Vísir - 16.03.1981, Side 6
Mánudagur 16. mars 1981.
Baldur Þorsteinsson i rúmi sinu á Borgarspitalanum, ræöir viö Philippe Patay, sem var einn þeirra er Baidur og Simon voru aö sækja inn í
Sigöldu. Visismynd: Friöþjófur.
„VM VISS IIM AS
MISSA ANHAN FÚTINN"
- segir Baldur Þorsteinsson, sem lenti í míklum hrakn-
ingum inni viö Landmannaiaugar ásamt félaga sínum
irísm
,,Ég er allur aö skriða saman
núna og heilsan er ekki sem
verst” sagði Baldur Þorsteins-
son, en hann lenti i mikium
hrakningum inni viö Land-
mannaiaugar um heigina ásamt
félaga sinum, Simoni Gissurar-
syni. Þeir voru á snjósleöa og
óku honum fram af snjóhengju.
t faliinu siösuðust þeir og máttu
dúsa kaldir og hraktir þar til
björgunarsveitir fundu þá
eiiefu timum siöar.
Baldur sagði, að þeir Simon
hefðu ætlað inn að Sigöldu til að
ná i nokkra menn, meðal annars
Philippe Patay, kunningja
þeirra, sem var þar á skiðum
með nokkrum Frökkum. Tölu-
verður hópur manna fór saman
á nokkrum snjósleðum, en þeir
Baldur og Simon lentu i
erfiðleikum við Tungnaá og
blotnuðu i fæturna. Þeir sneru
þá við til Landmannalauga til
að fara i hlý og þurr föt. Á
leiðinni bilaði sleðinn, myrkur
skall á og þeir hálf villtust.
Eftir nokkra stund sáu þeir
ljós i fjarska og héldu það vera
félaga sina og fóru þvi út af
slóðinni til móts við þá. Það var
þá, sem þeir óku fram af snjó-
hengjunni um klukkan tuttugu á
föstudagskvöldið.
„Ég ökkla- og úlnliðsbrotnaði
i fallinu, og svo brotnaði rifbein
og það stakkst inn i annað lung-
að og sprengdi það. Ég fann
ekkert fyrir ökkla- og úlnlðs-
brotinu, hins vegar átti ég i
erfiðleikum með að ná andan-
um.
Simon rotaðist i fallinu og ég
reyndi að ná i hjálp. Ég komst
upp úr holunni og skreið fimm
eða tiu metra, en þá gafst ég
upp”.
Baldur hreyfði sig alltaf ann-
að veifið um nóttina og telur
hann, að það hafi bjargað hon-
um frá miklu kali. Simon rot-
aðist hins vegar og svaf mest
alla nóttina og kól þvi meira, en
slapp að mestu leyti við áverka.
„Mér leiðilla um nóttina — ég
var kaldur og hræddur. Ég
hugsaði litið fyrst, en þegar liða
tók á nóttina fór ég að spá i
framhaldið. Ég fann ekkert
fyrir vinstra fæti, hann var eins
og klakadröngull. Ég var alveg
klár á að ég myndi missa
eitthvað af tám, jafnvel allan
fótinn. Ég hræddist ekki svo
mjög, að okkur yrði ekki bjarg-
að.
Það var góð tilfinning, þegar
björgunarsveitarmennirnir
fundu okkur — alveg æðisleg til-
finning”.
Baldur sagðist ætla að fara i
vélsleðaferð strax og hann væri
búinn að ná sér. Þetta væri ekki
hættulegt sport ef fyllsta
aðgæsla væri höfð. Þeir hefðu
gert tvenn mistök, að villast og
fara svo út af slóðinni.
„Það bjargaði okkur, hvað við
vorum vel búnir. Við vorum
klæddir vélsleðabúningum utan
yfir ullarnærföt og lopapeysur
og með þrenna ullarsokka.
Þessa sokka varð hins vegar að
skera utan af okkur, þvi að þeir
höfðu blotnaði i ánni og frosið i
einn klump”, sagði Baldur.
— ATA
TF-RAN flutti Baldur og Simon til Reykjavikur. Visismynd Friöþjófur^J
Visismynd Friöþjófur
Revndl að af-
stýra áreksfri:
úk á
ijósa-
staur
Ungur maður slas-
aðist nokkuð á föstu-
dagskvöldið, er hann
reyndi að afstýra
árekstri á Réttarholts-
vegi i Reykjavik.
Slysið varð með þeim hætti, að
þegar pilturinn ók um gatnamót
Réttarholtsvegar og Sogavegar,
kom bill eftir Sogaveginum og
beygði hann i átt fyrir bilinn, sem
kom eftir Réttarholtsvegi, þótt sá
ætti réttinn. Til að reyna að af-
stýra árekstri, sveigði pilturinn
til hliðar, en hafnaði þá á ljósta-
staur. Er bill hans talinn ónýtur
en pilturinn slasaðist nokkuð,
m.a. var talið, að hann hefði nef-
brotnað.______gk-.
Fótbroln-
aði á
skfðum
Skiðamaður, sem var að renna
sér fyrir ofan byggðina i Tálkna-
firði á laugardaginn, hafði ekki
erindi sem erfiði i það sinn, og
endaði skiðaferð hans með þvi að
hann datt illa og fótbrotnaði.
Lögreglan á Patreksfirði sótti
manninn og var hann fluttur á
sjúkrahúsið i þorpinu.
Fjðrir dans-
leikir og:
Mikll
öivun á
Skaganum
,,Það var óvenjulega
mikil ölvun hérna að-
faranótt sunnudagsins”,
sagði lögreglumaður á
Akranesi sem Visir
ræddi við i gær.
Dansleikir voru á fjórum
stöðum i bænum og geysileg ölv-
un. Var fólk á ferðinni fram á
morgun, en samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar komu engin
stórvægileg óhöpp fyrir. gk-.
Þörarinn og valur
ðukð
forskotið hjá tbk
Fimmtudaginn 12. mars var
spiluð 15,—21 umferð i Baró-
meterkeppninni. Að þeim loknum
er staða efstu para þessi:
1. Valur Sigurðsson — Þórarinn
Sigþórsson 445
2. Sigtryggur Sigurðsson — Óli
Már Guðmundsson 310
3. Sigfús Orn Árnason — Jón P.
Sigurjónsson 172
4. Dagbjartur Pálsson — Vil-
hjálmur Pálsson 167
5. Gestur Jónsson ■— Sverrir
Kristinsson 145
6. Rafn Kristjánsson — Þorsteinn
Kristjánsson 142
Helgina 20,—22. mars verður
spiluö Landsfjórðungakeppni hjá
TBK. Spilarar mæta frá Bridge-
féiagi Akureyrar Bridgefélagi
Héraðsbúa, Austurlandi og
Bridgefélagi Hornafjarðar.
Spilað veröur á Hótel Esju.