Morgunblaðið - 22.01.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞETTA eru afskaplega þrautseigir hundar og nánast óþreytandi,“
segir Þorvaldur Þórðarson dýralæknir á Dýraspítalanum í Víðidal um
collie- hundategundina. Lappi frá bænum Syðri-Á er einmitt af collie-
tegund og lifði af átta daga dvöl undir snjóflóðinu sem féll á bæinn
Bakka í síðustu viku.
Þorvaldur segir hunda af þessari tegund þokkalega kuldaþolna þótt
til séu kuldaþolnari hundar s.s. grænlenskir sleðahundar og huskie-
hundar. En collie-hundarnir hafa samt sýnt mikla hreysti í ýmsum
raunum og sögum fer af collie-hundum sem hafa synt yfir ískaldar ár
og bjargað sér við erfiðar aðstæður. „En þetta er mjög sérstakt og
enginn vafi á því að þetta er mikið afrek,“ segir Þorvaldur.
Hann segir undirlagið undir feldi hunda gegna veigamesta hlut-
verkinu í kuldavörnum þeirra. „Ysta lag feldsins hrindir frá regni og
þessháttar en undirlagið heldur hita á hundunum og einangrar þá
gegn kulda.“
Ekki eru samt allir hundar mjög kuldaþolnir og segir Þorvaldur að
snögghærðir hundar séu kulvísari s.s. boxerar, bolabítar, pointerar
og fleiri. Einnig eru hundar með gisinn feld viðkvæmir fyrir kulda t.d.
setterar. Hins vegar eru golden og labrador retriever hundar með
góða kuldaeinangrun.
LÆKKUN lágmarkseinkunnar í almennri lög-
fræði við lagadeild HÍ leiddi til óvenju lágs fall-
hlutfalls á haustmisseri, eða 60%, og komast
því fleiri laganemar áfram en nokkru sinni
fyrr. Einkunnir í almennri lögfræði á haust-
misseri voru birtar á mánudag og náðu 75 nem-
ar lágmarkseinkunn en 111 féllu.
Lágmarkseinkunn í almennri lögfræði var
lækkuð úr 7.00 í 6.00 í haust. Að sögn Eiríks
Tómassonar forseta lagadeildar hefðu um 20
nemar náð prófinu ef lágmarkseinkunn hefði
áfram verið 7.00. Ljóst er því að stærri árgang-
ur en áður hefur þekkst kemst áfram, en Eirík-
ur segir að lagadeildin standi þó ekki frammi
fyrir húsnæðisvanda í því sambandi.
„Við getum tekið á móti nokkuð stórum ár-
gangi og það bjargast a.m.k. næsta vetur. En
ef svona heldur áfram verðum við að skoða þau
mál í samvinnu við háskólayfirvöld. Í lagadeild-
inni erum við enn með hærri lágmarkseinkunn
en aðrar deildir háskólans og aðrar lagadeidir
á landinu, þannig að við gerum enn strangari
kröfur en aðrir,“ sagði Eiríkur.
Fleiri komust áfram í
lögfræði í Háskóla Íslands
Fallhlutfall fór
niður í 60%
KOMIÐ verður til móts við þá einstaklinga
sem þurftu að greiða allan lækniskostnað fyrir
þjónustu sérfræðinga meðan á deilu þeirra
stóð við heilbrigðisráðuneytið fyrstu tvær vik-
ur ársins. Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra kynnti tillögur sínar þess efnis á rík-
isstjórnarfundi á þriðjudag.
Að sögn Sæunnar Stefánsdóttur, aðstoðar-
manns ráðherra, var vel tekið í tillögurnar og
allir hafi verið sammála um, að koma ætti með
einhverjum hætti til móts við þá sem þurftu að
leggja út fyrir þessari þjónustu tímabilið 1.
janúar til 13. janúar.
Nánari útfærsla á endurgreiðslum frá
Tryggingastofnun verði kynnt fyrir næstu
helgi.
Lækniskostnaður
endurgreiddur
SÁ fáheyrði atburður átti sér stað
í gærmorgun að hundur fannst á
lífi eftir að hafa legið grafinn í átta
sólarhringa í snjóflóði sem féll á
bæinn Bakka í Ólafsfirði, en þar
fórst húsráðandinn, Kári Ást-
valdsson. Að sögn Sigurbjörns
Þorgeirssonar, varðstjóra í lög-
reglunni í Ólafsfirði, voru það
björgunarsveitarmenn sem fundu
hundinn, sem hafði verið í vist á
bænum. Heimilishundurinn á
Bakka fannst hins vegar dauður í
snjóðflóðinu. Fjöldi björgunar-
sveitarmanna unnu við að hreinsa
snjó og brak úr íbúðarhúsinu á
Bakka í gær, auk þess sem vinnu-
vélar voru notaðar til verksins.
„Ég get nú ekki lýst því
hvað ég varð hissa“
Það var skömmu fyrir hádegi í
gær að Sveinn Ástvaldsson, bróð-
ir hins látna bónda, bankaði upp á
hjá Annettu Norbertsdóttur, unn-
ustu Kára heitins, sem býr á bæn-
um Kvíabekk ásamt tveimur
börnum sínum og tjáði henni að
hann væri kominn með gest í
heimsókn. Það reyndist vera
hundurinn Lappi, fjárhundur af
collie-kyni sem bóndinn á Bakka
hafði í vist hjá sér.
„Ég get nú ekki lýst því hvað ég
varð hissa,“ sagði Annetta í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. „Ég
átti alls ekki von á því að hann
fyndist á lífi enda var ég ekki
heldur með hugann við það, eftir
allt sem hefur gengið á síðustu
daga. En hann var kaldur og
slappur, greyið, og sársvangur.
Ég gaf honum svolítið að éta og
hann var afskaplega kátur að sjá
mig, ég get ekki neitað því.“
Kári heitinn átti sjálfur fjár-
hund, Skugga, sem fórst í flóðinu,
en hann fannst skammt frá þeim
stað sem Lappi fannst á. Skuggi
var faðir Lappa en móðirin er á
Kvíabekk.
Fagnaðarfundir
Lappi er tveggja ára fjárhund-
ur en eigendur hans eru hjónin
Jón Árnason og Ingibjörg Guð-
mundsdóttir frá Syðri-Á í Ólafs-
firði. Það urðu því fagnaðarfundir
þegar þau Jón og Ingibjörg komu
að Kvíabekk í hádeginu í gær til
að sækja Lappa sinn. Lappi var
varkár þegar hann sá Jón og Ingi-
björgu, þefaði af höndum þeirra,
en tók síðan gleði sína og gat ekki
hætt að leyna henni með alls kyns
látbragði.
Jón sagði að Lappi væri allur að
braggast. „Hann er enn svolítið
ruglaður og ekki alveg búinn að
átta sig, hann er að minnsta kosti
ekki alveg eins frár á fæti eins og
hann á að sér að vera. En það
kemur vonandi bráðlega. Hann
virðist vera í lagi. Við hjónin erum
auðvitað kát að fá hann aftur en
hann er voðalega elskulegur
hundur,“ segir Jón bóndi Árna-
son.
Það þykir einsdæmi að hundur
lifi svona lengi grafinn í snjó, en
fer þó yfirleitt eftir aðstæðum
sem skapast hverju sinni. Lappi
virðist hafa verið sérlega heppinn
en hann hafði rými til að hreyfa
sig sem áreiðanlega hefur orðið
honum til lífs.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Jón Árnason, bóndi og orðasmiður frá Syðri-Á, hitti Lappa eftir að
hundurinn fannst átta dögum eftir að snjóflóðið féll á Bakka.
Collie-hundar eins og Lappi frá Syðri-Á þykja hraustir og þrekmiklir.
Lappi fannst heill á húfi í
eftir átta daga í snjóflóðinu
Ólafsfirði. Morgunblaðið.
„Afskaplega þraut-
seigir hundar“
LANDSVIRKJUN hefur opnað tilboð í end-
urgerð Múlavegar um Langhús, innst í Fljóts-
dal, alls um 2,3 kílómetra. Er þetta einn þeirra
vega sem verða bættir vegna virkjunarfram-
kvæmda við Kárahnjúka. Munar 38 milljónum
króna á lægsta og hæsta tilboði.
Alls sýndu sjö verktakafyrirtæki vegagerð-
inni áhuga og voru heimamenn með áberandi
lægstu tilboðin. Ýting ehf. á Egilsstöðum bauð
15,9 milljónir króna, sem er 58% af áætlun
Landsvirkjunar upp á rúmar 27 milljónir.
Næstur kom Jón Hlíðdal frá Egilsstöðum með
16,3 milljónir og ÞS-verktakar úr sama sveit-
arfélagi buðu 16,7 milljónir. Eitt tilboð var yfir
áætluninni, og það næstum tvöfalt hærra, eða
upp á nærri 54 milljónir kr. sameiginlega frá
Afreki og ET ehf. í Reykjavík.
Aðrir bjóðendur voru Ingileifur Jónsson,
Kluftir og Íslenskir aðalverktakar
Austfirskir verk-
takar buðu lægst
STEFNT er að því að gatnagerð
hefjist á svæði Akralands ehf. á Arn-
arneshæð síðsumars og byggingar-
framkvæmdir hefjist þar síðar á
árinu, að sögn Ágústs Kr. Björns-
sonar, sem hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Akralands.
Akraland ehf. er í eigu Þyrpingar
hf., dótturfélags Fasteignafélagsins
Stoða hf. og Keflavíkurverktaka hf.
Félagið hefur keypt um 22 hektara
byggingarland á Arnarneshæð í
Garðabæ, sem áður var í eigu Jóns
Ólafssonar, en markmið félagsins er
að þróa skipulag og nýtingu þessa
byggingarlands í nánu samstarfi við
sveitarfélagið. Þá munu Akraland og
tengd félög standa að framkvæmd-
um innan byggingarlandsins og reisa
verslunar- og þjónustuhúsnæði á
svæðinu.
Ágúst segir að deiliskipulagsferill-
inn varðandi landið sunnan við Arn-
arnesveginn sé í gangi en ferillinn
norðan við veginn sé eftir. Ljúka
þurfi þessari vinnu í samvinnu við
Garðabæ en ljóst sé að skipulagsmál
taki sinn tíma. Síðan komi að gatna-
gerðinni og hana þurfi líka að fram-
kvæma í samvinnu við sveitarfélagið.
„Miðað við stöðu skipulagsferilsins
er ljóst að byggingarframkvæmdir
hefjast ekki fyrr en líða tekur á ár-
ið,“ segir hann. Ágúst er bygging-
artæknifræðingur og starfaði áður
m.a. sem verkefnisstjóri hjá Ríkis-
kaupum og sveitarstjóri í níu ár,
lengst af hjá Súðavíkurhreppi.
Arnarneshæð senn byggingarhæf
Stefnt að gatna-
gerð síðar á árinu
♦♦♦
♦♦♦