Vísir - 16.03.1981, Blaðsíða 18

Vísir - 16.03.1981, Blaðsíða 18
22 Mánudagur 16. mars 1981 vísm mannlíí Stjörnuferð- ir til Ibiza (Jtsendari Samúels festi þetta sköpunárverk á filmu i ferö sinni til Ibiza i fyrra. — Samúel, Hollywood og Úrval efna til hópferða fyrir ungt fólk — ,,l>aí> er alveg ljóst að mesta fjörið vcrður á lbiza i sumar”, — sagði Ólafur Hauks- son, ritstjóri Kamúcls, i samtali við VIsi, en Samúel, llollywood og Orval hafa tekið sig saman um að efna til hópferða fyrir ungt fólk til Ibiza i sumar, og kaliast þær stjörnuferðir. ólafur sagði, að Samúel hefði tekið sér fcrð á hendur til Ibiza i fyrrasumar til að kynna sér aðstæ,ður og hcfði útsendari blaðsins aðeins orðið fyrir von- brigðum einu sinni, — að þurfa að fara heim aftur. Ibiza væri sá staöur i sólarlöndum. sem sé sniðinn fvrir fólk sem vill skeinmta sér og kynnast sér- kennilegu mannlifi. 1 stjörnuferðunum til Ibiza mun hópurinn hafa'heiia hæð i nýju ibúðahóteli, Rialto, til umráða en það hótel stendur viö hliðina á Lido, sem Úrval hefur boðið farþegum sinum upp á undanfarin sunuir. Fyrsta stjörnuferðin til Ibiza verður farin 12. júni og tekur fer.ðin þrjár vikur þar sem út- varps- og sjónvarpsmaöurinn Jón Björgvinsson mun verða hópnum til halds og trausts. ólafur lét þess sérstaklcga getið, að i fyrstu ferðinni yröu m.a. nokkrar af stúlkunum sem tóku þátl I keppninni ..Ungfrú Hollywood 1980”,en annars yrðu ferðirnar nánar kynntar I Samúel og IloIIywood og að ferðaskrifstofan Úrval við Austurvöll veitti nánari upplýs- ingar og sölu farmiða. Er við spurðum Ólaf hverjar væru svo stjörnurnar i ferðunum, svaraði hann þvi til aö það væru þátttakendurnir sjálfir. Hótel Rialto á Ibiza. Þar fær stjörnuhópurinn heila hæð til umráða. Kristin kemur undan ránni eftir að hafa slegið Ungi maðurinn lengst til hægri vann sér það til frægð- íslandsmetið i Limbódansi, 37 cm. ar að taka þátt i nær öllum kappátunum. íslandsmet I Limbódansi Menntskælingar frá Hamrahlið voru sigursælir á „Metings- kvöldi”, sem nýlega var háð á milli Versló og MH og sigruðu þeir I öllum greinum nema „Is- pinnaáti” þar sem „Verslingar” fóru með sigur af hólmi. „Metingskvöldið” var liður i Jónsmessuvöku MH og var keppt I hinum óliklegustu greinum. Má þar m.a. nefna samlokuát, þar sem snæddar voru fjórar I einu, eggjadrykkju með 15 eggjum i skammt, bananakappát, vindla- reykingar, öldrykkju, baunaát með tannstöngli og margt fleira. Þá var og keppt i limbódansi og i þeirri grein var slegið nýtt Is- landsmet, 37 cm. og var það Kris- tin Jónsdóttir sem þar sló gamla metið sem hún átti sjálf en það setti hún i Hollywood fyrr i vetur. Halldór Páll Gislason var við- staddur keppnina og tók hann þá meðfylgjandi myndir fyrir Mann- llfssiðuna. Baunaátið með tannstöngli krafðist mikiiiar þoiin- mæði og einbeitingar. Stundum gerði maginn uppreisn og þá var gott að hafa fötu við höndina. Frá öldrykkjukeppninni. (Visismyndir HPG) Þessi „Verslingur” sýndi mikil tilþrif i skóla- stökkinu. Sérhönnuö for- síöa fyrir „Líf” Forsiða tiskublaðsins „Lif”, sem nýlega kom út, hefur vakið mikla athygli svo og vandaö útlit og innihald blaðsins I heild. Rit- stjórinn, Katrin Pálsdóttir, á eins árs starfsafmæli um þessar mundir og I þvi tilefni ræddum við stuttlega við hana og talið barst að sjálfsögðu að hinni sérkenni- legu forsiðu. Forsiða nýjasta tölublaðsins er eftir listakonuna Holly Holling- ton. — „Svona forsiða hefur mér vitandi aldrei áður birst i islensku blaði og hún var unnin sérstak- lega fyrir „Lif” af ensku listakon- unni Holly Hollington. Forsiðan tengist grein eftir önnu Björns- dóttur um þessa listakonu, en Anna kynntist henni úti i Los- Angeles. Holly hafði séð „LÍF” hjá önnu og fannst það óvenju mikil framtakssemi hjá þetta fámennri þjóð að gefa út svona blað”, — sagði Katrin. — „Þessi stelpa hefur unnið fyrir tiskublöð bæði I Evrópu og Ameriku og hefur gert plötuum- slög og annað i svipuðum dúr. Og eins og kemur fram i greininni er hún orðin vel þekkt og auðug fyrir myndir sinar”, — sagði Katrin ennfremur. I grein önnu Björnsdóttur um listakonuna kemur fram að hún notar svokallaðan „loftpensil” i starfi sinu en „loftpensill” er örmjó nál framan á sprautu sem tengistloftpressu gegnum siöngu. Asprautunni er bolli, sem litaefni er hellt i og sogast það siðan gegnum sprautuna en nálin ræður loftstraumnum. Við spurðum Katrínu hvernig hún hefði kunnað við sig i rit- stjórastólnum þetta ár sem hún hefur ritstýrt „Lif”: — „Þetta hefur veriö lærdóms- rikt og skemmtilegt ár og ég er að sjálfsögðu ánægð með að þær breytingar sem ég hef gert á blaöinu, bæði hvað varöar efnis- val og útlit, hafa fallið I góðan jarðveg hjá lesendum. Blaðið hefur fengið allt annan svip og lesendur hafa tekið þvi mjög vel”, — sagði Katrin. Þess má að lokum geta, að nýja „Lifið” er að vanda fullt af liflegu efni og má þar m.a. nefna smá- sögu eftir Ragnar Arnalds fjár- málaráðherra, sem hann reyndar samdi á menntaskólaárunum. Katrin Pálsdóttir ritstjóri tisku- blaðsins „Lif” Visismynd GVA)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.