Morgunblaðið - 22.01.2004, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2004 53
SÍMON Steingrímsson birtir í gær
samanburð á kafla úr Vefaranum
mikla eftir Laxness um lestarferð
Steins Elliða um Frakkland og Ítalíu
og kafla úr bók minni um Laxness
um lestarferð hans um sömu slóðir.
Hann bendir á, að ég nýtti mér lýs-
ingu skáldsins á lestarferð um þess-
ar slóðir. Að sjálfsögðu gerði ég það.
Mér fannst það sjálfsagt til að skapa
rétt andrúmsloft.
Halldór fór sjálfur um þessar slóð-
ir, áður en hann lauk Vefaranum, og
hefur nýtt sér það, sem hann sá. Það
var einmitt þess vegna, sem hann fór
suður til Sikileyjar. Það er fáránlegt
að hneykslast á þessum vinnubrögð-
um mínum.
Auðvitað vísaði ég síðan í bók
minni í þessa frásögn úr Vefaranum
mikla, svo að ekki færi milli mála, að
ég nýtti mér lýsinguna. Ég get gefið
Sverri Hermannssyni, sem líka hef-
ur skrifað í hneykslunartón um bók
mína, sama svar: Þar sem það á við,
nýti ég mér hugblæ úr skáldsögum
Laxness, til dæmis Innansveitar-
kroniku. Sjálfur nýtti Laxness sér á
þann hátt önnur verk, og lærði ég
margt af honum um margt. Hann
skrifaði til dæmis ræðu Rauðsmýr-
armaddömunnar í Sjálfstæðu fólki
upp úr verkum þriggja manna, nýtti
sér mjög vel dagbækur Magnúsar
Hjaltasonar í Heimsljósi og fór um
sumt nærri sögu Torfhildar Hólms
um Jón Vídalín í Íslandsklukkunni,
auk þess sem hann skrifaði þar upp
úr bréfum Árna Magnússonar og
Jóns Hreggviðssonar. Ég var að vísu
ekki að skrifa skáldsögu eins og
Halldór, en ég var að skrifa um
mann, sem hafði ferðast um og lýst
ferðalögum sínum í skáldsögum sín-
um, svo að þær eru heimildir um,
hvað hann sá og skynjaði. Þetta á
ekki að þurfa að stafa ofan í áhuga-
fólk um bókmenntir.
HANNES HÓLMSTEINN
GISSURARSON
Hringbraut 24,
Reykjavík
Lýsingar skáldsins
Frá Hannesi Hólmsteini
Gissurarsyni:
Prófaðu þennan
og þú reynir ekki
annan eftir það.
Tvö handtök
og tappinn úr!
Tappatogarinn
Tækifærisgjöf
Sendum í póstkröfu
WWW.KRISTALLOGPOSTULIN.IS
Bóndadagsgjöfin í ár
WWW.KRISTALLOGPOSTULIN.IS
BRÉF TIL BLAÐSINS
Áskirkja. Hreyfi- og bænastund kl. 12.15 í
neðri safnaðarsal. Opið hús kl. 14–17 í
neðri safnaðarsal fyrir unga sem aldna.
Organisti Áskirkju leiðir söng. Allir vel-
komnir.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14–16 í safnaðarheimilinu Lækjargötu
14.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Org-
elleikur, íhugun. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu eftir stundina.
Háteigskirkja. Taize-messa kl. 20. Land-
spítali háskólasjúkrahús. Arnarholt.
Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Kjartan Örn Sig-
urbjörnsson.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12 á
hádegi. Gunnar Gunnarsson leikur á org-
elið frá kl. 12. Þjónustu annast Bjarni
Karlsson og Sigurbjörn Þorkelsson, með-
hjálpari. Kl. 12.30 er léttur málsverður í
boði í safnaðarheimilinu. Samvera eldri
borgara kl. 14. Sr. Bjarni leiðir stundina.
Guðfinna Ragnarsdóttir annast fundar-
efni, en kaffiveitingar og önnur umsjá er í
höndum Þjónustuhóps kirkjunnar og
kirkjuvarðar.
Neskirkja. Krakkaklúbburinn kl. 14.30.
Starf fyrir 8 og 9 ára börn. Sögur, leikir,
föndur o.fl. Stúlknakór Neskirkju kl. 16.
Kór fyrir 8 og 9 ára stúlkur. Stjórnandi
Steingrímur Þórhallsson, organisti. Uppl.
og skráning í síma 896 8192. NEDÓ ung-
lingaklúbburinn. 8. bekkur kl. 17. 9. bekk-
ur og eldri kl. 19.30. Umsjón Munda og
Hans.
Félagsstarf aldraðra laugardaginn 24. jan-
úar, kl. 14 verður hinn árlegi þorrafagn-
aður haldinn. Verði er mjög í hófi stillt eða
kr. 1.500. Þátttaka tilkynnist í síma
511 1560 milli kl. 10–12 fram á föstudag.
Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Helgistund í íbúðum
aldraðra á Skólabraut kl. 13.30.
Óháði söfnuðurinn. Tólf sporin, andlegt
ferðalag í kvöld kl. 19.
Árbæjarkirkja. Kl. 15.15 STN – starf með
sjö til níu ára börnum í Selásskóla.
Breiðholtskirkja. Tilvist, trú og tilgangur II:
Biblíulestur í samvinnu leikmannaskólans
og Reykjavíkurprófastsdæmis eystra kl.
20–22. Kennari dr. Sigurjón Árni Eyjólfs-
son, héraðsprestur.
Digraneskirkja. Foreldramorgnar kl. 10.
Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Bænastund kl.
12.10. Unglingakór Digraneskirkju kl.
16.30–19. Barnastarf 6–9 ára kl. 17.15 á
neðri hæð kirkjunnar. (Sjá nánar:
www.digraneskirkja.is)
Fella- og Hólakirkja. Fjölskyldustund
(mömmumorgnar) kl. 10–12. Biblíulestur
og helgistund í Gerðubergi kl. 10.30–12 í
umsjá Lilju djákna. Stúlknastarf 8–10 ára
kl. 16.30–17.30. Alfa-námskeið kl. 19.
Sjá nánar: www.kirkjan.is/fella–hola-
kirkja.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10.
Dagskráin er fjölbreytt. Boðið er upp á
áhugaverða fyrirlestra og skemmtilegar og
fræðandi samverustundir. Kirkjukrakkar
fyrir börn á aldrinum 7–9 ára kl. 17.30–
18.30 í Grafarvogskirkju og einnig í Húsa-
skóla á sama tíma. Æskulýðsfélag fyrir
unglinga í 8. bekk í Grafarvogskirkju kl.
20.
Hjallakirkja. Opið hús kl. 12. Kirkjuprakk-
arar, 7–9 ára starf kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Starf með eldra fólki kl.
14.30–16 í safnaðarheimilinu Borgum.
Umsjón Sigríður Baldursdóttir. Bæna- og
kyrrðarstund kl. 17. Fyrirbænaefnum má
koma til kirkjuvarðar eða presta. Fyrstu ár-
in. Í dag kl. 17.30 heldur séra Ingþór Indr-
iðason Ísfeld fræðsluerindi um Postula-
söguna í safnaðarheimilinu Borgum.
Fyrirspurnir og umræður að erindi loknu.
Allir velkomnir.
Seljakirkja. KFUM 9–12 ára kl. 17.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Bænarefnum er hægt að
koma til prestsins fyrir stundina.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 8–9 ára
börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Von-
arhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund (sbr.
mömmumorgunn) í dag kl. 13. Kjörið tæki-
færi fyrir heimavinnandi foreldra til að
koma saman og eiga skemmtilega stund í
notalegu umhverfi. Kaffi og léttar veiting-
ar, spjall, föndur, fyrirlestrar, kynningar og
fleira.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10–
12 ára krakka kl. 16.30–18.
Þorlákskirkja. Bænastund kl. 9.30. For-
eldramorgnar kl. 10.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 10
mömmumorgunn í safnaðarheimilinu.
Kaffi, djús og gott samfélag. Sr. Þorvaldur
Víðisson. Nú fer að styttast í næstu heim-
sókn. Kl. 18 Litlir lærisveinar, aukaæfing
hjá eldri hóp. Kórstjóri Joanna Wlasczyk
og umsjónarmaður Kristín Halldórsdóttir.
Kl. 20 tólf spora vinna heldur áfram í
KFUM&K heimilinu. Umsjónarfólk. Kl. 20
kóræfing Kirkjukórs Landakirkju. Kórstjóri
Guðmundur H. Guðjónsson.
Kletturinn. Kl. 19 Alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
Fríkirkjan Kefas. Alfanámskeiðið hefst í
kvöld kl. 19 með léttum kvöldverði.
Kennsla í 45 mínútur og eftir stutt hlé um-
ræður í hópum. Námskeiðinu lýkur kl. 22.
Námskeiðsgjald kr. 4.500 fyrir 10 vikur.
Skráning og upplýsingar í símum
554 3708 eða 896 3637 (Helga) og
554 1671 eða 865 7901 (Björg). www.ke-
fas.is
AD KFUM, Holtavegi 28. Fundur í kvöld kl.
20. Kristniboð meðal múslíma. Efni og
hugleiðing í höndum Helga Hróbjartsson-
ar, kristniboða. Allir karlmenn velkomnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á vægu
verði í safnaðarheimili eftir stundina.
Glerárkirkja. Opið hús fyrir foreldra og
börn kl. 10–12. Samvera eldri borgara kl.
15. Gestir sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og
Ásta Garðarsdóttir ásamt nemendum úr
Tónlistarskólanum.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 20 ung-
lingaafundur fyrir 8. bekk og upp úr.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Kl. 20 bibl-
íufræðsla og bæn. Snorri Óskarsson
kennir um Salómon konung, musterið og
síðan klofning Ísraelsríkis. Allir velkomnir.
Dagskrá bænaviku:
Fimmtudagur: Kvöldsamkoma í Hjálpræð-
ishernum, Kirkjustræti 2, kl. 20. Ræðu-
maður Högni Valsson, forstöðumaður í Frí-
kirkjunni Veginum. Allir velkomnir.
Safnaðarstarf
Þorrahátíð í
Grensáskirkju
ÁRLEG þorrahátíð starfs
eldri borgara í Grens-
áskirkju verður miðviku-
daginn 28. jan.
Dagskráin hefst kl. 12.10
með helgistund í kirkjunni í
umsjá sóknarprests og org-
anista. Að helgistund lokinni
er gengið yfir í safn-
aðarheimilið þar sem borinn
verður fram þorramatur.
Þorvaldur Halldórsson
söngvari er gestur samver-
unnar og syngur við eigin
undirleik. Gera má ráð fyrir
að dagskrá sé lokið um kl.
14.
Kostnaði er stillt í hóf og öllum er
heimil þátttaka, óháð aldri og bú-
setu. Þess er þó óskað að þátttaka
sé tilkynnt í síma Grensáskirkju
5 800 800 í síðasta lagi mánudags-
morguninn 26. janúar.
Námskeið fyrir kenn-
ara í Grafarvogskirkju
GRAFARVOGSKIRKJA efnir til
sérstaks námskeiðs fyrir grunn-
skólakennara, laugardaginn 24.
janúar nk. kl. 10–14. Umrætt nám-
skeið á að geta nýst grunn-
skólakennurum í kristinfræði, sið-
fræði og trúarbragðafræðum.
Tvö erindi verða flutt fyrir há-
degi þennan dag. Annað erindið
ber yfirskriftina: Tilgangur og
markmið kennslu í kristnum fræð-
um, siðfræði og trúarbragðafræði í
grunnskólum og hlutverk kenn-
arans. Sr. Sigurður Pálsson, sókn-
arprestur og fyrrverandi náms-
stjóri í kristnum fræðum, flytur.
Siðara erindið ber yfirskriftina:
Hlutverk frásögunnar og klípusög-
unnar í kennslu kristinfræðikenn-
arans. Halla Jónsdóttir, hugmynda-
og vísindasagnfræðingur, flytur.
Boðið er upp á fyrirspurnir
eftir hvort erindi.
Eftir matarhlé mun stjórn
Félags kennara í kristnum
fræðum, siðfræði og trúar-
bragðafræðum kynna hag-
nýtar kennsluhugmyndir
sem henta 1.–10. bekk.
Námskeiðið er í boði Graf-
arvogskirkju og er því
grunnskólakennurum að
kostnaðarlausu. Vinsamleg-
ast látið vita um þátttöku á
skrifstofu Grafarvogskirkju,
sem opin er alla virka daga
kl. 9–12. Síminn er 587 9070.
Þorrafagnaður
Neskirkju
HINN árlegi þorrafagnaður Nes-
kirkju verður haldinn nk. laug-
ardag 24. janúar kl. 14.00. Fram
verður borinn hefðbundinn þorra-
matur á hlaðborði, síldarréttir,
heitt saltkjöt og heit rófustappa. Sr.
Hjálmar Jónsson, fyrrverandi al-
þingismaður, flytur gamanmál.
Þorvaldur Halldórsson leikur undir
hringdansi og fjöldasöng. Verði er
mjög stillt í hóf eða 1.500 kr. Kaffi
og öl innifalið.
Þátttaka tilkynnist í síma
511 1560 milli kl. 10–12 fram á
föstudag. Allir velkomnir.
Sr. Frank M. Halldórsson.
Morgunblaðið/Arnaldur
Grensáskirkja.
KIRKJUSTARF
LANDSPÍTALI – háskólasjúkrahús
hyggst breyta skipulagningu og
þjónustu neyðarmóttöku vegna
nauðgana og yfirlæknir móttökunnar
hefur þegar fengið uppsagnarbréf.
Frá sjónarmiði stjórnar spítalans
getur þessi ákvörðun verið hagræð-
ing, en fyrir þá sem þurfa á þjónust-
unni að halda er það ekkert annað en
skerðing á þjónustu. Yfirlæknir með
sérþekkingu er að fara, ráðgjafar eru
ekki lengur á sólarhringsvöktum.
Það sem er verst er að þessi breyting
mun eyðileggja starfsemi núverandi
móttöku sem telst til fyrirmyndar á
viðkomandi sviði. Ef ákvörðunin væri
tekin vegna fækkunar nauðgana,
myndi hún vera skiljanlegri. En stað-
reyndin er ekki þannig. Að sögn
Rúnu Jónsdóttur, talskonu Stíga-
móta, bárust 155 nauðgunartilfelli til
Stígamóta á síðast ári og fjöldi
kvenna sem leitaði þangað jókst um
20 prósent.
Þegar þessi skelfilega frétt kom
fram brugðust flest kvennasamtök
mjög snöggt við. Að sjálfsögðu mót-
mæla þau öll harkalega þessari áætl-
un. Hins vegar heyrist ekki mjög
mikið frá hlið karlmanna. Er það líka
sjálfsagt? Ég held það ekki.
Er móttaka fórnarlamba nauðgana
kvennamál vegna þess að flest þeirra
eru konur? Slíkt viðhorf er algjör
ruglingur eða einfaldur misskilning-
ur. Hverjar eru þær stelpur sem sær-
ast bæði líkamlega og andlega vegna
kynferðislegs ofbeldis? Hverjar eru
þær sem verða að berjast við trauma
nauðgunar alla ævi sína sem eftir er?
Hverjar eru þær sem þurfa að fá
bestu meðferð sérfræðinga eftir
þann atburð?
Þær eru án undantekningar dætur
einhverra feðra, vinkonur einhverra
stráka og ómetanlegur fjölskyldu-
meðlimur einhverra fjölskyldna.
Hvaða karlmaður getur fullyrt að
dóttir hans eða fjölskyldumeðlimur
muni aldrei lenda í slíkum málum?
Við verðum að sjálfsögðu að vinna að
því að nauðgun eigi sér alls ekki stað,
en því miður mun það ekki rætast
strax á morgun. Eigum við ekki að
tryggja þá þjónustu sem er best og
veita hana fórnalömbum nauðgana
þangað til?
Málið má alls ekki snúast einungis
um fjármál spítalans. Málið varðar
hvers virði manneskjan er í þjóð-
félaginu. Málið má alls ekki snúast
einungis um konur, heldur er það mál
sem varðar alla sem hugsa um börn
sín og fjölskyldu. Við karlmenn eig-
um að sýna skýrt hvert viðhorf okkar
er í málinu og að standa saman til
þess að halda okkur á réttri braut.
TOSHIKI TOMA,
Holtsgötu 24,
101 Reykjavík
Ekki bara kvennamál!
Frá Toshiki Toma, presti
innflytjenda:
NÚ þegar kjarasamningar eru lausir
og verkalýðsforystan keppist við að
segja verkalýðnum frá því hve góða
samninga þeir ætli að gera fyrir hönd
umbjóðenda sinna getur maður ekki
annað en brosað út í annað.
Af hverju hafa þessir verkalýðs-
leiðtogar einhverjar áhyggjur af því
hvað lægstu laun þeirra umbjóðenda
eru? Verkalýðsforkólfar lepja ekki
beint dauðann úr skel með hálfa millj-
ón á mánuði í laun eða meira. Þeir
þykjast ætla að bæta eftirlaunin því
að þá fá þeir væntanlega líka betri eft-
irlaun. Þeir vilja hækka laun um pró-
sentur því að þá fá þeir meiri launa-
hækkun en flestir umbjóðendur
þeirra. Dæmi: 3% launahækkun á
150.000 krónur gera heilar 4.500
krónur sem þeir hækka um en
500.000 kallinn sem formaður verka-
lýðsfélagsins er með hækkar um
15.000.
Nú þegar kjarasamningar eru laus-
ir er kjörið fyrir verkalýðsforystuna í
landinu að öðlast traust verkalýðsins
með því að binda laun starfsmanna
verkalýðsfélagana, þ. á m. formanns-
ins, við lægstu laun sem greidd eru í
félaginu miðað við 100% vinnu. Þann-
ig gæti formaðurinn verið með 2x
lægstu laun sem greidd eru til fé-
lagsmanns í verkalýðsfélaginu. Ef
lægstu laun hækka þá hækkar for-
maðurinn líka. Ef þau hækka upp fyr-
ir einhver önnur laun þá breytast for-
sendur formannsins þannig að laun
hans taka mið af lægri laununum.
Með þessari breytingu færi að
skipta máli fyrir samninganefndina
og formanninn að lægstu laun hækk-
uðu verulega og ekki skiptir það
minna máli fyrir þá sem hafa lægstu
launin að vita af því að þeirra laun
stjórna því hve mikið verkalýðsfélag
þeirra greiðir þeim sem semja fyrir
þá.
Ég mæli með að verkalýðsforystan
líti í eigin barm og hætti að barma sér
yfir lágum launum félagsmanna nema
þeir taki sér laun sem eru tengd
lægstu launum þjóðfélagsins.
Ég er reyndar þeirrar skoðunar að
laun forystumanna í verkalýðsfélög-
um séu allt of há.
Það er eitthvað bogið við að for-
maður verkalýðsfélags sé gjörsam-
lega hafinn yfir það hvernig það er að
lifa af þeim launum sem þeir eru að
semja um.
SIGURÐUR F. SIGURÐARSON,
Tjarnarlöndum 13,
Egilsstöðum.
Kjarasamningar
Frá Sigurði F. Sigurðarsyni