Morgunblaðið - 01.02.2004, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 01.02.2004, Qupperneq 34
LISTIR 34 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Þorgerður Katrín Gunn-arsdóttir mennta-málaráðherra opnaði áföstudag sýninguna Berl- in North í nútímalistasafninu Hamburger Bahnhof í Berlín. Að sögn Auðar Eddu Jökulsdóttur, sendiráðunauts í íslenska sendi- ráðinu í Berlín, er Berlin North stærsta samnorræna samtíma- listasýning sem haldin hefur verið í Berlín. „Á sýningunni má sjá um 26 verk sem rúmlega 40 norrænir listamenn koma að. Allir eiga lista- mennirnir það sammerkt að tengj- ast Berlín með einum eða öðrum hætti, hafa ýmist verið þar í skóla, búa þar og starfa eða heimsækja borgina með reglulegu millibili og setja þannig svip sinn á listalíf hennar. Þannig má segja að sýn- ingin sé nokkurs konar „óður“ listamannanna til borgarinnar,“ segir Auður Edda. Sýningarstjóri er Dr. Gabriele Knapstein og stendur sýningin fram til 12. apríl nk. Frá Íslandi var boðið til þátttöku þremur að- ilum, þau eru Ósk Vilhjálmsdóttir, Egill Sæbjörnsson og Gjörn- ingaklúbburinn/ The Icelandic Love Corporation sem skipaður er Eirúnu Sigurðardóttur, Jóní Jóns- dóttur og Sigrúnu Hrólfsdóttur. Gestaþátttakandi í opnunargjörn- ingi hópsins er Ragnar Kjart- ansson. Agli Sæbjörnssyni var svo boðið að taka með sér unga ís- lenska listamenn sem eru þau Sig- urður Guðjónsson, Ásdís Sif Gunn- arsdóttir, Elín Hansdóttir og Sara Riel. Að sögn Auðar Eddu hafa sendiráð Norðurlandanna í Berlín verið í samstarfi við aðstandendur Hamburger Bahnhof við fram- kvæmdirnar á sýningunni síðustu þrjú árin. Í okkar sendiráði segist hún nýtekin við verkefninu úr hendi Elínar Flygenring sendifull- trúa. „Það þurfa auðvitað margir að koma að undirbúningi og fjáröflun svona stórrar sýningar til að gera þetta kleift. Á Norðurlöndunum hafa ýmist utanríkis- eða mennta- málaráðuneytin lagt sýningunni lið, í tilfelli Íslands veitir mennta- málaráðuneytið veglegan styrk til verkefnisins. Auk þessa hafa t.d. Norræna ráðherranefndin, Nor- ræni menningarsjóðurinn og margir aðrir sjóðir, þýskir og nor- rænir, styrkt sýninguna.“ Aðspurð um Hamburger Bahn- hof-safnið segir Auður Edda það einstaklega glæsilegt og sérstakt. „Safnið er staðsett á mörkum aust- urs og vesturs, steinsnar frá múrn- um. Það var upphaflega byggt sem lestarstöð árið 1846 en varð síðan um tíma upp úr 1900 að samgöngu- safni. Eftir síðari heimsstyrjöldina komst það aldrei í gagnið á ný vegna fjárskorts. Eftir samein- inguna var því fundið nýtt hlut- verk og tekið í notkun sem nútíma- listasafn árið 1997. Safnið er án efa eitt glæsilegasta samtímalistasafn Þýskalands og á mjög verðmæt listaverk, sem dæmi má nefna að auðjöfurinn Ernst Max gaf safninu einkasafn sitt þar sem er að finna verk heimsfrægra listamanna eins og t.d. Dieter Roth og Joseph Beuys. Safn sem eftir er tekið í listheiminum Við opnunina var Gjörninga- klúbburinn, í samstarfi við Ragnar Kjartansson, með opnunargjörn- ing. „Í stuttu máli má segja að gjörningurinn gangi út á að reyna að ná sambandi við fortíðina og at- huga hvort hún geti ef til vill kom- ið okkur að einhverju gagni í nú- tíðinni. Við förum t.d. í andaglas og fremjum mjög áhættusöm at- riði, bæði andlega og líkamlega,“ sagði Eirún Sigurðardóttir þegar hún var beðin að lýsa gjörn- ingnum. „Það má í raun túlka gjörninginn á marga vegu þar sem hann er hlaðinn alls kyns symból- isma.“ Auk opnunargjörningsins verður Gjörningaklúbburinn með teikni- myndina Sympathy og nýja inn- setningu. „Innsetningin er samsett úr þremur verkum sem við vorum líka með á sýningu okkar í Ný- listasafninu sl. haust. Þetta eru verk sem hafa verið að þróast, enda breytast verk alltaf milli sýn- inga og lifa þannig nánast sjálf- stæðu lífi.“ Aðspurð hvernig þátt- takan leggist í hópinn segir Eirún að þeim lítist mjög vel á að sýna í Hamburger Bahnhof þar sem þetta sé safn sem tekið er eftir í listaheiminum. Egill Sæbjörnsson hefur í sam- vinnu við Sigurð Guðjónsson, Ás- dísi Sif Gunnarsdóttur, Elínu Hansdóttur og Söru Riel, unnið innsetningu sem nefnist Brjálrl. „Þegar Gabriele Knapstein sýning- arstjóri leitaði til mín og bauð mér að taka þátt í sýningunni spurði hún mig hvort ég hefði áhuga á að setja saman hóp listamanna sem Berlínarborg suðupottur lista Sýningin Berlin North var opnuð í samtíma- listasafninu Hamburger Bahnhof á föstudag og er þetta stærsta samnorræna samtíma- listasýningin sem haldin hefur verið í Berlínarborg. Verk á sýningunni í samtímalistasafninu Hamburger Bahnhof. Ljósmynd/Ingólfur Guðmundsson Berlin North mun vera stærsta samnorræna samtímalistasýning sem hald- in hefur verið í Berlín. Þar má sjá um 26 verk eftir rúmlega 40 listamenn. Skírnir, hausthefti 2003, er nýlega kominn út í ritstjórn Svavars Hrafns Svavarssonar og Sveins Yngva Eg- ilssonar. Í ritinu er efni af ýmsum toga, allt frá rit- gerðum um fræðileg efni til ljóða og umfjöll- unar um mynd- list. Flestar grein- ar þessa heftis fjalla á einn eða annan hátt um stöðugar tilraunir mannsins til að finna eða skapa samhengi á milli fortíðar og samtíðar. Jón Ma. Ás- geirsson skrifar um Lúkasarguð- spjall, hvernig höfundurinn ljær efni sínu sögulegt samhengi, en Sig- urjón Árni Eyjólfsson færist í fang að lýsa langvinnri leit manna að hin- um sögulega Jesú. Þriðji guðfræð- ingurinn, Sólveig Anna Bóasdóttir, skrifar um kristna siðfræði hjóna- bandsins og ofbeldi gegn konum. Vilhjálmur Árnason fjallar um sið- fræði og rökgreiningu. Grein Ró- berts H. Haraldssonar nefnist End- urreisn mikillætis og stórmennskan. Árni Bergmann fjallar um stöðu rússneskra bók- mennta. Einar Már Jónsson ræðir skilgreiningu Ernests Renan á þjóð- erninu og gagnrýnir m.a. notkun ís- lenskra fræðimanna á henni. Annar sagnfræðingur, Loftur Guttormsson, svarar gagnrýni Sigurðar Gylfa Magnússonar á söguritun sína. Myndlistarmaður Skírnis, Auður Ólafsdóttir listfræðingur, skrifar um verk Ólafar Nordal. Álfrún Gunn- laugsdóttir ræðir um doktorsrit Birnu Bjarnadóttur, Holdið hemur andann, en Dagný Kristjánsdóttir fjallar um lesbískar bókmenntir. Skáld Skírnis er Klopstock sem lést fyrir réttum tveimur öldum. Hannes Pétursson fylgir ljóðaþýðingu sinni úr hlaði með formálsorðum. Útgefandi er Hið íslenska bók- menntafélag. Skírnir er 525 síður. Rit
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.