Stórglæsilegt um 260 fm einbýli þar af um 54 fm
bílskúr, á frábærum stað í Hæðahverfinu í Garða-
bæ. Sérstaklega opið, bjart hús og frábærlega
hannað. Arkitektar hússins eru Sigurður Hallgríms-
son og Guðbjörg Magnúsdóttir.
Sjá myndir af húsinu á : WWW.gardatorg.is
Óskað er eftir tilboði í húsið.
HAUKANES - GARÐABÆ
Mjög fallegt og gott samtals 279,4 fm einbýli með
36,8 fm bílskúr. Húsið sem er á tveimur hæðum er
afar skemmtilegt og með mikla möguleika. Húsið
stendur innst í götu og er þaðan óhindrað útsýni.
HAUKANES VIÐ SJÓINN
Glæsilegt 401 fm tvílyft einbýli á Arnarnesinu. Hús-
ið stendur á stórri sjávarlóð með útsýni yfir Kópa-
vog. Frábært tækifæri fyrir þá sem vilja glæsieign á
frábærum stað við sjóinn.
TJALDANES - GARÐABÆ
Glæsilegt samtals 300 fm einbýli á frábærum stað á
Arnarnesinu. Þar af er bílskúr um 60 fm. Húsið sem
er byggt 1988 hefur verið mikið endurnýjað. Aðal-
íbúð hússins er á efri hæð (götuhæð) og á neðri
hæð er m.a. lítil séríbúð (allt nýtt) Mjög góður bíl-
skúr. Frábært útsýni til suðurs. Glæsilegur verð-
launagarður. Gott verð.
EINBÝLI Í GARÐABÆ
Eigum á skrá nokkur góð einbýli í Garðabæ sem við
getum ekki auglýst beint að svo stöddu. Upplýsing-
ar aðeins gefnar á skrifstofu Garðatorgs.
Garðabær. Garðatorg eignamiðlun
er með í sölu núna einbýlishús að
Birkihæð 1 í Garðabæ. Um er að
ræða steinhús, byggt árið 1992 og
erþað 259 fermetrar, þar af er bíl-
skúr 40,3 fermetrar. Arkitektar
hússins eru Sigurður Hallgrímsson
og Guðbjörg Magnúsdóttir.
„Þetta er stórglæsilegt hús og
einstakt á frábærum stað í hæðun-
um í Garðabæ,“ sagði Þórhallur Bi-
ering hjá Garðatorgi.
„Komið er inn í rúmgott anddyri
með góðum fataskáp upp í loft. Úr
anddyri er gengið inn í opið rými,
eldhúsið er á vinstri hönd, þar er
mjög vönduð eldhúsinnrétting úr
rauðeik frá trésmiðjunni Borg,
steinborðplötur frá S. Helgasyni og
vönduð tæki, sem og eru fallegar
svartar mosaikflísar á milli skápa.
Eldhúsið er að hálfu leyti opið inn í
borðstofu og góður arinn skiptir
borðstofu og setustofu. Úr borð-
stofu er útgengt á góða suður-ver-
önd og úr stofu er útgengt á vestur-
verönd.
Á gólfi anddyris, eldhúss og stofu
er grágræn náttúruskífa og loft eru
klædd fallegum viðarborðum. Í mið-
rými hússins eru tvö þrep upp í opið
fjölskylduherbergi eða sjónvarps-
herbergi. Úr rúmgóðu hjónaher-
bergi er útgengt út í garðinn vestan
megin, stórt baðherbergi er inn af
hjónaherbergi , þar er grágræn
náttúruskífa á gólfi og hvítar mósa-
íkflísar á veggjum, falleg innrétting,
niðurfellt sturtugólf. Við hlið bað-
herbergis er fataherbergi. Þetta
rými er nokkuð frá öðrum herbergj-
um hússins, en fjölskyldurýmið er
þar á milli. Hægra megin við það er
gangur, þaðan er gengt í fallegt bað-
herbergi með grágrænni náttúr-
skífu, fallegri viðarinnréttingu og
baðkari. Þá er mjög gott þvottahús,
þaðan sem útgengt er í garð austan
megin. Sem og er gengt frá gang-
inum í þrjú góð svefnherbergi. Á
þessum hluta hússins er niðurlímt
parket úr rauðeik á gólfum, einnig
er rauðeik á þrepum, eins eru allir
sólbekkir í húsinu úr rauðeik. Í
miðju húsinu er hár gangur með
mörgum litlum upplýsgum gluggum
sem lýsa einnig á þakið sem gefur
húsinu afar fallega ásýnd í rökkri.
Hús þetta er einstaklega
skemmtilega hannað og hefur hönn-
unin meðal annars mikla lofthæð,
húsið er og mjög opið og bjart. Inn-
angengt er milli anddyris og bíl-
skúrs. Bílskúrinn er afar rúmgóður
og í honum er einnig góð lofthæð, í
skúrnum rúmast vel tveir stórir
bílar. Inn af bílskúr er 50 fermetra
gluggalaust rými sem ekki er í upp-
gefinni fermetratölu. Óskað er til-
boða í þetta hús og fást nánari upp-
lýsingar hjá Garðatorgi.
Birkihæð 1 í Garðabæ er til sölu hjá Garðatorgi. Þetta er 259,3 fermetra hús,
tilboða er óskað.
Birkihæð 1