Vísir - 16.03.1981, Page 19
Mánudagur 16. mars 1981.
23
vísm
„Nú veröur Johnny Carson aö ávarpa mig dr. Reynolds”, — segir Burt
og glottir.
,,Nú veröa
þeir aö
kalla mig
Doktor
Reynolds”
— Burt Reynolds gerdur
ad heidursdoktor
vid Floridaháskóla
Skömmu eftir 1950 lék miöherji
einn i fótboltaliöi Floridaháskóla
sem gekk undir nafninu „Johnson
og Johnson" vegna þess aö hann
var alltaf svo vafinn sárabindum
aö hann sýndist tvöfaldur á leik-
vellinum. Þessi hrakfallabálkur
lék aöeins eitt leiktimabil meö
liöinu, þvi aö i upphafi annars
leiktimabilsins meiddist hann á
hné og skömmu siöar sagöi hann
sig úr skóla
Siöan haföi bæöi honum og
liöinu gengiö miklu betur. A
siöastkeppnistimabili tapaöi liöiö
aöeins einum leik og varö i
fimmta sæti i bandarisku fót-
boltakeppninni. Uppgjafa miö-
herjinn, sem nú er þekktur undir
nafninu Burt Reynolds, var hins
vegar heiðraöur af skólanum nú
nýveriö og geröur aö heiðursdokt-
or við Floridaháskóla.
Reynolds, sem er þekktur kvik-
myndaleikari og margmilljóneri,
hefuralltaf haft sterkar taugar til
gamla skólans sins og látið ómælt
fé af hendi rakna til uppbygging-
ar leiklistardeildar hans og veriö
þar tiöur gestur, bæöi sem fyrir-
lesari og ráöunautur.
Reynolds var greinilega hrærö-
ur viö hina hátiölegu athöfn, er
hann var geröur aö heiöursdoktor
enda sparaöi forseti leiklistar-
deildarinnar ekki lofsoröin i
hátiöarræöunni: — „Þessi maöur
hefur ekki aðeins gefiö skólanum
peninga heldur einnig mikiö af
dýrmætum tima sinum. Við
elskum hann...”
Dr. Burt Reynolds þakkaöi
fyrir sig og lét svo um mælt, aö
það skemmtilegasta viö þetta
væri ef til vill þaö, aö nú þyrfti
Johnny Carson aö ávarpa sig
„Doktor Reynolds” og lokaorö
hans voru þessi: — „Mér hefur
alltaf þótt vænt um þennan há-
skóla og ég mun reyna að haga
mér þannig.að hann geti veriö
stoltur af mér.”
Forseti leiklistardeildar háskólans, Richard G. Fallon, faömar
hciöursdoktorinn aö scr.
Ahöld eru um hvort háskólinn sé stoltur af heiöursdoktornum sinum á
þessari mvnd og vist er, aö ekki var hún tekin er hann lék stööu miö-
herja i fótboltaliðinu.
Fawcett haf naö
Farrah Fawcett hefur
ekki gengiö sérlega vel á
listabrautinni frá þvi
hún sagði upp hlut-
verki sinu i sjónvarps-
þáttunum ,,Charlie's
Angles" fyrir tveimur
arum. Þótt hún hafi
nokkuð verið til um-
ræðu i fjölmiðlum er
það ekki vegna leik-
listarafreka heldur
einkamála og slikt dugir
skammt þegar framinn
er annars vegar. Hún
mun nu hafa gert ör-
væntingarf ullar til-
raunir til að fá aftur
hlutverk sitt i þáttunum
en verið hafnað þar sem
f ramleiðendurnir segj-
ast vera fullkomnlega
ánægðir með þá sem nu
er i hlutverkinu, Tanyu
Roberts...
Fréttamat
Nýlega var frá þvi
skýrt i dönsku press-
unni, að ferðakóngurinn
og kvennamaðurinn
Simon Spies hefði fengið
sér nýjar tennur. Fylgdi
það sögunni að Spies
væri svo ánægður með
nýju tennurnar að ekki
einasta hefði hann greitt
tannlækninum riflega
fyrir heldur hefði hann
einnig sent bæði blóm og
vinflösku. — Og þá vit-
um við það...