Morgunblaðið - 22.01.2004, Blaðsíða 60
SÁ siður Sigur Rósar að hneigja sig
eftir uppklapp í stað þess að leika
aukalög virðist vera að smita út frá
sér. David Segal, blaðamaður við
Washington Post, skrifaði ítarlega
grein um þetta mál í byrjun ársins,
þar sem hann rekur sögu þessa fyr-
irbæris, þ.e. aukalaga á tónleikum.
Þar segir hann réttilega að það sem
var einu sinni eitthvað sérstakt er
núna orðið að skyldu hjá hljómsveit-
unum. Að klappa hljómsveitir „upp“
eftir sérstaklega góða tónleika heyri
nú sögunni til, uppklappið sé hins
vegar orðið hluti af efnisskrá sveit-
anna og eitthvað sem allir taka sem
sjálfsögðum hlut. Og iðulega þurfi
aðdáendur að bíða eftir vinsælustu
lögunum þangað til sveitin snýr aft-
ur inn á svið.
Segal tekur síðan dæmi um
hljómsveit sem sniðgangi þessa
hefð. Nefnilega íslensku sveitina
Sigur Rós. Hún láti sér það nægja
að hneigja sig í enda tónleika, líkt og
í leikhúsum og líkt og Bítlarnir
gerðu hér í gamla daga.
„Tökum stundum aukalög“
„Jú, það er rétt,“ segir Orri Páll
Dýrason, trymbill Sigur Rósar.
„Þetta er vissulega þreytt fyrirbæri,
þessi uppklöpp. Reyndar tökum við
stundum aukalög, en það gerum við
ef stemningin er sérstaklega góð og
ef við erum í stuði sjálfir.“
Orri segir að tónleikarnir sjálfir
ráði því uppklappinu, það sé ekki
skrifað sérstaklega inn í tónleikana.
„En stundum finnst okkur tón-
leikarnir einfaldlega vera búnir.
Okkur finnst við þá hafa sagt það
sem segja þarf í það skiptið. Og þá
bara hneigjum við okkur, þökkum
fyrir og látum þar við sitja.“
Annað er það að frétta af Sigur
Rós að samkvæmt heimasíðu sveit-
arinnar (www.sigurros.com) er búið
að leggja niður grunna fyrir sex ný
lög. Næsta plata sveitarinnar, sem
yrði fjórða „eiginlega“ platan, verð-
ur væntanlega tilbúin í haust. Þá
hefur sveitin gert samning við
E.M.I. um útgáfu á efni sveitarinnar
í Evrópu.
Ekki spilað eftir uppklapp
Ljósmynd/Sara M. Schoonover
„Sigur Rós þakkar fyrir sig“. Frá
tónleikum Sigur Rósar í Wash-
ington D.C. 19. mars 2003.
www.sigurros.com
60 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
EPÓ
Kvikmyndir.com
Roger Ebert
AE. Dv
Skonrokk
FM909
Sýnd kl. 5.30 B.i. 16.
Tilnefnd til 5 Golden Globe verðlauna
meðal annars besta
mynd ársins
Kvikmyndir.is
GH. Kvikmyndir.com
HJ.MBL
HJ. MBL
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
The Rolling Stone
SV. Mbl
Sýnd kl. 6 og 9.
„Fantavel leikin
eðalmynd“
ÞÞ Fréttablaðið
ÓHT. Rás2
Magnþrungin erótísk
spennumynd með
Meg Ryan eins og þið
hafið aldrei
séð hana áður.
Tónlist myndarinnar er eftir
Hilmar Örn Hilmarsson
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
VG DV
Sjáið eina athyglisverðustu
og mest sláandi mynd ársins.
MEG RYAN
MARK RUFFALO
JENNIFER JASON LEIGH
Nýjasta mynd leikstjóra „THE PIANO“
a film by JANE CAMPION
Sýnd kl. 6 og 9.
Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur frábæra
dóma og viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei verið betri!
Besti aðalleikari
Tom Cruise
Besti leikari í
aukahlutverki
Ken Watanabe
Besta frumsamda
tónlistin
Hans Zimmer
3
Tilnefningar til Golden Globe verðlauna Hreyfir við áhorfandanum og skilur eitthvað eftir
sig. Samleikur systkinanna er með ólíkindum. Hér
leikur allt í höndunum á Hilmari,
börn, fullorðnir, tónlist og myndmál”
- ÞÞ Fréttablaðið
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
Sjáið eina athyglisverðustu
og mest sláandi mynd ársins.
Magnþrungin erótísk
spennumynd með
Meg Ryan eins og þið
hafið aldrei
séð hana áður.
Sannkölluð stórmynd
sem hlotið hefur
frábæra dóma og
viðtökur um allan
heim.
Tom Cruise hefur
aldrei verið betri!
Besti aðalleikari
Tom Cruise
Besti leikari í
aukahlutverki
Ken Watanabe
Besta frumsamda
tónlistin
Hans Zimmer
3
Tilnefningar til Golden Globe verðlauna
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 4 OG 8.
jakkinn og buxurnar alltaf í stíl,
sem gefur fötunum annað og af-
slappaðra yfirbragð.
Ekki er ljóst enn hvort
ítalskur fataútflutningur
jafni sig eftir samdráttinn á
síðasta ári en þá minnkaði
útflutningur um 10%.
Tískuvikan nú gaf von um
að ítalski tískuiðnaðurinn
gæti endurvakið kraftinn
sem í honum bjó,
segir í New York
Times. Jafnvel
getur verið að
jakkafötin nái
frekari hylli en
föt í íþrótta-
anda hafa ver-
ið það sem
selst best.
„Jakkafötin
eru mjög
sterk hjá
okkur
núna,“ segir
Kal Rutten-
stein, tísku-
stjórnandi
hjá hinni
þekktu stór-
verslun Blo-
omingdales.
„Bindi líka,
hvort sem þið
trúið því eða
ekki.“
HEILDARSKILABOÐIN á nýlið-
inni herratískuviku í Mílanó voru
þau að jakkaföt séu að koma
sterk inn en sýnd var tíska
næsta hausts og vetrar.
Gallabuxurnar voru sem
sagt ekki eins áberandi og
áður enda hefur Ítalía
löngum verið í fararbroddi
hvað klæðskerasaum varð-
ar.
Svo virðist sem ákveð-
in nostalgía ráði
ríkjum og horft sé
til Ítalíu fortíð-
arinnar sem er
óðum að hverfa í
sameinaðri Evr-
ópu. Ekki er
langt þar til
merkingunni
„Made in Italy“
verður útrýmt
og „Made in
Europe“ tekur
alveg við. Við
þessu bregðast
ítalskir hönn-
uðir við með því
að líta til baka.
Dolce & Gabb-
ana notuðu sem
bakgrunn mynd
af Trevi-
gosbrunninum í
Róm í anda Fell-
ini. Ekki eru þó
Lítum á nokkra hönnuði. Hjá
Prada líta ófóðraðir jakkar og
frakkar krumpað út, svona eins
og að eigendurnir hefðu týnt
númerinu hjá fatahreinsuninni.
Viðbrögð við sýningu Tom Ford
hjá Gucci voru sérstaklega góð en
þetta er síðasta sýning hönnuðar-
ins fyrir merkið. Þar gengu um
herramenn í þröngum jakkafötum
með viskí og sígarettu í hönd. Gi-
orgio Armani er samkvæmur
sjálfum sér og hleypur ekki á eft-
ir tískubólum. Hann sýndi þægi-
lega og mjúka jakka og buxur og
líka stutta frakka sem voru
hnepptir upp í háls. Einn gagn-
rýnandinn túlkaði það svo að
Armani væri að sinna hinum nýja
„metrosexual“ manni.
Aðrir hönnuðir sinna frekar
rokkurum og þeim sem finnst
gaman að klæðast á þann hátt.
Var auðvelt að sjá Lenny Kravitz
fyrir sér í hinum margvíslega
klæðnaði sem Roberto Cavalli
sýndi í þetta sinn. Nóg af leðri og
loði með stæl.
Herratískuvika í Mílanó haust/vetur 2004–5
Endurkoma jakkafatanna
ReutersRoberto Cavalli
Dolce & Gabbana
Giorgio Armani
Gucci
Vivienne Westwood
ingarun@mbl.is
Dolce & Gabbana
Gucci
Sigur Rós stendur á bak við nýjan „rokksið“