Vísir - 16.03.1981, Blaðsíða 2

Vísir - 16.03.1981, Blaðsíða 2
2 Ertu hlynnt(ur) sam- norrænum sjónvarps- hnetti:? Bryndfs Oddsdóttir, saumakona: Ég hef enga skobun á þvi. Guömundur Sigfússon, vinnur há Meitlinum i Þorlákshöfn. Já, ég er það. Guðmundur Sigurbergsson, útilegumaður: Já ég er það og ég vil helst hafa tvo. Jóna Bjarnadóttir, verslunar kona.'Já, það er ég örugglega. Þuriöur I. Stefánsdóttir, hrein- gcrningakona: Að sjálfsögðu. VÍSIR Mánudagur 16. mars 1981. „Starfiö Dess viröi aö Daö sé unnið” - segir Ester Guðmundsdóttir nýkjörin formaður Kvenr étti n d a f éiags íslands Gster Guðmundsdóttir, þjóðfélagsfræðingur „Ég er búin að starfa i Kven- réttindafélagi Islands frá 1976 og hef setiö i stjórn sl. þrjú ár”, sagði Ester Guðmundsdóttir, þjóöfélagsfræðingur, þegar Visir ræddi við hana. Ester er nýkjörinn formaður Kvenréttindafélags Islands og tók hún við af Sólveigu Ölafsdóttur, sem gegnthaföi formennsku um 6 ára skeið. Ester hefur starfað mikið að kvenréttindamálum. Auk þess sem áður er taliö var hún starfsmaður Kvennaárs- nefndar meðan hún starfaði. „Mér finnst þetta starf þess virði að það sé unnið, annars væri ég ekki aö þvi”, sagöi hún um kvenréttindastarfiö. „Annars skiptast á skin og skúrir, og það hefur verið nokkur stöðnun i þess- um málum undanfarið. En mér finnst, aö það sé aö komast hreyf- ing á þau aftur”. „Hverju viltu kenna þessa stöðnun?”. „Það var mikil umræða i kring- um kvennaárið og eftir það. Ég held að stöðnunin sé ef til vill þvi aö kenna, að umræðan datt niður eftir þann tima. En eins og ég sagöi, tel ég að þetta sé að fara af stað aftur. Vil ég þá nefna ráö- stefnuna,sem Kvenréttinda- félagið hélt með konum i sveitar- stjórnum, þar sem fram kom mikil samstaða og baráttuvilji. Nú, þátttaka kvenna i stjórn- málum hefur veriö mjög dræm og fáar konur hafa setið I bæjar- stjórn. Þetta hefur ekkert aukist þrátt fyrir þessa miklu umræðu, en ég trúi þvi að sltkt stuðli aö þvi að koma hreyfingu á málin aftur”. „Þaö heyrast stundum þær raddir, að jafnréttisbaráttan sé vonlaust verk?”. „Það held ég að sé af og frá. En hitt ber að hafa i huga, að karl- mennirnir hafa aldrei veriö teknir inn i myndina og þeim hleypt inn i umræðuna. Við erum að breyta þessu i Kvenréttinda1 félaginu og þar eru nú starfandi 15 karlmenn. Þeir eru búnir að mynda með sér hóp og ætla að taka fyrir stöðu feöra i nútima- þjóðfélagi og stöðu karlmannsins yfirleitt. Ég held að umræöan sé að breikka, þegar hún er komin inn á þetta stig, og ber að fagna þvi”. „Þú nefnir hópstarf. Verður það þá þannig að karlmenn starfa sér i hópi og kvenfólk i öðrum?” Nei, en starfið fór af stað á þennan hátt, til þess að gefa karl- mönnunum tækifæri til aö vera meira meö. Þeir hafa greinilega mikinn áhuga á þessu og hafa veriðað vinna, margir hverjir, að jafnréttismálum. Hugmyndin varð til á landsfundi félagsins i október. Aö loknu þessu hópstarfi, sem unnið verður i samvinnu við stjórnina verður haldin ráðstefna i haust”. „Hvað er annað á döfinni hjá félaginu?” „A morgun hefst námskeiö i fundarsköpun ræöumennsku og fundarstjórn. Sú hugmynd kom einnig fram á landsfundinum, þar sem augljóst þótti, að konur þyrftu að fá betri tækifæri til aö komast á slik námskeið. Þau hafa veriö mjög fátiö nema innan stéttarfélaganna og pólitiskra flokka. Þótti þvl fullt tilefni til að halda námskeiö á breiðum og al- mennum grundvelli. Þá er hug- myndin að þarna verði um frum- námskeið aö ræöa og verði siöan haldið framhaldsnámskeið.ef vel tekst til. Þá kæmi jafnvel til greina að taka fyrir einhverja málaflokka og fjalla um þá. Þetta eru þeir einstöku starfs- þættir, sem ég get nefnt nú. En þess má geta að á landsfundinum var samþykkt stefnuskrá félags- ins. Aðalverkefni næstu 4 ára verður að leitast við að auka þátt- töku kvenna i pólitiskri starf- semi og hvetja þær til frekari ábyrgðarstarfa. Verður farið að vinna aö hugmyndum varðandi þetta verkefni á næstunni”. — JSS Ekki hægl Sveitapresturinn mætti litilli stúlku, þar sem hún gekk eftir þjóðveginum, með kú i bandi. „Hvert ertu aö fara með kúna, gæska”? spurði presturinn. „Hún þarf aö finna bola”, svaraði telpan. „Ósköp eru að vita til þess, að þú skutir þurfa að teyma hana alla þessa leið. Mér finnst nú aö pabbi þinn eða stóri bróð- ir hcfðu getað séð um þetta”. „Nei”, svaraöi telpan, „þaö varö vist aö vera bolinn’. Eiöur Guðnason, aiþýðu- fiokksmaðurinn I Út- varpsráöi. Kratar leggja ifnuna Fyrirhugaður niður- skurður hjá Rikisút- varpinu hefur verið mikið til umræðu. Sýnist þar sitt hverjuih, eins og vænta mátti, Kratar munu þó hafa nokkra sérstöðu. ef marka má afstöðu þing- flokks þeirra í málinu. Hann kom saman til fundar á dögunum til aö ræða niðurskuröinn. Varð niðurstaða fundarins sú, að kratar skyldu leggjast mjög gegn hvers konar aðgeröum í þá átt. Hefur þingflokkurinn þvl væntanlega lagt sinum manni f útvarpsráði, Eiði Guðnasyni, alþingis- manni, linuna. Má búast við, að hann standi fast gegn því að skorið veröi niður hjá rikisfjölmiöl- unum og krefjist þess að fjárhagsvandinn verði leystur á einhvern annan hátt. Sighvatur Björgvinsson, formaður þingflokks Al- þýöuflokksins Helnúin Þessi er stolínn úr Samúel: „Halló! Er þetta á lög- reglustöðinni? Flýtið ykkur niður á hornið á Laugavcgi og Banka- stræti. Reikningskennar- inn minn hefurlagt þar ó- löglega”. Byitingar- afmæiíð Gamli Rússinn, Si- berienko, var orðinn 160 ára, þótt harla ótrúlegt mætti virðast. Frétta- menn þyrptust að gamla manninum, og spurðu hann, hverju hann þakk- aði það helst að hafa náð þessum himinháa aldri. „Þaö var i bylting- unni..”. byrjaði Siber- ienko. En fréttamcnn- irnir vildu ekki heyra sögur af byltingunni, heldureitthvað um gamla manninn. Svo þeir spurðu aftur. „Jú þaö var I bylting- unni...”. Svona gekk þetta þar til fre’ttamennirnir gáfust upp og ákváðu að leyfa manninum að rausa. Eitthvert viðtal var betra en ekkert, svo aö þeir ba’ðu hann aö halda á- fram. „Eins og ég sagði, var það I byltingunni aö ákveöiö var að taka manntalV sagöi Siber- ienko vesældarlega , „og þar var ég skráður 70 árum eidri en ég er”. .# Forysiu- raunir Sem kunnugt er, hefur nú veriö tekin ákvörðun um að fresta landsfundi Sjálfstæðisflokksins fram á haustiö. Er ljóst, að það eru einkum forystumálin, sem vefjast fyrir mönn- um þessa dagana og þeir vita ekki fyllilega, hvaða afstöðu skuli taka til þeirra mála. Munu margir málsmetandi sjálfstæöismenn teknir að velta þvi alvarlega fyrir sér, hvort ekki finnist ein- hver hæfur „kandidat” I röðum flokksbræöranria. Sá mun hins vegar ekki fundinn enn, og vist er að ekki hafa neinar af- dráttarlausar hugmyndir veriö settar fram I þess- um efnum. „Svlnavainlð” á Seltjarnar- nesi Vmsar sögur hafa spunnist um suðurreiö þeirra Blöndunga i fyrri viku. Þvi hefur meðal annars heyrst fleygt, að daginn eftir „Alþingishá- tiðina”, hafi auglýsinga- stofnun hljóðvarps borist staðfest skeyti frá ónefndum staö norður i landi. t skeytinu var hljóð- varpiö beðið aö birta aug- lýsingu þess efnis, að nú væru að hefjast sýningar á ballettinum „Svina- vatnið” og yrðu þær i félagsheimilinu á Sel- tjarnarnesi. Ekki var tekið fram, hvort það væri sendinefndin, sem átti að dansa ballettinn, en auglýsingin var stöðv- uð á siöustu stundu. • Ekkl grét hann Skarphéðlnn... 1 Neista, blaði Fylk- ingar byltingarsinnaðra kom múnista , ( eöa þannig) er oftast tekiö á málunum meö einurð og festu. t siðasta blaði er „útvikkun á hlutverki herstöövarinnar á Mið- nesheiði” tekin fyrir I bundnu máli og óbundnu. Hefur Jón, nokkur, ó Jóns sett saman brag mikinn, scm birtur er I biaðinu. Þar er fléttað saman á listilegan og ljóðrænan hátt nýja tim- anum og þeim gamla, cins og sjá má á þessu sýnishorni: „Ekki er að spauga með þá útnesjamenn við atómskeytum horfá þeir og glotta viðtönn. Sárt mun er þau springa, iaugum súrna kann, en ekki grét hann Skarp- héðinn, þá inni hann brann”. Þaö skal tekiö fram, aö þessa drápu mun eiga að syngja við lagið Suður- nesjamenn, að minnsta kosti þar sem hún passar við það. • Hafnlirðlngur I Hðskóla Svo var þaö Hafn- firöingurinn, sem ákvað að fara i háskólann. Hann pantaöi viðtal hjá rektor og mætti þar stundvís- lega. ,,Þú ert auövitað búinn að velja þér grein?” spurði rektor. „Hva, sagði Hafn- firöingurinn og varð eitt spurningarmerki i fram- an”, fæ ég ekki borð og stól eins og hinir?”. Johanna S. Sigþórsdóttir blaðamaður skrifar:

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.