Vísir - 26.03.1981, Page 18
18
Fimmtudagur 26. mars 1981
VÍSIR
manrillf
#Stelpu*
f S°pi
f Stephania, prinsessa al
Monaco, yngri dóttir Grace
furstafrúar, er að gera móður
sina gráhærða vegna
i þrjósku sinnar. Grace vill
V að stelpan klæði sig sanv
1 kvæmt nýjustu Parisar
jra tisku en hin óstýriláta
^^Stefania vill ekki hætta
Ut aó vera stelpugopinn,
sem hún hefur verið
fram til þessa...
Sara gnæfir yfir 12 ára gamlan
bróður sinn Lee.
Umsjón:
Sveinn
Guðjónsson.
Þótt aðeins sé ár á milli þeirra verður Lee að nota stól við verk sem
Sara á auövelt með að ieysa.
Hún
stækkar
09
stækkar
„Archie” varð
sigurvegari i
.svipljóta-flokknum”
Þrettán ára gömul er Sarah
Hackett 183 cm á hæð og i raun-
inni væri það ekki i frásögur fær-
andi, nema vegna þeirrar staö-
reyndar, að i fyrra var hún aöeins
147 cm. En það var þá, þegar hún
var 12 ára, sem hún fór að vaxa
hömlulaust, á óútskýranlegan
hátt, — enda eiga læknar engin
svör við þessu fyrirbirgði.
„Þetta var hræðilegt”, segir
móðir Söru, Lillian Hackett, i við-
tali nýverið, sem tekið var á
heimili fjölskyldunnar i Sheffield
á Englandi. „Sarah byrjaði
skyndilega að vaxa ótrúlega hratt
og á nokkrum mánuðum breyttist
hún úr litilli stúlku i fullvaxna
konu, a.m.k. likamlega”, segir
Lillian.
I mai á siðasta ári settu læknar
16 stálpinna i bein Söru til að
draga úr vextinum og siðan þá
hefur hún vaxið um tvær tommur,
— sem þýðir að hún er enn i örum
vexti þrátt fyrir fyrirbyggjandi
aðgerðir.
„Enginn getur sagt fyrir um
hversu mikið hún mun vaxa áður
en likur”, segir heimilislæknirinn
Dr. John Aston en það sem er
honum og kollegum hans hulin
ráðgáta eru orsakir þessa fyrir-
brigðis. I fyrstu héldu þeir að
vöxturinn stafaði af bólgum i
skjaldkirtlinum en rannsóknir
hafa sýntað svo er ekki og þau lif-
færi sem helst koma til greina
sem orsakavaldar starfa full-
komlega eðlilega. „Þess vegna er
hinn óeðlilegi vöxtur okkur hulin
ráðgáta”, segir Dr. Ashton.
En þrátt fyrir þetta hefur Sara
reynst sterk á svellinu og haldið
andlegu jafnvægi og hugrekki.
„Ég vona bara að þetta hætti
bráðlega áður en ég verð tröll-
skessa”, segir hún. „Ég hef alltaf
verið mikið fyrir iþróttir en varð
að hætta þegar stálpinnarnir voru
settir i mig, — en það er enn sem
komið er það leiðinlegasta við
þetta”.
Haukur og Kristinn Svavarsson saxófónleikari ásamt hljómsveitinni
Mezzoforte i sjónvarpsþætti sem sýndur var fyrr i vetur.
Haukur og Ellen
með Mezzoforte
Hljómsveitin Mezzoforte ásamt
Kristni Svavarssyni saxófónleik-
ara, heldur tónleika að Hótel
Borg i kvöld. Söngvarar með
hljómsveitinni verða Haukur
Morthens og Ellen Kristjánsdótt-
ir en þau hafa bæði gert garðinn
frægan áður með strákunum i
Mezzoforte. A hljómleikunum i
kvöld mun Ellen m.a. kynna efni
af hljómplötu sinni, sem væntan-
leg er innan tiðar.