Vísir - 16.03.1981, Blaðsíða 27

Vísir - 16.03.1981, Blaðsíða 27
HVAÐA ÁR FÉKK D1945 HALLDÓR LAXNESS m 10« NÓBELS- IJ1955 VERÐLAUN/N? □ 1965 HVAÐA ÁR VAR □ 1955 V/ÐREISNA RSTJÓRN/N i i 1956 stofnuð? 1959 Veistu rétta svarið? Pegar þú telur þig vita rétta svarið viö spurningunum krossar þú i viðeigandi reit. Kf þú ert ekki þegar áskrifandi að Visi, þá krossar þú i reitinn til hægri hér að neðan, annars i hinn. Aö loknu þessu sendir þú getraunaseðilinn til Visis, Siðumúla 8, 105 Revkjavik, merkt „Afmælisgetraun”. Mundu að senda seðilinn strax. Annars getur það gleymst og þú orðið af góðum vinningi. Einn getraunaseðill birtist fyrir hvern mánuð. Þetta er seöillinn fyrir mars mánuð. Þú þarft ekki að senda seðlana i hverjum inánuði, en eykur vinningslikurnar, ef þú sendir hvern mánaðar- seðii. Kvrsti vinningurinn hefur verið dreginn út (Visis-Coltinn). Næst verður Suzukinn dreginn út (31. inars) og loks sumarbústaðurinn (2!). mai). — Verðmæti vinninganna er samtais 340.000 kr. (34 millj. gkr.) Vinsamlegast setjiö kross viö þann reit,sem viö á: | 1 fcg er þegar 1 1 áskrifandi að Visi ] Eg óska að gerast 1—1 áskrifandi að Vísi Nafn Heimilisfang Byggðarlag Simi Nafnnúmer Utanaskriftin er: VlSIR Siðumúla 8 105 Reykjavik, merkt ,, Af mælisgetraun". Taktu eftir • Allir áksrifendur geta tekið þátt i getrauninni. • Geta byrjaö hvenær sem er. Auka vinnings- likur með því aö byrja strax. • Þátttaka byggist á því að senda inn einn get- raunaseðil fyrir hvern mánuð. • Getraunaseðill hvers mánaðar er endurbirt- ur tvisvar (fyrir nýja áskrifendur og þá gleymnu). • Getrauninni lýkur i maílok, þegar seinasti vinningurinn verður dreginn út. • Fyrsti vínningurinn, Mitsubishi Colt, hefur verið dreginn út (verð 7.5 millj. gkr.) • Annar vinningurinn, SS Suzukí F 80, (verð 6 millj. gkr.) verður dreginn út 31, mars n.k. • Þriðji vinningurinn sumarbústaður frá Húsasmiðjunni (verð 20 millj. gkr) verður dreginn út 29. mai n.k. I® Skilyrði að áskrifandi sé ekki með vanskila- skuld, þegar dregið er ut. Vertu áskrífanúi Sími 86611 svo mœlir Svarthöföi _ ____ Soianfllstetnt íopkuleysl : -ytfiti (ir ffiþiitll'i 1 í \ IV\ V ' _ W r - ' Æt'—. Þeir Lárus Jónsson og Eyjólf- ur Konráð Jónsson vilja láta flýta rannsóknum á sctlögum við landið með oliufund fyrir augum. Þingsáiyktun þeirra þar um er þörf og I tima töluð, enda ástæðulaust að hætta þvi starfi, sem unnið var á árinu 1978. Hins vegar er ekki nóg að finna olíu. Henni þarf að fylgja margvislegur dýr útbúnaöur, sem mundi vera fljótur aö gleypa fjáriög rikisins i heilu lagi. Þess vegna þyrfti áreiðan- lega fleiri aðilar að koma til við að nýta það, sem hugsanlega fyndist i setlögunum, en eins og alkunna er, hafa borgaraieg öfl i landinu ekki pólitiskt þrek til að segja þjóðinni eins og er i þeim efnum, heldur slá undan i hverju málinu á fætur öðru, jafnvel þótt ráðslagað sé um virkjanir, sem bókstaflega verða eins og mylnusteinn um hálsinn, verði ekki séð fyrir orkunotkun á móti, sem færi til annars en hita upp hús og sjóða fisk á heimilum. Viða hagar þannig til i land- inu, að auðvelt er að dreifa heitu vatni um heilar byggðri til upp- hitunar. Og vafalaust væri hægt að koma upp varmaveitum á til þess að gera köldum svæð- um.einfaldlega með þvi að nota hitann i berginu á miklu dýpi til að hita upp vatn til húsahitunar. Þetta er sagt vegna þess, aö i náinni framtið verður allt betra að gera en nota oliu til húshitun- ar. Þá er ekki óyfirstiganlegt mál aðleggja heitavatnsleiðslur langar ieiðir til byggða, sem með engu móti geta orðið sér úti um heitt jarövatn nieð öðru móti. Við munum Ijúka við að ieggja dýrar rafmagnsiinur hring um landið á næstunni. Sjþlfsagt yrðu heitavatnsleiðsl- ur töluvert dýrari, þótt litið hafi verið unnið að þvi að kanna, hvernig hægt er að leiöa heitt vatn með ódýru móti. En það er ekki óhugsandi, að leggja megi heitavatnsleiðslur langar vega- lengdir til birgðatanka. Heita vatnið er okkar oiia ekki siður en „hvitu kolin” i vatnsafiinu. Það er hins vegar eins og menn vilji ekki leiða hugann að þvi, að með miklum heitavatnsleiösl- um er hægt að leysa mikinn vanda til frambúðar. Það þykir ekki hagkvæmt eða framkvæm- anlegt að flytja heitt vatn úr landi, en rafmagn getum viö aftur á móti flutt út i formi framleiðslu. Ef gert er ráð fyrir þvi, að ekki verði vinnandi vegur aö leggja heitt vatntil allra þéttb^l- isstaða landsins, ættu menn aö hugleiða þá röskun og mismun- un, sem þvi fylgir. Auðvitað væri hægt að þétta byggðina eitthvað i kringum þá staði, þar sem heitt vatn er fyrir hendi, og sú mun verða reyndin I framtið- inni. En mikið er jafnan lagt upp úr þvl að halda byggöinni við, eins og það er kallað. Hing- að til hafa oliustyrkir veriö þaö naumir og það mikið þrautaráð, að þess er varla að vænta, aö málin verði leyst með þeim i framtiðinni. Þess vegna er ekki eftir neinu að bíða með áætlana- gerð um dreifingu heits vatns um landið. Fari svo að olia finnist I set- lögunum við landið, er einkum er horft til Skjálfanda-svæöis- ins, hvað það snertir, mundi stór hluti þeirrar oliu verða fluttur út eins og af raksturinn af rafmagninu. Og þótt viö fyndum oliu, þá væri hún ekki gefins. Til þess er of dýrt að vinna oliu úr setlögum undir sjó. Þvi mundi verða erfitt að leysa úr vanda þeirra, sem ekki hafa heitt vatn til upphitunar. Oliufundur mundi þvi ekki breyta miklu um þörfina á dreifingu heits vatns. Orkumál eiga eftir aö veröa mikið vandamál á tsiandi á næstunni, ekki siöur en I öörum löndum. Sá er þó munurinn, að viö eigum þegar orkugjafa I jörð og I fallvötnum, sem gera okkur leikinn auðveldari en mörgum öðrum. Við eigum auðvitað hik- laust að stefna að vinnslu brcnnsluefnis fyrir bila og vélar með rafmagni. Engu að slður er tiliaga þeirra Lárusar og Eyj- ólfs þörf. Við megum engan tima missa i orkumálum al- mennt. Þess vegna á aö skipa sérstakan hóp nú þegar, sem at- hugar og gerir tillögur um olíu- leit, hitavæðingu og rafvæð- ingu.Þetta er allt sama tóbakið. Svarthöfði.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.