Vísir - 16.03.1981, Qupperneq 13
Mánudagur 16. mars 1981.
vísm
AlvKtun páöstefnu um terðaöiónustu á íslanðí:
Burt með skatt á
gjaldeyri og flugvall-
arskattur lækkaður
„Við ferðaþjónustu og tengdar greinar starfa nú um 4.600 manns, og
nema tekjur af erlendum ferðamönnum 5-6% af gjaldeyrisöflun þjóðar-
innar, segir meðal annars i ályktun sem samþykkt var á ráðstefnu um
ferðaþjónustu á tslandi.
A myndinni sést hluti ráöstefnugesta hlýöa á erindi [ramsögumanna.
(Visismynd. EÞS)
Ráðstefnan var haldin á vegum
Verslunarráðs Islands og Félags
islenskra ferðaskrifstofa og fór
hún fram á Hótel Loftleiðum.
Flutti Steingrimur Hermannsson
samgönguráðherra ávarp við
setningu ráðstefnunnar á
fimmtudaginn.
Steinn Lárusson fjallaði um
skilyrði til ferðaþjónustu hér-
lendis og Bjarni Snæbjörn Jóns-
son hagfræðingur ræddi þátt
ferðaþjónustu á þjóðarbúskapinn.
Ennfremur fluttu Heimir
Hannesson, formaður ferðamála- ’
ráðs, Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða og Aslaug Alfreðsdóttir
formaður SVG framsöguerindi
um framtið ferðamannaþjónustu
og möguleika Islands sem ferða-
mannalands.
I ályktun ráðstefnunnar segir
ennfremur að islensk ferða-
þjónusta starfi i alþjóðlegri sam-
keppni og fjöldi ferðamanna muni
fara vaxandi. Ferðaþjónustá sé
óumdeilanlega mikilvæg atvinnu-
grein og skipti miklu máli. að hún
búi við sambærileg starfsskilyrði
og best þekkist i nágrannalöndum
okkar.
Vakin er athygli á að 10%
skattur á ferðagjaldeyri hækki
ferðakostnað landsmanna og
bjóði ólöglegum gjaldeyrisvið-
skiptum heim. Lagt er til að
skatturinn verði afnuminn.
Einnig er vakin athygli á. að
flugvallargjald er hærra hér á
landi en i öðrum löndum Evrópu
og það veki sérstaklega reiði er-
lendra ferðamanna. Á sinum
tima hafði gjaldið verið lagt á til
að styrkja uppbyggingu flug-
valla, en renni nú að hluta til
almennra þarfa rikissjóðs. Lagt
er til, að gjaldið verði lækkað
verulega og fellt inn i fargjöld.
Þá telur ráðstefnan að jafnræði
eigi að rikja milli allra innlendra
aðilja, er varðar skattlagningu á
veitingasöiu og aðra þjónustu við
ferðamenn.
Landkynning
Ráðstefnan taldi að verja þyrfti
auknum fjármunum til landkynn-
ingar, meðal annars til að hægt sé
að auka hlutdeild islenskra ferða-
skrifstofa i erlendum auglýsinga-
bæklingum. Vakin er athygli á.að
framlöghins opinbera til þessara
mala hafa sifellt farið lækkandi á
undanförnum árum.
Minnt er á hin óhóflegu gjöld
sem hið opinbera leggur á bif-
reiðar og eldsneyti og hækka
kostnað við ferðalög innanlands,
en renni aðeins að hluta til varan-
legrar vegagerðar.
Þá var samþykkt að skora á
yfirvöld menntamála að gera
Hótel- og veitingaskólanum nú
þegar kleift að sinna lögskipuðu
hlutverki sinu að mennta starfs-
fólk á sviði ferðaþjónustu.
„„BHf 6reúie«
— bá er tækfeóð núna að eignast
Ef'þú e« "
ot
elös\^'ot
Bræðraborgarstig 1 -Sími 20080- (Gengiö inn frá Vesturgötu)