Morgunblaðið - 01.02.2004, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Guðjón var að mestu at-vinnulaus í um það bileitt ár, eftir að hannmissti knattspyrnu-stjórastarfið hjá
Stoke City vorið 2002, og greip því
tækifærið fegins hendi þegar hon-
um stóð til boða sama starf hjá
Barnsley síðastliðið sumar. Félagið
var nálægt því að falla niður í 3.
deild um vorið, en Guðjón hefur
náð að rétta skútuna við og nú –
rúmum sex mánuðum eftir að hann
tók við stjórninni – er Barnsley í
toppbaráttu 2. deildar og virðist
eiga möguleika á að komast í úr-
slitakeppni um sæti í 1. deild næsta
vetur.
Það er geysilega mikið að gera
hjá Skagamanninum, en starfið er
jafnframt afar skemmtilegt, segir
hann.
Farsíminn og bíllinn leika mik-
ilvæg hlutverk í lífi Guðjóns þessa
dagana, rétt eins og boltinn. Á
meðan Morgunblaðið staldraði við
var hann mikið í símanum – mest
umboðsmenn leikmanna á hinum
enda línunnar – og hann hefur ekið
rúmlega 20.000 kílómetra síðustu
þrjá mánuði!
Guðjón býr enn í bænum Stone,
steinsnar frá Stoke, ásamt eigin-
konunni Hrönn og tveimur sonum
þeirra, Atla 15 ára og Tjörva, sem
er 13. Flesta daga ekur hann á milli
heimilis og vinnu, er um það bil
eina og hálfa klukkustund norður
eftir til Barnsley, sem er skammt
norðan við Manchester, en gistir
reyndar stundum á hóteli í Barnsl-
ey þegar horfa þarf á leik að kvöldi
og stjórna æfingu strax að morgni.
Samningar 17 leikmanna Barnsl-
ey renna út í vor og stjórinn hyggst
gera talsverðar breytingar á hópn-
um. Hefur í vetur fylgst með fjölda
leikmanna í leikjum 2. deildar, og
með varaliðum úrvals- og 1. deild-
arfélaga. „Ég er byggja upp gagna-
grunn með þessu og það skiptir
líka miklu máli að komast í kynni
við aðra knattspyrnustjóra. Suma
þekkti ég frá því ég var með lands-
liðið en hef kynnst mörgum nýjum.
Svo þekkja þeir aðra sem ég kemst
þannig í tengsl við. Ef mig vantar
upplýsingar er gott að geta hringt í
þá. Og menn eru heiðarlegir; þótt
við keppum grimmt er góður andi
meðal þeirra sem starfa innan fót-
boltaheimsins.
Alex Ferguson, stjóri Manchest-
er United, hefur til dæmis mikið að
gera en hann er samt einn þeirra
sem svara alltaf skilaboðum. Gefur
sér tíma til að hringja ef maður
þarf að ná í hann. Og Ferguson veit
allt um leikmannamarkaðinn hér.
Allt!“
Barnsley var í miklum fjárhags-
vandræðum síðasta árið og var í
greiðslustöðvun allt þar til 12. des-
ember, þannig að fram að þeim
tíma voru hendur stjórnenda fé-
lagsins verulega bundnar; það gat
t.d. ekki keypt nýja leikmenn.
Fékk reyndar eina fimm að láni og
nokkrir fóru, en annars hefur Guð-
jón notað sama mannskap og var
með liðinu á síðustu leiktíð.
Nýt fulls trausts
Eigendaskipti urðu á Barnsley í
byrjun síðasta sumars og var Guð-
jón þá ráðinn knattspyrnustjóri –
Manager, eins og það er kallað í
Englandi.
Félagið var síðan aftur selt í
byrjun september, þá eignaðist það
Peter nokkur Ridsdale, sem áður
var stjórnarformaður nágrannal-
iðsins Leeds United, en auðmaður í
Barnsleyborg eignaðist hins vegar
svæði félagsins og mannvirki þess.
Ridsdale er núverandi stjórnarfor-
maður. Með honum starfar náið
David Walker, fyrrverandi íþrótta-
fréttamaður, sem einnig var með
Ridsdale hjá Leeds.
„Ridsdale er bæði hataður og
dáður í Englandi, en ég hef ekkert
nema gott að segja af samstarfinu
við hann,“ sagði Guðjón við Morg-
unblaðið. „Það kom mér reyndar á
óvart að ég skyldi halda starfinu
eftir að hann eignaðist félagið en
staðan var þó þannig að það hefði
verið glórulaust að láta mig fara.
Hér voru miklar sögusagnir í gangi
um að ég yrði látinn fara eftir að
Ridsdale og hans menn tækju við
en ég var fullvissaður um það strax
að ég þyrfti ekki að hafa neinar
áhyggjur. Þeir sögðust hafa fylgst
með liðinu og væru ánægðir með
hvernig ég hefði „tekið til“ og hvað
hefði breyst, og þegar þeir gætu
farið að starfa af alvöru ætti ég að
setja fram óskir um ferðatilhögun,
aðbúnað, aðstöðu, leikmannamál og
ýmislegt fleira. Það var alveg ný
reynsla fyrir mig og annað vinnu-
umhverfi en ég var vanur hjá
Stoke. Ég er því afslappaður í
starfi; mér líður vel, og það er mik-
ilvægt. Munurinn hér og í Stoke er
sá að hér er ekki efast um það sem
ég hef fram að færa. Ég nýt fulls
trausts.“
Ég spyr hvort sú hafi ekki verið
raunin í Stoke.
„Nei, ég fann fljótlega fyrir því
að svo var ekki. Þeim, sem þekkja
til þeirra manna sem ég vann með
Afslappaður í starfi
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Guðjón Þórðarson tók í sumar við stjórn Barnsley
sem leikur í ensku 2. deildinni í knattspyrnu.
Skapti Hallgrímsson heimsótti Guðjón á Oakwell-
leikvanginn og fylgdist með liðinu í einum leik –
1:1 jafntefli gegn Colchester á útivelli – og komst
að því að íslenski knattspyrnustjórinn skemmtir
sér vel í vinnunni um þessar mundir.
Guðjón Þórðarson ræðir við blaða- og fréttamenn eftir 1-1 jafnteflið við
Colchester á útivelli laugardaginn 10. janúar.