Morgunblaðið - 22.01.2004, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2004 55
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert viðkvæm/ur og til-
finningarík/ur en býrð líka
yfir krafti og framtakssemi.
Á komandi ári verða nán-
ustu sambönd þín í brenni-
depli.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur innri þörf fyrir að
hjálpa öðrum. Þetta á bæði við
um þína nánustu og bláókunn-
ugt fólk.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Samræður við einhvern þér
eldri og reyndari geta reynst
gagnlegar í dag. Það er þó
einnig hugsanlegt að þú munir
gefa einhverjum þér yngri góð
ráð.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur raunhæfar hug-
myndir um það hvernig þú
getur gert umhverfi þitt meira
aðlaðandi. Umbæturnar munu
bæði koma sjálfri/sjálfum þér
og öðrum til góða.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þetta er góður dagur til lær-
dóms og rannsóknarvinnu. Þú
ert tilbúin/n til að leggja þig
fram til þess að læra það sem
þú vilt læra.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert meðvituð/meðvitaður
um það hvernig lítið framlag
getur skipt sköpum fyrir ein-
hvern sem býr við lakari kjör.
Þú vilt leita leiða til að hjálpa
öðrum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Samræður við vin þinn geta
komið þér að gagni í dag. Það
getur oft verið gott að fá álit
annarra þótt ákvörðunin sé
eftir sem áður þín.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er hugsanlegt að þú finnir
lausn á vandamáli með því að
ræða það við vinnufélaga þína.
Fólk er samvinnufúst og tilbú-
ið til að leita sameiginlegra
lausna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú gætir hafið nýtt ástarsam-
band í dag. Þau sambönd sem
stofnað er til í dag verða að
öllum líkundum einföld, traust
og skynsamleg.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert varkár í peningamál-
unum í dag. Þú vilt vera viss
um að þú fáir sem mest fyrir
peninginn og munt því ekki
fjárfesta í neinum íburði.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú átt erfitt með að ná sam-
komulagi við þína nánustu í
dag. Það er einhver tor-
tryggni í loftinu. Hafðu það í
huga og reyndu að bíða betri
tíma.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Einhver gæti sagt eitthvað í
dag sem kemur við við-
kvæman blett hjá þér. Reyndu
að ýta þessu frá þér. Það ligg-
ur einhver neikvæðni í loftinu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu það ekki draga úr þér
kjart þótt einhver þér eldri og
reyndari reyni að telja þig of-
an af því sem þú ætlar þér.
Stundum tekst fólki að gera
hluti af því það veit hreinlega
ekki að þeir eru „ógerlegir“.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HAFIÐ OG FJALLIÐ
Þungt gnæfir fjallið yfir okkur bert og grátt,
til fangbragða ögra risaarmar hafsins,
hvert má þá halda?
Við kögursveinar göngum á reka milli myrkra,
ef okkur bærist spýta frá suðrænum löndum,
stundum skolast á land brak úr skipum,
sem brotnað hafa í spón eða sokkið í djúpin,
nafnlausir liggja erlendir sjómenn í garði okkar.
Kirkja er okkur ströndin og hafið og fjallið,
guðspjall dagsins vanmáttur mannsins
í lífi og dauða.
Jón úr Vör.
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
75 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 22.
janúar, er sjötíu og fimm
ára Birgir Guðmundsson.
Hann dvelur ásamt eig-
inkonu sinni, Marý Mar-
inósdóttur, á Kanaríeyjum.
Þeim, sem vildu gleðja hann
á þessum tímamótum, er
bent á Foreldra- og vina-
félag Kópavogshælis, kt.
450396-2309, banki 1135-26-
1109.
Á AÐ kalla eða vísa frá?
Það er vandi austurs í
vörninni gegn fjórum
spöðum:
Suður gefur;
AV á hættu.
Norður
♠6
♥K72
♦Á9852
♣G853
Vestur Austur
♠ ♠DG8
♥ ♥8543
♦ ♦K63
♣ ♣D96
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 spaði
Pass 1 grand Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur kemur út með
laufás. Hvað á austur að
gera – kalla eða vísa frá?
Ef útspil makkers er
frá ÁKx má ná spilinu
beint niður með laufi
áfram. En á hinn bóginn
er hættulegt að spila
þrisvar laufi ef suður hef-
ur byrjað með tvíspil.
Þá fríast gosinn og
hugsanlegur tapslagur
sagnhafa í tígli hverfur.
Því kemur vel til greina
að frávísa laufinu og von-
ast eftir tígli frá makker í
öðrum slag. Það er eina
vörnin ef suður á til dæm-
is ÁK sjöunda í spaða, ÁD
í hjarta, Dx í tígli og tvo
hunda í laufi.
Spilið er frá síðustu
umferð Reykjavík-
urmótsins á laugardaginn
og suður reyndist ekki
eiga dæmigerð spil fyrir
stökkinu í fjóra spaða:
Norður
♠6
♥K72
♦Á9852
♣G853
Vestur Austur
♠1054 ♠DG8
♥106 ♥8543
♦DG1074 ♦K63
♣ÁK10 ♣D96
Suður
♠ÁK9732
♥ÁDG9
♦--
♣742
Austur valdi að vísa
laufinu frá og vestur
ákvað að skipta yfir í
hjarta. Einn laufhundur
fór þar með niður í tígulás
og suður vann sitt spil.
Fjórir spaðar voru spil-
aðir við nokkur borð og
unnust alls staðar, svo
vörnin er greinilega erfið.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 c5
4. Rgf3 cxd4 5. exd5 Dxd5
6. Bc4 Dd6 7. O-O Rf6 8.
Rb3 Rc6 9. Rbxd4 Rxd4
10. Rxd4 a6 11. Bb3 Dc7
12. Df3 Bd6 13.
Kh1 Bd7 14. Bg5
Be5 15. Had1 h6
16. Bh4 O-O 17.
Hfe1 Hfd8 18. c3
Hac8 19. h3 Bxd4
20. Hxd4 Bc6 21.
De3 Hxd4 22. Dxd4
Dd8? 23. Bxf6
Dxf6?
Staðan kom upp í
A-flokki Corus
skákhátíðarinnar
sem fram fer nú í
Wijk aan Zee í Hol-
landi. Michael
Adams (2720),
hvítt, nýtti sér gróf mistök
Evgeny Bareevs (2714) í
síðustu tveim leikjum til
hins ýtrasta. 24. Dxf6!
gxf6 25. Hxe6! og svartur
lagði niður vopnin enda
verður hann tveim peðum
undir eftir 25... fxe6 26.
Bxe6+.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 7. júní sl. í Skarðs-
kirkju, Landsveit, af sr.
Halldóru Þorvarðardóttur
prófasti þau Sæmundur
Jónsson verkfræðingur og
Guðlaug Kristinsdóttir
leikskólakennari. Þau eru í
framhaldsnámi í Danmörku.
Skugginn/ Barbara Birgis
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 9. ágúst 2003 í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði af sr. Einari Eyjólfssyni þau Þóra Björg Briem
og Magnús Sveinsson.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira
lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmæl-
istilkynningum og/
eða nafn ábyrgð-
armanns og síma-
númer.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
FRÉTTIR
Þorrinn er hafinn hjá okkur
Úrvals
hefðbundinn
þorramatur
ásamt súrum hval
og skötustöppu
Sendum hvert á land sem er
Gerum tilboð í veisluna ykkar
Verslunin Svalbarði
Framnesvegi 44, Reykjavík, sími 551 2783
Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði, sími 564 2783
Verkun, sími 562 2738
Netfang: svalbardi@isl.is
Laugavegi 20b, sími 552 2515
ÚTSALAN
Í FULLUM GANGI
Ódýrara en nokkru
sinni fyrr
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222.
www.feminin.is
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Tilboðsslárnar komnar upp
Kr. 500, kr. 1.000, kr. 1.500 og kr. 2.000
Stærðir 36—60
FÉLAG eldri borgara í Reykjavík
hefur í vetur haldið fundi til að fræða
fólk um réttindi sín og hvað bíður
fólks. Séreignasjóðir og eign aldr-
aðra í slíkum sjóðum hefur komið
meira inn í umræðuna.
Fræðslunefnd FEB hefur því und-
irbúið fræðslu- og umræðufund nk.
laugardag 24. janúar kl. 13.30 í Ás-
garði Glæsibæ. Þar sem þessi mál
verða rædd bæði kostir og gallar. Þá
kemur til athugunar verndaður
einkasparnaður með mótframlagi,
erfðamál og fleira. Framtak einstak-
lings og tækifæri til að ávaxta sparn-
að og bæta hann.
Framsögumaður verður Þórhild-
ur Stefánsdóttir, sérfræðingur hjá
Íslandsbanka. Hún mun síðan svara
fyrirspurnum. Fundarstjóri verður
Pétur Guðmundsson, stjórnarmaður
hjá FEB.
Eldri borgarar
ræða lífeyrismál