Morgunblaðið - 01.02.2004, Síða 6
ÁVÖXTUN samtryggingarsjóðs
lífeyrissjóðs Framsýnar var 17% á
síðasta ári sem svarar til 13,9%
raunávöxtunar og var árið því eitt
það besta í sögu sjóðsins.
Í árslok 2003 var hrein eign til
greiðslu lífeyris kr. 63.479 millj-
ónir sem er hækkun um 18,9% frá
fyrra ári. Tryggingafræðileg út-
tekt sýnir að eignir umfram heild-
ar skuldbindingar eru 1,5%, þrátt
fyrir mikla niðursveiflu þrjú ár þar
á undan. Heildarávöxtun séreign-
arsjóða var 24,14% sem jafngildir
20,85% raunávöxtun. Hrein eign til
greiðslu lífeyris var 644 milljónir í
árslok og óx um 378 milljónir á
árinu, eða um 141,6%.
Í fréttatilkynningu segir að góð
ávöxtun sjóðsins skýrist fyrst og
fremst af hækkun á gengi hluta-
bréfa. Ávöxtun innlendra hluta-
bréfa sjóðsins var 43,85% og gengi
erlendra hlutabréfa sjóðsins hækk-
aði um 18,74% í íslenskum krónum,
þrátt fyrir að Bandaríkjadalurinn
hafi veikst um 12,4% gagnvart ís-
lensku krónunni.
Segir í tilkynningunni að sjóð-
urinn hafi gripið til varnaraðgerða
vegna gengislækkunar Bandaríkja-
dals sem skiluðu um 713 milljónum
króna. Virkum sjóðfélögum fjölg-
aði um 1,9% á árinu og voru þeir
17.031 í árslok.
Rétthafar séreignardeilda sjóðs-
ins voru í árslok 26.303 talsins og
fjölgaði þeim um 58% á árinu.
Skýringin á betri afkomu séreign-
arsjóðanna umfram samtrygging-
arsjóðinn felst í uppgjörsaðferð á
skuldabréfasafni sjóðanna, segir í
tilkynningu.
Samtryggingarsjóðurinn greiddi
kr. 2.082 milljónir í lífeyri á árinu
2003 en það er 6,7% hækkun milli
ára. Alls fengu 9.282 sjóðfélagar
greiðslur á árinu, eða 3,3% fleiri en
árið á undan. Þá fékk 891 sjóð-
félagi greidda fleiri en eina tegund
lífeyris.
6.164 fengu greiddan ellilífeyri,
2.286 sjóðfélagarörorkulífeyri,
1.088 fengu greiddan makalífeyri
og barnalífeyri fengu 635 einstak-
lingar greiddan.
Góð ávöxtun var einnig á síðasta
ári hjá Lífeyrissjóði sjómanna og
Lífeyrissjóði verzlunarmanna og
er ávöxtunin sú besta í sögu sjóð-
anna frá upphafi. Eignir Lífeyr-
issjóðs sjómanna ávöxtuðust um
18% að nafnverði á síðasta ári sem
jafngildir því að raunávöxtun
sjóðsins á árinu 2003 hafi verið
15,3%.
Ávöxtun var 15,2% hjá Lífeyr-
issjóði verzlunarmanna sem sam-
svarar 12,1% raunávöxtun.
Raunávöxtun lífeyrissjóðsins Framsýnar var 13,9% á síð-
asta ári. Sjóðurinn á nú fyrir skuldbindingum sínum
Með bestu árum sjóðsins
NÝTT hjúkrunarheimili á Vífilsstöðum
tók formlega til starfa í fyrradag og
hefur heilbrigðisráðuneytið samið við
Sjómannadagsráð um að Hrafnista
annist rekstur þess. Gerir samning-
urinn ráð fyrir að níu af hverjum tíu
heimilismönnum komi af öldrunarsviði
Landspítala – háskólasjúkrahúss.
Á hjúkrunarheimilinu er rými fyrir
50 heimilismenn, þar af 28 í eins manns
herbergi. Tvö herbergi eru sérstaklega
ætluð hjónum. Aðstaða verður einnig
fyrir endurhæfingu, hárgreiðslu- og
fótsnyrtistofu. Í tilkynningu frá Sjó-
mannadagsráði og Hrafnistu segir að
allur búnaður innandyra sé nýr og að
um 200 manns hafi unnið að því að end-
urbæta þennan sögufræga spítala og
færa hann í nútímalegt horf.
Á sjöunda hundrað í
umsjá Hrafnistu
Sjómannadagsráð á nú tvö Hrafn-
istuheimili, í Reykjavík og Hafnarfirði,
ásamt því að reka hjúkrunarheimili í
Víðinesi. Með tilkomu hjúkrunarheim-
ilis á Vífilsstöðum verða hátt á sjöunda
hundrað manns í umsjá Hrafnistu.
Hjúkrunarstjóri á Vífilsstöðum er
Ingibjörg Tómasdóttir og er gert ráð
fyrir að þar starfi 70 manns í 53 stöðu-
gildum.
Hjúkrunarheimili á Vífilsstöðum tekið í notkun
Morgunblaðið/Ásdís
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra, Ingibjörg Tómasdóttir, hjúkr-
unarstjóri, Margrét Ólafsdóttir Hjartar, fyrsti heimilismaðurinn á Víf-
ilsstöðum, og Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannadagsráðs,
klipptu á borða við opnun hjúkrunarheimilisins í gær.
Rými fyrir 50 heimilismenn
JÚLÍUS J. Steingrímsson, velgerð-
armaður Skógræktarfélags Selfoss,
sem lést þann 9. nóvember, hefur
ánafnað félaginu eignir sínar að verð-
mæti tæplega 20 milljónir króna. Þar
fyrir utan hafði Júlíus fyrir nokkrum
árum fært félaginu að gjöf um eina
milljón króna.
Skapar skilyrði fyrir
stóraukið starf
Í tilkynningu Skógræktarfélags
Selfoss segir að ljóst sé að þetta stór-
kostlega framlag Júlíusar til félagsins
muni algjörlega breyta rekstrarum-
hverfi þess um ókomna framtíð og
skapa skilyrði fyrir stóraukið starf í
félaginu. Félagið hafi notið krafta,
velgjörða og hugsjóna Júlíusar um
árabil, sérstaklega við uppbyggingu á
svæði félagsins í Hellisskógi við Sel-
foss. Júlíus hafi verið hugsjónamaður
og mikill áhugamaður um trjárækt og
Skógræktarfélag Selfoss kunni hon-
um innilegustu þakkir fyrir ötult og
óeigingjarnt starf og stuðning við fé-
lagið. Framlag hans muni verða fé-
laginu máttarstólpi um ókomna tíð og
minning hans muni lifa í skóginum í
Hellismýri.
Gaf Skógræktarfélagi
Selfoss 20 milljónir
UM 650 grömm af efni sem tal-
ið er amfetamín fundust við
húsleit í íbúðarhúsnæði í
Keflavík á fimmtudag.
Lögreglan í Keflavík gerði
húsleitina í samvinnu við lög-
regluna á Keflavíkurflugvelli.
Þrjár manneskjur voru í hús-
inu og voru þær færðar í
fangageymslu á
lögreglustöðinni í Keflavík
vegna rannsóknar málsins.
Fundu 650
grömm af
amfetamín
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
!
" #
$ ! ! "## $
$#
$
%# ##&
# # '!
!
(! $ #
)## #
*
-
'
../
+ , ,
-
*. // 0121
3*. // 02
' '4
% &
!
$ "
" ( 01
Leikarar í leikhópnum Perlunni sitja í stólaröð yfir þveran æf-ingasalinn í Borgarleikhúsinu. Sviðsmennirnir ná í stól handablaðamanni og setja hann framan við enda raðarinnar, þann-ig að hann snýr að leikurunum.
– Auðvitað, þá getur hann horft á okkur, segir rauðhærð stúlka. Hún
segir sviðsmanninum og kærastanum sínum að fara úr þykkri peysunni,
svo hann sé sæmilega til fara, og sjálf dregur hún sokkana upp að hné.
– Jæja, félagar. Við ætlum að rifja upp Mídas konung, segir braut-
ryðjandinn Sigga Eyþórs, sem hefur leikstýrt hópnum frá upphafi.
Á augabragði standa allir upp og fara í bakherbergið. Sviðsmaðurinn
bregður sér í hlutverk varðmanns og þrammar um gólfið með tilþrifum.
Fyrst kemur kóngurinn Mídas inn á sviðið, sem hugsar ekki um annað
en gull. Ekkert skiptir máli nema gull.
Framsetningin er töfrum líkust í ævintýrinu. Ein-
lægnin er svo mikil hjá leikurunum. Mídas áttar sig á því
að margt skiptir meira máli í lífinu en gull. Og það hefur
aldrei þurft að segja þessum leikurum það. Þetta er ekki
fólkið sem eltist við gullið í þjóðfélagi aurasálnanna.
Næst sýna þau leikritið Ef þú bara giftist. Rauðhærða
stúlkan stendur á sviðinu. Hún segir við kærastann:
– Elskan.
– Já, segir hann og fer baksviðs.
Svo byrjar performansinn og hún plokkar blöðin af gleymmérei. Þar
til hún hættir, enda eru blöðin búin af ímyndaða blóminu og ekkert ból-
ar á kærastanum. Hún horfir undrandi út í salinn og segir:
– Ég skil þetta ekki, elskan mín.
Höfuðið á honum birtist. Hann hafði gleymt sér frammi og þau byrja
upp á nýtt.
– Hann elskar mig, hann elskar mig ekki, hann elskar mig, hann elsk-
ar mig ekki!
Hann kemur fram til sinnar heittelskuðu og það er yndislegt að horfa
á þau dansa. Í öllum leikritunum er það tónlistin sem er aflvaki atburða-
rásarinnar á sviðinu. Þau svífa létt um salinn eins og nótur úr fiðlu; lifa
sig ekki inn í hlutverkin heldur eru. Í ástaratriðum er engu líkara en
þau strjúki hvort öðru með augnaráðinu líkt og fiðlubogi streng.
Þrátt fyrir að engir séu búningarnir eða leikmunirnir, þá gætir alls
litrófs náttúrunnar í verkum leikhópsins, blóm að vaxa, fuglar að fljúga,
feimin börn að hvísla út í flöktandi ljósið. Leikrit eftir leikrit er sett upp
á æfingunni. Þó að öll séu frekar stutt, þá hlýtur þetta samt að taka á.
– Eruð þið ekki þreytt, spyr blaðamaður.
– Jú, þetta er alveg rosalegt. Ég er alveg uppgefin þegar ég kem
heim, segir sú rauðhærða.
Æfingarnar eru heimur út af fyrir sig. Það er fylgst með þegar Lára
danshöfundur kemur, því hún á von á barni og leikararnir „fá að finna“.
– Ég líka, segir ein stúlkan og ljómar.
Önnur tekur utan um mittið á Siggu Eyþórs og segir:
– Spikið mitt.
Sigga Eyþórs skellihlær og segir við blaðamann:
– Þú mátt ekki fara með þetta í blaðið!
Í umræðum milli sýninga er vaðið úr einu í annað. Sigfús segist hafa
verið í hópnum í 20 ár. Hann er að verða fertugur og lýsir yfir að Síð-
asta blómið sé uppáhaldssýningin sín. Hann vilji fá sýninguna í afmæl-
isgjöf. Sigrún segir að sér þyki svo vænt um sólarlagið sem hún leikur.
Blaðamaður viðurkennir að hann hafi aldrei séð verkið, sem verður til
að leikararnir hlaupa upp á svið. Upphafsatriðið er orrusta. Árásarliðið
er með puttana á lofti og hinn hópurinn ber hönd fyrir höfuð sér.
– Þú átt að vera hrædd, kallar Sigga Eyþórs á eina leikkonuna. Það á
að fara að skjóta þig.
Leikkonan grúfir andlitið í höndum sér. Örvæntingin leynir sér ekki;
innlifunin gæti ekki verið meiri. Árásarliðið lifir sig líka inn í verkið.
Eitt sinn mætti Garðar aukinheldur með skammbyssu. Honum fannst
hálfgert frat að vera bara með puttann út í loftið. Samt er stríð óskap-
lega fjarlægt leikurunum. Það þarf ekkert til að þau fari að brosa út að
eyrum, – bara að eitt lítið blóm springi út. Aðrir eiga upptökin að stríði.
Skyndilega stendur ein stúlkan upp, og arkar eftir endilangri röð
leikaranna að blaðamanni. Hún sveiflar til hendinni og segir: Ssssigga.
Alveg eins og töffararnir segja: „Ssssa!“ Svona lærði hún af Siggu
Eyþórs að segja ess.
Í lok æfingarinnar berst talið að kvikmyndinni 101 Reykjavík.
– Var ekki Hilmir Snær í henni, spyr Sigga Eyþórs.
– Hann er það enn, svarar sviðsmaðurinn.
Morgunblaðið/Þorkell
Boða kærleika
SKISSA
Pétur Blön-
dal kynntist
leikhópnum
Perlunni